Morgunblaðið - 27.06.2000, Page 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Markaveisla hjá
Leiftursmönnum
LEIFTURSMENN frá Ólafsfirði náðu þeim frábæra árangri að slá
Luzern frá Sviss út í 1. umferð Intertoto-keppninnar í knattspyrnu á
laugardaginn með því að gera jafntefli, 4:4, í síðari leik liðanna sem
fram fór í Luzern. Það var Örlygur Helgason sem kom Ólafs-
firðingum áfram með jöfnunarmarki tveimur mínútum fyrir leikslok.
Fyrri leikurinn á Ólafsfirði endaði 2:2 og Leiftur fer því áfram á fleiri
mörkum á útivelli og mætir Sedan frá Frakklandi í 2. umferð.
Eg er uppi í skýjunum með þessi
úrslit, þetta var ótrúlegur leik-
ur og maður uppliíir ekki marga
svona á ferlinum, en
samt var þetta langt
Y!?'r . frá því að vera
skrífar heppmssigur hja
okkur. Við vorum
sterkari aðilinn ef eitthvað var, en
það sem ég tel að hafi gert útslagið
var að okkar lið er mun reyndara en
það svissneska. Þeir gerðu sig seka
um mistök sem við refsuðum þeim
fyrir. Luzem var með mun sterkara
lið en í leiknum á Ólafsfirði því þeir
tefldu fram nokkrum erlendum leik-
mönnum sem ekki spiluðu fyrri leik-
inn þar sem þeir fengu ekki áritun í
tæka tíð. Leikurinn sýnir að við erum
á réttri leið, Leiftur hefur byggt á
vamarleik undanfarin ár en því erum
við að breyta og það tekur tíma og
þolinmæði en mun skila sér að lok-
um,“ sagði Jens Martin Knudsen,
þjálfari og markvörður Leifturs, við
Morgunblaðið eftir heimkomuna.
Leiftur skoraði eina mark íyrri
hálfleiks, þegar sjö mínútur lifðu af
honum, og þar var Páll V. Gíslason að
verki eftir góða sókn og fyrirgjöf frá
vinstri. Á lokamínútu hálfleiksins
fékk heimamaðurinn Thomas Wyss
að líta rauða spjaldið þegar hann
sparkaði í John Petersen, sóknar-
mann Leifturs, sem lá á vellinum.
Tíu leikmenn Luzern komu þó tví-
efldir til síðari hálfleiks og skomðu
þrjú mörk á aðeins sex mínútna
kafla. Þriðja markið kom á 57. mín-
útu með glæsilegu langskoti. Leift-
ursmenn lögðu ekki árar í bát,
breyttu leikaðferð sinni úr 4-4-2 í 3-
4-3 með þeim árangri að þeir jöfnuðu
metin með tveimur mörkum.
Á 65. mínútu fékk Alexandre San-
tos stungusendingu fi-á Sámal Joen-
sen, lék á markvörð Luzern og sendi
á Petersen sem renndi boltanum í
tómt markið. Þegar sjö mínútur voru
til leiksloka lék Hlynur Birgisson á
þrjá leikmenn Luzem og þrumaði
boltanum í netið frá vítateig, 3:3.
Christophe Ohrel virtist hafa
tryggt Luzem sigurinn með marki
fjórum mínútum fyrir leikslok en Ör-
lygur jafnaði
metin á síðustu
stundu - fékk
boltann eftir
stangarskot Al-
exandre Da Silva
og renndi honum
í netið, 4:4.
Eftir að Leift-
ur hafði misst
niður tveggja
marka forskot í
fyrri leiknum á
heimavelli virt-
ust möguleikar
liðsins á að kom-
ast áfram ekki
vera miklir.
Ólafsfirðingar
vom á öðru máli
og í annað skipti
tókst þeim að
skora fjögur
mörk í útileik í
þessari keppni.
Það gerðu þeir
einnig árið 1997
þegar þeir sigr-
uðu OB í Dan-
mörku, 4:3. Ekk-
ert íslenskt félag
hefur unnið það
afrek að skora
fjórum sinnum á
útivelli í hinum
hefðbundnu
Evrópumótum
félagsliða og það hefur aðeins einu
sinni gerst á heimavelli; þegar IA
vann Omonia frá Kýpur 4:0 árið 1975.
Árangur Leifturs þýðir aukið álag
á leikmenn liðsins næstu vikur, því til
viðbótar leikjunum gegn Sedan mun
deildaleikir liðsins færast til og Leift-
ur mun spila mjög þétt á næstunni.
„Þessir leikir koma okkur til góða í
deildakeppninni. Við erum með
breiðan hóp og nýtum alla leikmenn
vel. Helsta hættan eftir leik eins og
þennan er að liðið detti niður í næsta
deildaleik á eftir en það verðum við
að reyna að forðast," sagði Jens
Martin Knudsen.
Fjórir leikir ;
Leifturs á
ellefu dögum
ÓVÆNTUR árangur Leiftursmanna í Inter-
toto-keppninni eykur álagið á þeim á íslands-
mótinu í knattspyrnu. Vegna leikjanna við
Sedan leika þeir ekki í deildarkeppninni fyrr
en 13. júh' og spila þá fjóra leiki á 11 dögum.
Leik þeirra við Fram, sem tilheyrði umferð-
inni í gær, var frestað til 13. júlí og þá hefur
ieiknum við Keflavík í 9. umferð verið frestað
frá 10. til 20. júlí. Að auki leikur Leiftur við
ÍA 16. júlí og við Fylki 23. júlí. Þá hefur leik
Leifturs við Stjörnuna, sem fram átti að fara
næsta fimmtudag, verið frestað fram í ágúst.
