Morgunblaðið - 08.12.2000, Qupperneq 60
40 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Við þökkum af heilum huga auðsýnda samúð,
vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar
eiginmanns mins, föður okkar, fósturföður
míns, afa míns og tengdaföður míns,
SIGURÐAR HARALDSSONAR,
Eiðsvallagötu 36,
Akureyri.
Sérstakar þakkir faerum við starfsfólki Heima-
hlynningar á Akureyri.
Sveinbjörg Pétursdóttir,
Kristján Pétur Sigurðsson,
Birgir Sigurðsson,
Sigurður Magnús Þórðarson,
Þóra Björg Sigurðardóttir,
Fróðný Pálmadóttir.
+
Þökkum innilega sýnda vináttu og hlýhug við
fráfall
JÓNS ÁSGEIRSSONAR.
Jóhanna Guðmundsdóttir,
Kristfn Jónsdóttir, Ásgeir Björnsson,
Hanna Charlotta Jónsdóttir, Edgar E. Cabrera,
Ásgeir Jónsson, Halla Grétarsdóttir,
Þórður Ásgeirsson, Guðríður M. Thorarensen
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför hjartkærrar eiginkonu
minnar, systur, mágkonu og frænku,
HELGU BERGÞÓRU
SVEINBJÖRNSDÓTTUR
auglýsingateiknara,
Ártúnsbrekku við Elliðaár.
Birgir Guðgeirsson,
Gerður Guðgeirsdóttir,
Jón Sveinbjörnsson, Guðrún Magnúsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Lokað
J
Skrifstofa Vélstjórafélags íslands, Borgartúni 18, Reykjavík,
verður lokuð í dag frá kl. 12 á hádegi vegna jarðarfarar JÓNS
RÚNARS ÁRNASONAR og VILBORGAR JÓNSDÓTTUR.
Vélstjórafélag íslands.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfali
ÖNNU BÁRU KRISTINSDÓTTUR (OLSEN).
Guð blessi ykkur öll.
Aðstandendur.
--------------------------------------------
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer
höfundar/sendanda íylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
' ‘ eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa
skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru
h nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect
T einnig auðveld í úrvinnslu.
Tekst Khalifman að verja
heimsmeistaratitilinn?
SKAK
Nýja Delhí
Heimsmeistaramót FIDE
25.11.-27.12.2000
SKÁK
FJÓRÐA umferð á heimsmeist-
aramótinu í skák stendur nú yfir í
Nýju Delhí á Indlandi. Sextán
skákmenn eru eftir í keppninni.
Urslit fyrri skákar í fjórðu umferð
urðu þessi:
Bartlomiej Macieja - V. Anand V2-V2.
Rafael Leitao - Alexander Khalifman
V2-V2. Michael Adams - Peter Svidler
V2-V2. Alexei Dreev - Veselin Topalov 1-0.
A. Morozevich - Vladislav Tkachiev V2-V2.
Jaan Ehlvest - Alexander Grischuk V2-V2.
Alexei Shirov - Boris Gelfand V2-V2. Evg-
eny Bareev - Boris Gulko V2-V2.
Sjö skákir af átta enduðu því
með jafntefli. Sumar þeirra voru
sannkölluð stórmeistarajafntefli,
þ.e.a.s. meistararnir sömdu stutt
og baráttulaus jafntefli. Það er því
greinilegt að margir þeirra eru
orðnir hvíldar þurfi. Urslitin í átt-
undu skákinni komu nokkuð á
óvart þegar rússneski stórmeistar-
inn AJexei Dreev (2681) sigraði
búlgarska stórmeistarann Veselin
Topalov (2707) sem er í 10. sæti yf-
ir stigahæstu skákmenn heims.
