Þjóðólfur - 21.04.1855, Side 1

Þjóðólfur - 21.04.1855, Side 1
þJÓÐÓLFUR. 1855. Sendur kaupendmn Uostnaðarlaust; verð: árg., 18 ark. 1 rd.; hvert einstakt nr. 8 sk.; sölulaun 8. hver. 7. ár. 21. npríl. 17. Frjáls verælnn. (Framhald). 3>að gefur aft líkindum öllum af) skilja, að verzlunarsjálfræði hvers manns er að miklu leyti ftar undir komið, að hann sé ekki í þeim kaupstaðarskuldum, að ftær bindi hann við einhvern einn kaupmann eður tvo með allan vöruafla sinn, hvort heldur hann er meiri eður minni, og sé þannig seldur á náð og mysk- un kaupniannsins, os ineg;i til að sæta þeim verzlunarkjörum, sem hann vill veita svona „hlessaður bezt“. Jað er eptirtektavert i mörftu, hversu þessi verzlunaraðferð gjörir annars vegar landsmenn bogna og bjíiga og dregur úr þeim alla sómasamlega sjálfstilfinníngu og sjálfræð- igmeðvitund, en hins vegar aptur verzlunar- mennina bólgna og einatt óþolandi reigings- og þóttalega; enda ntunu í engum lönduni sjást eins mikillátir og bólgnir smá-verzlunarmenn, — og stórkaupmenn eru hér svo að segja engir, — eins og verzlunarmennirnir á íslandi; það er eins og maður væri viðstaddur auðmjúk- an bænastað einhvers vesælíngs við konúng eða jarl uin uppgjöf á stórsektum eður aðra náðar- veitíng, þegar flestir landsmenn vorir gánga fram fyrir þessa „herra“, og biðja í auðmýkt um að selja sér brennivinspott eða kaffepund og spyrja, „hvort hann muni ekki gjöra svo vel og taka af sér þenna ullarlaggð eða tólgarmola fyrir* o. s. frv.,1 eða þegar menn hér eru að leggja inn upp á óvon og óvissu allan ársafla sinn, og fá ekki annað að vita um verðið, en „að það skuli verða eins og bezt verði“. jþetta verzlunarlag, sem í hverju öðru landi mundi þykja öldúngis óþolandi, er vafalaust mest- í öðrmn lönduni þykir ,,krömiiruin“, það vera þakkavert, og lála það ásannast, hver sein við þá skiptir og af þeim kaupir, enda mega allir sjá, áð hverjum þeim, sem lietir þann eina atvinnuveg að selja, lioniim lilýtur a'ð vera inesta þægð í því, að af honum sé k e y p t. — 65 — megnis því að kenna, að rneiri partur lands- manna er háður og seldur kaupmönnum fyrir verzlunarskuldirnar. Vér skulum nú ekki að þessu sinni leita annara undirróta aðkaupstað- arskuldum en þeirra, sem allir vita og við blasa, en það er að nokkru leyti stopulleiki atvinnu- veganna hjá oss en þó einkanlega heimska og óforsjálni sjálfra vor, sem kernur fram sumpart í þvi, að ntönnum hættir svo við að ríra sjálfan höfuðstól atvinnuvegarins og farga af honum, í stað þess að gjöra sér hann sjálfan sem arð- samastan, en sumpart þar i, að menn leggja ekki rétt og nákvæmlega niður fyrir sjálfum sér hin sönnu og verulegu efni sín eða vanefni, og hættir því ofmjög til að reisa sér hurðarás um öxl, með óþarfakaupum eða nteð því að taka til láns helberan óþarfa hvar og hvernig sem þeir geta yfir hann komizt. 3>að er anðsætt, að kaupmenn geta manna sízt þolað, að fé þeirra standi þúsundum saman arðlaust hjá öðrum, svo að árum skipti, því atvinna þeirra er öil og eingaungu þar í fólgin, að þeirhafi eigur sínar í ábatasamri veltu; því gefur öllum að skilja, að þeir verða á einhvern hátt að vinna upp á skiptamönnum sínum arðinn, sem þeir leggja í sölurnar af skuldunum er þeir eiga útistand- andi ár frá ári, og þetta vinna þeir upp og geta einúngis unnið upp með því, að taka sér sjálf- dæini um, með hvaða verði þeir láta útlenda vöru, og hvaða verði þeir taka islenzku vöruna í móti; en þar sem slíkt sjálfdæmi hefir yfir- höndina í mestöllum verzlunarviöskiptunum, þar verður alls ekki koinið við neinni verzlunar- keppni, en þar með er þá einnig útséð um all- an eðlilegan og verulegan hag af verzluninni fyrir alla hina fátækari og óforsjálli menn, sem eru sihundnir kaupstaöarskuldum. Jvi eru þúngar og almennar kaupstaðarskuldir einhver hin verulegasta fyrirstaða fyrir því, að frjáls verzlun geti orðið hér að svo almennum og full- um notuin, sem ella mundi verða, ekki að eins fyrir landsmenn, heldur og einnig fyrir kaup- mennina sjálfa; því hefði þeir allan þann fjár- afla handa i milli, sem þeir eiga útistandandi

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.