Morgunblaðið - 27.06.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000 B 3
Ósigraðir
nýliðar Fylkis
á toppnum
Ólafur Öm
var ósáttur
GRINDVÍKINGAR sóttu hart að Fylkismarkinu allan leikinn
og Ólafur Örn Bjarnason var að vonum ósáttur með upp-
skeruna. „Þetta var víst einn af þessum dögum þar sem ekkert
dettur inn hjá okkur. Fylkisliðið var að skora mörk sem koma
kannski einu sinni á sumri á meðan við erum að skapa okkur
fullt af færum en náum ekki að nýta þau. í seinni hálfleiknum
bökkuðu þeir mikið og við hefðum átt að geta gert betur en
raun bar vitni. Við fórum að reyna langa bolta á Sinisa Kekic
en það hentar honum betur að fá boltann í fæturna eins og
hann sýndi margoft í leiknum."
ÞEIR báru höfuðið hátt, þessir
í svörtu og appelsínugulu úlp-
unum þegar þeiryfirgáfu Fylk-
isvöll og héldu til síns heima í
Árbænum laust fyrir klukkan
tíu í gærkvöld. Stuðningsmenn
Fylkis hafa gengið í gegnum
kvöl og pínu þessi þrjú tímabil
sem liðið þeirra hefur áður
leikið í efstu deild íslands-
mótsins í knattspyrnu. Liðið
hefur ávallt fallið að hausti,
sama hversu góðu það hefur
lofað. En nú eru aðrir tímar í
Árbænum. Fylkisstrákarnir
stóðust nýtt próf í gærkvöld -
þeir áttu þess kost að komast
á topp deildarinnar í fyrsta
skipti og það gerðu þeir með
því að leggja Grindavík, annað
félag á nýjum slóðum, 2:0.
Þetta var hreint uppgjör
tveggja taplausra liða um hvort
þeirra myndi velta meisturum
KR úr efsta sætinu og það kom
í hlut nýliðanna úr Árbæ.
Fylkir er kominn með 16 stig eft-
-ir átta umferðir en í þessi þrjú
skipti sem liðið hefur fallið hefur
það fengið 17, 18 og
víðlr 19 stig. Falldraugur-
Sigurðsson inn er að kveðja -
skrifar ekki það að þetta
Fylkislið þurfi að
óttast hann. Árbæingamir virðast
eiga fullt erindi í baráttuna í efri
hluta deildarinnar og þó fullsnemmt
sé að kveða upp úr með að þeir
verði í slagnum um meistaratitilinn
þá er það einföld staðreynd að í dag
eru þeir efstir - og eiga að njóta
þess.
Grindvíkingar gátu komist í sömu
stöðu og um þá eins og Fylkismenn
má segja að þeir eru á nýjum slóð-
um og virðast eiga fyllilega heima
þar. Liðin tvö sýndu í gærkvöld að
þau eru á þessari stundu í hópi
sterkustu liða landsins, hvort sem
þau svo hafa úthald til að halda sér
þar. Bæði eru með marga vel spil-
andi leikmenn í sínum röðum og fær
um að leika góða og árangursríka
knattspymu. Frammistaða beggja
er velkomið krydd í tímabil sem að
öðm leyti hefur einkennst af von-
brigðum með spilamennsku „stóm“
liðanna.
Eftir jafnar upphafsmínútur vom
það Fylkismenn sem náðu undirtök-
unum. Helgi Valur Daníelsson skor-
aði fallegt mark eftir 11 mínútur og
Kristinn Tómasson enn glæsilegra
mark á 25. mínútu. Tveimur mínút-
um áður höfðu Fylkismenn fengið
vítaspyrnu þegar Sævar Þór Gísla-
son var felldur en Albert Sævarsson
varði lausa spyrnu Sverris Sverris-
sonar. Albert varði líka frá Gylfa
Einarssyni sem komst í dauðafæri
einn gegn honum þegar staðan var
1:0. Grindvíkingar fengu líka sín
færi í líflegum fyrri hálfleik, Goran
Lukic átti tvö hættuleg skot á
íyrsta korterinu og Ólafur Örn
Bjarnason átti hörkuskalla í stöng
sjö mínútum fyrir leikhlé.
Fylkismenn vom sterkari aðilinn
í fyrri hálfleik en frá fyrstu mínútu í
þeim síðari vom það Grindvíkingar
sem réðu ferðinni og þrýstu Fylkis-
mönnum aftur undir eigin vítateig
langtímum saman. Ólafur Öm
Bjarnason gaf tóninn strax í byrjun
með hörkuskoti rétt fram hjá.
Kjartan Sturluson varði síðan í tví-
gang á glæsilegan hátt frá besta
útispilara vallarins, Sinisa Kekic.
