Morgunblaðið - 08.12.2000, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2000 1 5
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Kristinn
Þetta skrautlega jólahús stendur við Rauðagerði og blasir við vegfarendum á Miklubraut.
Sífellt
fjölgar
jóla-
húsum
Reykjavík
FJÖLMARGIR húseigendur
leggja sifellt meiri vinnu
og metnað í jólaskreyting-
ar húsa sinna.
Um nokkurra ára skeið
hafa tvö hús í Reykjavík,
annað í Artúnsholti og hitt
í Seljugerði, verið þekkt í
borginni fyrir að skera sig
úr að þessu leyti vegna
ljósagleði húseigendanna.
En ár frá ári fjölgar
þeim húseigendum sem
leggja metnað sinn í
skreytingarnar og þrjú
þeirra urðu á vegi ljós-
myndara blaðsins á ferð
um Reykjavík á dögunum.
Ljóst er að margir leggja
núorðið í umtalsverðan
kostnað við að lýsa upp
skammdegið með þessum
hætti bæði í kaupum á jóla-
ljósum og skreytingum,
sem kosta skildinginn, og
einnig með hækkuðum raf-
magnsrcikningi.
-' V • , * *''** " -$;*.* ■ * ** \ ’
. X ; ***?"*#> ** * . • . • .* * * . i >. ; T • • -A#. : .'■■’! v: * • : * * . * . '*f ' * ?*. .*. ( ».
•■ ••••■ '^N. ■ ■ :••? .. .1
\ ' • ( ' * * * »r*» . . . . • ú
/ '*H' t - í V \*** *
> * t‘ m , t 7 ; V; _ i • *. ‘h-. K': /áv * >:•.<
... . •. 'a • - A ' ■ ' • • .'V'-’i • * , '. .' ■ »/ *. • • ,*• * ,
•7 ú.V ' v ■*"■''■ . ': "
«
Margir hafa tekið eftir skreytingunum á þessu húsi, sem stendur við Aðalland en sést vel
frá horni Bústaðavegar og Eyrarlands. Nokkru vestar við Bústaðaveginn sést svo eitt mest
skreytta hús borgarinnar við Seljugerði.
Þetta hús við Beijarima í Grafarvogi lýsir upp skammdegið.
Borgin
samþykk
æfinga-
svæði
Formaður hafnarstj drnar Reykjavíkur
D-listi studdi
ekki kaupin
Reykjavíkurhöfn
ÁRNI Þór Sigurðsson, borg-
arfulltrúi Reykjavíkurlistans
og formaður hafnarstjórnar,
er undrandi á því að sjálf-
stæðismenn eigni sér hug-
myndina að endurskipulagn-
ingu slippasvæðisins, en í
Morgunblaðinu á miðviku-
daginn var rætt við Guðlaug
Þór Þórðarson, borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins,
sem sæti á í hafnarstjórn, um
málið.
Ami Þór sagði það rétt að
sjálfstæðismenn hefðu lagt
fram tillögu um hugmynda-
samkeppni um skipulag
svæðisins í hafnarstjórn í
júní, en að afgreiðsju hennar
hefði verið frestað. í kjölfarið
hefði hafnarstjórn samþykkt
samhljóða bókun þar sem
m.a. hefði sagt: „Samkvæmt
gildandi aðalskipulagi og
lóðasamningum er gert ráð
fyrir rekstri dráttarbrauta og
smiðju á umræddum lóðum
næstu 16 árin. Verði breyting
á þeim forsendum mun hafn-
arstjórn taka afstöðu til aðal-
og deiliskipulags."
Ekki nóg að hafa
góðar hugmyndir
Ámi Þór sagði að með
þessari bókun hefði hafnar-
stjórn tekið samhljóða af-
stöðu um að fjalla um hugsan-
legar breytingar á land-
notkun á slippasvæðinu í
tengslum við endurskoðun að-
alskipulags og því hefði til-
lögu sjálfstæðismanna verið
vísað til vinnu við endurskoð-
un aðalskipulags, enda hefðu
hún verið ótímabær þegar
hún var flutt.
