Morgunblaðið - 07.10.2000, Side 2
2 B LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2000 B 3
+
ÚRSLIT KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Kristinn
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari lætur Heiðar Helguson leika á miðjunni gegn Tékkum en hann leikur venjulega í framlínunni.
Ætlum að þjarma
að Tékkum
„Það versta sem ég geri sem þjálfari, er að
sleppa að lesa upp nöfn leikmanna, þegar
ég les upp nöfnin á byrjunarliði íslands,“
sagði Atli Eðvaldsson í viðtali við Sigmund
Ó. Steinarsson í Prag, eftir að hann
tilkynnti byrjunarliðið sem mætir Tékkum
í Teplice. Atli gerði breytingar á liði sínu
frá viðureign við Dani á Laugar-
dalsvellinum. Hann segir lesendum
Morgunblaðsins hvers vegna hann gerði
breytingar á liði sínu.
KNATTSPYRNA
Tékkland - ísland 2:1
Evrópukeppni landsliða 21 árs og yngri, 3.
riðill, Liberec í Tékklandi, fóstudaginn 6.
október 2000.
Mörk Tékka: Milan Baros 8., Páll Almars-
son 26. (sjálfsmark).
Mark íslands: Guðmundur Steinarsson 70.
Lið íslands: Ómar Jóhannsson - Ami K.
Gunnarsson, Guðmundur Viðar Mete,
Reynir Leósson, Páll Almarsson - Bjami
Guðjónsson, Jóhannes Karl Guðjónsson,
Helgi Valur Daníelsson, Stefán Gíslason -
Veigar Páll Gunnarsson, Guðmundur Stein-
arsson (Þórarinn Kristjánsson 73.).
Búlgaría - Malta....................2:0
Norður-írland - Danmörk.............0:3
Staðan:
Búlgaría 2 2 0 0 3:0 6
Danmörk 2 1 1 0 3:0 4
Norður-írland.... 2 1 0 1 3:3 3
Tékkland 2 1 0 1 2:2 3
Island 2 0 1 1 1:2 1
Malta 2 0 0 2 0:5 0
Undankeppni HM
4. riðill:
Makcdónía - A/erhaijan.........3:0
Georgi Hristov 35., 42., Arjend Bekiri 75.
England
l.deild:
Gillingham - Bolton.................2:2
Huddersfield - Bamsley..............1:1
Tranmere - Bumley...................2:3
■ Guðni Bergsson lék allan leikinn með
Bolton sem missti niður 2:0 forskot. Fulham
er með 27 stig á toppnum, Watford 25, Bolt-
on 21 og Preston 18 stig.
2. deild:
Bristol City - Bournemouth........3:3
Bury - Bristol Rovers..............1:0
Colchester-Walsall.................0:2
Wigan - Reading...................1:1
Wycombe - Notts County............3:1
■ Sigurður Ragnar Eyjólfsson lék ekki með
Walsall sem er efst með 26 stig. Bury er
með 23 og Wycombe 21. Stoke er í 8. sæti
með 16 stig og á tvo leiki til góða.
3. deild:
Cheltenham - Carlisle.........1:0
Huil - Brighton...............0:2
Kidderminster - Rochdale......0:0
Shrewsbury - Exeter......... 2:0
York - Mansfieid..............2:1
HANDKNATTLEIKUR
ÍR - Afturelding 29:28
íslandsmótið, 1. deild karla, íþróttahúsinu
Austurbergi í Reykjavík, fóstudaginn 6.
olctóber 2000.
Gangur leiksins: 0:2, 4:4, 7:8, 7:11, 9:11,
10:12, 11:13, 13:16, 16:17, 18:18, 20:21,
21:21, 22:23, 23:24, 25:25, 26:25, 26:27,
27:28,29:28.
Mörk ÍR: Erlendur Stefánsson 8/2, Ingi-
mundur Ingimundarson 4, Þórir Sigmunds-
son 4, Einar Hólmgeirsson 4, Bjami Fritz-
son 4/2, Kári Guðmundsson 2, Níels
Reynisson 2, Finnur Jóhannsson 1
Varin skot: Hrafn Margeirsson 7 (þar af 1
aftur til mótherja), Hallgrímur Jónasson
10/4 (þar af 3 aftur til mótheija)
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk Aftureldingar: Páll Þórólfsson 11/6,
Gintas Galkauskas 6, Gintaras Savukynas 5,
Bjarid Sigurðsson 3, Hilmar Stefánsson 3/3.
