Morgunblaðið - 05.08.2000, Qupperneq 4
Eftir
Skúla Unnar
Sveinsson
Það er nú orðið svolítil langt síð-
an ég var á ervrópsku móta-
röðinni og það er varla hægt að
segja að ég spili
golf lengur. Ég fer
þó nokkrum sinnum
á ári með vinum og
kunningjum en ann-
ars vinn ég hjá sænska golfsam-
bandinu og hef verið aðstoðarmað-
ur yfirþjálfara þess undanfarin ár.
Hann er í fríi núna þannig að þetta
er í fyrsta sinn sem ég er einn með
liðið,“ sagði Sunesson í samtali við
Morgunblaðið á Norðurlandamót-
inu í Eyjum.
Markmiðið að sigra
Laneog
Sjöland
á Islandi
Atvinnukylfingarnir Patrick Sjö-
land frá Svíþjóð og Englend-
ingurinn Barry Lane munu leika á
golfmóti sem haldið verður á Keilis-
velli í Hafnarfirði á frídegi verslun-
armanna, mánudaginn 7. ágúst. Á
mótinu verða leiknar 18 holur og
hefst það kl. 14.00 og munu fjölmarg-
ir af bestu kylfingum landsins, ásamt
íslenskum atvinnumönnum og golf-
kennurum, taka þátt. Barry Lane
hefur áður komið til íslands er hann
lék á golfmóti í Leirunni sem áhuga-
maður árið 1979 og hefur Lane verið
atvinnumaður í 18 ár. Englendingur-
inn, sem fæddur er árið 1960, var í
Ryder-liði Evrópu árið 1993 og er nú
í 116. sæti á lista yfir atvinnukylfinga
í Evrópu, Order of Merit. Patrick
Sjöland er í 20. sæti á lista atvinnu-
kylfinga Evrópu og hóf feril sinn
sem atvinnumaður fyrir fimm árum.
„Markmið okkar var auðvitað að
sigra og við erum í sjöunda himni
með að það tókst en það var erfitt
því flest liðin hér eru með góða
leikmenn. Það eru fjórir leikmenn
heima sem hefðu verið hér en þeir
taka þátt í Eisenhower-keppninni
eftir hálfan mánuð og eru á Opna
skandinavíska mótinu í næstu viku
þannig að það var of mikið fyrir þá
að koma og taka þátt hér líka. Við
erum með mjög fjölmennan hóp
góðra kylfinga í Svíþjóð þannig að
þó við séum ekki með okkar allra
sterkasta lið þá eru þessir strákar
ekkert langt undan.
Mér líst mjög vel á þetta leikfyr-
irkomulag, það skapar liðsheild og
góðan anda og krakkarnir kynnast
betur. Aðstæður hér eru í einu orði
sagt frábærar. Veðrið var gott,
völlurinn eins góður og hann getur
orðið og mjög vel hirtur og um-
hverfið hér er auðvitað einstakt -
alveg rosalega fallegt og ég hef
aldrei séð golfvöll í eins fögru um-
hverfi. Menn hafa verið að tala um
að flatirnar hér séu hægari en víða
í Evrópu og það er rétt en til að
grasið þoli veðráttuna hér og selt-
una þarf ákveðna tegund af grasi
og það er ekki hægt að ná mikið
meiri hraða á flatirnar með þessu
grasi. Þetta gengur jafnt yfir alla
keppendur og menn verða að læra
að aðlaga sig misjöfnum aðstæðum.
Vallarstjórinn hefur unnið frábært
verk með þennan völl,“ sagði Sun-
esson.
Fyrsta skipti á íslandi
Hefur þú spilað hér á landi?
„Nei, ég hef aldrei gert það og
þetta er í fyrsta sinn sem ég kem
hingað. Ég kom ekki einu sinni
með settið með mér en mig hefði
langað til að prófa völlinn. Eg hef
einu sinni tekið þátt í Norðurlanda-
móti, það var í Norðurlandamóti
unglinga í Svíþjóð, ég held það hafi
verið 1988. Vá, er svona rosalega
langt síðan,“ sagði Sunesson og hló.