Árni Þór sagði að forsendur
til að undirbúa vinnu við end-
urskoðun skipulags á svæðinu
hefðu fyrst skapast í lok októ-
ber þegar borgin hefði keypt
lóð og húseignir Stáltaks við
Mýrargötu. Hann sagði að
sjálfstæðismenn í hafnar-
stjórn hefðu ekki treyst sér til
að styðja þau kaup og því
væri hann mjög undrandi á
því að þeir vildu eigna sér til-
löguna um endurskipulagn-
ingu slippasvæðisins.
„Það er ekki nóg að hafa
góðar hugmyndir ef menn eru
svo ekki reiðubúnir að styðja
þær þegar kemur að því að
hrinda þeim í framkvæmd,“
sagði Ámi Þór.
Grafarvogur
BORGARRÁÐ hefur gert
samkomulag við Ökukennara-
félag Islands, sem felur í sér
að komið verði upp svæði fyr-
ir akstursæfingar við Gufu-
nesveg.
I samkomulaginu felst m.a.
að borgin taki á sig kostnað
við að gera lóðina byggingar-
hæfa. Auk borgarinnar og
ökukennara hafa dómsmála-
ráðuneytið og Samband ís-
lenskra tryggingafélaga ljáð
málinu liðsinni. Þá hefur fleiri
sveitarfélögum ásamt ýmsum
stofnunum, fyrirtækjum og
einstaklingum verið boðið að
gerast stofnaðilar að væntan-
legu hlutafélagi en stofnfundur
þess verður haldinn 10. janúar
nk. Boð um aðild var m.a.
kynnt bæjarráði Kópavogs á
fundi þess í síðustu viku en af-
greiðslu málsins var frestað.
Bæjarstjóri um kvartanir vegna
slysagildru á Lækjargötu
Ljós væntan-
leg snemma
á næsta ári
Hafnarfjöröur
MAGNÚS Gunnarsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði,
segir að fjárveiting til að
setja upp umferðarljós á
mótum Lækjargötu og
Öldugötu liggi nú fýrir og
hönnun standi yfir. Vænt-
anlega verði framkvæmd-
um lokið snemma á næsta
ári.
I frétt í Morgunblaðinu í
gær var haft eftir Stein-
unni A. Gunnlaugsdóttur
og Sigurjóni Elíassyni,
íbúum við Lækjargötu, að
bæjaryfirvöld hefðu skilið
eftir slysagildru í götunni
með því að ljúka ekki við
að koma upp umferðareyj-
um og ljósum um leið og
gatan var breikkuð með
því að afnema bílastæði sl.
sumar. Ekið var á syni
þeirra í síðustu viku þar
sem þeir voru á leið frá
heimilum sínum að Lækj-
arskóla.
Vaxandi áhyggjur
Magnús Gunnarsson
sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að bæjaryfir-
völd hefðu haft vaxandi
áhyggjur af umferð um
Lækjargötu, sem er ein
þriggja helstu tengibrauta
milli miðbæjarins og
Reykjanesbrautar. Um-
ferð um götuna hefði m.a.
aukist í kjölfar þess að
Reykjanesbraut var lögð
frá Breiðholtsbraut, um
Smárann og að Kapla-
krika. Magnús sagði að
mál vegna vegarkaflans
sem Steinunn og Sigurjón
ræddu um hefðu verið til
umfjöllunar hjá bæjarfé-
laginu og við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar næsta
árs í lok nóvember hefði
verið gert ráð fyrir 8 m.kr.
framlagi til að setja upp
umferðarstýrð ljós þar á
horninu, svo og miðeyjar
og aðrar úrbætur. Mann-
virkin væru nú í hönnun.
