Þjóðólfur - 22.06.1871, Síða 4

Þjóðólfur - 22.06.1871, Síða 4
— 132 — sem með stöðulögunum er nú veitt, sé margfallt minna heldr en íslendingar hafa kraflzt, minna heldr en þeir hafa fært álitleg rök fyrir að þeir hafl enda lagarétt til, hafa fært sönnur, þær er fullgildar og órækar verða metnar eptir náttúru- réttinum og fyrir dómi ráðvendninnar og réttsýn- innar, fyrir því að þetta land eigi og þurfi hærra árgjalds, ersé hreinogbein samvizkuskuld (Æres- gjeld») er á Dönum hvíli og þeim beri að út- leysa, — þó að þetta árgjald, sem hðr er veitt, sé einnig bæði rýrara og með þrengri kjör- um af hendi látið, heldr en hver deildin ennar konunglegu fjárskilnaðarnefndarinnar 1862 lagði til, — eigi að síðr er að voru áliti stórmikið á- unnið fyrir íslendinga, frá því sem verið hefir, með þessari fjárveitingu stöðulaganna 2. Jan. þ. árs. f>ví þar með er nú um síðir áunnin form- legog lögfull viðrkening af hendi Ríkis- dagsins í Danmörku og ennar dönsku þjóðar fyrir því, að á ríkissjóði Dana hvíli sú lagaskylda og lögleg skuld að láta af hendi og útleysa til ís- lands fast árgjald. Bér með er áunnin «prin- cip»-undirstaða eðr sú óyggjandi fótfesta fyrir fjárkröfum vorum sem aldrei þarf út af að skeika ef vér viljum sjálfir vaka yfir að halda henni, — ef vér flönum ekki þaðan til að *elta þann fimta<> skarfinn. f>etta má nú telja óraskanlega fullgjört, að Island eigi fast árgjald úr Ríkissjóði Dana. Aptr upphæð þessa árgjalds, hún er ekki fullgjörð né óraskanlega fast ákveðin, ekki öðruvísi en svona um stundarsakir, þó að upphæðin sé aldrei nema tiltekin svona þarna í stöðulögunum 2. Jan. þ. á. Undirstöðu- eða princip-ákvarðanir þessara laga, að því leyti að þar með eru viðrkend og ákveðin «sérstök» landsréttindi íslands, og það annað er að þeim lýtr, gagnvart meginríkinu og samþegn- um vorum, þær eru föst vg órjúfanleg gjörð, jafnt hins æðsta stjórnarvalds sem löggjafarvaldsins í Danmörku, þ. e. konungsins og Ilíkisþingsins í sam- einíngu. En upphæð árgjaldsins, hvort heldrsú sem þar er tiltekin eða önnur, hún er engi slík undirstöðu ákvörðun landsréttar vors eða politiskra réttinda gagnvart meginríkinu,- hún er þarna ekki annað en slétt og rétt lagaákvörðun, sem eigi þarf annað en vanalega lagasetningarleið til að fá breytt. Hér í fjárhagsþætti stjórnarmála vorra er því að oss skilst, eigi orðið eptir annað ágreinings- efnið milli Islendinga og Dana en um upphœð ár- gjaldsins. Vér fáum varla af oss að nefna hér með undanþágu skilyrðið í síðari málsgr. 6. grein- ar i stöðulögunum, því þetta, að Ríkissjóðrinn skuli að vísu standast öll útgjöld er leiða af nauð- synlegum póstsgöngum milli Danmerkr og íslands, en samtskuli ísland missaí enda hve mikils lesta- gjalds sem verða má af þeim kaupmannavörum o. fl. sem póstjórnin findi sér hag við að fiytja hingað og héðan á póstgufuskipunum nær engri átt. Væri nokkur ráðdeild og hagsýni póststjórnarinnarmegin, þá hefði húnásínu valdi með þessari ákvörðun, að draga undan landsjóði íslendinga og undir ríkissjóð Danaallan helming, eðrmeiraeftil vildi,af lestagjalds- tekjunum, eðr 6—8000 rd. árlega. f>essi ákvörð- un stöðulaganna er því eigi síðr smásmugleg og mangaraleg, og þar til á ranglæti einu bygð en engri réttsýni, heldr en hvað hún á ekki með neinu móti heima í stjórnarstöðulögum og er þar hreint axarskapt. f>vi ef nokkurt atriði á heima eingöngu í vorum serstökum landsmálum og undir vort inn- lenda skattálöguvald, þá er þetta verulega tekju- og skattgjaldsatriði eins óslítanlegt þar frá yfir höfuð eins og það, eptir öllu réttu og sjálfsögðu hugsunarsambandi, er óaðgreinanlegt annarsvegar frá nxierzlun og sjóferðum», hins vegar frá «bein- línis og óbeinlínis skattamálunm, er hvorttveggja er lagt með berum orðum til íslands sérstöku mála í 7. og 8. tölulið 3. greinar í þessum sömu stöðulögum. Aptr árgjaldsupphæðin er og á að vísu að vera «opið spursrnálo milli ens danska og íslenzka löggjafarvalds þegar Alþingi er búið að ná skattgjafar- og löggjafaratkvæði í öllum vorum sér- stökum málum. Ekki svo að skilja, að vér álitum að Alþingi geti nokkuru sinni fengið atkvæðisrétt um þær eðr aðrar fjárveitingar úr ríkissjóði, það kemr víst engum til hugar nú orðið. En þegar Alþingi vort er búið að fá löggjafar- og skattalofs- vald, þá hefir það ólíku meiri og ríkari þýðingu til að viðtaka þær fjárkröfur sem faranda þætti fram á, og meira og ríkara siðgæðisafl til þess að fram- fylgja þeim samningsveginn við skattálöguvaldið og stjórnina í Danmörku, heidr en Alþingi hefir eða getr haft eins og nú stendr, að eins ráðgefandi ( öllum vorum sérstöknm borgaralegum málum og fá- ment, og þar til grunað af Dönnm eða gjörðar getsakir um, að einstakir þingmenn ráði öllum fjár- kröfunura og tillögum um þær nú sem stendr. Og af því vér álítum það ótímabæran burð fyrir Alþingi að halda til streytu nú um sinn um þær fjánkröfur sem um hefir verið að tefla vor megin síðan 1866,. heldr verði hyggilegra að láta þá «sök í salti liggja* um sinn, taka við því ár- gjaldinu í bráð sem bér er boðið í stöðulögunum

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.