Varin skot: Reynir Þór Reynisson 16/1 (þar
af 5 aftur til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur.
Ddmarar: Bjami Viggósson og Valgeir Óm-
arsson höfðu þokkaleg tök á fyrri hálfleik
en réðu ekki við hraðan seinni hlutann.
Áhorfendur: Um 300.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Kjörísbikarinn
16-liða úrslit, fyrri leikir:
ÍA - Njarðvík.................67:140
Erlendur Ottesen 13, Trausti Jónsson
12, Logi Gunnarsson 30, Sævar Garðarsson
21, Jes V. Hansen 20.
Sijaraan - KR.................83:106
Örvar Kristjánsson 19, Shiran Þórisson 18,
Sigurjón Lámsson 15, Ólafur J. Ormsson
36, Jón Amór Stefánssn 22, Arnar Kárason
18.
KFÍ-ÞörAk......................86:83
Dwayne Fontana 29, Baldur Ingi Jónasson
13, Sveinn Blöndal 12 - Óðinn Ásgeirsson
21, Clifton Bush 19, Einar Öm Aðalsteins-
son 14.
Snæfell - Tindastöll..........53:124
George Bujukliev 15, Baldur Þorleifsson 10,
Davíð Guðnason 10 - Kristinn Friðriksson
20, Shawn Myers 17, Adonis Pomonis 17.
Þdr Þ. - Grindavík............89:125
Ganon Baker 36, Andrés M. Hreiðarsson
14, Agúst Öm Grétarsson 12 - Guðmundur
Asgeirsson 20, Kim Lewis 17, Páll Axel Vil-
bergsson 14.
BLAK
1. deild karla:
ÍS-KA..............................3:0
(25:18,26:24,25:18)
l.deild kvenna:
ÍS-KA..............................3:0
(28:26,25:22,25:20)
ATLI Eðvaldsson gerði róttækar
breytingar á landsliðinu frá leikn-
um gegn Dönum á Laugardalsvellin-
um á dögunum. Sigurður Óm Jónsson,
hinn öflugi leikmaður úr KR og leik-
maður ársins hjá Morgunblaðinu, tek-
ur stöðu vinstri bakvarðar, sem Her-
mann Hreiðarsson lék. Hermann er
kominn sem vængmaður í stað
Tryggva Guðmundssonar og Heiðar
Helguson er kominn á hægri vænginn í
stað Þórðar Guðjónssonar. Birkir
Kristinsson stendur í markinu í stað-
inn fyrir Áma Gaut Arason, sem er
meiddur. Hver er ástæðan fyrir þess-
um breytingum á milli leikja? Það er
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari, sem
situr fyrir svörum, enda getur enginn
annar en hann svarað spurningum um
landsliðið.
„Eins og við höfum séð Tékkana
leika, hefur það ekki farið fram hjá
neinum að þeir em með geysilega öfl-
uga miðju. Þeir eru með hinn hávaxna
Jan Koller í fremstu víglínu og þá em
þeir með hinn fljóta Poborsky á hægri
vængnum. Poborsky liggur alveg
hægra megin - út við línu,“ sagði Atli
og hækkaði róminn, var greinilega
kominn vel inn í leikinn. „Svo hafa
Tékkarnir verið að blása til sóknar
vinstra megin - síðan hafa þeir verið
að senda snögga bolta yflr á hægri
vænginn á Poborsky, sem er alltaf á
ferðinni og hleypur upp að endalínu til
að gefa knöttinn fyrir markið. Við
þurfum að stöðva þessar aðgerðir. Ég
tel of miklu fórnað að láta hinn mikla
kraft Hermanns liggja í bakvarðar-
stöðunni á móti Poborsky. Hermann
nýist okkur betur í slagsmálum inni á
miðjunni og fyrir framan markið.
Hermann er með geysilega yfirferð
- sem má ekki hefta. Sigurður Öm er
öflugur leikmaður og ég hef trú á því
að hann geti fallið vel að Poborsky.
