Þjóðólfur - 09.05.1857, Blaðsíða 4
- ÍOO -
arinnar, ogr átöldu þcir því stjórnina harðlega fyrir alla
franunistöðuna, og vildu láta luetta styrjöldinni hið bráð-
asta, því hún útheimti gífurlegan tilkostnað, en tvísýnt
um, a?> nokkuð ynnist á við Chfnverja að heldur; stóðu
umræðurnar um þetta yfir í neðri málstofunni í 3 daga,
og lauk loks 4. marz, undir óttu uin morguninn, urðu þá
263 atkvæði í móti stjórninni en ekki nema 247 atkv. með.
Nú lá þá næst eptir þessari atkvæðagreiðslu, að ráðgjaf-
arnir legði niður völdin, en Palmerston lávarður, æðsti
ráðgjafi Bretadrottníngar, sleit þínginu 21. s. inán., og lét
skriða til nýrra kosnínga, heldur en að hopa. Blaðið
„Times“ spáir, að nýju kosningarnar muni verða Palmer-
ston f vil; það leggur og til, að halda áfram styrjöldinni
við Chínvcrja og kúga þá til friðar, ef þeir vilji ekki slaka til
með góðu; segir f>ar, að verzlun Breta við Chínverja sé meir
en 10,000,000pd. sterl., eður sem næst 90,000,000rdl. árlega.
— í skýrslunni í síSasta blafei, um vöruaSflutn-
ínga híngaí) og söluverö á íslenzkum vörum, hefir
sú auSsjáanlega villa orbib, aÖ reikna hverja korn-
tunnu 12fjórí)únga í stab 18 fjóríiúnga; en eptir
því verbur tiltala sú er vér gerbum aÖ til íslands
hefbi gengií) af rúgi, byggi og baunum, 284,395
fjórb., en öll matvæli er til íslands fluttust 1856,
samtals 5 0 7,2 0 5 frb., en þab verbur ab mebaltali
sem næst 8 fjórbúngum á hvern mann.
þab var og sagt í skýrslunni, ab ekki væri
þess getib, hvab mikib brennivín og önnur ölfaung
ebur kaffe og sikur ab hefbi ílutzt híngab í fyrra,
og þab er satt, ab „Berl. Tíb." geta þess ekki bein-
línis. En aptur er þar skýrt frá, ab til íslands,
Grænlands og Færeyja hafi flutzt í fyrra 448,000
pottar af brennivíni. þab er nú óhætt ab fullyrba,
ab í samanburbi vib lestatals abflutníngana til allra
þessara landa, en þab voru samtals 5,184 lestir og
gengu 3,740 þar aftil Islands, eins og fyr er sagt,
þá hafi rýflega ílutzt til Islands brennivín ab þeirri
tiitölu, en hún væri 333,310 pottar. Nú var
hver pottur seldur hér í fyrra á 20 skild., og
hefir eptir því verib sopib hér upp í fyrra ein-
úngis í brennivíni, ab óreiknubum öllum
öbrum ölfaungum, fyrir 07,345rdl.1
— Mannalát. — 12. okt. f. á. andaðist, eptir þúnga
lcfu á 51. aldursári, merkismaðurinn Melkjör Eggerts-
son á Efranesi í Stafholtstúngum, Bjarnasonar, prests i
Stafholti, Pálssonar landlæknis; „hann var cinarður og
hrcin'skilinn, gáfaður og glaðlyndur, vinfastur, handlaginn
og hcppinn læknir“. — 28. marz þ. á. dó, 39 ára, And-
rés hreppstjóri Magnússon á Syðra Lángholti i Arnes-
*) Ef það er rétt, sem oss er sagt af áreiðanlegum
mðnnum, að við Ey ra rbakka verzlunina eina hafi verið
scldar i fyrra að meðaltali hálf önnur tunna á dag,
eður samtals, yfir allt árið 547 tunnur, þá er auðráðið, að
yfir allt landið hefir selzt miklumeira brennivín,
heldur en hcr að ofan er áætlað cptir „Berl. Tíð.“
sýslu, Andréssonar alþíngismanns Árnesínga, „vinsæll mað-
ur og vel gáfaður; hann lét cptir sig ekkju ogmörgböm,
flestöll á ómagaaldri. Ekkju hans voru við jarðarförina
