Morgunblaðið - 24.09.2000, Page 2
2 D SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000
BÍLAR
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
BÍLAR
SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 2000
Heimsókn til Arctíc Trucks í Prammen í Noregi
íslenskt hugvit
í víking
Fyrirtækið Arctic Trucks, sem var stofnað
hér á landi 1997 og er í eigu P. Samúelsson-
ar hf., færði út kvíarnar til Noregs fyrir ári
og hóf rekstur þar með góðum árangri.
Fyrirtækið hyggur á enn frekari landvinn-
inga í framtíðinni og hefur þegar hafíð und-
irbúning við að koma breyttum fjórhjóla-
drifsbílum inn á Svíþjóðarmarkað. Valur
B. Jónatansson heimsótti fyrirtækið í Nor-
egi, prófaði bílana og komst að því að þar
eru stórhugamenn við stjórnvölinn.
ÞAÐ ER fyrir tilstuðlan íslenska
fyrirtækisins Arctic Trucks Norge
AS, sem er í eigu Arctic Trucks á
íslandi, að bílaáhugamenn þar í
landi geta nú keypt breyttan bíl í
fyrsta skipti af bflaumboði sam-
þykktan af yfirvöldum. Nýlega gerði
fyrirtækið samninga við umboðsað-
ila Ford og Mitsubishi í Noregi um
breytingar á þeirra bflum, en fram
að þessu hefur fyrirtækið eingöngu
fengist við breytingar á Toyota, þ.e.
Landcrusier og Hilux Double Cab.
Fyrirtækið hefur nú breytt 70 bílum
í Noregi frá því það hóf starfsemi
sína fyrir ári. Verkstæði Arctic
Trucks er í Drammen og það hentar
vel því aðalinnflutningshöfn bfla í
Noregi er einmitt þar.
Fyrsta skrefið til Noregs
Emil Grímsson, framkvæmda-
stjóri Toyota á íslandi sem er aðal-
eigandi Arctic Trucks, segir að ís-
lenski markaðurinn sé takmarkaður
og því hafí verið ákveðið að sækja á
önnur mið. Það þótti við hæfi að taka
fyrsta skrefið til Noregs þar sem
markaðurinn er ekki of stór. Þar eru
líka gerðar svipaðar kröfur um ör-
yggi bfla og hér á landi. Hann sagði
að undirbúningurinn hefði þó tekið
hartnær tvö ár, enda þurfti norska
bifreiðaeftirlitið að framkvæma
mörg próf á bílunum áður en það gaf
grænt ljós.
Tekið opnum örmum
„Við ákváðum í fyrstu að fara
mjög stutt í breytingar á bflunum í
Noregi miðað við það sem við höfum
verið að gera heima. Við lögðum
áherslu á að ná þannig hagræðingu.
Fyrirtækið í Noregi hefur náð að
skapa sér ákveðna vinnuhagræð-
ingu, sem við heima þekktum ekki
áður en getum nýtt okkur núna,“
sagði Emil.
„Við höfum fengið mjög góða
kynningu í Noregi og okkur hefur
verið tekið opnum örmum. Þetta
hefur smitað út frá sér til Svíþjóðar
og við erum þegar komnir af stað
með prófun á bflum þar. Við höfum
einnig hug á því að fara meira út fyr-
ir Toyota-línuna, á stærri rnarkað."
Komitir ó kortið
Hann segir fyrirspurnir um
breytta jeppa hafa komið frá öðrum
löndum, eins og Bandaríkjunum og
Kanada. „Arctic Trucks er orðið
nokkuð þekkt merki. Við erum virki-
lega komnir á kortið meðal þeirra
sem eru í framleiðslu á aukahlutum í
jeppa. Það er sama hvert við höfum
farið á sýningar, að um leið og nafn-
ið Arctic Trucks heyrist þá snýr fólk
sér við og fer að spyrja. Stærsti
markaðurinn fyrir svona er á suð-
lægari slóðum, en við viljum sérhæfa
okkur hér á norðurslóðum til að
byrja með, enda þekkjum við þær
aðstæður best,“ sagði Emil.