Sigurðiu- er fljótur og líkamlega
sterkur. Ég treysti því að hann leysi
hlutverk sitt vel - stöðvi Poborsky,
maður gegn manni. Þetta verkefni er
áhugavert fyrir hann,“ sagði Atli og
hvíslaði. Það var eins og hann væri að
ræða málin úti í homi, en í miðjum
salnum stæði Jozef Chovanec, lands-
liðsþjálfari Tékka, ogværi með yfirlýs-
ingar við tékkneska blaðamenn, hvem-
ig hann hygðist tæta vörn íslendinga í
sig.
Atli heldur áfram og hvíslar: „Við
þurfum sterka varnarlínu í þessum
leik. Við vitum það að Hermann getur
farið fram, hefur kraftinn til þess - og
hann er alltaf tilbúinn að koma til
baka. Hermann getur auk þess mætt
Koller þegar hann kemur inn á miðj-
una.“
Þú ætlar ekki að líma neinn leik-
mann á Koller?
„Nei. Það er afar erfitt að líma leik-
mann á þennan stóra leikmann, sem er
yfir tveir metrar. Við sáum það í
Evrópukeppninni, að Hollendingurinn
Jaap Stam var mjög nálægt honum.
Koller var það klókur að hann sneri
þennan sterka leikmann af sér. Hann
er mjög skynsamur, stuttfættur með
stóran búk.
Við munum reyna að vinna verkefn-
ið þannig þegar Koller er að fara í
knöttinn, að mínir leikmenn tali saman
og þeir eiga ekki að vera of nálægt
honum. Ef þeir gera það - þá tekur
Koller á þeim og snýr sér frá þeim.
Hann hefur góða tækni til þess. Það
verður hlutverk Péturs og Éyjólfs að
hafa gætur á honum, en aðrir leikmenn
falla inn fyrir aftan þá. Ef Koller snýr
sér, þá eru menn fyrir framan hann. Éf
hann gerir það ekki, þá verða Helgi
Kolviðsson, Heiðar, Hermann og Rún-
ar tilbúnir að ráðast til atlögu gegn
honum. Það væri þá best í stöðunni, að
Koller kæmi knettinum frá sér.
Þegar háar sendingar koma fyrir
markið - sendingar sem eru ætlaðar
þessum stóra leikmanni (2,02 m), höf-
um við sterka skallamenn til að glíma
við hann í loftinu. Pétur fær það hlut-
verk að fara upp, en Eyjólfur, Auðun
og Sigurður Orn mynda varnarlínu
fyrir aftan. Heiðar fær einnig það hlut-
verk að vinna í loftinu, en hann er mjög
sterkur skallamaður. Heiðar hefur áð-
ur leikið undir minni stjóm í ung-
mennalandsliðinu. Hann þekkir vel
vinnu í háloftunum," sagði Atli ákveð-
inn og var hættur að hvísla.
Þú og strákarnir hafíð örugglega
lært mikið af viðureigninni við Dani á
Laugardalsvellinum ?
„ Já. Við lærðum til dæmis, að vörnin
datt of aftarlega og um leið miðjan. Þar
af leiðandi voru Eiður Smári og Rík-
harður aðeins tveir í fremstu víglínu.
Þetta dæmi getur alltaf komið upp, en
nú ætlum við okkur ekki að láta söguna
endurtaka sig. Við teljum að Eiður
Smári nýtist betur framarlega á miðj-
unni og Ríkharður verði einn alveg
fremst. Eiður fær það hlutverk að
vinna fyrir aftan Rikka og jafnvel að
detta inn á miðjuna. Ef til dæmis Heið-
ar fer upp, þá mun Eiður fara inn á
miðjuna eins og hann gerði með
Chelsea í leiknum gegn Liverpool."
Erf iðleikar á miðjunni
í leikjunum gegn Svíum og Dönum
kom í ljós að leikmenn íslands áttu í
erfíðleikum meðaðstjórna leiknum frá
miðjunni. Rúnar Kristinsson er eini
leikmaðurinn af landsliðshópnum sem
leikur sem miðvallarleikmaður með liði
sínu. Hvað segir Atli við því - að vera
með nær eingöngu varnar- og sóknar-
leikmenn íliðinu?
