Morgunblaðið - 27.10.2000, Blaðsíða 2
2 B FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ^ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 B 3
ÚRSLIT KÖRFUKNATTLEIKUR KÖRFUKNATTLEIKUR
KÖRFUKNATTLEIKUR
ÍR - Valur/Fjölnir 74:70
Seljaskóli, Reykjavík, úrvalsdeild karla,
Epsondeildin, 5. umferð, fimmtudaginn 26.
október 2000.
Gangur lciksins: 5:0, 8:8, 15:10, 17:18,
19:21, 23:23, 23:29, 40:31, 43:37, 47:37,
47:43, 49:47, 56:47, 56:57, 61:60, 63:64,
67:64,71:66,71:70,74:70.
Stig ÍR: Cedrick Holmes 26, Eiríkur Ön-
undarson 14, Hreggviður Magnússon 12,
Sigurður Þorvaldsson 8, Asgeir Bachmann
7, Guðni Einarsson 6.
Fráköst: 24 í vöm - 4 í sókn
Stig Vals/Fjölnis: Brynjar Karl Sigurðsson
21, Herbert Amarson 16, Bjarki Gústafs-
son 10, Guðmundur Bjömsson 8, Delawn
Grandison 7, Sigurður Bjömsson 4, Kjart-
an O. Sigurðsson 2, Hjörtur Hjartarson 2.
Fráköst: 22 í vöm - 4 (sókn.
Viilur: í R17 - Valur/Fjölnir 17
Dómarar: Leifur Garðarsson og Rúnar
Gíslason, fínn dagur hjá þeim.
Áhorfendur: Rétt um 100.
Skallagrímur - KR 74:75
Borgarnes:
Gangur leiksins: 2:4, 5:10, 13:!5, 18:15,
20:22, 24:27, 24:31, 27:33, 31:37, 38:42,
42:45, 44:51, 51:51, 56:56, 62:61, 64:63,
71:68,73:71,74:75.
Stig Skailagríms: Warren Peebles 21, Eu-
geni Tomiloski 16, Alexander Ermolinskíj
12, Ari Gunnarsson 11, Sigmar Egilsson 8,
Pálmi Sævarsson 4, Hafþór Gunnarsson 2.
Fráköst: 21 í vöm -12 í sókn
Stig KR: Jón Amór Stefánsson 16, Ólafur
Ormsson 16, Amar Kárason 13, Jeremy
Eaton 9, Magni Hafsteinsson 7, Jónatan
Bow 4, Tómas Hermannsson 4, Ólafur Æg-
isson 4, Guðmundur Magnússon 2.
Fráköst: 22 í vöm -10 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Einar
Einarsson.
Áhorfcndur: Ríflega 100.
Hamar - Grindavík 86:82
Hveragerði:
Gangur Ieiksins: 0:2, 2:4, 6:7, 8:12, 12:19,
19:21, 25:21, 28:21, 30:23, 30:27, 39:30,
39:37, 41:39, 45:46, 48:46, 48:48, 51:51,
56:58, 59:58, 61:61, 66:63, 66:66, 66:69,
72:71,76:76,83:80,83:82,84:82,86:82.
Stig Hamars: Chris Dade 30, Gunnlaugur
Erlendsson 15, Pétur Ingvarsson 12,
Skarphéðinn Ingason 11, Ægir Jónsson 7,
Hjalti Pálsson 5, Svavar Pálsson 2.
Fráköst: 23 í vöm -13 í sókn
Stig Grindavíkur: Kim Lewis 14, Páll Axel
Vilbergsson 14, Guðlaugur Eyjólfsson 13,
Kristján Guðlaugsson 12, Dagur Þórðarson
11, Pétur R. Guðmundsson 10, Eientínus
Margeirsson 7.
Fráköst: 22 í vöm -18 í sókn.
Villur: Hamar 22 - Grindavík 18.
Dómarar: Sigmundur Herbertsson og
Björgvin Rúnarsson.
Áhorfendur: 270.
KFÍ - Haukar 82:88
Isafjörður:
Gangur leiksins: 0:6, 13:8, 19:18, 23:31.
29:39, 43:42, 46:46, 61:63, 67:67. 73:77,
77:84,82:88.
