Morgunblaðið - 22.11.2000, Page 1
Sigmar Vilhjálmsson
og Jóhannes
Ásbjörnsson eru
umsjónarmenn
þáttarins
70 mínútur
á Popp Tíví
POPR
T V
HIN KORNUNGA SJONVARPSSTOÐ
POPP TÍVÍ SINNIR INNLENDRI
DAGSKRÁRGERÐ AF KAPPI
ER sjonvarpsmenn-
ingin tók aö breið-
ast út yfir jarö-
kringluna og
vinsældir fjölmiö-
ilsins að aukast
opnuöust nýjar
leiöir til umsvifa
hjá frammámönnum í geiranum.
Hið heföbundna form sjónvarps-
stöðva, risabákn sem leggja sig í
líma við að sinna öllum þáttum
menningarinnar, og það kannski
með misjöfnum árangri, var ekk-
ert endilega málið lengur. Grund-
völlur fyrir sérhæfðar sjónvarps-
stöðvar sem sinna einum
málaflokki allan sólarhringinn
varð bratt að staðreynd.
Stöðvar eins og Discovery
Channel, Eurosport og
Cartoon Network ættu að
vera fólki að góðu kunnar
en svo eru líka til stöðvar
sem taka þessa hug-
myndafræði út í öfgar,
t.a.m. sjónvarpsstöðin
Manchester United, en
engin verðlaun verða
veitt þeim sem giskar J
rétt á umfjöllunarefni I
þeirrar stöðvar.
Það þóttu tímamót í
sögu sjónvarpsmenning-
arinnar, og sumir vilja
segja í vestrænni ►
Eitthvað fyrir alla
ÞAÐ hefur verið góó og gild hefð í
gegnum árin hjá Ríkissjónvarpinu að
bjóða upp á skemmtiþætti ætlaða
fólki á öllum aldri og af hvers kyns
toga, enda er þetta nú einu sinni
sjónvarpsstöðin okkar. Hvað er in-
dælla en að hjúfra sig upp að blá-
skjánum á laugardagskvöldi í faðmi
stórfjölskyldunnar með sælgæti og
gos í fanginu? Skemmst er að minn-
ast ægivinsælda Hemma Gunn hérí
eina tíð, er hann lék sér m.a. aö því
að láta heilu kauptúnin slökkva og
kveikja stofuljósin sín.
Leikkonan kunna, Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir, stýrirnú skemmtiþætt-
inum Milli himins ogjaröarí Ríkissjón-
varpinu en eins og nafnið gefur til
kynna er efnisvalið vítt bæði og breitt.
Dagskrárblaðið ræddi við Steinunni um
þennan nýja starfsvettvang hennar.
„Þetta er svona allt að koma," seg-
irSteinunn, aðspurð hvemig þetta
gangi nú hjá henni. „Ég hef aldrei
komiö neitt að dagskrárgerö áður
þannig að þetta er alveg ný reynsla
fýrir mig og ég er svona smátt og
smátt að læra ný vinnubrögó og reyna
að botna í þessum miðli sem sjón-
varpiö er." Steinunn segir enga sér-
staka fyrirmynd vera að þættinum.
„Mér var uppálagt af dagskrárstjóra
að vera með þátt sem ætti að henta
allri fjölskyldunni og það eru í sjálfu
sér mjög víðtæk skilaboö en við höf-
um reynt að miða við það að í hverjum
þætti væri eitthvað fýrir alla ald-
urshópa. Svo er auðvitað ótrúlegt
framboð af tónlistarfólki og hæfileika-
fólki alls kyns og við reynum að hafa
svona sæmilega blöndu aftónlistog
óvæntum uppákomum í þættinum."
Steinunn segist hafa ákveðið fýrir
löngu að taka sér smávegis frf úr leik-
húsinu. „Síöan kom þetta tækifæri og
ég ákvað að slá til og prófa þetta í einn
vetur." Hún vill nú ekki meina að
menntun hennar sem leikari nýtist
henni sérstaklega í þessu verkefni.
„Þama kem égfram í eigin persónu,
hef ekkert til að fela mig á bak við. En
starfsreynsla síöustu tíu ára kemur ör-
ugglega að góðum notum." Aðspurð
hvort einhverjir erlendir þættir séu
hafðir aö viðmiöi svarar hún: „Nei, viö
höfum ekki gert það. En eflaust er
maður eitthvað smitaður af því sjón-
varpsefni sem maöur hefur séð.“
Þættimireru á dagskrá á kjörtíma, á
milli kl. 20 og 21 öll laugardagskvöld.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er umsjónarmaður Milli himins ogjarðar.