Morgunblaðið - 21.12.2000, Síða 3
+
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2000 B 3
ÍÞRÓTTIR
Stigahæstir
Stigahæstu leikmenn úrvalsdeildar karla miðað
við tölfræði KKÍ þann 19. desember:
1. Dwayne Fontana (KFÍ).................33,7
2. Calvin Davis (Keflavík)..............25,8
3. Brenton Birmingham (Njarðvík)........25,1
4. Mike Bagen (Haukar)..................25,0
5. Alez Sivanovic (KFÍ).................25,0
6. Chris Dade (Hamar)...................24,8
7. Shawn Myers (Tindastól)..............23,6
9. Warren Peebles (Skallagr.)...........23,0
10. Cedrick Holmes (ÍR).................22,0
11. Páll Axel Vilbergsson (Grindavík)...21,9
12. Clifton Bush (Þór Ak.)..............21,8
13. Óðinn Ásgeirsson (Þór Ak.)..........20,5
15. Logi Gunnarsson (Njarðvík)..........19,6
16. Sveinn Blöndal (KFI)................18,8
17. Ólafur Jón Ormsson (KR).............17,8
21. Jón Arnór Stefánsson (KR)...........15,8
25. Kristinn G. Friðriksson (Tindastól)..13,8
31. Herbert Arnarson (Valur/Fjölnir)....12,9
43. Teitur Örlygsson (Njarðvík).........10,3
52. Alexander Ermolinskij (Skallagr.)....9,1
40 mínútna listinn
Meðalstigaskor í úrvalsdeiíd karla miðað við að
allir leikmenn leiki jafnt eða í 40 mínútur í hverj-
um leik.
1. Dwayne Fontana (KFÍ).................34,3
2. Calvin Davis (Keflavík)..............32,0
3. Brenton Birmingham (Njarðvík)........25,1
4. Logi Gunnarsson(Njarðvík)............28,6
5. Páll A Vilbergsson (Grindavík).......28,5
6. Chris Dade (Hamar)...................28,3
7. Bragi Magnússon (Haukar).............26,3
8. Brynjar Karl Sigurðsson (Val/Fjölni).25,4
9. Eiríkur Önundarson (í R).............25,4
10. Shawn Myers (Tindastól).............25,2
15. Pétur M.Sigurðsson (Val/Fjölni).....22,6
16. Jón Arnór Stefánsson (KR)...........22,3
18. Albert Óskarsson (Keflavík).........21,9
26. Gunnar H. Stefánsson (Keflavík).....20,0
27. Guðjón Skúlason (Keflavík)..........20,0
62. Teitur Örlygsson (Njarðvík).........14,0
63. Sævar Garðarsson (Njarðvík).........13,8
Leikið í hálftómum húsum í 1. deildar keppni karla í handknattleik
Stokka þarf
upp spilin
MIKIL fækkun áhorfenda á leikjum í 1. deild karla í handknattleik
veldur vaxandi áhyggjum hjá forráðamönnum félaganna og ekki
verður annað séð en að menn þurfi að setjast niður og stokka al-
gjörlega spilin. Hver leikurinn á fætur öðrum í deildinni hefur farið
fram fyrir hálftómum húsum í vetur og stemmningin í kringum
íþróttina, sem margir hafa nefnt þjóðaríþróttina, er ekki glæsileg.
Þessi þróun er farin að valda forystumönnum félaganna miklum
áhyggjum og eftir samtöl við nokkra þeirra er alveg Ijóst að til ein-
hverra aðgerða verður að grípa.
Umhverfið í íslenskum íþrótta-
heimi hefur mikið breyst á
undanfömum ámm. Á sama tíma og
áhorfendaaukning
hefur orðið ár frá ári
í efstu deild karla í
knattspyrnunni hef-
ur þróunin orðið
með allt öðmm hætti í tveimur af
stærstu vetraríþróttagreinunum,
handknattleik og körfuknattleik.
Áhorfendum hefur fækkað og aldrei
meira en einmitt nú. Menn benda á
margt sem hefur valdið þessu en
flestir líta þó til sjónvarpsins. Bein-
ar útsendingar sjónvarpsstöðvar-
innar Sýnar frá leikjum í ensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu og frá
leikjum í meistaradeild Evrópu
kvöld eftir kvöld í hverri viku hafa
komið illa niður á aðsókn. Þá hefur
keppnin í 1. deild í handknattleik í
vetur ekki verið beint áhorfenda-
væn. Nú heyrir sögunni til að um-
ferð fari fram á sama tíma heldur er
umferðin slitin í sundur og leikin á
þremur til fimm dögum.