„Ég veit um þessa erfiðleika. Við er-
um með lítinn, þröngan hóp atvinnu-
manna. Það er ljóst að við verðum að
reyna að koma Rúnari meira inn í leik-
inn - hann má ekki týnast í varnar-
hlutverki. Rúnar lenti í því bæði í
leiknum gegn Svíum og Dönum að
hann er of upptekinn að vinna með
vörninni, að tækni hans með knöttinn
nýttist ekki. Hann er að vinna meiri
varnarvinnu þar sem við leikum með
sóknarleikmenn á vængjunum. Við er-
um oft og tíðum með fjóra leikmenn,
sem eru að sækja. Með því að gera
breytingar fyrir leikinn gegn Tékkum
erum við að reyna að losa um Rúnar á
miðjunni, þannig að hann geti einbeitt
sér að stjórna leiknum. Við erum með
sterka leikmenn við hlið hans, sem
vinna vel og geta verið á fullri ferð all-
an leikinn. Það eru þeir Helgi Kolviðs-
son, Hermann og Heiðar. Þeir geta all-
ir sótt þegar við á og unnið aftur þess á
milli. Með þessu erum við að reyna að
búa til rneiri styrk inni á miðjunni - í
kringum Rúnar.“
Þú sagðir eitt sinn við mig í viðtali
sem ég tók við þig í Þýskalandi á árum
áður, er þú lékst með Dusseldorf, að
það ætti að vera hlutverk Knatt-
spyrnusambands íslands að koma
ungum leikmönnum til útlanda, þar
sem þeir fengju tækifæri til að leika
sínar stöður og stöður sem myndu
henta íslenska landsliðinu. Þurfíð þið,
þú og KSI, ekki að vinna í málinu til að
leysa miðvallarvandann?
„Jú, það er rétt. Óskin var sú. Við
verðum að finna lausn á þessu vanda-
máli - búa til sterka liðsheild. Ég er
ekki að segja að liðsheildin í dag sé
ekki sterk, þvert á móti. Við þurfum
alltaf að styrkja okkur og hugsa um
framtíðina. Byggja upp stærri hóp til
að velja úr fyrir ákveðin átök. Fyrir
nokkrum árum áttum við til dæmis
ekki nóg af sóknarleikmönnum. Nú er-
um við með þrjá til fjóra sóknarleik-
menn, sem eru að skora mikið með sín-
um liðum í Noregi, Grikklandi og á
Englandi og Spáni. Eiður Smári er að
koma öflugur upp og sjáðu: Helgi Sig-
urðsson er að skora fjögur mörk í
tveimur landsleikjum - samt er hann
ekki fyrsti maður inn í liðið. Hér er um
að ræða að velja og hafna hverju sinni.
Við eigum einnig stóran hóp af sterk-
um varnarleikmönnum, en miðju-
mennirnir eru ekki á hverju strái. Því
miður - leikmenn sem geta bæði varist
og sótt fram.“
Sérðu einhverja unga leikmenn sem
geta tckiðþessa stöðu ílandsliðinu?
„Já, ég hef séð marga unga leik-
menn sem gætu fallið inn í púsluspilið.
Ég get tekið einn leikmann sem dæmi,
sem framtíðarmann á miðjunni. Það er
Indriði Sigurðsson, sem er sterkur,
hreyfanlegur og fer vel með knöttinn.
Við þurfum að leita eftir leikmönnum,
sem geta hentað okkur vel með því að
leika ekki með fimm leikmenn í vörn,
heldur fjóra leikmenn í vörn, fjóra á
miðjunni og tvo frammi. Ef þetta fyrir-
komuleg hentar okkur, þá eigum við að
láta öll lið á íslandi í þriðja aldursflokki
leika þessa leikaðferð, enga aðra. Með
því hefjum við uppeldi og leit að leik-
mönnum íþær stöður, sem henta okk-
ur best. A íslandi er stór hópur af
hæfileikaríkum strákum, sem við þurf-
um að ala rétt upp. Nú er ég með lítinn
hóp leikmanna, sem verða að vera það
fjölhæfir að þeir geti tekið á þeim stöð-
um sem ég óska eftir.“
Frábær stemmning
Atli talar um lítinn hóp. Hann erhér
í Tékklandi með leikmannahóp sem
hefur lengi verið saman. Er stemmn-
ingin ekkigóð innan hópsins?
