Skírnir - 01.12.1913, Side 1
Skýrslur og reikningar
Bókmentafélagsins 1912.
Aðalfundur Bókmentafélagsina var haldinn 17.
júní og fundarstjóri kosinn prófessor Láru3 H. Bjarnason. Forseti
gat þess, að Hans Hátign konungurinn hefði sjnt fólaginu þá náð
að gerast verndari þess. Mintist hann síðan látinna félagsmanna
(heiðursfélaganna Jóns Borgfirðings, Eirlks meistara Magnússonar
og Björns Jónssonar fyrrum ráðherra, og annara félaga: prófastanna
Jens Pálssonar, Jóhanns Lúthers Sveinbjarnarsonar og Kjartans
Einarssonar, etatsráðs Ásg. Ásgeirssonar, síra Lárusar Thórarensens
og dr. Eug. Beauvois) og tóku fundarmenn undir það með því að
standa upp. Aðalstörf félagsins á umliðnu ári höfðu verið í því
innifalin, að sjá um heimflutninginn og alt sem þar af leiddi. Las
forseti síðan upp ársreikninginn, fór um hann nokkrum orðum til
skýringar og gat þess, að aukreitiskostuaður við heimflutninginn og
greiðslu skulda frá fyrra ári hefði orðið samtals kr. 5880.68. En
þrátt fyrir þennan mikla aukakostnað var í sjóði hjá gjaldkera við
árslok hér um bil sama upphæð og við ársbyrjun. Þessa gleðilegu
útkomu kvað hann að miklu leyti að þakka bókaverði félagsins,
fornmenjaverði Matthíasi Þórðarsyni, sem hcfði sýnt mjög mikinn
dugnað í starfi sínu, bæði að því er snerti innheimtu og bókasölu.
Jafnframt hafði félögum fjölgað mjög á umliðnu ári. Síðan á síð-
asta aðalfundi höfðu 216 nýir menn gengið í fólagið, og var fólaga-
taia nú orðiu 1040, 220 í Reykjavík, 220 í útlöndum og 600 á ís-
landi utan Reykjavíkur. Las síðan forseti upp efnahagsreikning
fólagsins til frekara yfirlits yfir hag þess. — Um bókaútgáfu fó-
lagsins í ár gat forseti þess, að út yrðu gefnar hinar venjulegu fé-
lagsbækur: Fornbrófasafn, Safn til sögu íslands, Sýslumannaæfir
og Skírnir ásamt með skýrslum og reikningum og fólagatali; enn-
fremur Goðafræði Norðmanna og íslendinga eftir Finn Jónsson, og
væri hún gefin út með styrk úr sjóði Margrétar Lehmann-Filhés.