Þjóðólfur - 25.09.1878, Blaðsíða 1
30- ár.
26. blað.
heykjavik, 25. sept. 1878.
Tíðarfarið o. íl. Nú við sláttarlok muna menn
trauðlega meiri óþurkatíð en þá, sem gengið hefir yfir suður-
landið síðau fyrri hluta júlímánaðar; aptur hefir veðráttan
eystra og nyrðra verið all-hagstæð allt fram undir Höfuðdag.
Af Vestfjörðum hefir oss verið skrifað, að júlímáuuður hafi
þar verið votur en ágúst þur. Heyskaparlokinn fara nú eptir
þessu. Víðast um suðurland mun heyafli manna ekki ná með-
allagi og bæði töður og úthey hafa all-víða hrakist meir eða
minna; grasvöxtur var og að jöfnuði minni syðra en nyrðra.
Og þótt engin neyð viröist standa af tíð þessari, er það víst,
að margir bændur munu mjög svo þurfa að draga úr heyá-
setning í haust. Verð á sauðfé og kúm verður þvi að lík-
indum með betra inóti, enda ætlum vér að peningur í land-
inu hafi víðast hvar mjög fjölgað hin síðastliðnu ár. Síðan
12. þ. m. heíir gengið eitt af hinum lakari hausthretum yfir
landið, j'mist norðan frosthríðir með fannfergju á fjöllum, eða
vestan íhleypur; urðu menn nyrða að taka kýr og ásauði á
hús og hey; standa nú yflr fjalleitir og óttast menn misjafn-
ar heimtur. Verkun á fiski og eldiviði hefir einnig gengið
afar erfiðlega í sumar hér syðra, enda hefir það ábættst, að
kaupmenn hafa orðið að þurka nálega alla fiskivöru sína upp
aptur; hefir slíkt kostað þá ærna fyrirhöfn og töluvert fé.
Aflabrögð hér við Faxaflóa hafa nálega engin verið síðan
sláttur hófst, en aíli á þeim 15 eða 16 þilskipum, sem Eeykja-
vík og Gullbringusýsla eiga og gjöra út, hefir gengið vcl og
gefið mikinn arð að öllu samanlögðu.
Lærði skólinn var settur í miðjum þessum mánuði; var þá
kominn allur þorri skólasvcina nema Vestfirðingar; þeir bíða
«Díönu», sem koma átti hingað þann 19. þ. m., en var ekki
komin á Skagaströnd hinn 18.; hefir hún hreppt gæftir hinar
verstu. Gjöra þessar tálmanir kaupa- og ferðafólki mikla
erfiðleika.
Kosnir alþmg-isincnii. 19. þ. m. kusu Skag-
firðingar sér tvo nýja þingmenn, annan í stað sira Jóns Blön-
dals sál., en hinn í stað herra E. B. Guðmundssonar á Hraun-
um, er afsalaði sér þingmennsku. Á fundinum mættu 42
kjósendur, og urðu þessir kosnir : Jón ritari Jónsson úr ltvík
með 27 atkv. og Friðrik Stcfánsson bóndi á Vallholti með 29
atkv. íjórir eða fimna aðrir höfðu fongið atkvæði á kjörfundi
þessum. 2. okt. næstkom. verður nýr þingmaður kosinn fyrir
Strandasýslu í stað Torfa sál. Einarssonar. Einna líklegastur
til þeirrar kosningar er talinn sira Eiríkur Briem prófastur
á Steinnesi.
Frá Vestmannaeyjum er oss nýlcga skrifað: «Tveir menn
liafa farizt hér í fjöllum í sumar, annar við lundaveiði 31.
júlí, únglingsmaður, Einar Jónsson að nafni; hann hrapaði úr
svo nefndum «Flugum». Hinn hét Jón Pétursson, bóndi á
Elinarhúsi, ungur og efnilegur maður, dó frá konu og barni;
hann hrapaði 26. ágúst úr svokölluðu «Klifi»>, þannig að steinn
kom úr bjarginu í höfuð honum þar sem hann stóð og hélt
í festi (við fílúngarveiði); rotaðist hann þegar og hrapaði nið-
ur nálægt 70 faðma flug. Slíkar slysfarir eru því miður mjög
tíðar hér á eyjunum meðan fluglaveiðar yfirstanda».
(Aðsent). Hvernig mun því varið, að bingað til Vest-
mannaeyja eru enn hvorki komnar bækur frá þjóðvina- né
bókmentafélaginu? ætli það eigi að fara í ár eins og fyrir
nokkrum árum, þegar bókmentafélagsbækurnar komu fyrst
hingað árið eptir að þær komu út? eg er hræddur um að þá
muni eigi fjölga meðlimir félaga þessara, miklu fremur eru
líkindi til, að nokkrir þeirra muni týna tölunni; hingað hafa
verið í sumar svo tíðar skipaferðir, bæði af póstskip-
inu og scglsldpum, að það er bersýnilegu hirðuloysi fé-
lagsstjórnanna að kenna, að hingað skuli enn eigi vera
komið 8V0 mikið sem þjóðvinafélagsalmanak né Skírnir.