Vænleg fjórfesting
Framkvæmdastjórinn segir að
fyrirtækið í Noregi verði væntan-
lega aðskilið frá Toyota á Islandi í
framtíðinni og eflaust verða nýir
fjárfestar teknir inn í það. „Við vilj-
um koma þessu fyrirtæki á meira
framleiðsluplan, skilgreina það mjög
vel og jafnvel hafa það sem fyrir-
mynd og fá aðila í öðrum löndum til
að breyta fyrir okkur, eftir okkar
stöðlum. Fyrirtækið hefur kostað
okkur meira en áætlað var og einnig
hefur það tekið lengri tíma að koma
því af stað en við gerðum ráð fyrir í
upphafi. Við höfum lært mikið á
þessu og ég held að þetta sé góð
fjárfesting sem muni gefa góðan arð.
Það eru allar forsendur fyrir því,“
sagði Emil.
Breyttu 70 bílum ó
fyrsta starfsóri í Noregi
Orn Thomsen, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins í Noregi, sem fagnaði
eins árs afmæli fyrirtækisins 14.
september sl., sagðist mjög ánægð-
ur með hvernig til hefði tekist með
að markaðssetja fyrirtækið í Noregi.
Það hafi tekið nokkuð langan tíma
Ljósmynd/Valur B. Jönatansson
Hiluxinn hentar vel í torfærum í norskum skógum.
Morgunblaðið/Valur B. Jónatansson
Forsvarsmenn Arctic Trucks í Noregi. Frá vinstri: Eiríkur T. Magnússon,
yfirmaður verkstæðisins í Drammen, Örn Thomsen, framkvæmdastjdri
Arctic Trucks Norge, Björn Víglundsson, framkvæmdasljdri markaðs-
sviðs Toyota, og Emil Grímsson, framkvæmdastjóri Toyota á Islandi.
að útvega öll leyfi og fá bílana sam-
þykkta af norska bifreiðaeftirlitinu,
en eftir að það fékkst hefur fyrir-
tækið varla haft undan. Búið er að
breyta um 70 Toyota-bílum á fyrsta
starfsári fyrirtækisins og gert er ráð
fyrir að það aukist nokkuð á næsta
ári.
65 umboðsmenn
Samningur er við Toyota í Noregi
um að umboðsmenn þess annist sölu
og kynningu á Arctic Trucks. Örn
segir þetta mjög mikilvægan hlekk í
markaðssetningu fyrirtækisins því
umboðsmenn Toyota eru um 65 tals-
ins og eru með 112 sölustaði víðsveg-
ar um landið. Þegar þeir bjóða fyrr-
greindar bílategundir til sölu, bjóða
þeir einnig upp á þann möguleika að
breyta bílum hjá Arctic Trucks. Þeir
eru með allar upplýsingar og myndir
á boðstólum.
Þriggja ára ábyrgð
„Þegar beiðni um breytingu kem-
ur þá tökum við bílinn á hafnarbakk-
anum sem er steinsnar frá verk-
stæðinu okkar í Drammen og skilum
honum síðan þangað aftur eftir
breytinguna. Umboðsmenn Toyota í
Noregi sjá síðan um að afhenda bíl-
inn með sömu ábyrgð og þjónustu og
óbreyttur nýr bíll. Þeir gera síðan
upp við okkur,“ sagði Örn. Verðið á
breytingum í Noregi eru frá 70 þús-
und norskum (630 þúsund ísl. kr.) og
upp í 103 þúsund norskar (930 þús.).
Mikil eftirspurn
Fyrirtækið fæst aðeins við minni
breytingar, þ.e. fyrir 33 og 35
tommu dekk og hafa þær verið sam-
þykktar af norskum yfirvöldum. Örn
segir að möguleikar fyrir breytta
bíla séu minni í Noregi en á íslandi
því þar er bannað að keyra utan veg-
ar, hvort heldur á sumri eða vetri.
En þrátt fyrir það er eftirspurnin
mikil og hafa þeir varla haft undan
að breyta bflum síðan þeir hófu
starfsemi. Helstu viðskiptavinir fyr-
irtækisins eru ungir menn sem þyk-
ir flott að eiga breytta jeppa í Nor-
egi. Þeir kaupa aðallega Hilux-jeppa
því hann hentar vel í norska tolla-
kerfinu.
Nú eru samningaviðræður við
Svía um breytingar komnar á loka-
stig. Það stendur fyrst og fremst út
af borðinu að fá breytingarnar sam-
þykktar af skráningarskoðunni þar.
„Við erum mjög bjartsýnir á að það
takist en við þekkjum af reynslu að
svona hlutir taka tíma,“ sagði Emil.
