Morgunblaðið - 24.09.2000, Side 1
FIATPUNTO SPORTING REYNSL UEKIÐ -ISLENSKAR
JEPPABREYTINGAR ÍNOREGI - NÝ OPEL CORSA FRUM-
KYNNT íEVRÓPU - ZAFIRA EFNARAFALABÍLL ÍSIDNEY
Opel Corsa -
Fullvaxinn
smábíll
ÞRIÐJA kynslóð af Opel Corsa var
kynnt í Hollandi fyrir skömmu. For-
verar þessa bfls hafa átt mikilli vel-
gengni að fagna en þessi nýi bfll hefur
fengið mikla andlitslyftingu. Aðal hans
eru Iaglegt útlit, hagkvœmni, aukið
innra rými og ríkulegur öryggis- og
mengunarbúnaður. Hann er væntan-
legur til landsins fyrripart næsta árs.
2000
SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER
BLAÐ
Subaru ST/X
SUBARU í Bandaríkjunum hefur
ákveðið að hefja framleiðslu á ST/X
bflnum sem sýndur var sem hug-
myndabfll á bflasýningunni í Los Ang-
eles í janúar á þessu ári. Framleiðslan
hefst um mitt ár 2002 og býst Subaru
við að selja allt að 24 þúsund bfla á
ári, eingöngu í Bandaríkjunum og
Kanada. ST/X er byggður á Subaru
Legacy en er með pall aftan við fernra
dyra farþegarýmið.
Hægt er að opna afturgluggann og
fella aftursætin fram og stækka þann-
ig paliinn til muna.
Fjallað um vetnis-
tilraunir í Detroit News
MIKIL umfjöllun var í rafrænni út-
gáfu Detroit News á dögunum um
vetnistilraunina á íslandi. Þar segir að
Island búi sig nú undir að nota vatn til
að breyta reykspúandi strætisvögnum,
fólksbílum, flutningabílum og skipum í
vetnisknúin farartæki 21. aldarinnar.
Tilraumn gæti haft grundvallarbreyt-
ingar í íor með sér fyrir bflaiðnaðinn
og skapað forsendur fyrir hreinasta og
umhverfisvænasta tæki jarðar.
í greininni er fjallað um viðhorf ís-
lendinga til tækninnar og rætt m.a. við
Gunnar Egilsson torfærukappa og Egil
Jóhannsson, framkvæmdastjóra Brim-
borgar, sem segja ekkert því til fyrir-
stöðu að knýja bfla áfram með efna-
rafolum svo lengi sem þeir skila sömu
orku og sprengihreyflar og eru jafn-
þægilegir í notkun, bjóða upp á sama
ökudrægi og orkan á svipuðu verðL
Sagt er frá samstarfi DaimlerChrysl-
Þreyta mikill
hættuvaldur
NÝLEGAR rannsóknir benda til
þess að þreyttum ökumönnum sé
hættara við að lenda í umferðar-
slysum en þeim sem hafa fengið
sér neðan í því. Frá þessu er
greint í breska dagblaðinu Guard-
ian. Rannsóknin fólst í að mæla
viðbrögð 39 sjálfboðaliða sem ým-
ist höfðu fengið ónógan svefn eða
drukkið áfengi. Niðurstöðurnar
leiddu einnig í ljós að 17-19
klukkustunda akstur hefði svipuð
áhrif á viðbrögð ökumanns, sam-
hæfingu og athyglisgáfu og tveir
tvöfaldir áfengisskammtar.
Vefsíðan þar sem fjallað er um
vetnistilraunir á íslandi.
er, Norsk Hydi'o AS, Royal Dutch Shell
og Nýorku sem saman vinna að því að
gera ísland að fyrsta vetnissamfélagi
heimsins. Rætt er við Ólaf Ragnar
Grímsson, forseta Islands, sem segir
að Islendingar séu opnir fyrir tækni-
nýjungum og bendir á að almenn tölvu-
og farsímavæðing landsmanna hafi
verið að þeirra eigin frumkvæði en
ekki stjómvalda. Fjallað er um hvemig
Islendingar hófu að virkja fallvötn og
jarðvarma eftir seinni heimsstyijöld
og að þeir séu í einstakri stöðu þar sem
endumýjanleg orka sé um 65% orku-
þarfar landsmanna. Rætt er við Jón
Bjöm Skúlason, framkvæmdastjóra
Nýorku, sem segir að til þess að fram-
leiða vetni fyrir öll farartæki og skip á
íslandi þyrfti að nýta 8-9% allrar end-
umýjanlegrar orku sem hagkvæmt er
að framleiða á íslandi.
Árið 2002 er búist við því að þrír
Mercedes-Benz Citaro efnarafala-
strætisvagnar verði komnir á götur
Reykjavíkur. í framhaldi af því, segir
Detroit News, verður hrundið af stað
upplýsingaherferð um kostí þessarar
tækni, auk fyrstu tilrauna með efna-
rafal um borð í íslensku fiskiskipi. Sá
galli sé þó enn á gjöf Njarðar að hver
efnarafalastrætó frá Mercedes-Benz
kostar 1.250.000 dollara, sem sam-
svarar rúmlega 105 milljónum króna.
Listi um eldsneytis-
notkun gefinn út árlega
Morgunblaðið/Kristinn
Til stendur að upplýsingar um eldsneytisnotkun og mengun frá bíl-
um verði á skiltum hjá bflasölum á næsta ári.
TILSKIPUN Evrópusambandsins
um aðgengi almennings að upp-
lýsingum um eldsneytisnotkun og
magn koltvísýrings í útblæstri
tekur gildi 18. janúar á næsta ári
og er við það miðað að tilskipunin
taki gildi á sama tíma á evrópska
efnahagssvæðinu, þ.e. á Islandi og
í Noregi. Karl Ragnars, forstjóri
Skráningarstofunnar hf., segir að
til þess að tilskipunin taki gildi
hér á landi þurfi íslensk stjórn-
völd að samþykkja hana. „Sam-
kvæmt EES-samningnum á þetta
ferli að vera þannig að tilskipanir
taka gildi á sama tíma á öllu svæð-
inu. En það vill verða misbrestur
á þessu.
Málið er í deiglunni hjá um-
hverfisráðuneytinu og það er
stefnt að því að tilskipunin taki
gildi hér á þessum tíma,“ segir
Karl Ragnars.
Markmið tilskipunarinnar er að
minnka koltvísýringsmengun frá
fólksbflum með því að hvetja til
kaupa á spameytnum bflum. Tal-
ið er að áberandi upplýsingar á
sölustöðum nýrra og notaðra bfla
hafi áhrif til minni eldsneytisnotk-
unar, ekki síst vegna þess að fólk
sem kaupir nýja bfla telur þá selj-
anlegri ef þeir eru sparneytnir.
Samkvæmt tilskipuninni er
gert ráð fyrir að aðildarlöndin
tryggi að gefinn verði út listi yfir
eldsneytisnotkun allra tegunda
og undirtegunda fólksbfla sem
birtur verði almenningi a.m.k.
árlega.
LDk, lok Dg IdddjÍÍÍ
AVITA L_
CLIFFORD
Umboðs- og þjónustuaðilar
fyrir öryggis- og þjófavarnarbúnað
frá Clifford og Avital.
IUESRADIO
Síðumúla 19 • Simi 581 1118 • Fax 581 1854
1
y