Hvað er til ráða? Á að fækka lið-
um í efstu deild eða á að leggja nið-
ur úrslitakeppnna og leika tvöfalda
eða þrefalda umferð. Þessum
spurningum og fleiri fékk Morgun-
blaðið tvo af forystumönnum félag-
anna í 1. deild karla í handknattleik
til að velta fyrir sér.
FH-ingurinn Geir Hallsteinsson
man tímana tvenna í handknatt-
leiknum og hann hefur miklar
áhyggjur af gangi mála. Þessi einn
okkar fremsti handknattleiksmaður
frá upphafi lék ávallt fyrir troðfullu
húsi en nú upplifir hann eins og
fleiri að sjá ekki nema 100-200
manns á leikjum Nissan-deildarinn-
ar og jafnvel færra en það. Geir er
framkvæmdastjóri handknattleiks-
deildar FH. Hann hefur gegnt því
starfi í nokkur ár og hann man ekki
eftir jafn lítilli aðsókn.
Taka upp fasta leikdaga
„Ég hef miklar áhyggjur af
þessu. Það er skelfilegt fyrir félögin
að halda starfseminni gangandi á
meðan litlar sem engar tekjur koma
inn af aðgangseyri á sama tíma og
þau eru skuldum hlaðin.
Það er alveg greinilegt að fólki
finnst þessi undankeppni ekki nógu
spennandi. Ég tel að við verðum að
taka upp fasta leikdaga og þá líst
mér best á fimmtudags- og sunnu-
dagskvöldin. Miðvikudagarnir eru
orðnir mjög slæmir vegna fótbolt-
ans sem er á Sýn og það er greini-
legt að fólk kemur ekki á leikina á
meðan það fær íþróttaefnið beint
inn í stofu. Þarna held ég að mesta
vandamálið liggi. Ég get ekki séð að
handboltinn sé ekki sama skemmt-
unin og áður en auðvitað má ekki
gleyma því að toppleikmenn okkar
eru að spila erlendis. Það hefur
áhrif en ég vil benda á að við erum
að koma upp með mikið af stórefni-
legum strákum sem eru farnir að fá
tækifæri með meistaraflokkunum."
Mundir þú vilja fækka liðunum í
deildinni og sleppa úrslitakeppn-
inni?
„Ég hef verið að hugsa um þetta.
Það er vitað mál að fólk kemur ekki
til að sjá lið eins og Breiðablik spila.
Fólk vill fá spennu og ég get vel
skilið að menn ræði það sín á milli
hvort ekki eigi að fækka í deildinni
en ég veit samt ekki alveg í augna-
blikinu hvort það hjálpi okkur eitt-
hvað. Það eru lið í annari deildinni í
dag sem mundu spjara sig í fyrstu
deildinni og þar er ég að tala um
Selfoss og Víking. Það er spurning
hvort ekki sé hægt að breyta þessu í
öðru formi. Ég velti fyrir mér hvort
eigi að spila þrjár umferðir og það
lið sem hefur betur í fyrstu tveimur
leikjunum mundi þá fá heimaleikinn
í þriðju umferðinni."
Geir segir að þessi þróun sem átt
hefur sér stað í vetur þar sem mæt-
ing á marga leiki sé 100-200 manns
sé skelfileg.
Hafa tvo leiki á sama kvöldi
„Ég er með hugmynd sem gæti
hjálpað til að auka áhuga fólks á að
mæta. Hún er sú að þetta yrði eins
og í gamla daga það er að vera með
tvo leiki á sama kvöldi. Þá mundi ég
vilja vera með leiki í fyrstu deild
kvenna á undan og strax á eftir
mundu karlarnir spila. Þarna fengi
fólk tvo leiki íyrir peninginn í stað
þess að dreifa leikjunum á sitt hvort
kvöldið því það kostar þetta 7-800
krónur að fara á leik. Það er ákveð-
inn hópur sem eltir stelpurnar og
ákveðinn hópur sem eltir strákana.
Ég vildi hafa umferðina á sama degi
og með því mundi skapast meiri
spenna. Þá er spurning hvort ekki
eigi að breyta reglunum og gera
leikinn meira spennandi fyrir áhorf-
endur. Það væri til dæmis hægt að
taka upp skotklukku. HSÍ og félög-
in þurfa að vera með meiri áróður
fyrir handboltanum og gera íþrótt-
ina fjölmiðlavænni. Við verðum að
lyfta þessu á hærra plan. Forystu-
menn félaganna verða að setjast
niður strax í vor og fara yfir stöðu
mála,“ sagði Geir.