gefnir meir en 20 rdl. af ýmsum velgjörðamönnum, sem
þakklátlega viðurkennist af henni og náúngutn hins fram-
]iðna“. — Skipherra og sættanefndarinaður Jón Norð-
fjörð f Njarðvíkum Jonsson, Sighvatssonar dannebrogs-
matins, andaðist, eins og fyr er getið, 3. f. tnán.; hann
var borinn að Njarðvík 13. des. 1796, og var því rúmra
61 ára þegar hann lézt; kvongaðist fyrst Kristrúnu Jóns-
dóttur Snorrasonar í Njarðvfk, 12. nóv. 1818; með henni
átti hann 2 börn, Oddbjörgu, ,fyrstu konu séra Björns
þorlákssouar á Höskuldsstöðum, og séra Snorra Norðfjörð
aðstoðarprest á Álptanesi, í annað sinn kvongaðist hann
Kagnheiði Guðmnndsdóttur, ekkju Guðmundar kaupmanns
Péturssonar, systur Helga biskups, 1. júlí 1847; hann sigldi
1815, og tók 2 árum síðar próf í skipstjórnarfræði mcð
beztu einkunn; liann- var l'élagi hins sunnlenzka húss- og
bústjórnarfélags, frá því það var fyrst stofnað, og fulltrúi
þess, en sættanefndarmaður varð hann 1836; minnispen-
fngurinn : „ærulaun iðna og hygginda“ var honum veittur
1847. Jón Norðfjörð var, örlyndur og göfuglyndur, hrein-
skilinn og hinn vinsælasti maður af öllum- — 6. þ. mán.
andaðist hér í Reykjavík Franz Zeuthen, 61 ára
að aldri, hann hafði áður verið þjónustusveinn hjá kon-
úngunum Friðrik 6. og Kristjáni 8.
— Ný komin Hamborgarblöð scgja, að allir ráðherrar
Dauakonúngs hafi beðið um lausn 8. f. mán., og konúng-
ur veitt því áheyrn daginn eptir.
— Ur öllum áttum fréttist, að kastið um páskana liafi
orðið eitt hið harðasta íhlaup og leidt hér og hvar með
sér fjárfelli hjá ýinsum; allt hið innra af Eyjafirði, þ. e.
Akureyrar-höfnina, lagði með helluís, svo, að ekki var að
cins gengur ísinn úr landi út f skipin sem láu þar fyrir
akkcrum, heldur var ekið í land vörunum úr þeim á ísnum.
— Harðindi og haglcysur voru víða á norðurlandi fram
til loka f. mán., og horfði til fénaðarfellis, ef ekki kæmi
bráður bati, einkum hér og hvar f Skagafirði. — í Skapta-
fellssýslu, Skaptártúngu og Sfðu, hafa og gengið hinar
mestu vetrarhörkur, og fénaður farinn að falla þar hjá
einstöku búendum.
— Nóttina inilli 23.—24. f. mán. strandaði skip frá Hor-
sens á Jótiandi austur í Meðallandi; það var sama skipið
og hfngað kom með kornfarm í fyrra; nu var það einnig
fermt kornmat og annari vöru, og ætlaði híngað. Hina
sömu nótt strandaði og skip í Vestmanneyjum frá Björgvin
í Noregi, hið sama og hér kom i fyrra, og með hrinum
sama skipherra, Lind; það var að sögn, fermt tiiuhri o. fl.
Af báðuin þeim skipuin komust allir skipverjarnir lffs af.
— Frakkneska skipíð, sem strandaði í Grindavík sömu
nóttina, og fyr er getið, var selt við uppboð, 1. þ. mán.
fyrir 500 rdl.; það hafði að sögn verið metið til hafskaða
ábyrgðar á 12,000 rdl. þeir keyptu í félagi kaupmcnnirnir
Linnet, Svb. Olafsson og E. Siemsen, og factorarnir Fi-
sclier og II. Sívertsen.
— Lausakaupmaður Gram kom hér 4. þ. mán.; Iiann
selur rúg á 8rdl., kaffe og sikur á 24 sk.
————————--------------------------------"■ ■
IJtgef. og ábyrgðarmaftur: Jón Guðmundsson.
Prentabur í prentsmibju íslands, hjá E. þróbarsyui.