Þjóðólfur - 08.08.1865, Page 3
157 —
eins og var 1863, og eigi voru'nú eins jafnaðar-
leg nætrfrost eins og þá, sízt fram eptir öllum
Júní; en allan næstl. Maí gengu kólgur, Stormar
og kalsar með krapajeljum optast; optar nokkurt
frost til fjaila þótt vægt væri á láglendi og með-
fram sjó, en aldrei að kalla má vel hlýr dagr,
sjaldgæfar ógæftir um þann tíma árs, og gróðr-
laust fram til fardaga; Maímánuðr »stóð líka nú,
eins og 1863, undir núlli«, sem kallað er, að
meðaltali yfir allan mánuðinn, þ. e. með öðrum
orðum, fremr frost en hiti. Júnímánuðr mátti og
heita næsta óhlýr, sjaldan eðr aldrei heitr dagr
cða sólskinsdagr til enda, fremr úrkomusamr en
sjaldan nætrfrost í bygð né til fjalla; seinni hluta
Júní þokaði því grasvexti vel áfram og framan af.Júlí,
þóað um þann 3 vikna tíma væri næsta rignínga-
samt og óhlýtt; um sláttubyrjun voru því tún
sprottin í góðu meðallagi og sumstaðar fremr hér
syðra, en þó þykir horfa til enn betri grasvaxtar
á mýrum ; úr Múlasýslum og austanúr Hornafirði
er grasvöxtrinn sagðr lakari. Ilér syðra og víst
um Árnessýslu eru margir búnir að ná allri töðu
sinni eða þá meiri hluta hennar í garð, og í beztu
verkun yfir höfuð, þó að hjá einstökum mönnum
kunni að vera fremr djarfhirt. íldaupið, er datt
á laugardaginn 15. f. mán. og um þá daga, var
einstaklegt um þann tíma árs; í Ilúnavatnssýslu
og Strandasýslu varð sá gaddbilr í bygð, er stóð
nær því 3 dægr, með innistöðum á málnytufénaði,
og gefið kúm og einnig kvíám, þeir sem gátu;
eptir því sem spurzt hefir til, varð ekki jafnmikill
bilrinn eða hríðin neinstaðar annarstaðar í bygð,
sízt um svo lángan tíma; þegar leið á daginn 15.
varð að vísu að hýsa kýr víða um Borgarfjörð, og
þá var myrkbilr bér á Svínaskarði og í Svína-
dal í Kjós; úr Múlasýslum, Ilornafirði og ísafjarð-
arsýslu er skrifað, að þar hafi orðið alsnjóa ofan-
undir bygðir; á ísafirði var þá dagana + 0,5 R.
og urðu kaupstaðarbúar að leggja í ofna sína.
SKÝRSLA
Suðramtsins húss- og bústjórnarfelags.
Miðvikudag. 5. Júlímán. þ. á. var venjulegr
ársfundr félagsins haldinn í Reykjavík. Forseti
skýrði frá efnahag og aðgjörðum þess síðan í fyrra
sumar ð.Júlí 1864, og leyfum vér oss, livað fjár-
haginn snertir, að vísa til hinnar síðustu skýrslu
vorrar í þjóðólfi nr. 14—15, bls. 59. Hið helzta
umtalsefni fundarins var einkum um það, hvern
þált bústjórnarfélagið hefðí þegar tekið og nú vildi
og gæti tekið í utanför nokkurra manna héðan úr
Sunnlendingafjórðúngi til Noregs á hinn umgetna
fisltimannafund, sem í ráði er að haldinn verði í
Björgvin í Ágúst og Sept.mán. nú í sumar. Oddr
Gíslason kandidat hafði ritað félagsstjórninni bréf
og uppástúngur lútandi að þessu málefni, voru
þær uppástúngur hans bornar upp og ræddar á
fundinum, og sú ákvörðun tekin, að félagsstjórnin
ritaði bréf til sjáfarbænda í nokkrum hclztu veiði-
stöðum Árnes- og Gullbringusýslu, og skoraði á
menn, að gefa þessu málefni góðan gaum, eiga
fundi með sér og koma sér niður á ýmsum at-
riðum viðvíkjandi fiskiveiðum, ermenn bæði sjálfir
vildi fræðast um, og líka, ef til vildi, gæti frætt
aðra, svo að þeir menn, er héðan kynni að verða
sendir í sumar til Björgvinar, væri í því tilliti út-
búnir. Enn fremr ályktaði fundrinn, að félags-
stjórnin mætti af þessa árs vaxtafé félagssins verja
allt að 100 rd., ef á þyrfti að halda, annaðhvort
til að styrkja þá menn, er til Noregs færi, svo
framarlega stjórnin léti eigi svo mikið fé af hendi
rakna sem við þyrfti, ellegar til að kaupa á Björg-
vinarfundinum sýnishorn af ýmsum hlutum lútandi
að fiskiveiðum, og sem hér væri fróðlegt að sjá
og reyna. Á fundi þessum bættust 3 nýir félagar
við töíu félagsmanna, og voru þeir þessir: Jón
hreppstjóri Árnason í þorlákshöfn, Siglivatr Árna-
son alþíngismaðr á Eyvindarholti ogSæmundrSæ-
mundsson hreppsljóri í Reykjakoti í Ölfusi.
— Forstöðunefndin fyrir samskotafe handa
\)eim er færi heðan á Björgvínarsýnínguna, áttí
fund meb sk í gær; forseti Hússog búst.félagsins, herra prú-
fastr 0. Pálsson, or ekki var heima í fyrradag, bættist rní vib
í nefndina, og hr. P. C.Knudtzon, er siíiar, fyrir hönd verzl-
unarhúss síns, hafbi heitib200rd. tillagi. þar ab auki hafbi
pústskips-skipstjúrinn herra Andressen hoitiíl því fyrif hönd
reibara sinna: Koch & Hendersou, at) þeir mundu styrkja
til fararinnar heban allt ab 200 rd., auk frí fars fram og
aptr, svo framt Reykjavíkrbúar og Islendíngar sjálflr vildi
leggja fram til þess festyrk er nokkru munabi. Ab þessu
samantfddu, og meb þeim smærri samskotnm, er bætzt höftm
vib her innanbæar síban 1 fyrrakvöld, voru þau nú, ab meb-
töldum þeim 100 rd. frá Húss og Bústjúrnarféiaginu, orbin aþ
npphæþ samtals 1,125 rd.
Nú var afrábib aþ reyna a'b vinna 4 nafngroinda sjúar-
bændr til farariunar met) þessari pústskipsferþ og ef mögu-
legt væri þessa menn: Geir Zöega í Reykjavík, Gub-
mund Guþmundsson í Landakoti á Vatnsleysuströnd,
Iíristinn Magnússon í Engey, og kand. Odd V. Gfsla-
son. Ef engi vinníngr yrbi ab fá Kristinn til farariunar,
skyldi umfram hvern mun reyna ab fá annan skipasrnit) í
haus staí). Hver þessara 4 manna skyldi fá 250 rd. til ferila-
kostnabar og fararnestis. þarab auki var Uafliba Eyúlfs-
syni úbalsbúnda frá Svefneyum á Breibaflrbi, sem nú er hér
staddr og stabrábinn til fararinuar, ákvebinn 150 rd. styrkr.
L