KA-menn hafa eins og önnur lið
fundið fyrir fækkun á heimaleikjum
sínum og í samtali við Árna Þór
Freysteinsson, formanns hand-
knattleiksdeildar KA, eru menn
áhyggjufullir fyrir norðan.
Vantar stjörnu i líðið
„Ég er opinn íyrir öllum breyt-
ingum sem geta stuðlað að því að
vegur handboltans getið vaxið. Við
héma fyrir norðan höfum auðvitað
fundið fyrir minni áhuga en samt
höfum við góðan kjarna sem mætir
á alla leiki. Þegar við erum að
kvarta mundu sjálfsagt mörg lið í
bænum fagna. Það sem mestu mun-
ar fyrir okkur hjá KA í dag er að í
lið okkar vantar afgerandi stjörnu
þó svo að við séum mjög ánægðir
stoltir af ungu strákunum okkar
sem halda uppi liðinu. Það er mikil
stjömudýrkun fyrir norðan og á
undanförnum ámm hafa leikmenn
eins og Valdimar Grímsson, Patrek-
ur Jóhannesson, Róbert Duranona
og ég tala nú ekki um sjálfan Alfreð
Gíslason fyllt húsið,“ sagði Árni.
Stofna úrvalsdeild
„Stemmningin á Akureyri fyrir
handboltanum er ekki eins og hún
var fyrir nokkmm ámm. Hér var
troðfullt á hvem einasta leik en nú
er eins og fólk bíði bara eftir úr-
slitakeppninni. Þetta vekur upp
spurningar hvort ekki eigi gera
breytingar á mótafyrirkomulaginu
og ef ég tala fyrir sjálfan mig þá
væri ég mjög hlynntur því að stofn-
uð yrði úrvalsdeild með sex til átta
liðum. Við gemm okkur alveg grein
fyrir því að áreitið í dag er allt ann-
að en fyrir nokkmm ámm. Það er
margt í boði og bara sjónvarpið með
allar þessar beinu útsendingar em
að fæla fólk frá leikjunum. Lands-
liðið spilar einnig stóra rullu í þessu
sambandi. Áhugi fólks á handbolt-
anum stendur oft og fellur með
gengi landsliðsins og ég er sann-
færður um að ef landsliðinu gengur
vel á HM í Frakklandi þárnuni það
hafa jákvæð áhrif,“ sagði Árni.
Siggi Sveins er ekki kátur
Sigurður Sveinsson handknatt-
leikskappi, sem enn er að spila með
HK þrátt fyrir að vera kominn á
fimmtugsaldurinn, lætur skoðun
sína í ljós um þessi mál á heimasíðu
Fram. Þar segir Sigurður meðal
annars:
.Áhorfendalega séð er þetta al-
gjör skandall. Við emm að tala um
frá 50 til 300 áhorfendur í mesta lagi
á leik sem er alveg skelfileg þróun
fyrir íþróttina og skuldir félaganna
em að stóraukast. Þetta er þróun
sem verður að breytast. Við höfum
ekki staðið okkur sem skyldi í að
búa til stemningu í kringum íþrótt-
ina. Það þarf að hafa leikina á einum
föstum leikdegi og svo þurfa félögin
að bjóða upp á eitthvað skemmti-
legt, t.d. kaffihús þar sem boðið er
upp á kaffi, kökur og bjór. Við erum
svo aftarlega á merinni að það er
grátlegt. Ef við bemm okkur saman
við hinar Norðurlandaþjóðirnar þá
emm við staddir 1950 í tímatalinu,“
segir Sigurður.
■ CAMBRIDGE United hefur mik-
inn áhuga að kaupa Paul Connor,
sóknarmann úr röðum Stoke City,
en hann er nú í láni hjá Cambridge.
Roy McFarland, knattspymustjóri
Cambridge, segist hafa fengið þau
skilaboð frá forráðamönnum Stoke
að þeir vilji einungis að Connor öðl-
ist reynslu og séu ekki reiðubúnir að
sejja hann. McFarland vill hins veg-
ar ólmur kaupa Connor og ætlar í
samningaviðræður við Stoke.
■ CARL Fletcher, kanadískur
landsliðsmaður, er til reynslu hjá
Stoke þessa dagana. Fletcher er
varnarmaður og hefur leikið 27
landsleiki fyrir Kanada.