Haldi Ólafsfirðingar sigurgöngunni áfram
og slái út lið Sedan þarf væntanlega einnig
að fresta leikjum þeirra við Fram, ÍA og
Fylki. Sá möguleiki er því fyrir hendi að þeir
spili helming leikja sinna á Islandsmótinu í
ágúst og september.
Síðan gætu KR-ingar raskað niðurröðun
íslandsmótsins enn frekar ef þeir leggja
Birkirkara frá Möltu að velli í forkeppni
meistaradeildar Evrópu.
Morgunblaðið/Sverrir
Jens Martin Knudsen, þjálfari og markvörður Leifturs, var
mjög ánægður eftir vel heppnaða ferð til Sviss.
fURO
2000
i “ u vertu meö
EUFhC*i&foOO
Bvröpuk eppnín í knattspymu er i aiiri sinni dýrð á
mam msrjmbUs
Evrópuk&ppnin í knnttspyrnu or i alfri sinni dýrö á
- Leikmenn
• Liðin
• Riðlar
• Leikir
• Úrslit
• Staðan
• Fréttir
• Myndir
L?' >
sr
t»ú getur sigrað með Prlngl&s
í tengslum viö keppnina efna
mbl.is og Pringles
til getraunaleiks á mbl.is.
Taktu þátt! leiknum
og skjóttu á úrslitin.
- ií*& MAh
EVRÓPUKEPPNIN í KNATTSPYRNU A
mbl.is
Leiftur mætir franska
liðinu Sedan
LEIFTUR mætir Sedan frá Frakk-
landi í 2. umferð Intertoto-
keppninnar og fer fyrri leikurinn
fram í Frakklandi næsta laugar-
dagskvöld, 1. júlí, kl. 20 að staðar-
tíma og sá síðari verður á Ólafs-
firði laugardaginn 8. júlí kl. 16.
Takist Leiftur aftur að koma á
óvart og leggja Frakkana að velli
mæta Olafsfírðingar Eyjólfí
Sverrissyni og félögum í Herthu
Berlín í 3. umferðinni en þýska lið-
ið situr hjá í tveimur fyrstu um-
ferðunum.
Sedan kemur frá litlum sam-
nefndum iðnaðarbæ við landa-
mæri Frakklands og Belgíu en þar
búa aðeins 20 þúsund manns.
Þrátt fyrir það er félagið með
nokkra hefð á bakvið sig, varð
bikarmeistari 1956 og 1961 og
komstíbikarúrslitin 1965. Alls
hefur það leikið 18 tímabil í efstu
deild í Frakklandi, en komst þang-
að á ný fyrir sfðasta tímabil í
fyrsta skipti í 25 ár og kom mjög á
óvart með því að enda í 7. sætinu.
Sedan fór beint upp um tvær
deildir á jafnmörgum árum eftir
að hafa fallið úr 2. deild 1995.
Fulltrúi Sedan á EM í Hollandi
og Belgfu var Djoni Novak, miðju-
maður eða varnarmaður frá Sló-
veníu og franska liðið er með þijá
aðra leikmenn sem hafa spilað fyr-
ir hönd þjóða sinnar. Pius N-Diefi,
sóknarmann frá Kamerún, Geir
Frigard, sóknarmann frá Noregi,
og Billal Dziri, miðjumann frá Al-
sír. Þá eru í liðinu varnarmenn frá
Brasiliu og Senegal, sem báðir eru
orðnir franskir ríkisborgarar.
Sól og Sumarliði í Víkinni
ÚlafurBjarki
Ágústsson
skrifar
Vfldngar unnu dýrmætan sigur á
Þrótti í hinni hörðu keppni 1.
deildar. Sumarliði Árnason var
sannarlega á skot-
skónum í þessum
leik og gerði öll
mörk Víkinga i 4:2-
sigri, sem fram fór
við bestu aðstæður í Víkinni á laug-
ardag.
Sigurinn heldur voninni meðal
Víkinga um að þeir blandi sér í
toppbaráttuna. Þróttara virðist hins
vegar bíða erfitt sumar neðan við
miðja deild. Þeir sýndu þó margt
gott í þessum leik og lengi vel virtist
sem þeir myndu alla vega ekki tapa.
Víkingar höfðu það sem til þurfti
og þá fyrst og fremst Sumarliða
markaskorara og traust leikskipu-
lag sem gekk upp að lokum. Um
tíma hrikti reyndar í því eftir að
Lúkas Kostic þurfti að gera breyt-
ingar er Stefán Þórðarson fór
meiddur af leikvelli í fyrri hálfleik.
Þróttarar voru fyrri til að skora
og var Björgvin Takefusa þar að
verki á 11. mínútu, Sumarliði svar-
aði á 18. og 31. mínútu en Björgvin
var ekki hættur og jafnaði á 57.
mínútu. Sumarliði kom Víkingi aft-
ur yfir á 71. mínútu og innsiglaði
sigurinn úr vítaspyrnu á 85. mínútu
eftir að brotið hafði verið á honum
sjálfum.
Lárus Huldarsson og Sigurður
Sighvatsson voru drjúgir í Víkings-
liðinu. Markaskorararnir Björgvin
og Sumarliði voru þó mest áberandi
í leiknum.
Maður leiksins: Sumarliði Árna-
son, Víkingi.