Morgunblaðið - 27.06.2000, Blaðsíða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
< Kluivert
gerði
ekki
| femu
PATRICK Kluivert gerði
þrjú mörk en ekki íjögur
þegar Hollendingar sigr-
» uðu Júgóslava 6:1 í átta
liða úrslitum Evrópu-
keppninnar á sunnudag-
inn. Lengi vel var talið að
kappinn hefði gert fjögur
mörk og UEFA staðfesti
það strax eftir leik, en dró
það síðan til baka í gær.
Kluivert sagði strax eftir
Ieikinn að hann hefði ekki
gert fjögur mörk. „í sann-
leika sagt þá gerði ég ekki
þriðja mark okkar, vamar-
maðurinn var á undan mér
að snerta boltann."
Markið kom þegar hann
og Dejan Govedarica áttust
við í markteignum eftir
fyrirgjöf frá vinstri.
Knattspyrnusamband
Evrópu úrskurðaði þó eftir
leikinn að það hefði verið
Kluivert sem gerði umrætt
mark. Miðað við það var
hann fyrstur til að skora
ijögur mörk í einum og
sama leiknum í úrslita-
keppni EM, þrátt fyrir að
vilja ekki kannast við að
hafa gert þau öll. UEFA sá
þó að sér og úrskurðaði
markið sjálfsmark á mánu-
daginn og þar með skráði
| Kluivert ekki nafn sitt í
sögubækuraar. Eftir
stendur hins vegar að þetta
er í fyrsta sinn sem lið
skorar sex mörk í úrslita-
§ keppni Evrópukeppninnar.
FOLK
■ VUJADIN Boskov, reyndasti
þjálfari EM, viðurkenndi eftir leik-
inn við Hollendinga að hann hefði
gert mistök. „Auðvitað átti ég að
láta einhvern sérstakan fylgja
Bergkamp eftir. Ég gerði það ekki
og hann átti frábæran leik,“ sagði
Boskov.
■ BERGKAMP lék vel og naut
þess að hafa frítt spil og hann átti
stóran þátt í þremur af sex mörk-
um Hollendinga.
■ DRAGAN Stojkovic, miðjumað-
ur hjá júgóslavneska landsliðinu
sagði eftir leikinn við Hollendinga
að trúlega hefði þetta verið síðasti
■ landsleikur sinn, en hann er nú 35
ára gamall.
■ HANN leikur með Nagoya
Grampus Eight í Japan en lék áð-
ur með Marseille í Frakklandi.
Hann sagði sigur Hollands sann-
gjarnan enda hefði liðið leikið frá-
bærlega.
■ JÚGÓSLA VAR léku vel í riðla-
keppninni og fengu fjöldann allan
af gulum og rauðum spjöldum. Á
sunnudaginn fengu þeir ekki eitt
einasta.
■ FRANSKI leikmaðurinn Christ-
ophe Dugarry nefbrotnaði í leikn-
um við Spánveija, en vonast til að
vera tilbúinn gegn Portúgal á
morgun.
■ FRAKKAR mæta Portúgölum í
undanúrslitum. Árið 1984 þegar
þeir urðu Evrópumeistarar með
því að sigra Spán 2:0 mættu þeir
Portúgölum í undanúrslitaleik og
. sigruðu 3:2. Platini gerði sigur-
markið rétt fyrir leikslok.
Patrick Kluivert fagnar einu af þremur mörkum sínum gegn Júgóslavíu.
Reuters
Hollendingar
sýndu listir sínar
„ÞAÐ býr mikið í hollenska liðinu og ég hef beðið eftir því að allt
myndi ganga upp hjá okkur. Það gerði það í dag. Þetta var frábær
leikur hjá strákunum og ekki annað hægt en taka ofan fyrir
þeim,“ sagði Frank Rijkaard, þjálfari hollenska liðsins, eftir að
það burstaði Júgóslava 6:1 f átta liða úrslitum Evrópukeppninnar.
Rijkaard sagði að liðið hefði leikið
vel sem heild en hann hefði ekki
verið viss í leikhléi hvort sigur væri í
höfn. „Júgóslavar voru orðnir svekkt-
ir og æstir og þegar þannig háttar má
mótheijinn ekki gera ein mistök þá
getur allt hrunið. En strákamir gerðu
ekki þessi mistök og eftir að við gerð-
um þriðja markið gat ég andað létt-
ar,“ sagði hann. Hann lagði áherslu á
að þetta væri sigur liðsheildar. „Pat-
rick gerði þijú eða fjögur mörk, en
hann hefði ekki gert eitt einasta ef
samheijar hans hefðu ekki leikið eins
vel og þeir gerðu,“ sagði Rijkaard.
Vujadin Boskov, þjálfari Júgó-
slava, var þokkalega sáttur við árang-
ur liðsins í keppninni þótt hann væri
ekki ánægður með úrslitin gegn Hol-
lendingum. „Það er langt frá því að
vera auðvelt að leika við Hollendinga
á þeirra heimavelli fyrir framan
áhorfendur þeirra."
Patrick Kluivert kom heimamönn-
um yfír á 24. mínútu og bætti öðru
marki við sjö mínútum síðar og þar
við sat fyrir hlé. í síðari hálfleik bætti
hann við einu marki og hefur því gert
28 mök í 44 landsleikjum. Þriðja mark
Hollendinga var sjálfsmark eins og
Kluivert benti réttilega á strax eftir
leik. Kluivert fór af velli á 60. mínútu
en heimamenn voru hvergi nærri
hættir því Marc Overmars gerði tvö
síðustu mörk Hollendinga áður en
Savo Milosevic bætti við fimmta
marki sínu í keppninni.