■ HECTOR Cuper, þjálfari Val-
encia, ætlar ekki að endumýja
samning sinn við félagið og hættir
því við lok leiktíðar. Ekki er vitað
hvað hann hyggst taka sér fyrir
hendur en talið er sennilegt að Hect-
or gangi ekki lengi um atvinnulaus
því bæði Barcelona og Lazio er sögð
hafa sýnt honum áhuga. Javier Ir-
ureta, þjálfari Deportivo, er talinn
líklegur eftirmaður Hectos hjá Val-
encia.
■ LEEDS United fékk í gær hinn
efnilega írska sóknarmann Robbie
Keane lánaðan frá Inter Milano út
tímabilið. Leeds á jafnframt for-
kaupsrétt á hinum tvítuga Keane
sem fór til Inter frá Coventry í sum-
ar fyrir 1.600 miHjónir króna en hef-
ur fengið fá tækifæri með ítalska
félaginu.
■ JÓHANNES Karl Guðjónsson lék
allan leikinn með RKC Waalwijk
sem tapaði, 2:1, fyrir Utrecht í hoi'-
lensku úrvalsdeildinni í knattspymu
í gærkvöld. RKC er í 9. sæti deild-
arinnar.
■ ÞÓRÐUR Guðjónsson lék ekki
með Las Palmas þegar liðið sigraði
Osasuna, 3:2, í spænsku knattspym-
unni í gærkvöld. Las Palmas er í 11.
sæti deildarinnar.
■ JOHN Carew kom Valencia að
nýju á toppinn á Spáni þegar hann
jafnaði, 1:1, í Bilbao, fimm mínútum
fyrir leikslok. Carew gleymdi sér í
fögnuðinum, fékk sitt annað gula
spjald fyrir að fara úr treyjunni og
var rekinn af velli.
■ RTVALDO skoraði tvívegis fyrir
Barcelona sem sigraði Alaves, 3:2.
Engu munaði að Barcelona missti
niður 3:0 forystu en mark var dæmt
af Alaves undir lok leiksins.
■ GEORGE Weah skoraði bæði
mörk Marseille sem sigraði Mónakó,
2:1, í frönsku deildakeppninni í gær-
kvöld. Marseille er smám saman að
rétta úr kútnum eftir að Spánverjinn
Javier Clemente tók við stjóm liðs-
ins fyrir nokkrum vikum.
■ GUÐNI Guðnason úr SH setti
„garpamet" í 100 metra skriðsundi á
jólasundmóti SH í Hafnarfirði í gær-
kvöld. Hann synti á 1:00,88 mín.
í KVÖLP
HANDKNATTLEIKUR (
Nissandeildin
1. deild karla:
Hlíðarendi: Valur - Haukar.20
Hans vantaði
Nafn Hans Hreinssonar, markvarðar KA,
vantaði inn í upptalningu á leikmönnum 20
ára landsliðsins í handknattleik sem greint
var frá í blaðinu gær. Beðist er velvirðingar
á mistökunum.
Dino Zoff þjálfari ársins
DINO Zoff, fyrrverandi landsliðsþjálf-
ari Italíu, var útnefndur þjálfari ársins
af lesendum enska knattspymu-
tímaritsins World Soccer. Zoff, sem
náði mjög góðum árangri með ftalska
landsliðið á EM í Belgíu og Hollandi,
fékk 17,56% atkvæða. Hann sagði starfi
-4-
sínu ipjög óvænt lausu eftir EM, eftir að
deildt var á leikskipulag ítalska liðsins í
keppninni.
Sven Göran Eriksson, þjálfari ítal-
íumeistara Lazio og næsti iandsliðs-
þjálfari Englands, var í öðra sæti með
15,25% atkvæða og íþriðja sæti kom
Roger Lemerre, þjálfari Evrópu-
meistara Frakka, með 14,02% atkvæða.
Evrópumeistaralið Frakka var út-
nefnt lið ársins - fékk 32,55% atkvæða.
Þá kom Kamerún með 13,25% atkvæða
og Evrópumeistarar Real Madrid urðu
í þriðja sæti með 10,16% atkvæða.
■:-------------——|
Islandsmet hjá Berglind
BERGLIND Ósk Bárðardóttir setti nýtt íslandsmet í 400
metra bringusundi á jólasundmóti SH i Hafnarfirði í gær-
kvöld. Hún synti á 5:38,66 mínútum og bætti þriggja ára gam-
alt met Ragnheiðar Möller úr Njarðvík um tæplega fimm sek-
úndur, og um leið þriggja ára gamalt stúlknamet írisar Eddu
Heimisdóttur úr Keflavík.