Skírnir - 01.01.1906, Qupperneq 3
Hver seiur bezt og- ódýrast?
Eg hef áður prentað samanburð á orgelverði mínu og tveggja
aunara orgelsala hér á landi, og sýnt að þeir selja ódjrustu orgel
sín ca. 25—40 „prósent“ dýrari en eg sel orgel af
sambærilegri tegund, Og het'ir þeim samanburði ekki verið
hnekt. Söluverð annara orgelsala á Norðurlöndum er nokkuð
svipað verði þessara tveggja ofangreindu. Allir auglýsa þeir þó, að sín
orgel séu ódýrust og bezt, og telur einn sér þetta og annar hitt til gildis.
Einn segist gefa kaupendunum reikninga frá verksmiðjunni. Þeir
reikningar eru samhljóða preutuðu verðlistaverði, en af því verði fær
umboðsmaðurinn ca. 40 prósent afslátt hjá verksmiðjunni.
Sami telur einnig til, að ekki þurfi að borga hljóðfæri sín
fyrri en við móttöku. En er þá ekki kaupendunum betra að taka
missiris ián fyrir ca. 3 prósent og kaupa hjá mér, heldur en að fá
missiris umlíðun á hljóðfærunum, sem eru minst 25—40
prósent dýrari?
Sami kveður sín orgel bezt allra, og segir að þau hafi einu-
sinni fengið hæstu verðlaun í Svíþjóð (Svíþjóð er álíka fólksmörg
og eitt meðal-ríki í Bandaríkjunum). Nú hafa orgel mín ekki
aðeins fengið hæstu verðlaun í fjölda mörgum ríkjum og í stór-
veldunum, heldur einnig á alheimssýningunum-
Sami segir einnig, að píanó sín séu bezt, og styður þá sögu
með 4 vottorðnm — úr Reykjavík. Um mín píanó, sem kosta frá
520—1150 krónur, get eg sagt hið sama sem um orgel
mín hér að ofan, en auk þess hafa heimsfrægir snillingar,
svo tugum skiftir, lokið miklu lofsorði á þau, t. d. Liszt, Rubin-
stein, Fr. Lachnov, Sousa, Pablo de Sarasate, Georg Henschel,
Adelina Patti, Jean de Reszke, osfrv. osfrv.
Mörgum kaupendum þykir óhæfilegur krókur að senda pöntun
norður á Þórshöfn; en tíu mánuði ársins veldur það þó ekki
meira en mánaðar drætti að meðaltali.
Orgel mín eru betri, stærri, sterkari og úr betri við
en sænsk, dönsk og norsk orgel, og miklu ódýrari eftir gæðum en
nokkur orgel af sambærilegri tegund, sem seld eru á Norðurlöndum.
Píanó mín eru einnig ÓdýrUSt allra eftir gæðum- Prestum
og öðrum forráðamönnum kirkna vil eg benda á kirkjuorgel mín.
Verðlista með myndum ásamt upplýsingum fær hver Sem
óskar
ÞORSTEINN ARNLJÓTSS0N
Þörshöfn.