Morgunblaðið - 21.12.2000, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.12.2000, Qupperneq 4
• ■=- » - • , - Mark- verðir fái hjálma DANIR hafa velt upp þeirri hugmynd að handknatt- leiksmarkverðir fái leyfi til þess að leika með hjálm á höfði. Er honum ætlað að verja þá fyrir þungfum lxöggum sem fyigja því er boltanum er kastað í Iiöfuð þeirra af stuttu færi. Ætla Danir að leggja fram þessa hugmynd sína á vettvangi Evrópska handknattleiks- sambandsins. Ekki eru allir jafn hrifnir af hugmyndum Dana og eru t.d. markverðir sjálfír taldir vera á móti hugmyndinni. í viðtali við norska dagblaðið Verdens Gang segjast tveir norskir mai-kverðir vera hugmynd- inni mótfallnir. Þeir séu vanir því að fá knöttinn í höfuðið og vilja bara halda því áfram, hjálmlausir. fatfm FOLK ■ MATT Elliott, fyrirliði Leicester City, hefur verið ákærður af enska knattspyrnusambandinu fyiir oln- bogaskot sem hann gaf Craig Beil- amy, leikmanni Coventry, í leik lið- anna fyrir skömmu. Steve Dunn, dómari leiksins, sá ekki atvikið en forráðamenn enska knattspymu- sambandsins sáu upptöku af þvi og ákváðu því að kæra hann. Elliott á yfir höfði sér allt að þriggja leikja bann. ■ HOLLENSKI miðjumaðui'inn Bri- an Roy er á förum frá þýska úrvals- deildarliðinu Herthu Berlin. Roy, sem er 30 ára gamall, hefur átt erfitt uppdráttar hjá félaginu, og eftir fund með forráðamönnum liðsins var ákveðið að losa hann undan samningi nú um áramótin en hann hefur verið í hei-búðum Herthu í þrjú ár. ■ ENSKA 1. deildar liðið Fulham, sem er á góðri leið með að ti'yggja sér sæti í úrvalsdeildinni að ári, hef- ur sett sig í samband við Barcelona með það í huga að kaupa franska landsliðsmanninn Emmanuel Petit fyrir næstu leiktíð. Petit er hund- óánægður í herbúðum Börsunga enda hefur hann mátt sætta sig við að sitja mikið á varamannabekk liðs- ins í vetur. Fregnir herma að Fulh- am sé reiðubúið að punga út 900 milljónum króna fyrir leikmanninn. ■ TIM Hankinson verður líklega næsti þjálfari Colorado Rapids í bandarísku atvinnumannadeildinni í knattspyrnu, en honum var sagt upp hjá Tampa Bay Mutiny fyrir tveimur mánuðum eftir tveggja og hálfs árs starf. Hankinson þjálfaði Tindastól sumaiið 1991 í næstefstu deild ís- landsmótsins og segir í frétt Reuters að Hankinson hafi öðlast alþjóðlega reynslu með því að þjálfa Sauðkræk- inga. Árangurinn lét þó á sér standa, Tindastóll féll haustið 1991 niður um deild, hlaut aðeins fjögur stig í átján umferðum - vann einn leik og gerði eitt jafntefli. ■ TOTTENHAM hefur keypt Skot- ann Steven Ferguson, átján ára framherja frá skoska liðinu East Fife fyrir 250.000 pund. Hann hefur verið atkvæðamikill í skosku 3. deild- inni og skoraði í sex leikjum í röð og hefur alls gert níu mörk í fimmtán leikjum á tímabilinu. Manchester City og Rangers höfðu einnig borið víurnar í Ferguson. Slórieikur Ólafs Herdís hætl með landsliðinu HERDÍS Sigurbergsdóttir, aðstoð- arlandsliðsþjálfari kvenna í hand- knattleik, hefur tilkynnt stjórn Handknattleikssambands Islands og Agústi Jóhannssyni landsliðs- þjálfara að hún muni ekki starfa meira með landsliðinu. Ákvörðun Herdísar lá fyrir áður en leikirnir gegn Slóveníu fóru fram nú í byrjun desember. Herdís segir að persónu- legar ástæður séu fyrir því að hún treysti sér ekki lengur að starfa með landsliðinu en sem kunnugt er hefur Herdís átt við þrálát meiðsli að stríða í kjölfar þess að hún sleit hásin í landsleik gegn Rússum í upphafi árs 1999. Þau meiðsli eru aðalástæðan fyrir því að Herdís sagði starfi sínu sem aðstoðarþjálf- ari lausu. MAGDEBURG er í fyrsta skipti ekki með bestu stöðu allra liða í þýska handknattleiknum eftir tap í hörkuleik gegn Kiel á úti- velli í gærkvöld, 