Morgunblaðið - 08.12.2000, Side 5

Morgunblaðið - 08.12.2000, Side 5
Heimskona og hvunndagshetja Ung kvaddi Ragna Bachmann æskuslóðir sínar í braggahverfinu Kamp Knox með erfiða reynslu að baki og hélt út í heim, þar sem kún kynntist spennu og hættum hins ljúfa lífs. í Svasílandi og á Sri Lanka, á Jótlandi og í Jóhannesarborg, í Belgíu og Botsvana, í Reykjavík og víðar rataði hún í ótrúlegar raunir en fann jafnffamt dýpstu gleði. Saga skemmtilegrar og kjarkmikillar konu sem hefur notið glæsileika ævintýranna, látið ginnast af blekkingum þeirra og sjónhverfingum, leyst hinar bitru þrautir og hlotið að launum dýrmæta reynslu og þroska. Oddný Sen hefur skrifað reisubók Rögnu Bachmann á afar lifandi og nærfærinn hátt. I Þar sem ástin greip í taumana if Kjuregej Alexandra segir hér ffá óvenjulegu lífshlaupi sínu, ffá örlagaþrungnum uppvexti sínum í Jakútíu, einu fjar- lægasta landi gömlu Sovétríkjanna, þar sem líf á samyrkju- búum, oft við óblíðar aðstæður, og skólaganga fjarri heima- högum var hlutskipti hennar. Effir það lá leiðin á leiklistarháskóla í Moskvu, þar sem ástin a greip í taumana og leiddi hana alla leið hingað til Islands þar sem ævintýri og átök biðu hennar. Framandi menningararfur, hispursleysi og kjarkur hafa auðkennt allt það sem þessi fjölhæfa listakona hefur tekið sér fyrir hendur og saga hennar er saga allra þeirra sem láta hjartað ráða för - og gefast aldrei upp. Súsönnu Svavarsdóttur, höfundi bókarinnar, tekst að láta rödd Kjuregej hljóma í ffásögninni á einkar lifandi hátt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.