Morgunblaðið - 08.12.2000, Síða 4
mm
IÞRMnR
FOLK
■ Ll/ÍS Figo, portúgalski leikmað-
urinn sem leikui- með Real Madrid
og dýrasti leikmaður heims, var val-
inn knattspyrnumaður ársins af les-
endum World Soccer tímaritsins.
Zinedine Zidane hjá Juventus varð
annar í kjörinu og Andriy Shevch-
enko hjá AC Milan þriðji.
■ FRANSKA landsliðið vai- valið lið
ársins og þar á eftir kom lið Kamer-
ún. Besti þjálfari ársins var valinn
Dino Zoff fyrir að koma ítalska
landsliðinu í úrslit Evrópukeppn-
innar.
■ LEIKMENN ítalska liðsins
Brescia voru í fangelsi í gær. Þeim
var ekki stungið inn heldur fóru
þeir í heimsókn í fangelsið til að
létta lund fanganna. Það tókst
bærilega en menn voru þó súrir yfir
því að Roberto Baggio, fyrrum fyr-
irliði landsliðsins, var heima með
flensu.
■ NORSKU meistararnir í Rosen-
borg gengu í gær frá kaupum á
markverðinum Espen Johnsen sem
leikið hefur með Start í norsku úr-
valsdeildinni. Rosenborg greiddi 58
milljónir fyrir Johnsen sem kemur
til með að keppa við Árna Gaut
Arason um markvarðarstöðuna hjá
félaginu á næstu leiktíð.
■ KARL Malone, leikmaður Utah
Jazz, skoraði 31 stig gegn Toronto
Raptors í vikunni og varð þar með
annar stigahæsti leikmaður NBA-
deildarinnar frá upphafi.
■ JOHN Stockton var að sjálfsögðu
sá sem gaf stoðsendinguna á Mal-
one þegar hann skoraði körfuna
sem skaut honum upp fyrir Wilt
Chamberlain.
■ MALONE, sem er 37 ára gamall,
hefur nú skorað 31.443 stig á ferlin-
um en efstur á listanum og 6.944
stigum á undan Malone er Kareem
Abdul-Jabbar.
■ DON Nelson, þjálfari Dallas Mav-
ericks, tilkynnti leikmönnum liðsins
að hann hefði greinst með krabba-
mein í blöðruhálskirtli en hygðist
samt sem áður þjálfa liðið út keppn-
istímabilið.
■ AÐEINS þrír þjálfarar hafa unn-
ið fleiri leiki í NBA-deildinni en Nel-
son sem hefur stjórnað NBA-liðum
til sigurs í 937 leikjum og 758 leikj-
um hafa liðin hans tapað til þessa.
Jamison
og Bryant1
með 51
stig hvor
ANTAWN Jamison, leikmað-
ur Golden State Warriors,
skoraði 51 stig í annað skipt-
ið á fjórum dögum þegar lið
hans skellti meisturum Los
Angeles Lakers, 125:122, í
framlengdum leik í NBA-
deildinni í körfuknattleik í
fyrrinótt. Ekki nóg með það,
heldur skoraði Kobe Bryant
51 stig fy rir Lakers í lciknum
sem þróaðist upp í einvígi
þeirra tveggja. Þetta er í
fyrsta skipti í 38 ár sem tveir
leikmenn skora 50 stig í sama
leiknum í NBA-deildinni. Síð- '
■er
d-
filt i;
I
i
5an !,
’
Reuters
Frakkinn Emmanuel Petit sem leikur með Barceiona á hér í höggi við Gert Verheyen. Stuðningsmenn spænska liðsins púuðu á leik-
menn sína eftir 1:1 -jafntef lið, en liðið komst þó áfram.
íslendingaliðin
eru bæði úr leik
EVRÓPUDRAUMUR Rosenborgar, sem Árni Gautur Arason leikur
með og Herthu Berlín, sem Eyjólfur Sverrisson leikur með, er úti.
Árni Gautur og félagar töpuðu 3:1 á heimavelli fyrir Alaves frá Spáni
en liðin gerðu 1:1 jafntefli í fyrri leiknum. Eyjólfur og félagar heim-
sóttu Inter eftir markalaust jafntefli heima f fyrri leiknum og stóðu
vei að vígi, hvort lið hafði gert eitt mark, allt þar til þrjár mínútur
voru til leiksloka að varamaðurinn Hakan Sukur gerði annað mark
heimamanna og tryggði sæti í fjórðu umferð UEFA bikarnum.
Leikmenn Rosenborgar hófu leik-
inn betur en gerðu sjálfsmark á
18. mínútu og eftir það lögðu Spán-
verjarnir mikla áherslu á vörnina og
náðu Norðmenn ekki að skapa sér
nægilega hættuleg mai’ktækifæri.