FJöldl leikja U T Skor Stlg
Keflavík 5 5 0 456:383 10
Haukar 5 4 1 448:405 8
UMFN 5 3 2 461:439 6
Þór A. 5 3 2 434:414 6
Grindavík 5 3 2 420:403 6
Tindastóll 5 3 2 416:401 6
Hamar 5 3 2 398:416 6
ÍR 5 2 3 415:416 4
Skallagr. 5 2 3 374:422 4
Valur 5 1 4 371:393 2
KR 5 1 4 373:411 2
KFÍ 5 0 5 404:467 0
Stig KFÍ: Dwayne Fontana 35, Hrafn
Kristjánsson 14, Sveinn Blöndal 14, Baldur
Jónasson 9, Gestur Már Sævarsson 8, Ingi
Freyr Vilhjálmsson 2.
Fráköst: 31 í vöm -11 í sókn
Stig Hauka: Rick Mickens 25, Bragi Magn-
ússon 17, Lýður Vignisson 15, Jón Amar
Ingvarsson 14, Marel Guðlaugsson 10,
Þröstur Kristinsson 4, Eyjólfur Jónsson 2.
Fráköst: 28 í vöm -12 í sókn.
Villur: KFÍ 20 - Haukar 17.
Dómarar: Heigi Bragason og Kristinn Al-
bertsson. Áhorfendur: 150.
Þór Ak. - Njarðvfk 90:104
Akureyri:
Gangur leiksins: 0:5, 13:9, 25:20, 33:27,
37:27, 46:36, 50:40, 54:44, 59:51, 64:54,
71:63, 71:69, 73:72, 75:78, 80:81, 80:88,
85:90,87:12,90:104.
Stig Þórs: Óðinn Ásgeirsson 30, Clifton
Bush 17, Einar Ö. Aðalsteinsson 15, Einar
H. Davlðsson 9, Hafsteinn Lúðvíksson 8,
Konráð Óskarsson 5, Hermann Daði Her-
mannsson 4, Magnús Helgason 2.
Fráköst: 20 í vörn -11 í sókn.
Stig Njarðvíkur: Brenton Birmingham 39,
Teitur Öriygsson 15, Logi Gunnarsson 14,
Halldór Karlsson 14, Ragnar Ragnarsson
8, Sævar Garðarsson 6, Jes V. Hansen 4,
Asgeir Guðbjartsson 2, Friðrik Ragnars-
son 2.
Fráköst: 24 í vöm - 5 í sókn.
ViIIur: Þór 21 - Njarðvík 22.
Dómarar: Eggert Aðalsteinsson og Erling-
ur Snær Erlingsson. Áhorfendur: Um 100.
Kef lavík - Tindastóll 81:78
Keflavfk:
Gangur leiksins: 0:2, 5:2, 12:10, 20:10,
20:17, 24:24, 24:26, 34:28, 39:32, 41:34,
41:40, 43:40, 43:42, 47:42, 49:48, 55:48,
55:54, 60:54, 68:56, 68:64, 71:64, 71:70,
73:74,75:74,75:76,79:76,79:78,81:78.
Stig Keflvíkinga: Calvin Davis 18, Magnús
Þór Gunnarsson 15, Gunnar Einarsson 14,
Jón Nordai Hafsteinsson 10, Hjörtur Harð-
arson 9, Guðjón Skúlason 6, Sæmundur Jón
Oddsson 6, Falur Harðarson 3.
Fráköst: 23 í vöm - 22 í sókn.
Stig Tindastóis: Shawn Myers 26, Kristinn
Friðriksson 16, Adonis Pomones 14, Svavar
A. Birgisson 10, Miehail Antropov 7, Lárus
D. Pálsson 3, Ómar Ö. Sigmarsson 2.
Fráköst: 22 í vöm -16 í sókn.
Villur: Keflavík 19 - Tindastóll 17.
Dómarar: Jón Bender og Rögnvaldur
Hreiðarsson vom ekki góðir.
Áhorfendur: Um 210.
