Morgunblaðið - 07.11.2000, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.11.2000, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000 B 5 ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Þorkell Einar Þorðvarðarson, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands íslands. margra mati vai- leikinn betri hand- knattleikur en oft áður. I framhaldi af því var ákveðið að ráða landsliðsþjálf- ara kvenna í fullt starf og um leið reyna að fjölga verkefnum liðsins. Einai- telur að þessi ráðning landsliðsþjálfara kvenna hafi svo sannarlega verið tímabær. Kvennalandsliðið eflt „Stjóm HSI ákvað að nýta þann byr sem var að loknu síðasta keppn- istbímabili til þess að efla kvenna- landsliðið og fékk í því sambandi mjög góða samstarfsaðila til liðs. Fyrsta stóra verkefni landsliðsins er leikir við Slóveníu í forkeppni að und- ankeppni heimsmeistaramótsins. Slóvenar ern með sterkt lið og var það á meðal þátttakenda á HM í Noregi í fyrra. Báðir leikimir verða hér heima um næstu mánaðamót og era sann- kölluð próf á hvar landsliðið stendur. Takist landsliðinu að komast áfram þarf það að taka þátt í tveimur leikj- um til viðbótar í vor. Sigurliðið í þeim leikjum kemst á HM næsta vetur. Nú hefur verið tekið ákveðið skref til þess að byggja upp kvennalands- liðið. Jafnhliða þessu hefur lands- liðsþjálfarinn verið með æfingar tvisvar í viku í haust og vetur fyrir þá leikmenn sem era hér heima. Hann hefur einnig unnið með unglinga- landsliðunum sem tóku þátt í for- keppni EM og Norðurlandamóti. Kvennalandsliðið var á dögunum í æfinga- og keppnisferð í Noregi og framundan eru tveir leikir ytra saut- jánda og átjánda þessa mánaðar gegn Sviss. Það er síðasti liðurinn í undir- búningum vegna leikjanna við Slóv- eníu. Það er verið að bæta stöðu kvenna- landsliðsins og það er virkilega spennandi að sjá hverju það skilar á næstu misseram og árum.“ / fyrravetur var íslandsmótinu breytt þannigað í staðfastra leikdaga eins og áður var þá dreifast leikir hverrar urnferðar á þrjá daga, til dæmis. Þykir þér þessi breyting hafa verið til góðs? „Því er erfitt að svara. Ákvörðunin var tekin í samráði við félögin. Samt er reynt að stíla flestar umferðirnar inn á helgar. Nú fengu félögin að ákveða hvenær þau vilja leika heima- leikina, enda er reynsla hjá þeim af þvíhvenær þeirra stuðningsmenn geta helst mætt á leiki. I vor þegar búið er að reyna þetta í tvö keppnis- tímabil er rétt að setjast niður og fara yfir og meta hvemig til hefur tekist, hvort halda eigi þessu áfram eða færa til fyrra horfs.“ Hefur breyting skilað fleiri áhorf- endum á leikina? „Eg held að það hafi verið mjög svipað. Hins vegai- virðast félögin vera ánægð með breytinguna." Aðeins að HSÍ aftur. Þykir þér um- ræða um landsliðið hafa verið neik- væðari en áður? „Ég held að að einhverju leyti hafi svo verið. Það er hins vegar stað- reynd að þegar illa gengur er óhjá- kvæmilegt að umræðan verði nei- kvæð. Við Islendingar eram þannig að við viljum ná árangri í því sem við eram að fást við hverju sinni. Þessi umræða er hluti af því. Mín skoðun er sú að það megi gagnrýna landsliðið, það á að stefna á að vera í fremstu röð og menn eiga að hafa skoðanir. Ef við þolum ekki gagnrýni eigum við ein- faldlega að pakka saman.“ Hefur gagnrýnin orðið til þess að erfíðara er að afía fjár? „Það hefur ekki reynt á það svo mark sé á takandi. Eflaust mun reyna meira á það á næstu vikum þar sem við eram með nokkra samninga lausa. Mitt mat er að umræðan hafi ekki skaðað okkur.“ HSÍ þarf að vera sýnilegra Hefur HSÍ verið nógu duglegt við að koma sínum sjónarmiðum á fram- færi? „Það er atriði sem við getum alveg viðm-kennt að hefur ekki verið í nógu góðu lagi. Ein ástæða þess er ef til vill sú að starfsmenn sambandsins era fá- ir og störfum hlaðnir við að halda sjó. Síðan ég tók við í vor hefur mikill tími farið í að skipuleggja starf okkar og taka ákveðna stefnu. Núna þegar undirbúningurinn fyrir HM er að taka á sig mynd og síðustu vináttulandsleikimir vora í höfn í síð- ustu viku var fyrst tími til þess að opna fyrir umræðu um þau verkefni sem framundan era. Þegar á heildina er litið með kynn- ingarmálin er ljóst að það er atriði sem við verðum og getum gert betui- í. Við þurfum að koma okkur meira á framfæri. Einn liðurinn í því er að vera með í öllum stórmótum á hand- knattleikssviðinu, heims- og Evrópu- mótum og eins að stefna að Ólympíu- leikum. Þetta á ekki aðeins við um