„Það er alltaf góð stemmning í
landsliðshóp. Hér er aðeins spurning
um einbeitingu leikmanna, að láta ekki
neitt utanaðkomandi trufla sig. Við er-
um að reyna að bæta stemmninguna
inni á leikvellinum, að leikmenn sýni
frumkvæði og vinni eftir því sem fyrir
þá er lagt. Öll okkar leikkerfi byggjast
upp á að auðvelda Jeikmönnum að
vinna saman með og án bolta. Við Guð-
mundur Hreiðarsson höfum kappkost-
að að spyrja leikmenn hvort þeir telji
að við séum að gera rétt. Það er svo
leikmannanna að koma með ábending-
ar. Ég hef sagt við leikmenn mína: við
breytum öllu ef það er í ykkar þágu.
Við getum ekki farið eftir óskum leik-
manna, ef til dæmis einn eða tveir leik-
menn fara sínar eigin leiðir á leikvelli -
fara burtu frá liðsheildinni. Þegar við
höfum ákveðið einhvern hlut, eiga leik-
mennirnir að skila sínu hlutverki
hundrað prósent.“
Tékkar eru sterkir
Tékkar eru ánægðir með landslið
sitt, sem er talið eitt það besta í heimi.
Hvað segir Atli - hvernig telur hannað
Tékkar mæti til leiks í Teplice?
Risi til Isfirðinga?
ÚRVALSDEILDARLIÐ KFÍ frá ísafírði er að reyna að fá til
sín risavaxinn miðherja frá Bosnfu, Adnan Krupalya að nafni.
Krupalija er 2,15 m hár og 25 ára gamall og lék á síðasta tíma-
bili með Cenex Sarajevo í heimalandi sínu. Hann Iék með
Rockford-háskóla í Bandaríkjunum í þrjú ár og skoraði þar 25
stig og tók 13 fráköst að meðaltali í leik.
1| Evrópukeppni
r í borðtennis
íslandsmeistarar Víkings—
Linz (Austurríki)
íslandsmeistarar Víkings 1. deild karla 2000
TBR-íþróttahúsið
ídagkl. 16.00
Áfram Víkingur yfggj
+
Er Nedved
kóngurinn?
GEYSILEG uppsveifla hefur verið I knattspyrnu í Tékklandi á und-
anförnum árum, eða síðan Tékkóslóvakía var öll og ríkið varð að
Tékklandi og Slóvakíu. Margir snjallir knattspyrnumenn hafa
komið fram á sjónasviðið í Tékklandi og það má segja að Tékkar
hafa skotist upp á stjörnuhimininn er þeir léku til úrslita við Þjóð-
verja í Evrópukeppni landsliða 1996 á Wembley, þar sem þeir
töpuðu á gullmarki Oliver Bierhoff, 2:1. Þjálfarinn Jozef Chovan-
ec, sem lætur lið sitt leika 3-5-2, hefur úr mörgum leikmönnum
að velja. Fimmtán leikmenn í leikmannahóipi hans, sem mætir ís-
lendingum, leika með erlendum liðum.
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
frá Prag
Aðeins fimm leikmenn sem léku á
Wembley eru nú í leikmanna-
hópi Tékka og aðeins tveir Jeikmenn
sem lögðu Island að
velli 4. september
1996 hér í Tékklandi.
Tveir afar öflugir
leikmenn Tékka
verða ekki með gegn Islendingum.
Það eru Liverpool-leikmennirnir
Vladimir Smicer og Patrick Berger.
Þrátt fyrir það þurfa Tékkar ekki að
örvænta _ þeir eru með valinn mann í
hverju rúmi. Miðvallarleikmaðurinn
Pavel Nedved er einn öflugasti leik-
maður Tékka og sá leikmaður sem
augu flestra beinast að. Hann er 28
ára og leikmaður með ítalska liðinu
Lazio. Eftir Evrópukeppnina í Eng-
landi kepptust lið um að fá hann til
sín - Lazio hafði vinninginn og hefur
hann verið lykilmaður liðsins síðan.
„Þeir koma fullir sjálfstrausts, enda
hafa þeir staðið sig vel á heimavelli -
já, einnig á útivelli, á undanförnum ár-
um. Tékkar geta verið ánægðir. Þeir
hafa staðið sig vel og þeir eru með
marga af bestu knattspyrnumönnum
heims í sínum herbúðum. Það þarf
ekki annað en að benda á miðvallar-
leikmanninn Pavel Nedyed, sem leikur
með Lazio á Ítalíu. Á ég að nefna
fleiri?“ spurði Atli og sagði að það eina
sem gæti orðið þeim að falli væri van-
mat. „Auðvitað er það styrkur Tékka
hvað þeir hafa úr mörgum leikmönn-
um að spila. I Tékklandi búa tíu millj-
ónir manna, á Islandi tvö hundruð og
sjötíu þúsund. Ég hef heyrt hér van-
mat - og það er af hinu góða.
