Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.12.1913, Blaðsíða 1

Skírnir - 01.12.1913, Blaðsíða 1
Skýrslur og reikningar Bókmentafélagsins 1912. Aðalfundur Bókmentafélagsina var haldinn 17. júní og fundarstjóri kosinn prófessor Láru3 H. Bjarnason. Forseti gat þess, að Hans Hátign konungurinn hefði sjnt fólaginu þá náð að gerast verndari þess. Mintist hann síðan látinna félagsmanna (heiðursfélaganna Jóns Borgfirðings, Eirlks meistara Magnússonar og Björns Jónssonar fyrrum ráðherra, og annara félaga: prófastanna Jens Pálssonar, Jóhanns Lúthers Sveinbjarnarsonar og Kjartans Einarssonar, etatsráðs Ásg. Ásgeirssonar, síra Lárusar Thórarensens og dr. Eug. Beauvois) og tóku fundarmenn undir það með því að standa upp. Aðalstörf félagsins á umliðnu ári höfðu verið í því innifalin, að sjá um heimflutninginn og alt sem þar af leiddi. Las forseti síðan upp ársreikninginn, fór um hann nokkrum orðum til skýringar og gat þess, að aukreitiskostuaður við heimflutninginn og greiðslu skulda frá fyrra ári hefði orðið samtals kr. 5880.68. En þrátt fyrir þennan mikla aukakostnað var í sjóði hjá gjaldkera við árslok hér um bil sama upphæð og við ársbyrjun. Þessa gleðilegu útkomu kvað hann að miklu leyti að þakka bókaverði félagsins, fornmenjaverði Matthíasi Þórðarsyni, sem hcfði sýnt mjög mikinn dugnað í starfi sínu, bæði að því er snerti innheimtu og bókasölu. Jafnframt hafði félögum fjölgað mjög á umliðnu ári. Síðan á síð- asta aðalfundi höfðu 216 nýir menn gengið í fólagið, og var fólaga- taia nú orðiu 1040, 220 í Reykjavík, 220 í útlöndum og 600 á ís- landi utan Reykjavíkur. Las síðan forseti upp efnahagsreikning fólagsins til frekara yfirlits yfir hag þess. — Um bókaútgáfu fó- lagsins í ár gat forseti þess, að út yrðu gefnar hinar venjulegu fé- lagsbækur: Fornbrófasafn, Safn til sögu íslands, Sýslumannaæfir og Skírnir ásamt með skýrslum og reikningum og fólagatali; enn- fremur Goðafræði Norðmanna og íslendinga eftir Finn Jónsson, og væri hún gefin út með styrk úr sjóði Margrétar Lehmann-Filhés.

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.