„Þessar úrbætm- verða
gerðar svo fljótt sem end-
anlegri hönnun lýkur,“
sagði Magnús. „Ég vil
einnig vekja athygli á því,
sem ég held að hafi ekki
farið fram hjá neinum, að
við höfum verið í miklum
aðgerðum til að auka um-
ferðaröryggi um allan bæ,
höfum cifmarkað sérstök
30 km/klst. hverfi, bætt við
hraðahindrunum og tak-
mörkunum og verið með
umferðarviku og gert allt
til að koma í veg fyrir stór-
slys. Því miður hafa orðið
stórslys í sveitarfélaginu,
ég tala ekki um á Reykja-
nesbraut, sem hefur verið
algjör skaðvaldur í langan
tíma. Þar brugðumst við
meðal annars við með því
að setja undirgöng á eigin
kostnað undir Reykjanes-
brautina. Ég vil í raun og
veru fullvissa bæjarbúa
um að bæjaryfirvöld eru
að gera sitt besta til að
tryggja umferð gangandi
og akandi vegfarenda."
Steinunn og Sigurjón
fundu að því að fram-
kvæmdum hefði ekki verið
lokið í einum áfanga held-
ur gatan aðeins breikkuð,
sem hefði aukið hrað-
akstur. Voru það mistök af
hálfu bæjaryfirvalda?
Bæjaryfirvöld reyna
sitt besta
„Auðvitað erum við afar
leiðir yfir því ef það verða
slys en framkvæmdir
þarna hafa verið teknar
áfangaskipt. Við gætum
alls staðar dregið upp þá
mynd að segja að ef hlut-
irnir væru svona hefði
þetta eða hitt ekki gerst en
bæjaryfirvöld eru að reyna
sitt besta eftir fremsta
megni og ég veit að mitt
fólk á gatnadeildinni og á
tæknideildinni er að reyna
að gera sitt besta,“ sagði
Magnús. Hann sagði að
hönnun mannvirkjanna
væri þegar farin af stað og
framkvæmdir hæfust um
leið og henni væri lokið.
Því kvaðst hann eiga von á
að ljósin ættu að geta kom-
ist í notkun á horninu í
byrjun næsta árs. I máli
Steinunnar og Sigurjóns
kom einnig fram óánægja
með viðbrögð bæjarstjóra
og bæjaryfirvalda við
ábendingum þeirra um þá
hættu sem börnum væri
búin á Lækjargötu að
óbreyttu. Spurður um það
atriði sagði bæjarstjóri að
bæjai’yfirvöldum bærust
ótal ábendingar með ósk-
um um úrbætur, sem
þyrfti að meta og reyna að
bregðast eins fljótt við og
hægt er innan þeirra
marka sem fjárhagsáætlun
hvers árs setur. Þegar ljós
og eyjar væru komin á
horn Lækjargötu og Öldu-
götu væri vonandi búið að
gera þar það sem hægt er í
öryggismálum.
Umferð eykst
en minnkar ekki
á Lækjargötu
„Hins vegar er það alveg
ljóst að þessi gata verður
aldrei með lítilli umferð; ef
eitthvað er mun umferð
um Lækjargötu aukast.
Hún er í raun ein af þrem-
ur tengibrautum bæjarins
við Reykjanesbraut.
Með vaxandi byggð í
Setbergi og Mosahlíð og
lagningu Reykjanesbraut-
arinnar inn í Garðabæ og
Smára hefur umferð vaxið
og svo má ekki gleyma
þeim þætti sem lýtur að al-
mennri bílaeign lands-
manna sem hefur stórauk-
ist á liðnum árum.
Umferðin er orðin þannig
að það er allt of mikill
hraði og of margir bílar á
ferð miðað við afkastagetu
veganna. Þessa staðreynd
höfum við stöðugt verið að
benda á og höfum m.a.
óskað eftir úrbótum við
Vegagerðina. Nú hillir
undir lausn á mótum
Lækjargötu og Reykja-
nesbrautar þar sem Vega-
gerðin er með ný gatnamót
á hönnunarstigi og gert er
ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist síðla á þessu ári eða
í byrjun þess næsta,“ sagði
Magnús Gunnarsson.