Pressan er á Tékkum, sem ætla sér
ekkert annað en sigur. Við gefum ekk-
ert eftir - við ætlum okkur að þjarma
að Tékkum hér. Ekkert annað. Ef við
höldum okkar línu og hún gengur upp,
eins og til dæmis gegn Svíum, þá erum
við engin lömb að leika við. Éf við ná-
um að koma í veg fyrir varnarmistök
og höldum aga inni á vellinum, erum
við til alls líklegir. Þolinmæði þrautir
vinnur allar!“ sagði Atli og var ákveð-
inn á svip.
Það komast ekki nema ellefu að
Nedved skoraði til dæmis sigurmark
Lazio gegn Real Mallorka, er Lazio
tryggði sér sigur í Evrópukeppni bik-
arhafa.
Mikil bjartsýni er í Tékklandi fyrir
leikinn gegn Islandi og er þegar upp-
selt á leikinn, sem fer fram í Liberec
- þar verða samankomnir 19 þús.
áhorfendur. Fjölmiðlar í Tékklandi
ræða um „léttan" leikþátt, en Chov-
anec, þjálfari Tékka, er ekki sammála
- í það mynsta opinberlega. Vanmat
er alltaf það sem þjálfarar berjast við
- að leikmenn þeirra séu ekki sjálf-
umglaðir.
„Það getur enginn bókað sigur fyr-
irfram gegn Islandi. Leikmenn ís-
lands hafa sýnt það á undanfömum
árum, að það er erfitt að leika við þá -
hvort það sé í Reykjavík, eða þá á úti-
velli. Ég hef sagt mínum mönnum frá
afrekum þeirra í Frakklandi, í
Moskvu og jafnteflisleik þeirra gegn
Ukraínu í Kiev. íslendingar eru bar-
áttuglaðir og skipulagðir í leik sínum.
Ef við náum að fagna sigri, þá þurfum
við að hafa fyrir því,“ sagði Chovanec.
Það má með sanni segja að margir
leikmenn Tékka séu „góðkunningjar“
íslendinga, eða þeirra sem fylgjast
með knattspymu í sjónvarpi og þá á
Sýn, en leikur Tékklands og íslands
verður sýndur á stöðinni í dag klukk-
an þrjú að staðartíma, eða klukkan
fimm hér í Tékklandi.
Hver man ekki eftir tröllinu Jan
Koller, sem er á hæð við körfuknatt-
leiksmann - 2,02 m á hæð. Koller
hrellti leikmenn Leifturs er hann lék
með Anderlecht gegn þeim í fyrra. Þó
að Koller sé stór, er hann liðugur eins
og ballettdansari. Mai’gir töldu að
Hermann Hreiðarsson fengi það
hlutverk að líma sig á hann sem yfir-
frakki hér, en Atli Eðvaldsson,
landsliðsþjálfari, ætlar ekki á láta
einn ákveðinn leikmann hafa gætur á
honum - það verður verkefni allra í
vamarlínu Islands. Pétur Hafliði
Marteinsson á að berjast við hann í
loftinu og í þannig slag kallar Pétur
Hafliði ekki allt ömmu sína, frekar en
Marteinn Geirsson faðir hans, sem
hefur mai’gar fjörurnar sopið. Ungui’
að áram klippti hann á sjálfan Johann
Crayff, er íslendingar mættu Hol-
lendingum.
Hér á síðunni má sjá nafnalista
Tékka. Já, tékkneska liðið er sterkt.
Þeir sem sjá leikinn á Sýn eiga eftir
að fylgjast spennth’ með viðureign
Sigurðar Amar Jónssonar, sem fær
það hlutverk að glíma við sjálfan Kar-
el Poborsky, sem varð þjóðhetja
Tékklands er hann skoraði afar
glæsilegt mark gegn Portúgal í EM
1996, þegar hann sendi knöttinn yfir
Vitor Bala og tryggði Tékkum sigur
og rétt til að leika til úrslita við Þjóð-
verja. Eftir þetta eina mark varð hinn
síðhærði Poborsky heimsfrægur.
