Þjóðólfur - 16.04.1875, Síða 2
56
— FISKIFJELAG. Þeir Fischer og Knudtzon kaupmenn
hafa í vetur stofnað til stórkostlegs fiskihlutafjelags, er saman
skal koma í Hafnarfirði; sbr. auglýsingu þeirra. Hafa þeir sent
oss frumvarp prentað, og skulum vjer hið fyrsta birta það og
annað málinu viðkomandi, því oss þykir það miklu máli skipta.
— HÆZTARJETTARDÓMUR fjell ( febr.mán. í Elliðaármáli
þeirra assessors B. Sveinssonar og Thomsens kpm., og hefur
Thomsen unnið þetta mál, þannig að yfirdómurinn var slaðfestur.
Málskostnaður við hæstarjett látinn niður falla, en 10 kr. skal
stefnandi greiða í dómsmálasjóð.
Boðsbrjef.
t*að er þjóðkunnugt á íslandi, að Norðlendingar og Vest-
firðingar fá opt mikinn afla áþilskip sín, og eigi síður er það
kunnugt, að frakkneskir fiskimenn draga á hverju ári ærinn
grúa á skip sín í kringum allar íslands strendur. Af þvi að
menn hafa nú þessi dæmi ávallt fyrir augutn sjer, þá er það
eðlilegt, enda er það oss alls eígi ókunbugt að svo er, að
ýmsir dugandis bændur og efnamenn í kringum Faxaflóa hafa
fundið löngun hjá sjer til að reyna fiskiveiðar með þessu móti
á þilskipum.
Þar er og einnig tilraun gjör í þessu efni, þvf nokkrir af
bændum þeim, sem búa i kringum Faxaflóa, hafa á seinni ár-
um útvegað sjcr fiskiskútur. f>ó kveður eigi svo mikið að
þessum útveg, sem þeir hefði sjálfir óskað að væri, og kemur
það til af ýmsum hlutnm, en þó helzt, að voru áliti, af því,
að meðan ekki er kostur að ná sjáfar-ábyrgð fyrir smáskip á
íslandsferðum, þá er allt of mikil vogun fyrir hvern einstakan
mann eða nokkra fáeina, að leggja mikia peninga ( eitt ein-
stakt skip, og verða að eiga það á hættu, ef óhapp vill tii, að
missa í einum svip mest af því, sem þeir hafa í mörg ár af
öllu kappi verið að draga saman með sparnaði og atorku.
Sú er önnur ástæða, að á íslandi er fátt um þesskonar
sjómenn innlenda, sem eru vanir við að vera fyrir þilskipum,
svo að útgjörðarmenn skipanna eru fyrir þá skuld neyddir til
að ráða sjer danska skipstjóra, þó þetta verði þeim bæði örð-
ngra og dýrara, sökum þess, að kaupa verður banda þeim far
til fslands og frá, og er það eigi alllitill au&akostnaður fyrir
skipaeigendur.
það er uggiaust, að Faxaflóinn liggur eins hentuglega til
fiskiveiða með þilskipum eins og margir aðrir firðir á íslandi,
þar sem mörg skip ganga til fiskiveiða; þess vegna eru og
líkindi til, að skipaútgjörð til fiskiveiða geti aukizt þar töluvert.
Þetta gæti orðið Suðurlandi að miklum notum á margan hátt,
og einkum til að koma upp sjómönnum af börnum landsins
sjálfs, sem er fyrsta undirstaða til að koma upp fiskiveiðnm á
þilskipum.
Til þess að koma nokkru til vegar i þessu efni, og efla
framfarir fisfciveiða við Faxaflóa, höfum vjer undirskrifaðir komið
oss saman um að reyna að stofna innlent fiskífjelag i Hafnar-
firði, byggt á hlutabrjefum; höfum vjer i þessu skyni keypt
verzfunarstaðinn Flensborg, með lóðinni, sem þar fylgir, fyrir
7000 krónur (3500 rd.), því vjer álítum, að þar sje mjög hent-
ugt til uppsáturs og upplags; en þenna stað eptirlátum vjer
hlutafjelaginu fyrir sama verð og vjer höfuð gefið, auk kostn-
aðar þess, sem á fellur, þangað til fjelagið er stofnað.
Vjer höfum ætlazt svo til að fjárstofn fjelagsins í hluta-
brjefum skuli vera ákveðinn fyrst um sinn til 64,000 króna;
þar af skjólum vjer sjálfir saman 20,000 krónur, en hitt,
sem á vantar, 44,000 krónur, verður boðið einungia á
íslandi, þeim sem hluti vilja eignast og panta fyrirfram, því
það er tilgangur vor, að fjelag þetta skuli vera innlent, og
hluttakendur engir aðrir en innfæddir íslendingar og íslenzkir
kaupmenn.
