Skírnir - 01.04.1906, Side 16
112
Japan.
Skírnir.
þjóðarréttinda. í engu hafa þeir slakað til og alt hafa þeir
lagt í sölurnar. Eftir mikla baráttu eru þeir líka alfrjáls
þjóð, eitt af stórveldum heimsins, og frægð þeirra á hvers
manns vörum jafnvel hér úti á voru afskekta landi. Svo
farnast þeim einum, sem stefna að ákveðnu takmarki, sem
vita hvað þeir vilja og leggja alt fram til þess að ná því.
II. Innanlandsmálin.
a) Mentamdl. Það er erfitt að segja hvað það var,
sem stjórn Japans lét sitja í fyrirrúmi fyrstu árin eftir
stjórnarbreytinguna 1868, því svo mörg járn hafði hún í
eldinum. Það er kinverskt orðtæki, ef eitthvað þykir
ganga seint: Það er ekki dómsdagur á morgun! En það
er eins og japanska stjórnin hafl haldið að dómsdagur
kæmi eftir fá ár, því öllu vildi hún umsteypa og alt end-
urbæta tafarlaust. Þó má sennilega segja með fullum rétti
að mentun þjóðarinnar hafi verið það sem lá henni hvað
þyngst á hjarta.
Að sumu leyti var svipað ástatt fyrir Japönum og
oss. Alþýðuskólar voru engir og aðrir skólar fáir. Heim-
iliskenslan var aðalatriðið og svo kensla einstakra manna.
Lestur, skrift, siðfræði og saga landsius voru helztu náms-
greinarnar líkt og í Kína, en fæstir munu þó hafa einu
sinni lært fyllilega lestur og skrift, enda var ekki að því
hlaupið. Sérstakt merki var notað fyrir hvert orð eins
og hjá Kínverjum, svo merkin, sem læra þurfti að þýða
og skrifa, skiftu mörgum þúsundum. Það gekk því margra
ára nám í það að læra lestur og skrift. Annars var vist
heimiliskenslan að ýmsu leyti furðu góð það sem hún náði.
Næst hefði það ef til vill legið að auka og endur-
bæta alþýðumentunina á hinum forna grundvelli, en sú
leið var þó ekki farin. öllu var breytt, bæði námsgrein-
um og kensluaðferðinni, og flest sniðið eftir skipulagi
Norðurálfuþjóðanna. Fjórum árum eftir stjórnar-
breytinguna voru lýðskólar stofnaðir um land alt (1872)
og almenn skólaskylda lögleidd. Fyrirkomulag skólanna
var mestmegnis sniðið eftir Bandarikjunum. Lýðskól-