Morgunblaðið - 30.08.2000, Síða 11

Morgunblaðið - 30.08.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000 C 11 FRÉTTIR Evrópskt stefnumót fyrirtækja í Grikklandi EVRÓPSKT fyrirtækjastefnumót verður haldið í Grikkl- andi 29. september næstkomandi og er ætlað fyrirtækjum í sjávarútvegi og fiskeldi. Mótið er haldið í tengslum við sýninguna Aqua Partners 2000 - 2nd Intemational Exhibition on Fishing and Aquaculture, sem stendur frá 28. september til l.október. Ætlað fyrir fiskeldi og sjávarútveginn Góð afkoma hjá Sealord • HAGNAÐUR Sealord, stærsta sjávarútvcgsfyrirtæki Nýja-Sjálands, jókst um 40 milljónir daia á síðasta ári, úr 500 milljónum í 540 milljónir. Phil Lough, stjórnandi l\já Sea- Iord, segir að hagnaður af reglubundinni starfsemi sé 40% hærri heldur en á fyrra ári. Sealord hefur að mestu byggt upp starfsemi sína á Nýja-Sjálandi auk þess sem fyrirtækið hefúr verið i sam- starfi við fslenska aðila um út- flutning á ferskum fiski á Bret- landsmarkað. Afkoma fyrirtækisins verða að teljast góðar fréttir fyrir Brierley Investment Qárfest- ingarfyrirtækið en helmings- hlutur þeirra í Sealord hefúr verið til sölu undanfama mán- uði. Hinn helmingur Sealord er í eigu samtaka fiskimanna í Waitangi en hingað til hefur Brierley ekki tekið þeim tilboð- um sem þeim hafa borist í hlut sinn í Sealord. Fréttir herma að verðið sem Brierley vill fá fyrir eignarhlut sinn í Sealord nemi 220 milljónum dala. Fyrirtækjastefnumótið er haldið til að hvetja til samstarfs milli evrópskra fyrirtækja í fiskvinnslu, fiskeldi og iðnaði tengdum sjávar- útvegi. Gert er ráð fyrir að flest þátttökufyrirtækin verði frá Miðjarðarhafssvæðinu (Grikklandi, Ítalíu, Frakklandi, Spáni og Portú- gal) auk fyrirtækja frá norðlægari slóðum eins og Noregi og írlandi. Ekki er endanlega ljóst hversu mörg fyrirtækin verða á fyrirtækjastefnumótinu en meðal sýnenda eru leiðandi aðilar í sjáv- arútvegi og fiskeldi í Grikklandi. Styrkir til fararinnar hugsanlegir Fyrirtækjastefnumót eru skipu- lögð þannig að allir þátttakendur skrifa stutta lýsingu á hvernig samstarfi þau eru að leita að og á grundvelli þessarra lýsinga getur hver og einn bókað einkafund með þeim fyrirtækjum sem þeir hafa áhuga á að hitta. Reynslan sýnir að í um helmingi tilvika er undir- ritaður samstarfssamningur í kjölfar þátttöku slíks móts. Engin þátttökugjöld eru á fyrir- tækjastefnumótið. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Em- il B. Karlsson á Impru á Iðntækn- istofnun sem mun verða íslenskum fyrirtækjunum til aðstoðar við undirbúning og þátttöku. Hugsanlegt er að einstök fyrir- tæki geti fengið styrk til fararinn- ar. Skipulag Sýningunni verður skipt í eftir- talda fjóra hluta: Framleiðslu og markaðssetningu - kynningu og verzlun; Hráefni - fiskveiðar og framleiðslu í fiskeldi; Vinnslu og Rannsóknir og þróun - menntun og upplýsingar. Fyrir- tækjastefnumótið er þannig upp- byggt að skipulagðir eru fyrirfram einkafundir milli fyrirtækja/stofn- ana á grundvelli innsendra sam- starfslýsinga þátttökuaðilanna. Eftirtöld svið til samstarfs verða rædd: Frekari rannsóknir og þró- un; Samvinnuverkefni og samning- ar; Samningar um leyfisveitingar, Samkomulag um markaðssetningu; Samkomulag um framleiðslu; Fjár- mögnun og upplýsingamiðlun. FEÐGAR I ÚTGERÐ • ÞEIR feðgar, Karl og