Morgunblaðið - 15.09.2000, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR15. SEPTEMBER 2000 Á FÖSTUDÖGUM
Listin að vera ósýnilegur
mmmmÉm
UM næstu helgi verður frumsýnd hérlendis nýjasta mynd
leikstjórans Pauls Verhoeven, HollowMan eða Huldu-
maðurinn og fjallar um vísindamann sem tekst að gera
sjálfan sig ósýnilegan með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Hlutverk hans leikur bandaríski leikarinn Kevin Bacon og þurfti hann að ganga í gegnum miklar
tæknibrelluhremmingar til að sjást ekki! Bacon hefur skrifað skemmtilega dag-
bók um reynslu sína af þessari óvenjulegu kvikmyndagerð og birtir Bíóblaðið í
dag valin brot úr henni.
1 gegnum miklar
4/1
i
i
i
i
■
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
oiðiðkvl
Stjörnufans í óbyggðum
ÞAÐ er í nógu að snúast fyrir starfsfólk íslenska kvikmyndaiðnaðarins þessa dagana. Stórmynd-
in Tom Raider með Angelina Jolie er nú tekin að hluta austur í Hornafirði og suður með sjó og
víðar hefur Hal Hartley verið að taka Monster með ýmsum kunnum leikurum. Hér á síðunni
kemur fram að samningar eru nú frágengnir milli Islensku kvikmyndasamsteypunnar og Zoetr-
ope, fyrirtækis Francis Coppola, um gerð síðamefndu myndarinnar, og að senn er von á vestur-
íslenska leikstjóranum Sturlu Gunnarssyni sem hyggst taka hér Bjólfskviðu, svo að-
eins handhægustu dæmin séu nefnd. Nýleg lagabreyting mun eflaust ýta enn frekar
undir þessa þróun, sem Arnaldur Indriðason gerir að umfjöllunarefni í Sjónarhorni.
Nyt'I' f BÍÓ
CusackI
High Fidelity
• Bíóhöllln, Kringlubíó og Bíóborgin
frumsýna nýjustu myndina með John
Cusack sem heitir High Fidelity og er
byggð á samnefndri bók eftir Nick
Hornby. Leikstjóri er Stephen Frears
en myndin segirfrá eiganda plötu-
búðarogvinum hans sem allirvita
allt um tónlist. Kærasta Cusacks
segir honum upp og hann tekur að
skoöa líf sitt í nýju Ijósi.
Furðulegt
ferðalag
0Krlnglubíó, Laug-
arásbíó, Nýja bíó
Akureyri og Nýja
bíó Kefíavík
frumsýna banda-
rísku gamanmynd-
ina Road Trip. Hún er með Breckin
Meyrer, Seann William Scott og
AmySmart i aðalhlutverkum en hún
segirfrá þvt þegar nokkrirfélagar
halda þvert yfir Bandaríkin til þess
að bjarga ástarsambandi eins
þeirra. Leikstjóri er Todd Phillips.
Travolta í
framtíðinni
e í dag verðurgeimtryllirinn Battie-
field Earth með John Travolta í aöal-
hlutverki frumsýndurí Stjörnubíói og
Háskólabíói. Myndin er byggö á sögu
vísindaskáldskaparhöfundarins og
stofnanda vísindakirkjunnar L. Ron
Hubbards og segirfrá því þegar stór-
vaxnargeimverurmeð Travoltaí
broddi fýlkingar ætla að leggja jörð-
ina í eyöi en lítill hópur upp-
reisnarmanna veitir viðspyrnu.
Titan A.E.
e Regnboginn, Sambíóin Álfabakka
og Borgarbíó Afcureyrf frumsýna í
dag bandarísku teiknimyndina Titan
A. E. eftir Don Bluth og Gary Oldrnan.
Hún segir af hópi jarðarbúa sem lifa
af eyöingu jarðarinnar og ferðast um
geiminn að Títan - vélinni sem end-
urskapað getur jörðina. Myndin er
sýnd með fslensku og ensku tali og
fara Hilmir Snær Guðnason, Pálmi
Gestsson og Þórunn Lárusdóttir
með helstu hlutverkin í íslensku tal-
setningunni.