karlaliðið, heldur öll okkar landslið." Það er greinilega mikið undir því komið að landsliðið nái árangrí á HM? „Á því leikur enginn vafi að það skiptir HSÍ gríðarlegu máli að vel gangi. Þorbjöm hefur tekið út rúm- lega 30 manna hóp leikmanna sem hann hefur í huga fyrir keppnina. Síð- ustu viku hefur hann heimsótt æfing- ar hjá félagsliðum og látið leikmenn vita af því að þeir séu inni í þessum hópi fyrir HM. Þá hefur hann farið til Þýskalands til þess að hitta leikmenn sem þar era og koma til greina. Ég tel að þama sé á ferðinni mjög sterkur hópur leikmanna. Á næstunni er ætlunin sú að leikmenn gefi Þor- birni svar um hvort þeir gefi kost á sér eða ekki. Þessi aðferð er notuð nú til þess að leikmenn viti með góðum fyrirvara að þeir komi til greina og geti um leið gert ráðstafanir til þess að mæta þeim kröfum sem til þeirra era gerð- ar, keppt að því að komast í landslið- ið.“ Teitur orð- aðurvið AIK TEITUR Þórðarson, þjálfari norska knattspyrnufélagsins 3 Brann, var í gær orðaður við stöðu þjálfara sænska úrvals- deildarfélagsins AIK frá Stokkhólmi. Aftonbladetí Svíþjóð taldi Teit einn af þeim sem kæmu til greina til að taka við af Stuart Baxter, en hann sagði starfí sínu lausu eftir lokaum- ferð sænsku úrvalsdeildarinnar um helgina. AIK hafnaði þar í þriðja sæti eftir að hafa verið í baráttunni um meistaratitilinn Ilengst af. „Það væri afar spennandi verkefni að þjálfa AIK sem eitt öflugasta félag á Norðurlöndum. En það er líka verulega Iáhugavert að halda áfram hjá Brann,“ sagði Teitur við Nett- avisen í gær. Undir hans sljórn náði Brann öðru sæti í norsku úrvalsdeildinni í ár og tryggði sér sæti í forkeppni meistara- deildar Evrópu. .....111............................. HM hef ur ekkert að segja fyrir EM Hvernig sem íslenska karlalandsliðinu vegnar á heimsmeistaramótinu í handknatt- leik í Frakklandi í byrjun næsta árs er ljóst að það verður að taka þátt í undankeppni að næstu loka- keppni Evrópumótsins sem fram fer í Svíþjóð eftir rúmt ár. í úr- slitakeppni EM í Svíþjóð taka tólf þjóðir þátt. Fimm þær efstu á síð- asta Evrópumóti sem haldið var í Króatíu í janúar sl. hafa þegar tryggt sér keppnisrétt í Svíþjóð. Það eru Svíar, Rússar, Frakkar, Spánverjar og Slóvenar, en hinar sjö þjóðirnar vinna sér rétt með því að taka þátt í tveimur leikjum, heima og að heiman, í lok maí og byrjun júní á næsta ári. Ljóst er hverjar tólf af þessum fjórtán þjóðum það eru sem bítast um sætin sjö. Það eru auk íslands: Króatía, Tékkland, Danmörk, Ungverjaland, Þýskaland, Mak- edónía, Noregur, Pólland, Portúg- al, Úkraína og Júgóslavía. Tvær þjóðir til viðbótar vinna sér keppn- isrétt með því að taka þátt í sér- stakri 19 þjóða forkeppni sem fram fer strax eftir áramót. Knattspyrnufélagið FRAM Knattspyrnudeild FRAM - Safamýri 26- 108 Reykjavík Sími 553 5600 - fax 533 5610 Heimasíða http://www.fram.is Tölvupóstur: grimur@fram.is Æfingatímar og þjálfarar 3.flokkur karla (1985-1986) Þjálfari: Lárus Grétarsson. Mánudagar Fimmtudagur Laugardaagur 21:45-23:00 19:45-20:30 17:00-19:00 Laugardal Framhús Álftamýri 4.flokkur karla (1987-1988) Þjálfari: Lárus Grétarsson. Miðvikudagur Fimmtudagur Laugardagur 16:20-18:00 19:00-19:45 13:00-15:00 Laugardal Framhús Álftamýri 5.flokkur karla (1989-1990) Þjálfari: Stefán Aðalsteinsson. Fimmtudagur Föstudagur Sunnudagur 15:30-16:15 17:00-18:00 14:00-16:00 Framhús Laugardal Álftamýri ó.flokkur karla (1991-1992) Þjálfari: Axel Gomez. Fimmtudagur Föstudagur Sunnudagur 16:15-17:00 16:00-17:00 12:00-14:00 Framhús Laugardal Álftamýri 7.flokkur karla (1993-199?) Þjálfari: Theódór Sveinjónsson. Fimmtudagur Sunnudagur 3. flokkur kvenna (1986-1987) Þjálfari: Hermann Valsson. Þriðjudagur Laugardagur Sunnudagur 4. flokkur kvenna (1988-1989) Þjálfari: Hermann Valsson. Þriðjudagur Laugardagur Sunnudagur 5. flokkur kvenna (1990-1991) Þjálfari: Axel Gomez. Þriðjudagur Sunnudagur 17:00-17:45 11:00-12:00 16:50-17:30 16:00-17:00 13:50-15:00 16:10-16:50 15:00-16:00 13:50-15:00 15:30-16:10 10:00-11:00 Framhús Álftamýri Álflamýri Álftamýri Laugardal Álftamýri Álflamýri Laugardal Álftamýri Álftamýri Yfirþjálfari: Lárus Grétarsson Aöst.þjálfari: Magnús Jónasson Markmannsþjálfari: Axel Gomez Hlaupaþjálfari: Vilmundur Vilhjálmsson Sjúkraþjálfari: Andrés Kristjánsson Æfingar fara fram í Framhúsinn við Safamýri, íþróttahúsi Álftamýraskóla og á gervigrasinu í Laugardal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.