Menn eru hér óánægðir með, hversu dræmt veraldarsag-
an kemur út, þar sem nú er hætt að gefa út hepti af henni
optar en þriðja hvert ár, og kenna menn það eigi hinum góð-
kunna höfundi heldur félagsstjórninni, er muni ætla að láta
útkomu þessarar nvtsömu og ágætu bókar vara heilan manns-
aldur. Félagið ætti að styrkja svo að útgáfu bókarinnar,
að hún gæti komið út á hverju ári, unz henni væri lokið um
sinn, því enginn veit hversu lengi hins ágæta höfundar nýtur víð.
Vestmannaeyjum 8. (lag septbr. 1878. Felagsmaður.
Flsklsamf»yktir. 1 þrem fjórðungum landsins er
nú verið að reyna til að koma á samþyktum í lagaformi til
betri reglu við fiskiveiðar, nefnilega við ísafjarðardjúp, á Seyð-
isfirði og hér við Faxaflóa. Er þessi viðleitni enn einn votturþess,
hversu félagsskapur og framfara-áhugi er óðum að eflast hjá
þjóð vorri — þótt mörgum þyki smátt miða. Hér við flóann
eru lóðalagnirnar ekki svo mjög aðalefni málsins, sem í hin-
um höfuðveiðistöðum landsins, heldur netalagnirnar, sem ein-
ungis tíðkast við Faxaflóa — fyrst teknar upp um miðja 18.
öld, og brúkun þeirra farið æ vaxandi til þessa dags. Um
þessa merkilegu veiðiaðferð hefir í frá upphafi verið hinn mesti
vandi að dæma, sem af engu skilst Ijósara en því, hve sund-
urleitir dómar og skoðanir sjómanna sjálfra er um hana. pó
má taka það fram, að bæði reynslan sjálf, og ekki síður rök-
gemdir ýmsra hinna glöggvustu manna, virðast hér um bil
nægilega hafa sannað, að mikil netabrúkun breyti venjulegum
fiskigöngum, einkum á grunnmiðum, og fœri fisk frá landi, sbr.
rit þeirra fróðu feðga Ólafs stiptamtmanns og Magnúsar Ste-
phensens, sem nýlega er vitnað til í «ísafold». Á hinn bóg-
inn sýnir reynslan fullkomlega, að með netum má afla miklu
meiri fisk á sama tíma en með nokkrum öðrum veiðarfærum,
— já, svo mikinn fisk, að allinn gjöri iniklu meira en borga
hinn meiri tilkostnað, sem hin dýru net og hin miklu stærri
skip hafa í för með sér. J>arf og enginn neta-óvinur að hugsa
til, að fá samtök manna sem stendur eða fyrst um sinn til
að leggja niður þorskanet, enda liggja nú stóreignir almenn-
ings við Faxaflóa í þeim útveg, og í annan stað er nú einu
sinni svo komið, að fiskur er hættur að una á grunnmiðum
nema endrum og eins, en að veiða á djúpmiðum á haldfæri
eða með lóðum þykir ógjörlegt á opnum skipum eins og hér
hagar til. Næst því að fjölga þilbátum og samfara því virðist
því næst liggja við, það sem nú er verið að reyna, að tak-
marka netsviðin og netafjöldann. Eins Og áður hefir verið
umgetið setti amtmaðurinn í suðurumdæminu nefnd velvalinna
útvegsbænda í vor til að semja reglur um fiskiveiðar fyrir
Gullbringusýslu og Eeykjavík, samkæmt lögum um fiskiveiða-
reglur frá 14. desember 1877. Nefnd þessi lauk nú starfa
sínum í sumar, og var álit hennar síðan lagt fyrir sýslunefnd-
ina 26. júlí, og svo hennar álit aptur (samkvæmt nefndum
lögum) fyrir almennan fund, sem haldinn var í Hafnarfirði
10. þ. m. En sökum formgalla, er varð á sýslufundinum,
verður málið aptur lagt fyrir sýslunefndina. Málið kemst því
ekki í kring fyr en einhvern tíma seint í haust; munum vér
þá birta samþykktina í heild sinni.
Kcjkjancssvltinn. Bygging þessi gengur trekt
og afar-erfiðlega bæði sökum hinna torveldu aðflutninga og þó
einkurn vegna hinnar staklega óheppilegu veðráttu; í votviðr-
um er nálega ómögulegt að vinna að kalkhleðslu. IJó er sagt
að vitanum muni verða lokið í haust. Umsjón við vitann
hefir landshöfðingi þegar veitt úngum manni úr Rángáryalla-
sýslu, sem heitir Ásbjörn Ólafsson.