Morgunblaðið/Sigfus G. Guðmundss
Norðurlandameistarar Svía ásamt Magnus Sunesson, liðsstjóra sínum.
„VIÐ erum auðvitað í sjöunda himni með sigurinn enda er þetta í
fyrsta sinn sem við verðum Norðurlandameistarar,“sagði Peter
Nichols iiðsstjóri norska kvennalandsliðsins eftir að Ijóst var að
þær höfðu sigrað íslensku sveitina með einu höggi.
ð erum með sterkt kvennalið og
það hafa verið framfarir í golf-
inu hjá okkur undanfarin ár, það
hefur verið unnið skipulega að und-
anförnu og ég tel að það sé að skila
sér núna. Við erum með sterkasta
liðið okkar og héðan fara þær til
Póllands á Evrópumeistaramótið og
síðan heimsmeistaramótið. Ég átti
von á að stelpurnar lékju heldur
betur en þær gerðu en fyrst leikur
þeirra dugði til sigurs er ég nokkuð
ánægður með þær,“ sagði Nichols.
Hann var mjög hrifinn af vellin-
um í Eyjum, lék sjálfur seinni níu
holurnar og hreifst mjög af um-
hverfinu og gæðum vallarins. „Ég
hélt fund með stelpunum eftir fyrri
æfingadaginn og þegar ég dró upp
minnisblokkina mína þar sem ég
skrái venjulega allt um völlinn og
ætlaði að fara yfir hvernig þær ættu
að spila hann kom í ljós að ég hafði
ekkert skrifað um hann.
Ástæðan er sú að umhverfið hreif
mig svo að það sem ég hafði skrifað
var aðeins lýsing á umhverfinu og
hversu stórfenglegt það var.
Aðstæður hér eru miklu betri en
við áttum von á og þá sérstaklega
veðrið því það hefur leikið við okkur
og við erum mjög ánægð með allt og
alla. Móttökurnar hafa verið frá-
bærar og skipulagið var mjög gott,“
sagði Nichols.
Hann sagði mikla sprengingu
hafa orðið í golfi í Noregi síðustu
árin og nú væri svo komið að það
vantaði fleiri velli til að anna öllu
því fólki sem vildi komast í golf, en í
Noregi eru um 60 vellir og taldi
Nichols að það þyrfti að fjölga þeim
um helming á næstu árum ef vel
ætti að vera.
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundss
Peter Nichols, liðsstjóri norsku kvennasveitarinnar ásamt
Suzann Pettersen, einum fremsta kvenkylfingi Evrópu.
Breytingar
á Norður-
landamóti
| FORSETAR golfsambanda
| Norðurlandanna samþykktu
á fúndi sínum í Eyjum um
Ihelgina að breyta fyrirkomu-
laginu á Norðurlandamótinu
í golfi.
Breytingarnar eru fyrst og
fremst þær að nú verða
Norðurlandamót unglinga og
fullorðinna sameinuð og leik-
ið verður annað hvert ár.
Þetta þýðir að Norður-
landamót unglinga, sem vera
átti hér á landi á næsta ári
verður ekki. Þess í stað verð-
ur hið nýja Norðurlandamót
haldið í Finnlandi á næsta ári
og síðan annað hvert ár frá
því.
Vegna breytinganna verð-
ur bætt við einum titli, Besta
golfþjóðin, og er það fyrir
sameiginlegan árangur ungl-
inganna og þeirra fullorðnu.
™-—womI'3
Erum í sjö-
unda himni
Magnus Sunesson, liðsstjóri sænska karlalandsliðsins á NM í Eyjum
Aldrei séð golfvöll í
eins fögru umhverfi
MARGIR kylfingar kannast við
nafnið Magnus Sunesson.
Kappinn sá er frá Svíþjóð og lék
lengi á evrópsku mótaröðinni og
varð meðal annars í 12. sæti á
Opna breska meistaramótinu
árið 1992. Magnus er nú liðs-
stjóri sænska karlaliðsins og
var með því á Norðurlandamót-
inu í Eyjum.