Örn segir að svipað dreifikerfi
verði í Svíþjóð, að Toyota-umboðið
Ljósmynd/Valur B. Jónatansson
Starfsmennirnir fengu afhent íslenskt lýsi í tilefni eins árs afmælisins.
Morgunblaðið/Valur B. Jónatansson
Miklar breytingar eru gerðar í kringum hjölabúnaðinn á Hilux-bflnum.
Skipt er m.a. um dempara, gorma og sundursláttarpúða auk þess sem sett
er nýtt sportlaga bretti. Þá er bfllinn upphækkaður að framan og aftan.
þar sjái um að selja breytingarnar.
Bílarnir verða sóttir til Gautaborgar
og breytt síðan í Drammen. Hann
segir að það taki nokkra daga að
breyta hverjum bíl, enda vinnu-
brögðin orðin mjög stöðluð og því
vinnist þetta hratt.
Komnir til
að vera
„Viðtökurnar hafa verið ótrúlega
góðar og fyrirtækinu vaxið fiskur
um hrygg. Norðmenn líta á okkur
sem bræður enda hafa þeir góða
reynslu af íslensku vinnuafli. yið er-
um komnir til að vera,“ sagði Örn.
Hjá fyrirtækinu í Noregi vinna
fimm manns, fjórir íslendingar og
einn Norðmaður. Hægt er að taka
inn tvo bíla á lyftu í einu, en húsnæð-
ið gefur möguleika á að breyta fimm
bílum samtímis. Hann segir að aukin
verkefni kalli á fleira starfsfólk og
reiknar hann með að það verði fjölg-
að um tvo til þrjá starfsmenn mjög
fljótlega.
Opel Corsa - Hefur
slitið barnsskónum
Ný og endurbætt útfærsla af Opel Corsa, var
kynnt fjölmiðlafólki fyrir skömmu.
Þessi snyrtilegi smábíll er væntanlegur á
íslenskan markað næsta vor. Guðlaug
Sigurðardóttir tók forskot á sæluna og fékk
að reyna gripinn í Hollandi.
Morgunblaðið/Guðlaug Sigurðardóttir
Þessi bfll reyndist vel á sveitavegunum en hefði gjarna mátt hafa meira afl
í hraðbrautarakstri. í baksýn eru tvö dnotuð hestöfl, sem gjarna hefðu
mátt vera til staðar í þessum bfl.
Morgunblaðið/GuðlaugSigurðardóttir
Einfaldleiki og léttleiki einkenna Opel Corsa en sterk Opel-einkenni hafi
verið Iátin halda sér.
Morgunblaðið/Guðlaug Sigurðardóttir
Hönnuðir Corsa segja mikla vinnu hafa verið lagða í útlitið. Takið eftir háu
bremsuljdsunum að aftan, en afturendinn er notaður sem vörumerki þessa
bfls í kynningum.
Morgunblaðið/Guðlaug Sigurðardóttir
Fimm dyra bfll. Háu brcmsuljósin setja sterkan
svip á báðar gerðir.
CHATEAU St. Gerlach er nafn á til-
komumiklu óðalssetri í nágrenni
Maastricht í Hollandi. Fyrir þremur
árum vorum það rústir einar en auð-
kýfingur nokkur tók sig til og bjargaði
þessum menningarverðmætum og
endurbyggði kastalann. Hann þjónar
nú hlutverki hótels og veitingastaðar í
hæsta gæðaflokki og er vel í sveit sett-
ur til að þjóna alþjóðlegri kynningar-
starfsemi og ráðstefnuhaldi. Þangað
höfðu forsvarsmenn Opel stefnt fjöl-
miðlafólki fyrir nokkru, í því skyni að
kynna þriðju kynslóð af smábílnum
Opel Corsa. Mikill metnaðúr hafði
verið lagður í að gera umgjörð þessar-
ar kynningar sem glæsilegasta og
skapa Opel Corsa umhverfi sem hæfði
virðingu og velgengni forvera hans.
Lýtaiaus hönnun?
Hönnuðir þessarar nýju Corsu eru
nokkuð stoltir af afurð sinni og fóru
ekki dult með það. Þeir sögðu að þó
sterk Opel-einkenni hefðu verið í há-
vegum höfð og allir sem á annað borð
þekktu Opel á götu sæju strax að
þessi nýja Corsa tilheyrði Opel-fjöl-
skyldunni, þá hefðu dramatískar
breytingar átt sér stað. Var þá aðal-
lega átt við tæknihliðina, öryggisbún-
að og aukið innra rými. Hiedo
Kodama, aðalútlitshönnuður Corsa,
sagði að mikil vinna hefði verið lögð í
ytra útlit bflsins og tók svo djúpt í ár-
inni að segja að hönnunin væri án mis-
taka og því lýtalaus.