Svo framarlega sem þessi fyrirætlun nær þeirri hylli manna
á íslandi, sem vjer væntum oss, það er að segja, að menn
panti hlutabrjef upp á hinar fyrnefndu 44,000 króntir, þá verð-
ur í haust er kemur hugsað fyrir að útvega fimm fiskiskip,
gkonnortur til hjer um bil 15 lesta; þessi skip ætti að fara
hjeðan í aprílmánuði 1876, til að veiða hákarl og þorsk við
ísland, og um sama leyti mun tilraun verða gjörð til að slofn-
setja sameiginlegt ábyrgðarfjelag á Suðurlandi og að koma á
fót sjómannakennslu?
Til þess að styrkja þetta fyrirtæki, erum vjer fúsir til að
sjá nm allt, sem þörf er á, og nauðsynlegt er til að koma því
á fót, og skal það vera fvrsla árið án alls endtirgjalds, nema
fyrir koslnað þann, sem ferðir í fjelagsins þágu og ýmislegtann-
að kynni að olla oss.
Hvert hlntabrjef er ætlazt til að verði upp á 50 krónur,
og megi hver panta svo mörg hlulabrjef, sem aðalinnstæðinn
hrökkur til, en allir verða að hafa pantað fyrir 26. júlí og
borgað innskotsfje sitt að hálfu 20. ágúst eða fyr, en síðara
helminginn af innskotsfjenu þarf ekki að greiða fyr en til 20■
nóvember í haust er kemur.
þeir sem vilja panta hlutabrjef verða að skrifa nöfn sín, Og
greiða innskotsfje hjá forgangsmönnum sem eru:
Jón Stefánsson, verzlunarstjóri í Reykjarík.
N. Zimsen, sömuleiðis.
Kristján Zimsen, verzlunarstjóri í Hafnarfirði.
Ólafur Norðfjörð, verzlunarstjóri í Keflavík.
Hjá þessum mönnum má fá áætlanir og frumvarp til laga
fjelagsins, og sömuleiðis ítarlegar skýrslur um sjerhvað það,
sem fyrirtæki þetta snertir.
Kaupmannahöfn í febrúar 1875.
W. Fiseher. Nic. 11. Knudtzon.
Auglýsingar
— Hjer með innkallast með 6 mánaða fresti erfingjar Mar-
grjetar Björgólfsdóttur frá Miðfelli í Hrunamannahrepp hjer <
sýslu, sem andaðist 2. ágúst f. á., til þess að iýsa erfðarrjetti
sínum og sanna hann fyrir skiptaráðanda hjer í sýslu.
Skrifstofu Árness-sýslu, 17. marls 1875.
P. Jónsson.
— í sumar þegar lestamenn konungs, voru á ferð við Geys-
is, tapaði eg tveiniur reiðbeizlum með járnstöngum vænum og
ólarhöfuðleðrum, með Ijelegum kaðaltaumum, sem að líkind-
um hafa farið með lestamönnum þessum. Vil eg því biðja
þessa menn, ef nokkur þeirra skyldi hafa orðið var við þau>
að koma þeim til Geirs Zöega í Reykjavík, eða raín að Hauka-
d^L Sigurður Pálsson.
— Næstliðið haust var mjer dregin hvíthníflótt ær 2 vetur,
með mínu marki: geirstýft hægra, sneitt aptan vinstra, lögg fr-5
þessa á átti eg ekki, nema hún hafi verið fóðruð fyrir mig
undanfarin ár. Ef nokkur brúkar markið, vona eg hann goö
sig fram. Torfastaðakoti, 31. des. 1874.
Hajliði Marlcússon.
FJÁRMARK
Sœmundar Steindórssonar í Sandvik.
Sílt hægra og standfjöðnr aptan og slýfður helmingur aptad
vinstra.
NÝÖPPTEKIÐ FJÁRMARIÍ.
Tvístýpt apt. slandfjöður fr. hægra; geirstýft vinstra.
Eigi nokkur þetta mark bið eg hann að auglýsa það 1
blöðunum sem allra fyrst.
Bjarnastöðum i Selvegi.
Porsteinn Ásbjarnarson.
leiðrjettingar.
í síðasta blaði Þjóðólfs bls. 54. I. 27. «53» á vera 55.
sama blaði bls. 54. 1. 30. «Jóni» á að vera Janusi. Og á bls<
54. 1. 31. »Jónssynio á að vera Jenssyni.
í sama bl. misprentað í auglýsingu norðanpóstsins staf'
irnir: Th. !*. !>., sem á að J. H. þ. [>.
í 11. bl. Þjóðólfs stendur á bls. 44 10.1. að neðan: vinn«'
manni, á að vera einum manni, og á næstu bls. 20. b að
ofan, er sama misprentun.
Kláðameðul lcomin með póstslcipinu.