New York Times hrífst af Englum alheimsins
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
SAMNINGUR milli íslensku kvik-
myndasamsteypunnar og Zoetrope,
fyrirtækis Francis Ford Coppola,
um samframleiðslu bíómyndar Hals
Hartleys Monster var undirritaður
um síðustu helgi. Fleiri fyrirtæki í
Bandaríkjunum og Evrópu leggja fé
í myndina, sem kosta á rúmlega 600
milljónir króna, en hlutur Zoetrope
er langstærstur. Þróun verkefnisins
og undirbúningur fyrir tökur, sem
nú standa yfir, hafa verið á vegum
Islensku kvikmyndasamsteypunnar.
Að sögn Friðriks Þórs Friðriksson-
ar er hlutur hvers og eins í mynd-
inni trúnaðarmál, samkvæmt samn-
ingnum. „Þessi samningur er stór
áfangi fyrir íslenska kvikmynda-
gerð,“ segir hann. „Við erum hér
komin inn á nýtt vinnusvæði, þar
sem er alþjóðleg kvikmyndagerð, og
myndinni er tryggð dreifing um
heim allan. Hún er 90% tekin hér-
lendis og tugir íslendinga hafa at-
vinnu af henni.“
Tökur standa nú yfir á Reykja-
nesi og víðar og á tökutímabilinu að
ljúka í New York undir lok október.
Aðalhlutverkin í Monster leika
Englarnir á tjöld í vestri og austri
Kvikmynd Frlðriks Þórs, Englar
alheimsins, er sýnd á kvikmyndahá-
tíðinni í Toronto, sem nú stendur yf-
ir. Hún er fyrsta mynd af alls 300,
sem þar eru sýndar, sem gagnrýn-
andi The New York Times nefnir í
grein frá hátíðinni í vikunni og hælir
í hástert. Myndin er sögð snjöil og
rík af andrúmslofti, frásögnin af
þráhyggju, missi og hugarheimi
þjáðrar aðalpersónu titrandi af innri
spennu. Gagnrýnandinn minnist
sérstaklega á tónlistamotkunina,
ekki síst „dásamlega og þyngdar-
lausa tóna íslensku poppsveitarinn-
ar Sigur Rós“. Að lokum er myndin
kölluð „dýrleg fúga“.
Englar alheimsins er að fara í bíó-
dreifingu í Hollandi, þar sem hún
tekur nú um helgina þátt í keppni
mynda sem byggðar eru á bók-
menntaverkum. Sýningar hefjast í
haust í Danmörku og Finnlandi, í
Þýskalandi í janúar og Svíþjóð
næsta vor. 4
Robert Burke, Baltasar Kormákur
Sarah Polley, Helen Mirren og Julie
Chrlstle.
Morgunblaðiö/Jðn E. Gústafsson
Sturla Gunnarsson: Veggspjaldið
fyrir aftan hann sýnir næstu mynd
hans á undan Scorn, Such a Long
Journey, sem margverðlaunuð er í
Kanada og víðar.
Sturla
gestur á
kvikmynda-
Vestur-íslenski leikstjórinn Sturla
Gunnarsson hefur bæst í hóp gesta
Kvikmyndahátíðar í Reykjavík sem
hefst 29. september. Sturla mun m.a.
sýna nýjustu bíómynd sína, Scorn,
sem fjallar um ungan mann sem ger-
ist móðurmorðingi og er byggð á
sönnum atburðum. Þá hyggst Sturla
Gunnarsson kanna jarðveg hérlend-
is fyrir tökur á Bjólfskviðu, sem er
eitt af framtíðarverkefnum hans.
Huldtimaðurinn
fer víða
Bandaríska spennumyndin Huldu-
maðurinn eða Hollow Man verður
frumsýnd í Sambíóunum Álfabakka
og Nýja bíói Keflavík, auk Stjörnu-
bíós, Laugarásbíós og Borgarbíós á
Akureyri hinn 22. september, en tvö
fyrstnefndu bíóin vantaði í frétt í síð-
asta Bíóblaði. Með aðalhlutverkið fer
Kevln Bacon, sem leikur vísinda-
mann er getur gert sig ósýnilegan.