Manchester United keypti sveininn,
en hann náði ekki að festa rætur á
Old Trafford - hélt með poka sinn til
Portúgal, þar sem hann leikur með
Benfica. Poborsky er sá leikmaður
sem leggur upp flest mörk Tékka.
Það er mikið á Sigurð Öm lagt -
leikmann sem hefur aðeins leikið sex
landsleiki. Atli segist treysta Sigurði
Emi fullkomlega og þeir sem þekkja
Sigurð Örn, vita að hann mun ekkert
gefa eftir. Leikurinn hér í Tékklandi
getur orðið tímamótaleikur fyrir ís-
land - hann sker úr um það hvort ís-
lenska landsliðið verður með í barátt-
unni um rétt til að leika í
heimsmeistarakeppninni í Japan og
Suður-Kóreu 2002, eða hvort hér
rennur upp kveðjustund í þeirri bar-
áttu.
Lið Tékka
Markverðir: Ladislav Maier
(Rapid Vin), Pavel Srnicek
(Brescia).
Varnarmenn: Milan Fuk-
al (HSV), Jiri Novotny
(Sparta Prag), Radek Latal
(Schalke), Karel Rada
(Slavia Prag), Tomas Repka
(Fiorentina), Petr Vlcek
(Standard Liege).
Miðjumenn: Miroslav
Baranek (Köln), Radek
Bejbl (Lens), Pavel Horvath
(Sporting Lissabon), Pavel
Nedved (Lazio), Karel Pob-
orsky (Benfica), Tomas
Rosicky (Spai-ta Prag),
Roman Tyce (1860
Miinchen).
Sóknarmenn: Jan Koller
(Anderlecht), Vratislav
Lokvenc (Kaiserslautern),
Rene Wagner (Rapid Vin).
Sðgurður sér
um Poborsky
Það er takmark allra knattspyrnu-
manna að leika fyrir hönd þjóðar sinn-
ar á alþjóðlegum vettvangi. Margir
góðir leikmenn sitja á bekknum í dag
og horfa á félaga sína í baráttunni. Er
ekki erfitt að tilkynna byrjunarlið?
„Auðvitað skil ég leikmennina. Ég
hefði ekki gerst knattspyrnumaður á
sínum tíma, ef ég hefði ekki treyst mér
til að leika. Menn með metnað eru allt-
af sárir þegai’ gengið er fram hjá þeim.
Menn mínir verða að hugsa um liðs-
heildina og einnig - ef ég fæ tækifæri,
þá tek ég það. Eg veit að það versta
sem ég get gert leikmanni sem þjálf-
ari, er að sleppa nafni hans þegar ég
les upp byrjunarlið. Það er þannig að
það era aðeins ellefu leikmenn í knatt-
spyi-nuliði - ég vel þá ellefu sem ég
treysti best fyrir hverju verkefni. Ann-
ars væri ég ekki að velja þá,“ sagði Atli
og það mátti sjá á svip hans, að það hafi
ekki verið auðvelt verkefni að kalla
átján leikmenn á fund og lesa upp ell-
efu nöfn. „Því miður,“ vora lokaorð
Atla í þessu viðtali.
Sigurður Öm Jónsson fer beint í
byrjunarlið íslands, sem mæth’
Tékkum í Liberec í dag. Það verður
hans hlutverk að hafa gætur á útherj-
anum hættulega, Karel Poborsky,
leikmanni með Benfica. Hermann
Hreiðarsson, sem hefur leikið stöðu
vinstri bakvarðar, er á kantinum fyrir
framan Sigurð Örn, sem leikur í stöðu
hægri bakvarðar með KR.
Heiðar Helguson tekur stöðu
Þórðar Guðjónssonar hægra megin á
miðjunni en annars er byrjunarliðið
þannig skipað:
Birkir Kristinsson, markvörður,
Auðun Helgason, hægri bakvörður,
og Sigurður Örn vinstra megin. Mið-
verðir eru fyrirliðinn Eyjólfur Sven’-
isson og Pétur Hafliði Marteinsson.
Fyrir framan þá á miðjunni eru
Helgi Kolviðsson og Rúnar Kristins-
son leikstjórnandi. Heiðar Helguson
er útherji hægra megin og Hermann
leikur á vinstri kantinum. Fyrir
framan miðjuna er Eiður Smári Guð-
johnsen og í fremstu víglínu er Rík-
harður Daðason.