Það kom þeim sem fylgdust með
þriðju umferð mótsins hins vegar
ekki á óvart að Khalifman gerði
stutt jafntefli í fyrstu skák fjórðu
umferðar. I þriðju umferð mætti
hann Ungverjanum Peter Leko og
þeir þurftu að tefla alls átta skákir
þar til úrslit fengust. Khalifman,
sem er núverandi heimsmeistari
FIDE, jók með þessum sigri til
muna líkur sínar á því að verja
heimsmeistaratitilinn. Tölfræði-
spekingurinn Jeff Sonas telur nú
meira að segja að Khalifman eigi
bestar líkur á því að hreppa heims-
meistaratitilinn, þótt Anand sé
skammt undan í öðru sæti. Sonas
gefur Khalifman 26% líkur á sigri,
Anand 25% og Shirov 21%, en aðr-
ir eiga mun minni möguleika. Það
er fróðlegt að bera þetta saman við
könnun skak.is þar sem flestir spá
Anand sigri, Shirov er í öðru sæti
og Khalifman í því þriðja. Spenn-
andi verður að sjá hvort tölfræð-
ingurinn eða íslenskir skákáhuga-
menn verða nær raunverulegri
niðurstöðu. Fyrirfram taldi undir-
ritaður að fyrirkomulag keppninn-
ar væri þannig að litlar líkur væru
til þess að sami skákmaður ynni
keppnina tvisvar í röð. Á móti veg-
ur, að það kerfi sem keppt er eftir
hentar skákmönnum misjafnlega
vel. Khalifman hefur sýnt, að hann
er mikill baráttujaxl og virðist hafa
betri taugar en margir aðrir í
keppni af þessu tagi.
Onnur skák fjórðu umferðar var
tefld í gær, en atskákir verða
tefldar í dag í þeim einvígjum þar
sem úrslit hafa ekki fengist.
Bragi Þorfinnsson
sigraði á afmælismóti TG
í tilfefni af 20 ára afmæli Taflfé-
lags Garðabæjar var efnt til af-
mælisskákmóts félagsins. Tekin
var ákvörðun um að halda mótið á
ICC-skákþjóninum og fór það fram
sunnudaginn 3. desember. Ein af
ástæðunum fyrir að halda mótið á
Netinu er sú, að yfir 75% virkra
skákmanna í félaginu búa erlendis.
Bæði má rekja það til náms og
vinnu erlendis, auk þess sem 15 út-
lendingar eru í féiaginu. Afmælis-
mótið var haldið í boði ICC og því
var ekkert þátttökugjald. Kepp-
endur á mótinu voru 20, en röð
efstu manna varð sem hér segir:
1. Bragi Þorfinnsson V/z v. 2. Sævar
Bjamason V/2 v. 3. Jón Viktor Gunnarsson
6V2 v. 4. Stefán Kristjánsson 6 v. 5. Heimir
Asgeirsson 514 v. 6.-10. Róbert Harðar-
son, Arnar Þorsteinsson, Gunnar Björns-
son, Björn Jónsson, Sigurður Steindórs-
son 5 v. 11.-12. Björn Karlsson, Leifur
Vilmundarson 414 v. o.s.frv.
Verðlaunahafar í opn-
um flokki voru eftirfar-
andi:
Bragi Þorfinnsson
(10.000 kr.), Sævar
Bjarnason (1 mán. á
ICC), Jón V. Gunnars-
son (1 mán. á ICC),
Stefán Kristjánsson (1
mán. á ICC)
Verðlaunahafar frá TG:
Björn Jónsson (5.000
kr.), Leifur I. Vilmund-
arson (1 mán. á ICC),
Páll Sigurðsson (1 mán.
á ICC), Jóhann H.
Ragnarsson (1 mán. á
ICC).
Verðlaunahafar undir
1800 skákstigum:
Leifur Vilmundarson (3.000 kr.),Páll Sig-
urðsson (1 mán. á ICC), Kristján Örn El-
íasson (1 mán. á ICC).
Mótsstjóri á afmælismóti TG var John
Fernandez frá ICC.
Unglingar úr Taflfélaginu
Helli heimsækja Akureyri
Unglingasveit frá Taflfélaginu
Helli heimsótti Akureyri nýlega og
keppti við jafnaldra sína úr Skák-
félagi Akureyrar. Bæði þessi félög
standa fyrir öflugu unglingastarfi.
Taflfélagið Hellir er ungt félag
sem byggt hefur upp sitt ungl-
ingastarf á skömmum tíma, en Ak-
ureyringar hafa áratuga reynslu á
þessu sviði og hafa jafnan verið í
fremstu röð. Það hefur því verið
spennandi fyrir þessa ungu og
efnilegu skákmenn að fá að hittast
og kynnast, en Flugfélag íslands
átti stóran þátt í að gera þessa
heimsókn mögulega.
