Morgunblaðið - 24.08.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 24.08.2000, Síða 4
Sigurður Grétarsson velur 16 menn vegna undankeppni HM ungmennalaliða ■ ÞRETTÁN áhangendur Leeds voru handteknir í Þýskalandi í gærmorgun fyrir að kalla „heil Hitler" og heilsa að nasistasið. Áhangendurnir voru á aldrinum 19 til 44 ára og allir drukknir. Þeir voru í Þýskalandi til að fylgjast með leik Leeds og TSV 1860 Miinchen í gærkvöldi. Þeim var ekki sleppt úr varðhaldi fyrr en eftir leikinn. ■ STEVE McManaman var ekki valinn í lið Real Madrid sem tekur þátt í meistaraleik Evrópu á morgun. Liðið mætir Galatasaray, sigurvegurum í Evrópukeppni fé- lagsliða sl. vor, í leik sem fram fer í Mónakó. Þetta hefur enn aukið vangavelturnar um að McMana- man muni ekki verða í herbúðum spænska liðsins í margar vikur til viðbótar. ■ EMMANUEL Petit, fyrrverandi félagi Patricks Viera hjá Arsenal, segir að Viera verði fyrir barðinu á kynþáttafordómum leikmanna annarra liða í ensku úr- valsdeildinni. Því eigi hann einskis annars úrkosta en að koma sér til félags annars staðar í Evrópu þar sem minni fordómar ríkja. „Við rennum nokkuð blint í sjóinn hvað varðar styrkleika liðanna og því verður hver leikur nokkurs kon- ar próf á styrkleika okkar,“ sagði Sigurður Grétarsson, þjálfari ís- lenska liðsins. „Markmiðið verður að fara í hvern leik til að vinna hann og miðað við hvemig liðið lék á móti Svíum þá treysti ég strákunum til að standa sig í þessum verkefnum. Tékkar og Danir verða eflaust sterkastir en við spáum lítið í and- stæðingana og ætlum okkur að leggja okkur alla fram.“ Eru aðrar áherslur hjá þér og U21-liðinu en hjá Atla og A-landsliðinu? „Nei, við Atli leggjum upp með svipað leik- kerfi hjá báðum liðum og það er gott fyrir strákana að geta farið úr yngra liðinu og upp í A-liðið og leika í svipuðu leikkerfi. Flestir þeir . leikmenn sem leika í A-landsliði hafa farið í gegnum yngri landsliðin og þar hljóta þeir dýrmæta reynslu." Er einhver markverð breyting á þeim leikmönnum sem leika í dag með liðinu en áður? „Mesti munurinn er sá að það eru fleiri íslenskir leikmenn að spila með erlendum liðum en áður og það sem skiptir mestu máli í þeim efn- um er að flestir eru að leika með að- alliðum sinna liða og eru þess vegna í ágætri leikæfingu. Hér áður fyrr voru íslenskir leikmenn á mála hjá erlendum liðum en léku lítið með aðalliðinu. Það er því mei'ri breidd í íslenska hópnum að þessu sinni og það sýnir sig kannski best í A- landsliðinu, en þar er nú stór hópur leikmanna sem berjast um flestar stöðumar í liðinu,“ sagði Sigurður að lokum. SIGURÐUR Grétarsson, þjálf- ari U21 -landsliðs karla í knatt- spyrnu, hefur valið þá 16 leik- menn sem skipa munu lið íslands gegn Dönum í undan- keppni EM. Sigurður valdi sömu leikmenn og léku vin- áttuleikinn gegn Svíþjóð í Keflavík á dögunum en leikur- inn við Dani fer f ram á Kapla- krikaveilinum í Hafnarfirði föstudaginn 1. september og hefstkl. 18. Hópurinn er skipaður eftirtöld- um leikmönnum: Hjörvar Hafliðason, Val, Ómar Jóhannsson, Bunkeílo IF, Sví- Eftjr þjóð, Bjarni Guð- Sigurð Elvar jónsson, Stoke City, Þóróifsson Englandi, Reynir Leósson, ÍA, Jó- hannes Karl Guðjónsson, RKC Wa- alwijk, Hollandi, Indriði Sigurðs- son, Lilleström, Noregi, Stefán Gíslason, Strömsgodset, Noregi, Marel J. Baldvinsson, Stabæk, Nor- egi, Guðmundur Viðar Mete, Malmö FF, Svíþjóð, Helgi Valur Daníels- son, Fylki, Guðmundur Steinarsson, Keflavík, Þórarinn B. Kristjánsson, Keflavík, Veigar