Fréttir frá fulltrúaþingi(nu) í Hróarskeldu viðvíkjandi málefnum Íslendinga - 01.01.1840, Blaðsíða 1
I mörgu hefir mátt sjá menjar þess á íslandi, ab
landsmenn sjálfir hafa átt lítin þátt í stjórn sinni,
og átt hana a8 mestu undir þeim, sem Jítið skyn-
bragð háru á hag landsins; en ein hin skaðsamleg-
asta afleiðíng þess hefir verið, afe landsmenn hafa
orðið afskiptadaufir um hagi sjálfra sín, og varpað
allri sinni áhyggju á þessa liina ókunnu menn, sem
sjaldnast þektu hvað landinu var fyrir beztu, þó
þeir hefði annars verið því velviljaðir. Má og vera
að það hafi að nokkru ollað afskiptaleysinu, að fáir
hafa orðið til að rita hækur á íslenzka túngu, sem
skírt liafa frá alþjóðlegum málefnum íslendínga, og
allrasízt smámsaman, eptir því sem þau hafa komið
fyrir, og helzt var vonandi að mönnum mundi þykja
fýsilegt að kynna sér þau. Nú er að því komið, að
Íslendíngum auðnist að taka þátt í stjórn sjálfra
sín og fósturjarðar sinnaráný, og mun einginn gjörast
til að slá hendinni á móti slíkri náð konúngs, sem
getur orðið landinu til enna mestu heilla, ef lands-
menn ekki láta vanta það sem þeir eiga fram að
leggja, en það er einarðleg föðurlands ást, samlyndi
og framtakssemi í öllu því, sem landinu miðar til
heilla og framfara. Jíegar til slíks kemur, mun
flestum þykja mikils varðandi, að þekkja málefni þau
sem helzt er um rædt, svo menn verði ekki málefn-
um sínum að öllu ókunnugir, þegar að því kemur
að menn eiga sjálfir að fara með þau. Vér vitum