Á þessari kynningu kom einnig
fram að þó aðalmarkhópurinn væri
konur, þá höfðaði þessi bíll til allra
aldurshópa. Reynslan sýndi að mark-
aðurinn gerði kröfu um bíla sem væru
hagkvæmir í rekstri og státuðu af
miklum og vönduðum öryggisbúnaði.
Þessar kröfur uppfyllti Opel Corsa
með glæsibrag.
Margar útfærslur
Á þessari kynningu stóð frétta-
mönnum til boða að prófa ýmsar út-
færslur af Opel Corsa. Til að mæta
breytilegum þörfum viðskiptavinarins
er Corsan fáanleg með fernskonar
bensínvélum, 1.0, 1.2, 1.4, og 1.8 lítra
og 1.7 lítra díselvél, með eða án for-
þjöppu.
Allar vélarnar sem verða í boði hér
eru 16 ventla með tveimur yfirliggj-
andi kambásum, beinni innspýtingu
og mengunarvarnarbúnaði sem verð-
ur skyldubúnaður árið 2005. Hægt
verður að velja beinskipta, sjálfskipta
eða hálfsjálfskipta bfla, „Easytronic".
Opel leggur einna mesta áherslu á
sparneytni og hefur þróað vélar sem
þeir kalla ECOTEC til að undirstrika
þá eiginleika. í Evrópu-stöðluðu
eyðsluprófi er díselvélin sögð eyða 4,7
lítrum á hundraðið og 1,2 lítra bensín-
vélin 6.2 lítrum. Nýi bfllinn verður 8
cm breiðari að innan en forveri hans,
og að sögn Opel með lengsta hjólhafið
í sínum flokki, eða 2.491 mm. Það hef-
ur áhrif á stöðugleika bflsins í saman-
burði við aðra. Ingvar Helgason mun
væntanlega leggja mesta áherslu á 1-2
lítra bflinn, með 75 hestafla vél, en
verið er að athuga hvernig verðið
þróast og gæti það haft áhrif á áhersl-
urnar.
Aukið innra rými
Það kom skemmtilega á óvart
hversu rúmgóð og lipur Corsan var.
1.2 lítra vélin var svo þýð að nánast
ekkert heyrðist í henni inni í bflnum á
lágum snúningi, og ekki varð heldur
vart við vind- eða vegahljóð, enda var
sérstakt teymi hjá Opel kynnt til sög-
unnar sem hafði þann eina starfa að
koma í veg fyrir slíka hávaðamengun.
Ekki er þó hægt að segja að Corsan í
þessari útfærslu hafi verið mjög
spræk, en þó mátti ná fram þokka-
legri vinnslu með því að þenja hana
svolítið í gírunum.
Þá gafst einnig kostur á að prófa
díselbílinn sem búinn er 1.7 lítra
túrbó-díselvél og beinni innspýtingu.
Eins og búast mátti við þá var hún
töluvert háværari en bensínvélin, og
nokkuð gróft díselhljóðið var skrifara
til ama. Þó svo þessir tveir bflar væru
sagðir skila jafnmörgum hestöflum,
þá virtust þau skila sér mun betur í
díselbflnum. Díselvélin þurfti svolít-
inn tíma til að hugsa sig um áður en
hún tók við sér, en þegar hún var byrj-
uð að snúast þá virkuðu þessi 75 hest-
öfl kraftmeiri en í bensínbílnum og
hann togaði mun betur í gírunum.
Töluvert lengri rúntur var farinn á
1,8 lítra bílnum. Sá var í sportlegri út-
færslu og er varla raunhæft að bera
saman við 1.2 lítra bílinn, svo ólfldr
karakterar sem þeir eru. Þessi bíll var
afslappaður á hraðbrautunum og átti
nóg inni í hverjum gír meðan sá litli
útheimti stöðugar gírskiptingar til að
tuðast áfram.