Páll Gunnarsson, Stjörnunni, Árni Kristinn Gunnars- son, Breiðabliki, Hjalti Jónsson, ÍBV, Bjami Geir Viðarsson, ÍBV. Islenska liðið er í riðli með sömu þjóðum og em í HM riðli A-lands- liðs karla en þau era Tékkland, Danmörk, Búlgaría, Norður-írland og Malta. Hver leikur verður próf á styrkleika okkar Morgunblaðið/Ásdís Jóhann Kristinsson, vallarstjóri á Laugardalsvelli, var að undirbúa miðasöluna á landsleik ís- lands og Danmerkur í gær, m.a. var hann að prenta númer á aðgöngumiðana, en rúmlega 7.000 miðar verða í boði á leikinn. Miðasalan hefst á morgun. Forsala aðgöngumiða á landsleik- inn gegn Dönum, sem fram fer laugardaginn 2. september, hefst næstkomandi föstudag. Að þessu sinni er eingöngu hægt að kaupa miða í forsölu sem gildir á tvo heima- leiki íslands í undankeppni heims- meistaramótsins, gegn Dönum 2. september og gegn Norður-íram þann 11. október. Ekki verða seldir nema rúmir 7.000 miðar og segist Eggert Magn- ússon, formaður KSÍ, frekar eiga færri fái miða en vilja enda mikill áhugi fyrir leiknum. Forsalan fer fram á þjónustustöðvum ESSO. Hún hefst eins og áður segir á föstudags- morgun og lýkur að kveldi föstu- dagsins 1. september. Miðarnir í forsölu eru ódýrari. í sæti 1 kostar miðinn á leikina tvo 6.000 krónur en í forsölu 5.000 krón- ur. í sæti 2 verða miðarnir seldir í forsölu á 4.000 krónur og barnamið- ar sem era fyrir 16 ára og yngri á verða seldir á 800 krónur í forsölu í stað 1.000. Á leikdegi 2. september verður miðasala á Laugardalsvelli frá klukkan 9 og þá verða aðeins seldir miðar á leikinn gegn Dönum sem ekki seljast í forsölu. Miði í sæti 1 kostar 3.500 krónur, miði í sæti 2 kostar 3.000 og bamamiðinn 500 krónur. KSÍ mun standa fyrir happdrætti á heimaleikjum íslands í keppninni í samstarfi við Heklu hf. Hver að- göngumiði gildir sem happrættis- miði á viðkomandi leik og í vinning í hverjum leik er raftæki frá raftækja- verslun Heklu hf. | Hermann | | fær lof J HERMANN Hreiðarsson . fær mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína með i Ipswieh gegn meisturum Manchester United í ensku í úrvalsdeildinniíknatt- spyrnu í fyrrakvöld en liðin skildu jöfn í fyrsta leik ; Ipswich á heimavelli á leik- tiðinni. Hermann þótti leika lyk- ilhlutverkið í vöm Ipswich ; og þess er sérstaklega get- i ið að það gerist ekki oft að i vamarmaður fái að glíma í við fjóra af dýmstu og i skæðustu framheijunum í ensku úrvalsdeildinni. Alex Ferguson, knattspyrnu- sljóri United, lét þá Ole Gunnar Solslqær, Dwight Yorke, Teddy Sheringham og Andy Cole alla glíma við Hermann í leiknum en eng- um þeirra tókst að slcora. í grein enska netmiðils- ins Soccernet í gær er farið lofsamlegum orðum um Hermann. „Ef West Ham þarf að fá ábendingar um hvemig eigi að stöðva lið Manchest- er United frá því að endur- taka leikinn frá síðustu | leiktíð þá ætti liðið að selja sig í samband við Her- mann,“ segir í Soccemet en United sækir West Ham heim á Upton Park á laug- I- ardaginn. George Burley, knattspymusljóri Ipswich, var ánægður með leik Her- manns og sagði íslenska Iandsliðsmanninn hafa staðið undir þeim vænting- um sem hann gerði til hans. „Ég tel Hermann vera íj einn af bestu vinstri fótar vamarmönnunum í ensku úrvalsdeildinni. Hann er ; fijótur, líkamlega sterkur og hefur þá reynslu af því að spila í úrvalsdeildinni sem við þurftum í okkar lið,“ sagði Burley. Sjö þúsund miðar í boði Rennt blint í sjóinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.