Hollendingar hafa nú leikið 13 leiki
án þess að tapa og þetta var sjötti sig-
urleikurinn í röð. Svo virðist sem liðið
sé að blómstra á hárréttum tíma og
eru menn famir að bera liðið saman
við lið það sem Johan Cruyff fór fyrir
á áttunda áratugnum, en Cruyff hef-
ur verið duglegur við að gagnrýna lið-
ið á undirbúningstímabilinu og þá
sérstaklega miðvallarmenn þess -
hefur sérstaklega gagnrýnt Edgar
Davids fyrir að röfla stöðugt í dómur-
unum og Davids svaraði því með að
nota fætuma meira en munninn.
Hollend-
ingar
skora
mest
BÚIÐ er að gera 79 mörk í
þeim 28 leikjum í úrslitakeppni
EM sem búnir em, eða 2,82
mörk að meðaltali í leik. Hol-
lendingar em efstir á blaði með
13 mörk í fjórum leikjum sem
gerir 3,25 mörk að meðaltali.
Frakkar og Portúgalir em
næstir með 2,25 mörk að með-
altali og þar á eftir koma ítalir
og Júgóslvar með 2,00 mörk að
meðaltali.
Norðmenn vora með bestu
vörnina en liðið fékk aðeins á
sig eitt mark í þremur leikjum,
eða 0,33 mörk að meðaltali í
leik. Þar á eftir em ítalir og
Portúgalir með hálft mark að
meðaltali í leik, Hollendingar
hafa fengið á sig 0,75 mörk í
leik.
Gulldrengimir mæta Frökkum
PORTÚGALAR munu leika í undanúrslitum EM í fyrsta sinn frá því
1984, liðið sigraði Týrki 2:0 á laugardaginn. Fögnuður hins unga
liðs Portúgala var mikill en þeir ætla þó að geyma að fagna fyrir
alvöru því liðið ætlar sér lengra. Til þess þurfa þeir að sigra
Frakka á fimmtudaginn. Portúgal tapaði 3:2 fyrir Frökkum í und-
anúrslitunum 1984 og nú á að breyta því.
Hinn frábæri leikmaður Barcel-
ona, Luis Figo, var allt í öllu
hjá Portúgölum og lagði upp bæði
mörkin fyrir sóknarmann Benfíca,
Nuno Gomes. Figo var hins vegar
rólegur i leikslok. „Auðvitað er
þetta ákveðinn áfangi hjá okkur og
sögulegur áfangi, en við fögnum
ekki lengi því við emm komnir
hingað til að leika til úrslita," sagði
Figo.
„Gullna kynslóðin" eins og liðið er
gjaman kallað hefur staðið sig vel á
mótinu og þykir leika einna
skemmtilegustu knattspymuna. Þó
svo Figo sé heilinn á bak við margar
sóknir liðsins segir hann að það sé
liðsheildin og þjálfarinn sem eigi
heiðurinn. „Hreyfing leikmanna er
lykillinn að velgengni okkar og
þjálfarinn vill að við séum stöðugt á
ferðinni til að ragla mótherjana og
skapa okkur pláss,“ segir kappinn.
Leikurinn hefði getað þróast með
öðmm hætti en hann gerði því
Tyrkir fengu vítaspymu á síðustu
sekúndum fyrri hálfleiks, vom þá
marki undir og einum manni færri
þar sem Alpay Ozalan hafði verið
rekinn af velli. Vitor Baia, mark-
vörður Portúgals, gerði sér lítið fyr-
ir og varði fast skot Arifs Erdems.
„Þetta var mjög mikilvægt. Það
hefði verið slæmt að fara til bún-
ingsherbergja með jafntefli, fá á sig
mark undir lok hálfleiksins og vera
manni fleiri,“ sagði Figo og þegar
hann var spurður um einvígið fram-
undan við Zidane sagði hann:
„Hann er frábær leikmaður, en þið
verðið að gera ykkur grein fyrir því
að þetta verður ekkert einvígi milli
mín og hans. Þetta verður knatt-
spyrnuleikur þar sem ellefu menn
mæta jafnmörgum mótherjum."
Portúgalir vora betri í leiknum á
laugardaginn, en eftir að þeir vora
komnir 2:0 yfir og vora manni fleiri
hægðu þeir nokkuð á sóknaraðgerð-
um sínum en hefðu þó hæglega get-
að gert fleiri mörk. Rustu Recber,
markvörður Tyrkja, átti mjög góð-
an leik og kom í veg fyrir stærra
tap.
Leikurinn var nokkuð furðulegur
því um tíma 1 fyrri hálfleik var hol-
lenski dómarinn Dick Jol í aðalhlut-
verki. Á tólf mínútna kafla undir lok
fyrri hálfleiks sýndi hann fímm leik-
mönnum gula spjaldið, sendi einn í
sturtu og dæmdi eina vítaspyrnu.
Humberto Coelho, þjálfari Port-
úgals, var ánægður eftir leikinn.
„Við lékum vel en ég vona að við
getum enn bætt okkur og leikið
ennþá betur á fimmtudaginn. Við
hefðum átt að skora mun fleiri mörk
í dag en fórum illa með færin,“
sagði hann.
Tayfur Havutcu, þjálfari Tyrkja,
hafði þetta að segja um leikinn: „Við
hefðum getað gert betur en það var
erfitt að vera einum færri. Ég held
við getum verið ánægðir með árang-
urinn í keppninni og tel að við höf-
um tekið stórt skref fyrir tyrkneska
knattspyrnu. Vonandi eigum við eft-
ir að gera enn betur í framtíðinni."