Engin ástæða er að ætla annað en
þessi snyrtilegi smábíll geti veitt öðr-
um bílum í svipuðum flokki hai-ða
samkeppni hér á íslandi. Opel Corsa
er þó ekki eini bfllinn á markaðnum
sem á að vera veskisvænn í rekstri,
þannig að líklega mun verðið á honum
ráða úrslitum um velgengi hans hér á
landi.
Væntanlegir kaupendur geta þó
beðið með að bjóða hann velkominn
því hann kemur ekki til landsins fyrr
en fyrripart næsta árs. Þá gefst vænt-
anlega kostur á að reynsluaka honum
við íslenskar aðstæður og bera hann
betur saman við þá bíla sem verða í
boði þá.
180 nestaf la Skoda
0«tavia ó
SKODA verksmiðjurnar í Tékklandi
eru í mikilli uppsveiflu og salan
aldrei verið meiri. Fæstir hafa hing-
að til sett samasemmerki milli hrað-
skreiðra bíla og Skoda en nú þurfa
þeir að endurskoða málið. Skoda
ætlar nefnilega að setja á markað
innan tíðar 180 hestafla Octavia
hlaðbak og 150 hestafla fjórhjóla-
drifinn langbak. Bílarnir bera heitið
RS og eru hraðskreiðustu, fjölda-
framleiddu Skoda-bflar sem sögur
Jarðgas og
í TILEFNI af grein í síðasta bíla-
blaði, þar sem fjallað var um rann-
sóknh' bandarískra vísindamanna
þar sem fram kom að útblástur frá
bílum sem knúnir eru með jarðgasi
sé hættulegri en áður var talið, er
rétt að taka fram að þarna var ekki
fjallað um hreinsað hauggas. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Kristjáni
Kristinssyni, deildarstjóra hjá Olíu-
félaginu hf., er jarðgas efnablanda
þar sem metan er milli 80 og 90% af
gasinu en einnig er í blöndunni etan,
markað *
fara af. Vélin er 1,8 lítra með for-
þjöppu, sú sama og í Audi TT. Meðal
staðalbúnaðar í RS er lægri fjöðrun
og kældir hemladiskar með græn-
máluðum bremsuklemmum sem eru
sýnilegar gegnum 16 tomma álfelg-
ur.
Vindskeiðar eru að framan og aft:
an og keppnissæti eru í bflunum. í
langbaknum er sama vél en öllu afl-
minni þó og sama drifkerfi og í VW
Golf 4Motion.
---------------------»:
metangas
própan og fleiri kolvetnissambönd,
auk köfnunarefnis, koldíoxíðs og
brennisteinssambanda svo að eitt-
hvað sé nefnt. Hann segir að sam-
setning jarðgass sé misjöfn eftir því
af hvaða vinnslusvæðum það kemur.
Það gas sem sé notað hér sé
hreinsað hauggas þannig að það sem
fer inn á bflana sé 98% hreint metan.
Myndin með ^greininni, sem sýndi
metangaskút í VW-bifreið, var því
ekki í fullkomnu samræmi við text-
ann. Beðist er velvirðingar á því.
Opel Zafira, HydroGenl, efnarafalabfllinn.
HydroGen 1 leiðir
maraþonið
OPEL-bflaframleiðandinn verður
sýnilegur þegar maraþonhlaup
karla og kvenna á Ólympíuleikun-
um í Sydney verður þreytt í dag og
1. október nk. Undanfari hlaupsins
verður Opel Zafira HydroGenl,
sem er vetnisknúinn tilraunabfll
Opel. Hann er með efnarafal sem
breytir vetni í straum sem samsvar-
ar 75 hestöflum og knýr rafmótor
bflsins. Hestöfl út í hjól eru mæld
um 109. Bfllinn er mengunarlaus
með öllu. HydroGenl er hluti af
3.500 bflum sem Holden, sem eins
og Opel er hluti af GM, Ieggur fram
til Ólympíuleikanna.
HydroGenl er fimm sæta, í aft-
asta rými þar sem í hefðbundinni
Zafira eru tvö aukasæti, er efnaraf-<~
ailinn. Bfllinn nær 140 km há-
markshraða og getur ekið um 400
km á 75 lítra tankfylli af vetni.
TILBOÐ ÓSKAST
í Toyota Síenna LE árgerð 2000
(ekinn 5.000 mílur) m/vél V6 3000, 24 ventla,
Mercury Mystique árgerð ‘95
og aðrar bifreiðar,
er verða sýndar að Grensásvegi 9
þriðjudaginn 26. september kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA