Þjóðólfur - 08.12.1855, Síða 1

Þjóðólfur - 08.12.1855, Síða 1
þJÓÐÓLFUR. 1855. i Sendur kaupendum kostnaðarlaust; verð: árg., 18 ark. 1 rd.; hvert einstakt nr. 8 sk.; sölulau* 8. hver. H. ár. 8. desember. 4.—ð. Ilúsasala og húsabyggíngar í Reykjavíkur kaup- staö árið 1855. HúsiS nr. 20 á Arnarhólsholti fyrir 700rddl.; kaupm. og bæjaríulltrúi þorst. Jónsson seldi, en Egill hrepþst. Hallgrímsson í Minnivogum keykti. Húsib nr. 5 á Ansturvelli fyrir 3000 rdl.; kaupm. E. Siemsen seldi, konferenzráb og riddari B. Thor- steinson keypti. — Húsií) nr. 10 í Grjótagötu fyrir 1200 rdl.; sameigendur: dánarbú frú Helgu Egilsson og stúdent Jón Arnason seldu, en ekkjufrú Elín Thorstensen keypti. — Ilúsib nr. 4 í Lækjargötu, (á horninu á Lækjartorgi fyrir 3,500 rdd.; kaupm. M. Smith, — sem keypti húsib næstl. vetur af stór- kaupm. P. C. Knudtzon fyrir sáma verb, — seldi, en prófastur og dómkirkjuprestur séra Olafur Pálsson keypti. — Uppbobssölunnar á hinum nýja og gamla gildaskála, nr. 4, A og B í Abalstræti, er fyr getib. Tvö hús eru hér nýbyggb í sumar; reisti Tofte beykir annab, á mibju Austurstræti, þab er byggt meb bindíngi af moír, tvíloptaö meÖ helluþaki, en hitt kaupm. R. P. Tærgesen á horni Abalstrætis og Læknisgötu, nr. 12, anspænis Hafnarstræti, og reif hann ábur hina slábyggím gömlu búb (Sunkenbergs- búb) er þar stób til þessa, var sú búb hin eina enn uppistandandi af búbum þeim er fluttar voru á land úr hinum forna Hólmskaupstab, (Örfærsey). Hús þab sem herra Tærgesen núreisirþar er byggtmeb bindíngi og múr og tvíloptab og helluþakib, þar til bæbi breibara og lengra en búbin var sem þarstób fyr, og verbur hin mesta stabarprýbi ab húsi þessu, þegar þab er fullgjört, Hib 3. hús reisti söblasm. Torfi Steinsson, nýja verksmibju áfast vib íbúbar- ims sitt ab vestanverbu, meb bindíngi og múr og meb helluþaki. þab leiddi af þessari byggíngu lierra T. Steins- sonar uppgötvan eina, sem ekki má vita nema geti leidt hér til mikills sparnabar og gagns; f stab tíg- ulsteins sem hér hefir verib vanalega hafbur í múr í bindíngshúsum, flutti hann ab sér hraunhellur sunnan úr Kapelluhrauni; þær eru sléttar og ekki kræklóttar, og flestar á þykkt vib vanalega breidd á tígulsteini, svo ab hafa má þær á rönd í múr- inn, en margar þeirra eru stórar og klæba því vel af, en fyrir þab sparast múrlím (kalk) meir en til helmínga; hella þessi kostabi og híngab flutt á fiski- bátum, helmíngi minna en tígulsteinn til jafnstórs húss mundi hafa kostab; en múrverkib sjálft er nokkub seinunnara meb hellu þessari, af því ab höggva þarf og jafna meb verkfærum brúnir helln- anna hér og hvar. En þar ab auki þykir aubsætt, ab húsamúr úr þessari hellu muni hafa tvo veru- lega og mikilvæga kosti framyfir tígulsteinsmúrinn, en þab er, ab hella þessi meyrnar alls ekki, eins og tígulsteinninn, þó vindur og hret leiki á henni, og ab hún bæbi fyrir þær sakir, og eins fyrir þab hvab hún er jafn hrufótt og þétteygb, vafalaust hlýtur ab halda varanlega á sér múrlíms-húbinni ab utanverbu, en þab vill aldrei heppnast hér á tígul- steinsmúr sem veit í móti rigníngarátt (hér allri austanátt); þess vegna hafa menn og jafnan neybzt til ab klæba þá múra meb borbum og bika þau ebamaka meb vibsmjörslit árlega, og gefur ab skilja, hve mikib og verulegt mundi sparast vib byggíngar og viburhald bindíngs-múrhúsa, ef þetta yrbi óþarft meb framtíb. Samkynja hraunhella þeirri, sem er í Kapelluhrauni, er einnig, eins og mörgum mun kunnugt, bæbi á Hellisheibi, einkum um Hellis- skarbsveginn, og í hrauninu umhverfis Gjáarrétt, Kaldárbotna og Raubhellir, fyrir ofan Hafnarfjörb, og mikil nægb af á bábum þeim svæbum. En hæg- ast og kostnabarminnst verbur ab flytja ab sér hell- una úr Kapelluhrauni um öll nesin hér sybra, því þab má gjöra sjóveg; ogerþetta einkum hægt fyrir þá, sem búsettir eru nær hrauninu, og ef menn byggbi öfluga byrbínga er bæri mikib í senn, til ab flytja á hraunhellu þessa til ýmsrastaba, og murtdi þetta geta orbib nýr atvinnuvegur, einkum ef sjávar- bændur færi líka smámsaman ab byggja sér, — í stab moldarkofanna sem aldrei standa, allt af er verib ab káka vib og þó er engin eign í, — í- búbar- og geymslu-hús úr bindíngi og múr meb þessari hellu, sem útheimtir svo sárlítib múrlím, en hægt ab flytja þab ab sér sjóveg hér um nesiiL úr kaupstöbunum.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.