Arnar á Grundarfírði, eru nýbúnir gera upp trillu sína, Ingibjörgu SH 72. Þessi mynd var tekin einn sól- Morgunblaðið/KVM skinsdag fyrir skömmu þegar þeir höfðu sjósett bát sinn. Þeir hyggjast fara út í Melrakkaey á Ingibjörgu og veiða í soðið. „Mikill áhugi meðal fjárfesta“ wmmmmmmmi^mmmmmmmmmmmmmmmmm fulltrúar Burnham á íslandi stendur fyrir kynningu á FIS um á vegum fjárfestingarfyrirtækisins Burnham International og héldu kynningarfundi fyrir fjárfesta. Bolli Héðinsson hjá Bumham segir að mikill áhugi hafi verið meðal íslenskra fjárfesta á fyrirtækinu. „Burnham á íslandi hélt kynning- arfundi á dögunum með fulltrúum FIS og íslenskum fjárfestum sem stendur nú til boða að koma inn í þetta fyrirtæki og taka þátt í þeirri uppbyggingu sem framund- an er hjá þeim. Það voru fyrst og fremst fyrirtæki í sjávarútvegi sem var boðið og er óhætt að segja að það hafi verið mikill áhugi með- al íslensku fjárfestanna. Menn sjá framtíðarmöguleikana í þessu fyrirtæki og hversu mikil- vægt margt sem þetta fyrirtæki er að vinna að á eftir að verða fyrir sjávarútveginn í heild sinni í fram- tíðinni. Þá mætti helst nefna staðl- að gæðaeftirlit sem á eftir að auð- velda viðskipti yfir Netið mjög mikið.“ FIS hyggur á umtalsverða hlutafjáraukningu á komandi miss- erum vegna stóraukinna umsvifa fyrirtækisins. Nú þegar rekur fyr- irtækið öfluga vefþjónustu á þrem- ur tungumálum þar sem hægt er að nálgast nýjustu fréttir og markaðsyfirlit sem tengjast sjáv- arútvegi. Bolli segir að ýmsar nýj- ungar séu framundan hjá fyrir- tækinu sem bjóði upp á mikla möguleika fyrir íslensk fyrirtæki, jafnt fyrir þá sem eru að kaupa hráefni og þá sem eru að selja það. loFttjakkar-loftlokar SENDRI Borgartúni 31 • s. 575 0000 • www.sindri.is ATVINNA Verkstjóri Akureyri Samherji hf. óskar að ráða verkstjóra til starfa í rækjuvinnslu félagsins á Akureyri. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af mannaforráðum, reynslu af vinnslu mat- væla og/eða menntun sem hæfir starfinu. Óskað er eftir duglegum og hressum einstaklingi sem er reiðubúinn að takast á við krefjandi og fjölbreytileg verkefni. Upplýsingar um starfið eru veittar í síma 460 9060 á skrifstofutíma. S Sjávarútvegur — Ráðningarstofa Friðjón Vigfússon Sími og fax: 552 9006, gsm. 861 3514. Ráðningarþjónusta sjávarútvegsins Menn strax! Sérhæfð ráðningarþjónusta fyrir sjávarútveg- inn. Útvegum gott starfsfólk til sjós og lands. Sími 898 3518. BÁTAR/SKIP Fiskiskip til sölu •j"" Eldborg HF 67 (áður Skutull ÍS 180) sskrnr. 1383, er 71 m langur frystitogari, smíð- aður í Póllandi 1974. Miklar endurþætur voru framkvæmdar á skipinu árið 1999. Skipinu geta fylgt aflahlutdeildir, um 450 tonn af þorski, um 615 tonn af úthafsrækju og um 1200 tonn af rækju á Flæmingjagrunni. Gunnar I. Hafsteinsson, hdl., Magnús Helgi Árnason, hdl., Hafnarhvoli v/Tryggvagötu, sími 552 3340, Revkiavík. Nú er rétti tíminn til að leigja og laga stöðuna fyrir mánaðamót. Til sölu B-109 Smábátur með sókn- ardaga. Brt. 2,9. Tilboð óskast. postur@kvot<ibankinn.is www.kvatabankinn.is textavarp 624 TIL SÖLU Athugið Önnumst sölu á öllum stærðum og teg- undum fiskiskipa. Einnig sölu og leigu á aflaheimildum. Skipasalan Bátar og búnaður, Barónsstíg, sími 562 2554, fax 552 6726. mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.