Þjóðólfur - 12.04.1872, Blaðsíða 1
Viðankablað
við Þjóðólf 24. ár, nr. 21—22. — ÞeyTtjavik, Föstudag 12. Ápríl 1872.
SAMþYKTIR
fyrir sparisjóð í Reykjavík.
1.
Stofnun og stjórn sjóðsins.
1.
Stofnendr sjóðsins eru fyrst um sinn 12. Tala
þeirra verðr aukin með 4 stofnendum, einum úr
hverri þessara 4 sýslna, Gullbringu- og Iíjósar-
sýslu, Borgarfjarðarsýslu, Árnessýslu og Rangár-
vallasýslu, ef menn í þessum héruðum vinnast til
þess.
2.
Sérhver af stofnendum sjóðsins skuldbindr
sig skriflega til að ábyrgjast, að sjóðrinn standi í
skilum, og að svara allt að lOOrd. hver, fyrir halla
eða tjón er sjóðrinn kann að verða fyrir, og hann
sjálfr ekki getr staðið straum af.
3.
J>á er stofnendum fækkar við andlát eða af
öðrum gildum ástæðum, eiga þeir sem eptir eru,
eptir uppástungum forstjórnarinnar, að kjósa menn
í hans stað, er ábyrgist sjóðinn með sama hluta
og stofnendrnir hver um sig.
4.
Stofnendrnir kjósa 3 forstjóra sparisjóðsins
fyrir ár hvert á fyrsta fundi á árinu, og skal einn
þeirra gegna formannsstörfum og einn gjaldkera-
störfum. Þegar efni sjóðsins leyfa, má tilsetja gjald-
kera, sem fær laun þau og setr ábyrgð þá, er
stofnendr sjóðsins álíta nægilega.
5.
Hinn 5. dag Janúarmán. og 5. dag Júlímán. ár
hvert, eða næsta virkan dag á eptir, ef á helgan
dag ber, i fyrsta sinni árið 1873, hafa stofnendr
fund með sér; skal þá lagðr fram reikningr fyrir
hið liðna missiri, vottaðr af forstjórninni, og þær
ákvarðanir gjörðar, sem ástand sjóðsins útheimtir.
Aukafundi boðar formaðr eptir eigin vild, og einn-
ig þegar helmingr stofnenda æskir þess. Á fund-
um ræðr meiri hluli alkvæða.
6.
Bæarstjórn Reykjavíkr kýs tvo menn ár hvert,
sem athuga liinn framlagða reikning, og votta,
hvort sjóðnum sé stjórnað samkvæmt settum skil-
málum.
7.
Reikning sjóðsins skal leggja fram á skrif-
stofu sparisjóösins eptir að hann er saminn; skal
hann liggja þar i mánuð, til þess að þeir, semeiga
fé í sjóðnum, geti skoðað reikninginn. Sá sem
sýnir viðskiptabók við sjóðinn á rétt á, sjálfr að
bera bók sína saman við aðalbókina. lítdrátt af
reikningi sparisjóðsins skal auglýsa á prenti.
8.
Störfum sparisjóðsins verðr gegnt fyrst um
sinn einusinni í viku á þeim stað, stundu og
degi, sem auglýst verðr í blaði, sem kemr út í
Reykjavík. Á þessum tíma skal gjaldkeri og einn
af stofnendum sjóðsins, í ákveðinni röð, vera til
staðar, til að sjá um inn og útgjöld, gæta bók-
færslu, rita undir viðskiptabækr, taka á móti
uppsögn m. fl.
9.
Bækr sjóðsins skal færa þannig, að ætíð
megi sjá ástand hans, hvernig hann sé trygðr
og innstæðu hans varið.
II.
Um samlag í sjóðinn.
10.
a. Innlag er tekið f gjaldgengum peningum, og
eigi minna en 32 sk. í hvert skipti.
b. það, sem lagt er í sjóðinn, er fært inn í aðal-
bók, og fær þar hver samlagsmaðr dálk sér
með rituðu nafni, stöðu og heimili.
c. Sem sönnun fyrir fé þessu fær sá, er í sjóð-
inn leggr, viðskiptabók með sömu yfirskript og
í aðalbók stendr, og skal fyrir hana, með við-
festri samþykt sparisjóðsins, greiða 16 sk., en
hún gildir f öllu sem samningr við sjóðinn.
d. Ef að sérlegar ástæður eru fyrir hendi, má
neita viðtöku á fé í sparisjóðinn, eða gjöra að
skilyrði, að féð skuli standa óhreift f sjóðnum
allt að einu ári, en þó skal meiri hluti for-
stjóra vera á því máli.
e. Um eigur manns í sparisjóði verðr eigi sagt
óviðriðnum mönnum.
11.
a. Af þvf fé, sem lagt er í sparisjóðinn, 6varast
fyrst um sinn f vöxtu 3 af hundraði á ári. Vext-
ir byrja þegar 3 rd. eru lagðir ( sjóð, og teljast
frá 11. degi mánaðar, ef féð er lagt inn á þeim
degi eða þar á undan, en frá 11. degi mánað-
ar næst á eptir, ef greitt er síðar.
b. Vextir reiknast eplir mánuðum þritugnættum,og
ekki f minni pörtum en heilum skilding.
c. Vextir greiðast fyrir missiri 11. Júní og 11.
Desbr. ár hvert, svo og af innstæðu, þegar hún
er öll útjmrguð.