Pressa Grindavíkur var það þung að
hún bauð upp á hættulegar skyndi-
sóknir Fylkismanna og þeir vom
nálægt því að skora þriðja markið
sex mínútum fyrir leikslok þegar
Albert varði frá Gylfa úr góðu færi.
Rétt á eftir lék Kekic vamarmenn
Fylkis grátt rétt eina ferðina og
lagði upp dauðafæri fyrir Óla Stef-
án Flóventsson sem skaut hátt yfir.
Stóðumst
prófraunina
Bjarni Jóhannsson þjálfari
Fylkismanna var að vonum
kátur eftir sigur á heimavelli. „Ég
er mjög ánægður
Eftir Sigurð raeð leik rainna
Etvar manna hér í kvöld.
Þórótfsson yið lékum sérlega
vel í fyrri hálfleik og skoruðum
stórglæsileg mörk en bökkuðum of
mikið er líða tók á leikinn. Það var
ekki ætlunin að hleypa Grindvík-
ingum svona mikið inn í leikinn en
við skiluðum varnarhlutverkum
okkar með sóma. Það er nýtt fyrir
strákana að geta komist á topp
deildarinnar með sigri í svona
hörkuleik og þeir stóðust svo sann-
arlega prófraunina.
Nú koma bæði mörk liðsins eftir
föst leikatriði. Leggið þið meiri
áherslu á að skora úr slíkum fær-
um en önnur lið gera?
Nei, það held ég ekki, en þessi
hluti leiksins hefur óneitanlega
nýst okkur vel og við höfum skorað
6 mörk úr föstum leikatriðum til
þessa. Við eigum góða skotmenn
sem geta gert góða hluti úr slíkum
atriðum og við nýtum okkur það.
Er Fylkisliðið að koma sjálfum
þér á óvart?
Að mínu mati erum við búnir að
spila vonum framar. Við erum með
tiltölulega ungt lið og ef við göng-
um út frá stöðunni eins og hún er í
dag þá finnst mér við hafa haldið
bærilega á spilunum og haldið
haus eins og sagt er.“
Morgunblaðið/Arnaldur
Fylkismenn halda áfram að fagna. Hér fagna þeir marki sem
Helgi V. Daníelsson skoraði, síðan fögnuðu þeir sigri á Grinda-
vík, 2:0, og að vera komnir í efsta sæti - upp fyrir meistara KR.
Leikskipulag: 4-3-3
Kjartan Sturluson mm
Helgi Valur Daníelsson Jþ
Ómar Valdimarsson JB
Þórhallur Dan Jóhannss. JB
Gunnar Þór Pétursson
Hrafnkell Helgason
Sverrir Sverrisson
Gylfi Einarsson ______m
Sævar Þór Gíslason m
(Sturla Guðlaugsson 82.)
Kristinn Tómasson
(Finnur Kolbeinsson 75.)
Theodór Óskarsson
(Ólafur Stígsson 87.)
1:0 (11.) Gunnar Þór Pétursson tók hornspyrnu frá hægri og kom vörn
Grindavíkur í opna skjöldu með því að senda boltann út á víta-
teigshornið nær þar sem Helgi Valur Daníelsson kom á ferðinni
og skoraði með þrumuskoti í markhornið nær.
2:0 (25.) Fylkir fékk aukaspyrnu 30 metra frá marki Grindavíkur. Gunnar Þór
ýtti boltanum til hliðar á Kristin Tómasson sem skoraði með
stórglæsilegu hörkuskoti efst í markhornið hægra megin.
Gul spjöld: Zoran Djuric, Grindavík, (24.) fyrir brot. Paul McShane,
Grindavík, (88.), fyrir mótmæli.
Rauð spjöld: Engin.
fslandsmótið í knattspyrnu
Landssímadeildin, 8. umf.
Fylkisvöllur
mánudaginn 26. júní 2000
Aðstæður:
Suðaustan gola, skýjað,
11 stiga hiti.
Völlurinn þokkalegur.
Áhorfendur: 1.022.
Dómari:
Pjetur Sigurðsson
Fram, 5.
Aðstoðardómarar:
Erlendur Eiríksson og
Guðmundur Jónsson.
Skot á mark: 10-12
Hornspyrnur: 2-7
Rangstöður: 4-6
Leikskipulag: 4-4-2
Albert Sævarsson mm
Ray Anthony Jðnsson
Guðjón Ásmundsson JIS
Zoran Djuric
Óli Stefán Flóventsson
Paul McShane ____________m
Ólafur Örn Bjarnason ?H
Goran Lukic_________
Sverrir Þór Sverrisson______
(Róbert Sigurðsson 68.)
Scott Ramsey_____________ JB
Sinisa Kekic JHJH