Morgunblaðið - 12.08.2000, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 12.08.2000, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000 C 9 SKÓGRÆKTARFÉLAG ÍSLANDS 70 ÁRA Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga hefur ræktað vöxtulegan skóg á jördinni Gunnfríðarstöðum. Skógurinn þar er gott dæmi um gódan árangur skógræktarstarfs undanfarinna ára. Styrkir Umhverfissjóðs verslunarinnar til skóg- ræktarfélaga 1996-2000 6,6 milijónir kr. ‘96 ‘97 ‘98 ‘99 2000 AF HVERJU AÐ GANGA í SKÓG- RÆKTAR- FÉLAG? SKÓGRÆKTARFÉLÖGIN eru nú 60 talsins með liðlega 7.000 félags- mönnum. Með því að gerast félagi í skógræktarfélagi leggur þú mál- efninu lið og styður um leið starf félagsins í þinni heimabyggð. Fé- lagsaðild hefur einnig ýmsan bein- an hag í för með sér fyrir fólk. Hún opnar leiðir til þátttöku í þrótt- miklu starfi, aðgang að þekkingu og ræktunarhefð undanfarinna 70 ára. Fundir og fræðslukvöld, skóg- argöngur og aðrir viðburðir eru m.a. á dagskrá innan flestra félaga. Slíkir viðburðir eru kynntir í sér- stökum bæklingi sem félagsmenn fá senda í byrjun árs. Sum félög bjóða landlausum eða landlitlum félagsmönnum möguleika á að ann- ast svonefndar landnemaspildur. Félagsmenn njóta einnig margvís- legra annarra beinna hlunninda. Þeir fá félagsskírteini með veruleg- um afsláttarkjörum valinna aðila, sem selja vörur fyrir ræktunarfólk, s.s. plöntur og verkfæri. Frétta- blaðið Laufblaðið og fræðsluritið Frækornið eru einnig innifalin í fé- lagsaðild og send öllum félögum reglulega. Ert þú félagi? Kjarnaskógur er vinsælt útivistarsvæði, ræktað og rekið af Skógræktarfélagi Eyfirðinga, UPP- GRÆÐSLA OG SKÓG- RÆKT Skógræktarfélögin voru stofnuð til þess að hvetja til ræktunar landsins -c og ekki veitir af. Skógar og kjarr þekja einungis 1,2-1,4% landsins og alvarlegt jarðvegsrof er talið eiga sér stað á um 40% þess. Gróður- og jarðvegseyðing eru eitt alvarlegasta umhverfisvandamál sem að okkur íslendingum snýr á heimavelli. Þó að margt hafi áunnist að undanförnu er enn langt í land með að ástand lands- ins sé viðunandi. Öflug fjöldahreyf- ing áhugafólks um ræktun landsins hefur því sjaldan verið mikilvægari en einmitt nú. Til viðbótar vinnu stofnana og einstaldinga að friðun, skógræktoguppgræðsluerunniðað ' umfangsmikilli ræktun á vegum skó- græktai-félaganna. Friðuð ræktun- arsvæði félaganna eru liðlega 200 talsins og eru að flatarmáli um 20 þúsund hektarar. Öll eru þessi svæði opin almenningi til útivistar. Velkomin í útivistar- Á Melgerdismelum í Eyjafirði er eitt landgræðsluskógasvæðanna. Þar er að vaxa úr grasi fallegur lerkiskógur. Og þjóðskóga félaganna!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.