26:22. Uppselt var á leikinn eins og oftast í Kiel, 7.100 manns troðfylltu höllina og sáu sína menn kom- ast á hæla toppliðanna á nýjan leik. Flensburg náði á meðan þriggja stiga forystu með því að sigra Gummersbach, 29:21, en hefur leikið einum leik meira en hin toppliðin. Flensburg ermeð 29 stig en Magdeburg og Wall- au-Massenheim eru næst með 26 stig hvort. W Olafur Stefánsson var besti leik- maður Magdeburg í gærkvöld og lék sérlega vel í fyrri hálfleiknum. Hann skoraði sex af fyrstu átta mörkum liðsins og hin tvö skoraði homamaðurinn Göthel eftir góðan undirbúning Ólafs. Hann skoraði samtals 8 mörk og lagði upp fimm til viðbótar fyrir félaga sína og var allt í öllu í sóknarleik liðsins lengst af, og sjndi auk þess góð varnartilþrif. Ólafur skoraði fjögur marka sinna úr vítaköstum, sem komu öll í kjölfar sendinga hans. Magdeburg leiddi nánast allan fyrri hálfleikinn með einu til tveimur mörkum en Kiel skoraði tvö mörk á lokamínútunni og leiddi í hléi, 12:11. Jafnt var upp að 19:19 en þá skoraði Kiel þrjú mörk í röð og Magdeburg átti ekki möguleika eftir það. . „Við réðum ekki við vamarleik Kiel þegar leið á leikinn og auk þess gerðum við of mörg mistök. Þetta var alls ekki slæmur leikur en til að sigra í Kiel þarf allt að ganga upp. Nú einbeitum við okkur að næsta leik og það verður ekki síður erfitt að mæta Wallau-Massenheim,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálfari Magdeburg, við Sport 1 eftir leikinn. Danski homamaðurinn Nikolaj Jacobsen og norski markvörðurinn Steinar Ege voru bestu menn Kiel en Jacobsen skoraði 12 mörk í leikn- um. Með þessum úrslitum er Kiel á nýjan leik komið í baráttuna um toppsætin en meistararnir hafa átt óvenju köflóttu gengi að fagna í vet- xjr. Flensburg var í litlum vandræðum með Gummersbach og var komið Ólafur Stefánsson fylgist áhyggjufullur með þegar Svíinn reyndi, Magnus Wislander, skýtur að marki Magdeburg í leikn- um í Kiel í gærkvöld. átta mörkum yfir snemma í síðari hálfleik. Igor Lavrov var í aðalhlut- verki hjá Flensburg en mörkin dreifðust mjög jafnt á leikmenn liðs- ins. Dormagen tapaði Eftir gott gengi í síðustu leikjum mátti Dormagen sætta sig við tap gegn Grosswallstadt á útivelli, 26:21. Eftir slæma byrjun minnkaði Dormagen muninn í eitt mark snemma í síðari hálfleik en þá tók Grosswallstadt öll völd. Róbert Sig- hvatsson skoraði 2 mörk fyrir Dormagen. „Við töpuðum leiknum á slæmri byrjun en það munaði litlu að við ynnum hana upp og sýndum að við getum betur en lokatölumar segja til um,“ sagði Guðmundur Guð- mundsson, þjálfari Doimagen. Lið hans er í fjórða neðsta sæti með 11 stig. Guðmundur Hrafnkelsson og félagar í Nordhorn töpuðu fyrir Lemgo, 28:22, eftir 12:12 í hálfleik og eru í 9. sæti með 18 stig. Risinn reyndi Volker Zerbe var markvörð- um Nordhorn erfiður og skoraði 7 mörk. Alfreð Gíslason, þjálfari Magdeburg, spáir í spilin. Union Berlín í undanúrslit UNION Berlín, sem leikur í 3. deild, tryggði sér í gærkvöld sæti í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í knattspyrnu með því að sigra 1. deildarlið Bochum, 1:0. Daniel Ernemann var hetja Berlinarliðsins en hann skoraði sigurmarkið á loka- mínútu leiksins. Tvö lið utan 1. deildar eru komin í undanúrslit því hið gam- alkunna Borussia Mönchengladbach vann annað 2. deildarlið, Duisburg, 1:0, á útivelli. Schalke, topplið 1. deildar, vann nauman sigur á 3. deild- arliði Magdeburg, 1:0, og skoraði Jörg Böhme sigurmarkið úr vítaspyrnu. Stuttgart vann Freiburg, 2:1, og skoraði Ioan Viorel Ganea sigurmarkið í framlengingu. Krassimir Balakov kom Stuttgart yfir en Sebastian Kehl jafnaði fyrir Freiburg. dugði ekki í Kiel i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.