Alaves, sem er í fimmta sæti
spænsku deildarinnar, gerði annað
mark á 37. mínútu er varnarmönn-
um Rosenborgar urðu á mistök og
skpruðu framhjá Árna Gauti.
í síðari hálfleik kom markahæsti
maður spænsku deildarinnar inn á
og hann hafði aðeins verið með í
leiknum í þrjár mínútur þegar hann
var búinn að skora, komst einn á
-móti Áma Gauti og skoraði framhjá
honum.
„Ég er mjög vonsvikinn. Vömin
hjá okkur var mjög léleg í kvöld,“
sagði Nils Ame Eggen þjálfari Ros-
enborgar eftir leikinn.
Heimamenn Mílanó fengu óska-
byrjun, Christian Vieri kom boltan-
um á hinn léttfætta Alvaro Recoba
frá Úrúgvæ á 6. mínútu og hann átti
ekki í erfiðleikum með að skora.
Hann var reyndar nærri því að koma
Inter í 2:0 skömmu síðar, en gott
skot hans fór rétt framhjá marki
Herthu.
Eftir hlé voru það leikmenn
Herthu sem vom mun ákveðnari og
ætluðu þeir sér greinilega að komast
áfram. Liðið sótti nokkuð og Rene
Tretschok jafnaði á 56. mínútu, fékk
boltann frá Eyjólfi.
Gestirnir réðu gangi mála á miðj-
unni þar sem Eyjólfur átti mjög góð-
an leik og allt stefndi í frækinn ár-
angur, en Sukur gerði út um vonir
þýska liðsins. Þremur mínútum fyrir
leikslok fékk hann langa sendingu
fram miðjuna, varnarmaður virtist
geta skallað frá en tókst það ekki og
Sukur komst einn á móti Gabor
Kiraly markverði og skoraði.
Liverpool tók á móti gríska liðinu
Olympiakos en liðin skildu jöfn 2:2 í
fyrri leiknum. Heimamenn unnu
með marki frá Emile Heskey í fyrri
hálfleik og Nick Bamby í þeim síð-
ari. Síðara markið var skemmtilegt,
Barnby komst upp undir endamörk
vinsti-a megin og skaut föstu skoti í
stöngina nær, þaðan fór boltinn í
stöngina fjær og í netið.
Grikkirnir áttu ekki mörg mark-
tækifæri en áttu þó að fá vítaspyrnu
undur lok leiksins þegar Sander
Westerveld, markvörður Liverpool
felldi Predrag Djordjevic. En ekkert
var dæmt og heimamenn fögnuðu
sigri.
Stuðningsmenn spænska stórliðs-
ins Barcelona bauluðu á sitt lið þrátt
fyrir að liðið kæmist áfram í 16 liða
úrslit keppninnar. Club Brugge frá
Belgíu undir stjóm norska þjálfar-
ans Trond Sollieds lék einum færri
síðustu 22 mínútur leiksins og Riv-
aldo skoraði eina mark heimamanna
úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Gert
Varheyen jafnaði leikinn íyrir
Brugge tíu mínútum síðar en það
dugði ekki til þar sem Barcelona
vann fyrri leik liðana með tveimur
mörkum gegn einu.
Mark frá Aldair gaf leikmönnum
Roma frá Ítalíu aukinn kraft gegn
þýska liðinu Hamburger. Brasilíski
varnarmaðurinn skoraði glæsilegt
mark eftir hornspyrnu á 29. mínútu
og ítalski landsliðsmaðurinn Marco
Delvecchio skoraði annað mark
Roma á 58. mínútu og tveimur mín-
útum síðar bætti Walter Samuel
þriðja markinu við og Hamburger
tapaði þar með sjötta leik sínum 1 röð
Fyrri leik Real Vallecano frá
Spáni og Lokomotiv Moskva lauk
með markalausu jafntefli í Moskvu
en Spánverjarnir nýttu sér vel ein-
beitingai'leysi gestanna á útivelli. Á
þriggja mínútna kafla í seinni hálf-
leik skoruðu þeir Bolic og Alcazar
fyrir heimaliðið og það urðu lokatöl-
ur leiksins.
Ellert eftirlitsmaður
UEFAíVigo
Ellert B. Schram var eftirlitsmað-
ur UEFA á leik spænska liðsins
Celta Vigo og Shakhtar Donetsk frá
Úkraínu en lengi vel var allt útlit fyr-
ir að leikurinn færi ekki fram vegna
mikilla rigninga í Vigo. Markalaust
varð í íyrri leik liðanna og eina mark
leiksins á Spáni skoraði Catanha á
28. mínútu. Celta Vigo hefur ekki
tapað á heimavelli í Evrópukeppni í
tvö ár en Valery Karpin var nálægt
því að jafna fyrir Donetsk á 68. mín-
útu.