KNATTSPYRNA
UEFA-bikarinn
2. umferð, fyrri leikir:
Lilleström - Alaves.............1:3
Hertha Berlin - Amiea Wronki....3:1
Inter Milano - Vitesse Amhem....0:0
Rauða stjaman - Celta Vigo......1:0
OFI Krít - Slavia Prag..........2:2
AEK - Herfölge..................5:0
Basel - Feyenoord...............1:2
Halmstad -1860 Munchen..........3:2
Parma - Dinamo Zagreb...........2:0
Espanyol - Graz AK..............4:0
Liverpool - Slovan Liberec......1:0
Lausanne - Ajax.................1:0
Wisla Krakow- Porto.............0:0
Tirol Innsbruck - Stuttgart.....1:0
Rayo Vallecano - Viborg.........1:0
Nantes - MTK Búdapest...........3:1
Boavista - Roma.................0:1
Bordeaux - Celtic...............1:1
Lokomotiv Moskva - Inter Bratislava... 1.0
Club Brugge - St Gallen.........2:1
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland
Kiel - Wallau-Massenheim......26:28
■ Wallau náði Magdeburg að stigum á
toppnum með 16 stig. Flensburg er með 13,
Kiel 12 og Gummersbach 12.
Man.Utd-Liverpool
Man.Utd klúbburinn á íslandi og Úrval
Útsýn bjóða upp á ferð á leik Man.Utd.
og Liverpool 15.-17. des. nk.
Beint leiguflug á Manchester, gist í
miðborginni.
Verð: 43.900 fyrir klúbbmeðlimi í
Man.Utd. klúbbnum.
Annars verð: 49.900.
Innifalið í verði: flug, skattar, gisting í tvær nætur með
morgunverði, rútur til og frá flugvelli og miði á leikinn.
Sala á miðum United klúbbsins fer fram í símatíma
laugardaginn 4. nóvember milli kl. 10.00 og 11.30 í
símum 585-4114 og 585-4115. __ _
QATLAS/®
EUROCARD.
4 4
URVAL-UTSYN
Nánari upplýsingar veitir
Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn
síma 585-4000.
Sveiflur í
Breiðholti
ÍR-INGAR höfðu betur f nágrannaslag liðanna í austurhluta höf-
uðborgarinnar í gærkvöld, lögðu Val/Fjölni úr Grafarvogi 74:70
í spennandi leik í Seljaskólanum í Breiðholti. Liðin voru jöfn að
stigum fyrir leikinn, höfðu hvort um sig unnið í einum leik og
bar leikurinn þess merki að liðin væru nokkuð jöfn að getu.
Geir komst
ekki í úrslit
GEIR Sverrisson hafnaði í
9. sæti í undanrásum í 200
metra hlaupi á Ólympíu-
móti fatlaðra í Sydney í
gær á tímanum 23,50 sek-
úndum og komst ekki í
úrslit.
Gunnar Örn Ólafsson
keppti í 200 metra skrið-
sundi og synti vegalengd-
ina á 2.22,01 og komst
ekki áfram úr riðlinum.
Pálmar Guðmundsson
keppti einnig í sundi í
gær, synti 100 metra
skriðsund á 2.23,45 og
varð ítíunda sæti, komst
ekki áfram.
Morgunblaðið/Knstinn
Calvin Davis átti góðan leik gegn Tindastóli en hér liggur hann f gólfinu eftir að hafa tekið frákast. Jón Nordal
Haf steinsson f élagi hans stendur yf ir honum og Lárus Dagur Pálsson Tindastólsmaður er ekki langt undan.
Einvfgi og tilþrif í naum-
um sigri Keflvíkinga
„MAÐUR verður að láta Ijós sitt skína því það er mikil samkeppni
um stöður í liðinu og engum tíma má sóa,“ sagði Sæmundur Jón
Oddsson, sem skoraði sfðustu sex stig Keflvíkinga og tryggði þeim
81:78-sigur á Tindastóli er liðin mættust í Keflavík í gærkvöldi. Það
mátti ekki tæpara standa því gestirnir að norðan sýndu mikla bar-
áttu og höfðu forystu um hrfð í lokin. Leikurinn var hin mesta
skemmtun og mikið einvígi Bandaríkjamannanna í hvoru liði, sem
sýndu mikil tilþrif og vörðu mörg skot. Keflvíkingar eru því enn
ósigraðir í deildinni.
Leikurinn hófst með mikilli
þriggja stiga skotkeppni þar
sem hvoru liði tókst að gera þrjár
slíkar í fyrsta leik-
skrifar miklum látum, ætl-
uðu greinilega að
hafa tök á leiknum og dæmdu sam-
kvæmt því að körfuknattleikur sé
íþrótt án snertingar. Þeir slökuðu þó
sem betur fór aðeins á klónni er á leið
og áttu ágætan dag.
Staðan var jöfn eftir fyrsta leik-
hluta, 23:23, en gestimir gerðu fyrstu
6 stigin í þeim næsta. Þegar staðan
var 25:31 skipti Pétur Guðmundsson,
IKVOLP
HANDKNATTLEIKUR
Nissan-deildin
1. deild karla:
KA-heimili: KA - Afturelding.......20
Hlíðarendi: Valur - Stjaman........20
Vestmannaey.: ÍBV - IR.............20
1. deild kvenna:
Kaplakriki: FH-ÍR..................20
2. deild karla:
Víkin: Víkingur - Fylkir...........20
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
fsafjörður: KFÍ-ÍS.................20
Bikarkeppni karla:
Laugardalsh.: Arm/Þróttur - Grindavík20
BLAK
1. deild karla:
Neskaupstaður: Þróttur N. - ÍS....19.30
1. deild kvenna:
Neskaupstaður: Þróttur N. - ÍS....20.45
þjálfari Vals/Fjölnis tveimur leik-
mönnum út af og þar á meðal Guð-
mundi Björnssyni leikstjórnanda,
sem tók stöðu Drazen Jozie sem var
meiddur. Við leikstjórninni tók 19
ára piltur, Gylfi Geirsson, og náði
hann ekki að stjóma sókninni nægi-
lega vel auk þess sem leikmenn hittu
illa þótt þeir fengju góð færi.
Þetta nýttu heimamenn sér til fulls
og gerðu 15 stig í röð, komust í 40:31
en gestunum tókst að klóra í bakk-
ann fyrir hlé, 47:43.
f upphafi síðari hálfleiks var mun-
urinn kominn niður í tvö stig, 49:47,
en þá gerði Cedrick Holmes 7 stig í
röð fyrir ÍR og því næst gerðu gest-
irnir 10 stig í röð og jöfnuðu, 57:57.
Þegar 2,50 mín. vora til leiksloka
var staðan 71:70 og þrátt fyrir að
hvort lið tæki eitt leikhlé það sem eft-
ir lifði leiks gekk brösuglega að hitta
körfuna, Eiríkur Önundarson kom
ÍR í 73:70 er 2,21 var eftir og gestirn-
ir vora bæði óheppnir og klaufar að
ná ekki að laga stöðuna. Baráttan var
í algleymingi og það var Hreggviður
Magnússon, sem hafði verið mjög ör-
uggur í vítaskotum, sem gerði síðasta
stigið, úr víti.
Holmes var sterkur hjá ÍR svo og
þeir Eiríkur og Hreggviður og As-
geir Bachmann byrjaði mjög vel.
Hjá Val/Fjölni var Brynjar Karl
Sigurðsson ágætur en reyndi of mik-
ið á eigin spýtur á köflum. Hann er
þó baráttujaxl sem drífur liðið áfram.
Herbert átti góða spretti og eins
Bjarki Gústafsson og Sigurður Ottó
Björnsson sem lék ágætlega í vörn-
inni.
Heimamenn vom helst til værakær-
ir til að byrja með en samt nógu
góðir til að ná tíu stiga forystu eftir
þrjár þriggja stiga
körfur á stuttum tíma.
Stefánsson Bandaríkjamennirnir í
skrifar hvoru liði, Keflvíking-
urinn Calvin Davis og
Shawn Myers frá Tindastóli, voru í
miklum ham og röðuðu niður stigum á
milli þess sem þeir vörðu skot af mikl-
um móð - stundum hvor hjá öðrum við
mikinn fögnuð áhorfenda. Það tók
Tindastólsmenn nokkrar mínútur að
komast í gang en þeir sýndu þá mik-
inn styrk með því að vinna upp forskot
toppliðsins þótt herslumuninn vantaði
á að þeim tækist að jafna.
Varnarleikur Keflvíkinga var allt
annar og betri eftir hlé, enda ekki
vanþörf á. En þó að þeir tækju varn-
arleikinn alvarlega dugði það ekki til
að stinga gestina af því þeir lögðu enn
harðar að sér, sérstaklega þegar þeim
tókst að vinna upp tólf stiga forskot
Keflvíkinga og komast loks yfir, 73:74,
þegar rétt rúmar þrjár mínútur voru
til leiksloka. Þá höfðu Keflvíkingar
glutrað boltanum þrjár sóknir í röð,
ýmist með því að taka of mörg skref,
fá dæmdan á sig ruðning eða hitta
ekki úr vítaskotum. Það færðist held-
ur betur fjör í leikinn í lokin en Tinda-
stólsmenn voru fuilfljótfærir í sókn-
inni og lukkudísirnar voru þeim ekki
hliðhollar þegar kom að skotum.
„Það mátti alveg búast við að þetta
yrði jafn leikur því liðin eru áþekk og
helmingslíkur á að við ynnum en við
höfðum það af í lokin,“ sagði Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga,
eftir leikinn. „Þeir spiluðu góða vörn
allan leikinn en við ekki fyrr en í síðari
hálfleik."
Calvin Davis lék á als oddi, sérstak-
lega í byrjun, en eins og aðrir leik-
menn leyfði hann sér að slaka aðeins á
þess á milli. Vörn Keflvíkinga var ekki
alveg á tánum í byrjun en þeim mun
betri eftir hlé þó að það dygði ekki til
að gera út um leikinn þá. Jón Nordal
Hafsteinsson, Gunnar Einarsson og
Sæmundur Jón, sem er að stíga upp
úr langvinnum meiðslum, áttu góða
spretti. Falur Harðarson náði aðeins
að eins þriggja stiga körfu í upphafí
leiks en meiddist og kom ekki meira
við sögu.
„Við lentum tólf stigum undir en
komum okkur aftur inn í leikinn og
áttum góðan möguleika á að vinna en
sigurinn lenti ekki okkar megin,“
sagði Valur Ingimundarson, þjálfari
Tindastóls, eftir leikinn. „Svo rúlluðu
tvö skot upp úr körfunni hjá okkur og
við vorum óheppnir með skotin í lokin
og því miður lenti sigurinn þeirra
megin.“ Shawn Myers var lengi vel
allt í öllu hjá Tindastóli, Adonis Pom-
ones var einnig atkvæðamikill en
minna sást til Michails Antropovs,
sem náði sér aldrei á strik. Kristinn
Friðriksson var einnig góður. Sigurinn
var innan seilingar og hefði verið
sanngjörn uppskera fyrir alla barátt-
una í vörn og sókn en gegn liði eins og
Keflavík má ekki leyfa sér neitt óða-
got - sérstaklega ekki á lokasprettin-
um þegar taugar eru þandar til hins
ýtrasta.
Tímamótasig-
ur hjá Hamrí
HAMAR í Hveragerði vann í gærkvöld mikinn baráttusigur, 86:82,
á Grindvíkingum. Leikurinn var mjög jafn allan tímann og það var
ekki fyrren á æsispennandi lokamínútunum sem sigurinn réðst.
Bæði lið hefðu getað tryggt sér sigurinn en heimamenn héldu
haus og unnu góðan sigur á Grindavík, sem jafnframt var þeirra
fyrsti sigur á Suðurnesjaliði í efstu deild. í fyrra þegar þessi lið
áttust við f efstu deild í fyrsta leik tapaði Hamar með um 60 stiga
mun.
Það á ekki að vera auðvelt að
koma hingað að spila og fara
heim með sigur en þetta er kannski
ekki óvinnandi vígi
ennþá. Hamar átti
Valberg Sóðan leik °g éS Set
skrífar ekki verið annað en
ánægður með mitt
lið. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn
sem við vinnum Suðurnesjalið og í
fyrsta leik í fyrra töpuðum við með
60 stiga mun þannig að við sýnum
greinilega framfarir og erum að
bæta leik okkar, sagði Pétur Ing-
varsson, spilandi þjálfari Hamars,
eftir leikinn.
Leikurinn byrjaði strax mjög
fjörlega og komst Grindavík í 7
stiga mun í fyrsta leikhluta. Hins-
vegar náðu Hamrarnir að jafna og
átti þar mikinn hlut Gunnlaugur
Erlendsson sem í þessum leikhluta
setti niður þrjár þriggja stiga körf-
ur í röð. Eftir fyrsta leikhluta hafði
Hamar yfir, 28:21.
Annar leikhluti var 'frekar tíð-
indalítill og börðust Grindvíkingar
við að jafna leikinn. Kim Lewis og
Guðlaugur Eyjólfsson hjá Grinda-
vík gerðu góða hluti fyrir sitt lið en
hjá Hamri var það Pétur Ingvars-
son sem stöðvaði sóknartilburði
Grindvíkinga og var sem klettur í
vörninni. Staðan í hálfleik var
41:39, fyrir Hamar.
Strax í upphafi þriðja leikhluta
fór rafmagnið af bænum sem og
nærliggjandi sveitarfélögum um
leið og Sigmundur Herbertsson
dómari dæmdi villu á Hamar.
Töldu menn að þetta væri teikn um
rangan dóm, en við látum það
liggja á milli hluta. Komst raf-
magnið aftur á eftir 10 mín. og
leikurinn fór aftur af stað. I þess-
um leikhluta náði Grindavík að
jafna og komast yfir, heimamenn
áttu þá í talsverðum vandræðum
og fundu leikmenn sig engan veg-
inn. Menn börðust um hvern ein-
asta bolta en oft hljóp þeim of mik-
ið kapp í kinn. í hálfleik var aðeins
eins stigs munur á liðunum, 59:58
fyrir Hamar.
Liðin voru jöfn á öllum stigum
strax frá upphafi fjórða leikhluta
og það voru aðeins tvær sekúndur
eftir þegar Ijóst var hvorum megin
sigurinn lenti eftir að Chris Dade
setti niður tvö vítaskot og kom
muninum í fjögur stig. Það má
segja að Cris Dade og Pétur Ing-
varsson hafi átt þennan leikhluta
en þeir tryggðu Hamri sigurinn. Á
æsispennandi lokamínútunum setti
Pétur niður 7 stig og Chris 14, þar
af tvær þriggja stiga körfur og
fimm víti. Kim Lewis og Kristján
Guðlaugsson voru þeir einu sem
eitthvað kvað að í liði Grindavíkur
en Guðlaugur gerði þrjár þriggja
stiga körfur í þessum leikhluta og
alls átti hann fjórar í leiknum.
„Menn voru bara ekki tilbúnir í
þennan leik, það þýðir ekki að vera
með hæfileikaríkt lið þegar það
sýnir svo ekki hæfileikana. Síðan
héldum við að björninn væri unn-
inn þegar við komumst yfir og
gerðumst kærulausir. Hamar er
mjög erfitt lið heim að sækja og við
getum sjálfum okkur um kennt
hvernig fór,“ sagði Einar Einars-
son, þjálfari Grindavíkur.
KR vann en
Skallagrím-
ur kærir
ÍSLANDSMEISTARAR KR unnu loksins sinn fyrsta leik á tíma-
bilinu í gærkvöld þegar þeir lögðu Skallagrím í Borgarnesi,
75:74. Reyndar hafa Skallagrlmsmenn kært leikinn þar sem
vafi leikur á því hvort nýr leikmaður KR-inga, Jeremy Eaton,
sé löglegur og hafi tilskilin leyfi vegna þess að hann er
nýkominn til landsins.
Leikurinn var gífurlega spenn-
andi því þótt KR-ingar hefðu
forskot fóru þeir aldrei langt fram
úr Skallagrími,
enda fór svo eftir
hálfleik að Skalla-
grímur jafnaði og
fór yfir, þó aldrei
meira en 3 stig. Það var síðan á
lokasprettinum sem KR-ingar
tryggðu sér sigurinn úr vítaskoti.
Besti leikmaður Skallagríms var
Evgengi Tomilosky sem þrátt fyrir
bakmeiðsl stóð sig framúrskarandi
vel og skoraði 16 stig í leiknum.
Warren Peebles átti þó flest stig
Skallagríms eða 21.
Ólafur Ormsson og Jón A. Stef-
ánsson skoruðu 16 stig hvor fyrir
KR og stóð Jón sig sérstaklega vel
í seinni hálfleik. Mikil og góð
stemmning skapaðist í íþróttamið-
stöðinni í Borgarnesi og voru
grunnskólanemar úr Borgarnesi
og Varmalandi boðsgestir á leikn-
um. Þeir ásamt öðrum heima-
mönnum hvöttu sína menn áfram
og var ekki laust við að menn
væru taugatrekktir undir lokin.
Sögulegur sigur
Hauka á ísafirði
Haukar hafa í gegnum tíðina
ekki sótt gull í greipar ísfirð-
inga vestra. Þar varð breyting á í
gær, því þeir mörðu
Halldór sigur á heimamönn-
Bjarkason um, 82:88, í miklum
skrifar baráttuleik, og
fögnuðu þar með
sínum fyrsta sigri á KFÍ í íþrótta-
húsinu á Torfnesi.
Það var ekki að sjá á leik lið-
anna að þar mættust næstefsta lið
deildarinnar og það neðsta, því
heimamenn áttu í fullu tré við
gestina úr Hafnarfirði og börðust
eins og ljón og áttu alla möguleika
á að knýja fram sinn fyrsta sigur á
leiktíðinni.
