Skírnir - 01.12.1914, Blaðsíða 2
II
Skýrslur og reikningar.
að ári. Enn fremur gat forseti þess, að félagið mundi gefa út 12
arka hefti af riti Jóns próf. Jónssonar á Stafafelli um Víkingaferðir.
Þess gat hann og að félagið hefði byrjað samninga við Stefán skóla-
meistara Stefánsson á Akureyri um útgáfu grasafræðisrita.
Klemens Jónsson landritari mintist nokkrnm orðum á reikn-
inga félagsins, er hann kvað ekkert við að athuga, nema að æski-
legt hefði verið að sundurliða betur einn einstakan gjaldalið, skrá
um bókaeign félagsins hafði endurskoðendum ekki þótt þörf að
endurskoða nákvæmlega. Forseti svaraði athugasemdum endurskoð-
anda nokkrum orðum.
Ársreikningur og efnahagsreikningur fólagsins voru síðan sam-
þyktir í einu hljóði.
Endurskoðendur félagsins, Klemens Jónsson landritari
og Hannes Þorsteinsson skjalavörður voru endurkosnir í einu hljóði.
Forseti stakk upp á eftir samhuga ályktun fullrúaráðsins að
kjósa prófessor dr. Andreas Heusler í Berlín heiðursfólaga. Var
það samþykt á fundinum í einu hljóði.
Fundarmenn þökkuðu stjórninni frammistöðu sína á síðasta
ári með því að standa upp.
Reikningur
yfir tekjur og gjöld Hins islenzka Bókmentafélags fyrir árið 1913.
Tek j ur:
1. Eftirstöðvar frá 1912:
a. Veðdeildarbréf Landsbankans . kr. 18000.00
b. Dönsk verðbróf................. — 8000.00
e. Peningar í sparisjóði.......... — 5388.27
----------------kr. 31388.27
2. Styrkur úr landssjóði ........................... — 2000.00
3. Þrettánda greiðsla fyrir handritasafnið.......... — 1000.00
4. Greidd tillög meðlima............................ — 6178.01
5. Fyrir Skírni og seldar bækur í lausasölu ........ — 1180.48
6. Fyrir auglýsingar á kápu Skírnis 1912—1913 . — 162.00
Flyt kr. 41908.76