Þjóðólfur - 24.07.1873, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 24.07.1873, Blaðsíða 3
— 151 — e*ns og fleiri Spánverjar, er það til marks, að honum þótti það eitt sinn, meðan Amadeó sat að völdum, of lítilfjörlegt fyrir konu sína, að halda barni konungs undir skírn. En nú varð hann að brjóta odd af oflæti sínu; stjórnin grunaði hann um, að hann sæti á svikráðum við sig og vildi handsama hann, en hann skauzt undan til Lay- ards, sendiboða Englendinga í Madrid. Lagðist þá lítið fyrir kappann, því að hann varð að strjúka undan í dularbúningi- Kom Layard honum á járnbraut til Santanders og þar á skipsfjöl; fór Layard sjálfr og kona hans með honum þangað. Serrano varð að raka yfirskegg sitt og liafði fals- skegg á vöngum. Átti þá á leiðinni að rannsaka vagn þann er þau þrjú voru í, en þá neytti Lay- ard þess, að hann var sendiboði, og bannaði rannsóknina. A þessu er þó eigi að sjá, að stjórn- in sé jafnónýt og sagt er, eða að löggæzlan á Spán sé eins vond og margir láta í veðri vaka. Hér á norðrlöndum hefir verið í ráði að breyta til um mynt, og hverfa frá silfrmynt til gullmyntar, í stórkaupum, átti og um leið að gjöra breytingar á silfrpeningum; gjörðu stjórnirnar í Noregi, Sviþjóð og Danmörku samning um þetta með sér, og féllust þingin í Danmörku og Svíþjóð á samninginn, en stórþingið norska neitti honum. Nú verðr líklega það úr, að Svíþjóð og Danmörk slá sér saman um myntina, eins og áðr var ætlað, en hirða eigi um Noreg. Myntarsamningr þessi er að því leyti góðr, að hann tekr upp tugaskift- 'ngu og gjörir þannig reikninginn léttari; en holl- nra væri víst Dönum og Svíum, að taka uppmynt einhverra hinna stærri þjóða, er flestar hafa tekið upp tugaskiptingu, en að rembast við að búa til uýa mynt handa sér einum, því að þar mun þó að koma á endanum, að ein verði mynt um allan beini. þetta var aðalástæða Norðmanna móti SaHiningnum. Óskar Svíakonungr hinn annar var kórónaðr '2. dag jýlaímánaðar með mikilli dýrð og viðhöfn, bl mikillar gleðl og augnagamans fyrir skrílinn í ^lokkhólmi. 2. Utdráttr úr brefi, Kh. 6. Júlí 1873. — — Ekki sendi eg yðr fréttir núna; það skeðr s'o lítið sem vert er um að tala, nm þessar mundir. % vil að eins geta þess við yðr, svo að þér þurfið e'S* að tína það saman úr blöðunum, að Rússar er*> búnir að taka Khiva, Tartaralandið, er eg hefi ^etið um áðr, og var vörn lítil. — Á Spáni eru s'° að segja daglega ráðgjafaskifti, nú síðast lítr þó út sem stjórnin hafi náð meiri festu; annars stendr þar allt við sama, nema sagt er að Karl- ungum miði heldr áfram. — Á Ítalíu eru orðin ráðgjafaskifti. — Á Frakklandi stendr allt við sama, nema hvað stjórnin æ betr og betr lætr í ljósi sinn innra mann eínsog sira...........sagði um ugluna; harðstjórn og kúgun gægist æ lengra og lengra undan stakki hennar. — Á gripasýn- ingunni í Yín rigndi svo, fyrir nokkrum dögum, að allt fór á flot, og skemdist margt af sýnings- gripum, en þó minna en menn skyldu hyggja. þar er keisaradrotningin frá Prússlandi og er vel fagnað. — Persakonungr hefir ferðazt hér um álfuna í sumar og er nú í Englandi eða nýkom- inn til Frakklands; ætla menn þar eins og annar- staðar að drepa hann í hátíðahaldi og ávörpum sem menn flytja honum; þykir hann nýr og fásén gestr; er búningr hans allr gimsteinum settr og berst hann mikið á». 5 DÓMSMÁL fyrir hcraðsdómum her í Kjal- arnespingi. í Maí og Júní-blöðum þjóðólfs var þess getið, að á einu leytinu hefði þeir tveir yfirdómendrnir herra dómsforsetinn etazráð Th. Jónasson og herra assessor Magnús Stephensen höfðað privatmál með veittri gjafsókn á móti assessor Benedikt Sveinssyni, eftir að Hæstiréttr hafði dæmt hann sýknan,— út af meiðyrðum þeim er þeir álíta sig borna vera í hinu alkunna prentaða riti B. Sv. «Fullnaðardómr o. s. frv.», — fyrir ákærum rettvís- innar, með dómi sínum 27. Jan. þ. árs. Sókti procurator Melsteð bæði þau mál, af hendi vel- nefndra kærenda fyrir héraðsrétti Gullbringu- og Kjósarsýslu. Á hinu leytinu var einnig getið þeirra 2. málanna er herra JMndshöfðinginn lét höfða á hendr Jóni Ólafssyni ritstjóra blaðsins «Göngu- Hrólfs" útaf 2 greinum þeim er komu í sama bl. nr. 10. 26. Apríl, önnur, er hafði þá yfirskrift „Landshöfðingjahneykslið“ hin „Hœstare'ttardóm- aru («að Landshöfð. geti, ef hann vill, ábyrgðar- laust rægt menn, o. s. frv., sbr. 109. bls. a. fram.). Bæði þessi mál voru höfðuð privatmála-leið af Landshöfðingja, og kærði hann sjálfr fyrra málið til sættaumleitunar, eins og þegar var minzt, en suðramtið veitti gjafsókn í báðum málunum, og skikkaði, 2. Maí þ. árs, “Landshöfðingja-secretera J. Johnsen»' til að sækja bæði málin fyrir l) í „d(tmasafni“ þvi sem nú er ab koma út prentab og blaiitiu „V ík ve rj a“ fylgir, er bœarþingeréttaríímr Olau-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.