Morgunblaðið - 20.10.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.10.2000, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1 Guðmundur með nýtt tilboð frá KR GKKI er loku fyrir það skotið að knattspyrnu- maðurinn Guðmundur Benediktsson geri nýjan samning við KR-inga eftir allt saman. í vikunni leit ekki út fyrir annað en að Guðmundur væri á förum frá liðinu. KR-ingar buðu Guðmundi tveggja ára samning, mjög sambærilegan og hann hefur verið með en hann gerði gagntilboð sem KR-ingar höfnuðu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins viidi Guðmundur fá fjögurra ára samning og umtalsverða hækkun á honum. í gær fékk Guðmundur í hendumar nýtt tilboð og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er það á svipuðum forsendum og honum var boðið á dögunum nema í þessu nýja tilboði gildir samningurinn íþrjú ár með örlítið breyttum áherslum. KR-ingar hafa gefið Guðmundi frest til dags- ins í dag að svara þessu nýja tilboði. Jörundur Áki áfram með Blika JÖRUNDUR Áki Sveinsson, þjálfari kvennaliðs Breiðabliks í knattspyrnu, verður líkiega næsti landsliðsþjálfari kvenna i knattspyrnu. Eggert Magnússon, formaður KSÍ hefur rætt við hann og ætla þeir að hittast á ný gengið frá ráðningu Jörundar Ák Jörundur Áki sagði í samtali við Morgunblaðið að ef af þessu yrði þá væri ljóst að hann yrði áfram með Blikastúlkur. „Ég veit að einhverjir munu gagnrýna það ef ég verð bæði landliðsþjálfari og með Blikaliðið, en ég tel að þetta fari ágætlega saman. Það eru ekki það mörg verkefni sem kvenna- landsliðið fær á ári að það trufli næstu viku og líklega verður a þá. þjálfun félagsliðs verulega enda hef ég verið það lengi viðloðandi kvennaknattspyrnuna að ég veit nokkuð um hvað þetta snýst. Ég mun starfa við þetta af fullum heil- indum og fagmennsku ef af ráðn- ingu minni verður. Ég held að ef eitthvað sé þá myndi þetta frekar koma niður á Breiðabliki en lands- liðinu,“ sagði Jörundur Áki. Woods til liðs við KR? KR-INGAR eiga nú í viðræðum við Bandaríkjamanninn John Woods um að hann leiki með liðinu í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik, en KR er eina liðið sem ekki er með erlendan leik- mann í liðinu og er án stiga. fslandsmeistararnir eru ekki sáttir við slaka byrjun í deildinni þrátt fyrir góðan árangur 1 haustmótunum og ljóst er að Keith Vassel kemur ekki. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa KR-ingar heyrt í nokkrum erlendum leikmönnum en Ingi Þór Stein- þórsson, þjálfari KR, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ekkert væri frágengið varðandi erlendan leikmann. „Við vitum að Woods er á lausu og það eru líka nokkrir aðrir. Ætlunin var að gefa ungu strákunum færi á að reyna sig undir körfunni fram í nóvember. Það kemur hlé í deildina um miðjan nóvember og við stefnum að því að vera búnir að fá erlendan leikmann fyrir þann tíma,“ sagði Ingi Þór. Woods er ekki alls óþekktur hér á landi því hann lék með Tindastóli 1998-1999 og stóð sig vel. Hann lék 21 leik með liðinu og var inná í 38 mínútur að meðaltali í leik. Hann gerði 641 stig eða 30,5 stig að með- altali í leik og tók 14 fráköst að meðaltali i Ieik. Jónas úr Haukum í FH JÓNAS Stefánsson markvörður, sem leikið hefur með íslandsmeist- urum Hauka í handknattleik, er genginn til liðs við sitt gamla fé- lag, FH. Jónas taldi sig eiga meiri möguleika á að fá að spreyta sig hjá FH-ingum enda eru tveir sterkir markverðir fyrir hjá Hauk- um, þeir Magnús Sigmundsson og Bjarni Frostason. Sinisa Mihajiovic á hér í höggi við Svíann Fredrik Ljungberg í leik Lazio og Arsenal, UEFA tekur hartá kynþáttahatri Knattspyrnusamband Evrópu mun á næstu dögum skoða nánar ásakanir Patricks Vieira, leikmanns Arsenal, um að Sinisa Mihajlovic, leikmaður Lazio, hafí kallað sig öllum illum nöfnum í leik liðanna á þriðjudaginn. Vieira, sem er svartur á hörund, sagði að Júgóslavinn hafi notað hvert tækifæri fyrir, í og eftir leik- inn til að kalla sig illum nöfnum sem tengjast litarhætti hans. Undir orð hans tóku aðrir leikmenn Arsenal og svo virðist sem það hafí fyrst og fremst verið Júgóslavinn Sinisa Mihajlovic sem lét þessi fúkyrði falla og hann hefur viðkurkennt það. „Það er algengt að menn blóti hver öðrum og kalli ýmsum nöfnum á knattspyrnuvellinum. Það er hvorki æskilegt né fallegt, en það gerist, en þetta hefur ekkert með kynþátt hans að gera. Hann kallaði mig sígauna en ég kallaði hann ekki svartan apa eins og hann hefur sagt. Þetta er ekki kynþáttahatur, heldur persónulegar deilur," sagði Júgó- slavinn og bætti við að það sem væri rangt í þessu máli væri að Vieira hefði farið með það í fjölmiðlana. Talsmaður UEFA sagði í gær að sambandið myndi fara vel yfir skýrslu dómara leiksins og eins eft- irlitsmannsins og það yrði tekið hart á því ef í ljós kæmu einhver merki kynþáttahaturs, slíkt ætti ekki að eiga sér stað á vellinum. Vieira segist hafa rætt við nokkra leikmenn Lazio eftir leikinn og þeir hefðu sagt honum að taka ekki mark á þessum orðum Mihajlovics því hann væri svo heimskur. „Mér finnst tími til kominn að eitthvað verði gert í þessu, ég hef oft verið kallaður ýmsum nöfnum í Englan'di en það er þá fyrst og fremst vegna þess að ég er Frakki, ekki vegna lit- arháttar míns,“ sagði Vieira. KNATTSPYRNAN Á ÍTALÍU: EINVÍGI RÓMARLIÐANNA? / C2, C3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.