Fyrsta keppnisdaginn mættust
lið Hellis og SA og tefldar voru
þrjár umferðir. Samanlögð úrslit
urðu 23-10 Helli í vil. Bestum ár-
angri í liði Hellis náði Ásgeir Mog-
ensen, sem yann allar þrjár skák-
irnar. Þeir Ágúst Bragi Björnsson
og Jón Heiðar Sigurðsson náðu
bestum árangri Akureyringa og
fengu tvo vinninga hvor.
Annan keppnisdaginn var haldið
15 mínútna mót þar sem tefldar
voru sjö umferðir. Ekki var skipt 1
lið á mótinu, heldur var hér um
einstaklingskeppni að ræða. Ör-
uggur sigurvegari varð Ágúst
Bragi Björnsson úr SA með sjö
vinninga í jafnmörgum umferðum.
í öðru sæti varð Benedikt Örn
Bjarnason úr Helli með sex vinn-
inga. Þriðji varð svo Jón Birkir
Jónsson úr SA með fimm vinninga.
Röð efstu manna varð annars sem
hér segir:
1. Ágúst Bragi Bjömsson 7 v. 2. Benedikt
Örn Bjarnason 6 v. 3. Jón Birkir Jónsson
5 v. 4.-9. Alex Orrason, Hafliði Hafliðason,
Halldór Heiðar Hallsson, Atli Freyr
Kristjánsson, Ólafur Evert, Anna Lilja
Gísladóttir 4 v. 10. Ásgeir Mogensen 314 v.
o.s.frv.
Þriðja keppnisdaginn var tefld
liðakeppni á milli Hellis og SA á
ellefu borðum þar sem hver kepp-
andi mætti öllum liðsmönnum and-
stæðingsins. Umhugsunartími var
sjö mínútur á skák. Samanlögð úr-
slit urðu 83-38 Helli í vil. Hins
vegar var það Akureyringurinn
Ágúst Bragi Björnsson sem náði
bestum árangri allra keppenda og
hlaut 10‘/2 vinning. Atli Freyi’
Kristjánsson náði hins vegar best-
um árangri í liði Hellis og fékk 914
vinning.
Vigfús Óðinn Vigfússon var far-
arstjóri liðs Hellis sém naut annál-
aðrar gestrisni Akureyringa með-
an á heimsókninni stóð.
Mót á næstunni
16.12. TR. Jólaæfing
17.12. Hellir. Jólapakkamót
17.12. SA. 15 mínútna mót
19.12. TK. Jólapakkamót
22.12. SA. Fischer-klukkumót
26.12. TK. Jólahraðskákmót
27.12. TR. Jólahraðskákmót
28.12. SA. Jólahraðskákmót
30.12. SA. Hverfakeppni
Daði Orn Jónsson
|Gefið ástinni tilýja gjöf
Ekta pelsar
verð frá kr. 50.000
Opið virka daga kl. 11—18, lau. kt 11—16 og sun. kl.13—18.
Signrstjama
Fákafeni (Bláu húsin),
S. 588 4545
- Tilkynning um skráningu skuldabréfa á Verðbréfaþing Islands hf. -
Flokkur:
Útgáfudagur:
Áv.kr. á fyrsta söludegi:
Grunnvísitala:
Vextir
Fyrsti gjalddagi:
Einingar bréfa:
Skráning:
EFA HF.
1c/1996 og 1 d/1996
24. janúar 1996
6,15%
Nvt. 174,2
1c/1996: 24. janúar 2001
1 d/1996: 24. janúar 2002
5.000.000 kr.
2. flokkur 1996
14. maí 1996
5,95%
Nvt. 175,8
5,95%
10. maí 1997
5.000.000 kr.
Verðbréfaþing Islands hefur samþykkt að taka
skuldabréfin á skrá og verða þau skráö fyrir lok
desember 2000, enda verði öll skilyrði skráningar
uppfyllt.
Upplýsingar og gögn: Skráningarlýsingin og önnur gögn sem vitnað er til
í skráningarlýsingunni liggja frammi hjá Lands-
banka íslands hf., Laugavegi 77, 155 Reykjavík og
á skrifstofu Efa hf., Síöumúla 28, 108 Reykjavík.
Söluaðiii: Landsbréf hf., Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
Umsjón með útgáfu: Landsbréf hf., Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
GFH
u
Landsbanki Islands