Eftir jafnar upphafsmínútur
tóku Haukar fram úr heimamönn-
um með góðum leikkafla og náðu á
tímabili tíu stiga forskoti, en Is-
firðingar hristu af sér slenið og
jöfnuðu fyrir hlé.
Jafnræði var svo með liðunum ;
þriðja leikhluta, en í upphafi þess
fjórða náðu Haukar níu stiga for-
ystu sem heimamönnum tókst
þrátt fyrir góðan vilja ekki að brúa
og þurfa því enn að doka eftir sín-
um fyrsta sigri í deildinni í ár.
Agaður og hreyfanlegur sóknar-
leikur leikmanna Ivars Ásgríms-
sonar skilaði þeim tveimur stigum.
Að sama skapi urðu nokkur ótíma-
bær skot á slæmum tíma heima-
mönnum að falli, og þá sérstaklega
í fjórða leikhluta. Breiddin var
áberandi hjá Haukunum, en í lokiií
tóku gömlu brýniri Marel, Jón
Arnar og Bragi af skarið.
Hjá KFÍ voru það Hrafn og
Fontana sem stóðu upp úr, og auk
þess ber að minnast á ungu leik-
mennina og þá helst Gest Sævars-
son, sem átti góða innkomu. Þrátt
fyrir tapið var baráttugleðin var
vissulega fyrir hendi, og með
áframhaldandi vinnu og eljusemi
er engin ástæða til þess að leik-
menn KFÍ geti ekki rétt úr kútn-
um.
Birmingham
tók af skarið
ÞÓRSARAR tóku á móti Njarðvíkingum í gær og voru mun betri en
gestirnirfyrstu þrjá ieikhlutana. Þá tók Brenton Birmingham til
sinna ráða svo um munaði og eflaust hafði reynslan líka sitt að
segja þegar Njarðvikingar skelltu hinu unga liði Þórs á lokasprettin
um og tryggðu sér öruggan sigur, 104:90.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrífar ■
Það var rétt í blábyrjun sem
gestirnir höfðu forystu en síð-
an blésu Þórsarar til sóknar með
Óðin Ásgeirsson í
fararbroddi.
Heimamenn kom-
ust í 33:27 eftir
fyrsta leikhlutann
og náðu svo tíu stiga forskoti,
37:27. Þór hélt þessu forskoti og
var staðan 54:44 í leikhléi. Þá
höfðu Njarðvíkingar misst Jes
Hansen meiddan út af.
Njarðvíkingar léku grimma vörn
í þriðja leikhlutanum og þeim
tókst smám saman að 1 minnka
muninn undir lok hans. Brenton
Birmingham hitti nánast hvar og
hvenær sem honum datt í hug að
hleypa af og fyrir lokaátökin höfðu
Þórsarar aðeins eins stigs forskot,
73:72. Brenton hélt síðan upptekn-
um hætti en Þórsarar voru farnir
að lýjast og hittnin hrapaði niður
úr öllu valdi. Ekki bættu varn-
armistök og klaufaleg brot úr skák
og Njarðvíkingar nýttu vítaskotin
vel síðustu mínúturnar og tryggðu
sér öruggan sigur sem fyrr segir.
Brenton Birmingham átti stór-
leik í liði Njarðvíkur og skoraði 39’
stig. Segja má að leikur hans hafi
bjargað liðinu frá tapi. Logi Gunn-
arsson var líka sterkur og þeir
Halldór Karlsson og Teitur Ör-
lygsson átttu góða spretti. Vörnin
small saman í síðasta leikhlutanum
með mikilli hvatningu frá vara-
mannabekknum. í liði Þórs hélt
Óðinn Ásgeirsson haus allan tím-
ann og skoraði 30 stig. Clifton
Bush var sterkur í fráköstunum en
hefði mátt reyna meira í sókninni.
Einar Hólm Davíðsson lék stórvel
framan af en dalaði svo hratt enda-
mæddi mikið á honum þar sem
Sigurður Sigurðsson var meiddur.
Einar Örn Aðalsteinsson var
líka góður framan af en fleiri
hefðu þurft að hrökkva í gang til
að draga vagninn. Ekki gekk það
upp að þessu sinni og því urðu
Þórsarar að játa sig sigraða eftir
hetjulega baráttu.