Þjóðólfur - 28.11.1879, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 28.11.1879, Blaðsíða 2
126 gat fengið af cementi. og var það brúkað í grunninn með litlu af gömlu kalki frá konsúl Smith, og cementi, sem próf. átti. J>ar sem herra Egilsson segir, að eigi hafi verið brúkað kalk fyr en með byrjun júlímánaðar eða síðast í júní, þá er það enn rangt, því að cementið var brúkað fyrri partinn af júní og kalkið undir eins og það fékkst, um miðjanjúní. far sem herra Egilsson segir, að prófasturinn hafi getað fengið kalk eptir vild, þá er það enn eigi rétt, því auk þess sem það vantaði fyrst, var einu sinni sent eptir skipsfarmi af því, og fengust þá að eins 5 tunnur og varð að því töluverður bagi. Eptir áskorun gef eg líka þá skýrslu að eg varð að hætta við byggingu steinhússins á Elliðavatni eingöngu vegna þess að kalk vantaði, en ekki af því að húsbóndinn þar væri las- inn eða tíðin bág, eins og segir í yfiriýsingu í þjóðólfi, sem nafn hans er skrifað undir. Ummæli Sigmuudar um það, að hann hafi haft skaða af því, að hann vantaði kalk, hafa eg og fleiri heyrt, og hefði þó skaðinn getað orðið meiri, ef eg og þeir, sem með mér voru að byggingunni, hefðum heimtað þær bætur, sem við höfðum rétt til. Björn Guðmundsson. * * * — Eg var einn af þeim, sem á síðastiiðnu vori voru ráðnir til að byggja steinhús að Elliðavatni, en varð að hætta af því kalk vantaði. Talaði Sæmundur bóndi þá og síðar um þann skaða, sem hann hefði af vöntun þessari. Hvað snertir yfir- lýsingu þá sem er í 2ö. tbl. J>jóð. undir hans nafni, þá heíir hann sagt mér, að herra Egilsson hafi sýnt sér tvær yfirlýs- ingar, og sé sú yfirlýsingin, sem er í «J>jóð.» sú sem hann ekki undirskrifaði. Magnús Pálsson. Ath. Litla grein, sem fylgdi Jiessum vottorðum hér að ofan, gátum vér ekki tekið í petta sinn sökum riímleysis, enda segir prófasturinn að aðalástæður sínar í máli þessu séu í Jieim. Mál þetta álítum vér fullrætt í pessu blaði. Rstj. — Yfirstýrimaður Oblsen á póstskipinu »Phönix« er horfinn á sviplegan og sorglegan hátt. Hann kom seint um kvöld þann 23. úr landi, lagði að skipinu og sagði skipverja þeim, sem með honum var, að fara um borð, sem liann gjörði, en sjálfur setti hann aptur frá skipinu,og sigldi á hvarf út í myrkrið. fetta var góða stund eptir miðnætti, hægur austanvindur var á, en fremur dimt. f>rátt fyrir miklar eptirleitanir hefir hvorki maðurinn fundist né báturinn. Óisen var ungur mað- ur, Færeyingur að ætt, nýkvongaður, manna gjörvilegastur og naut hins bezta mannorðs. Ætla menn að kviða hafi fyllt bátinn og hann sokkið þegar; í bátnum voru þungir kettingar. & (!) & g> t « fi — Þau hross sem ekki verða útgengin 30. nóvbr. næst- komandi í Selvogshrepp verða seld. t'ann 30. oktbr. 1879. Hreppsnefndin. — Brúnn foli 2 vetur með sneiðrifað framan hægra, hvatt vinstra er í óskilum hér i Saurbæá Kjalarnesi, og verður seld- ur fyrir árslok ef eigandi hirðir hann ekki. Eyólfur Runólfsson. — Rauður foli óaífekstur hér um bil 5 vetra, markið er miðhlutað hægra stýft viustra, kom til min seint í júlímánuði i sumar; má réttur eigandi vitja hans til min mót sanngjarnri þóknun fvrir hirðingu og þessa auglýsingu. Forsæti í Viliingaholtshreppi 13. nóvbr. 1879. Gestur Guðnason. — Rauðskjótt hryssa hefur tapast héðan, með samlitu mer- folaldi, í miðjum september mánuði, aðfengin austan úr Mýrdal. Hver sem kynni að finna hana, er beðinn að koma benni tll skila mót borgun. Kirkjuvogi þann 15 nóvember 1879. t Brynjólfur Gunnarsson. — Af fjalli vantar mig rautt mertrippi með stýfðan helming aptan hægra, gat vinstra, 3 vetra, óaffext og þriflegt Grímur Magnússou á Núpskoti á Álptanesi — Mig vantar af fjalli, 2 kindur; önnur þeirra merkt hálftaf aptan hægra, fjöður framan, miðhlntað vinstra, fjöður apt. hornamark sama mark; hin: sneiðrifað aptan hægra og sýlt vinstra og tvær svartar bandfléltur sína I hverju eyra. Gamalíel Guðmundssoo. á Nauthól á Seltjarnarnesi. — Á næstlinu hausti var mér mregin hvítur sauður sem jeg átti ekki, veturgamall með mínu klára marki, hálft affrain- an hægra, sneilt aptan vinstra. Réttur eigandi þessarar kindar getur vitjað andviröisins til mín að Lónshúsum í Garði. Jón Pálsson. — Mér undirskrifaðri heör í haust verið dregið grátt hrút- lamb með mmu rnarki, blaðstíft aptan hægra, hver sem sann- ar eignarrétt sinn á larnbinu getur samið um það við mig. Brekkn i Biskupstúgum 30. oktbr. 1879. Helga Jónsdóttir. — Nú I haust hefur mér verið dregin hvít hníflótt ær 2 vetur, með mínu fjármarki, sýlt bæði og boðbíldur aptan bæði brennimerkt B. H., sá sém getur sannað eignarrétt sinn til kindar þessarar og hefur brennimarkið til samanburðar, getur samið við mig, ef að hún þá verður lifandi eða vfs. Uvammkoti 26. oktbr. 1879. Þorlákur Guðmundsson. — Hjá mér undirskrifuðum er hvíthirnd ær, sem mér var . dregin og eg á ekki, mark á henni er sýll hægra 2 bitar framan, sýlt vinstra gat undir. Bið réttan eiganda að vitja til mín. Ytri Njarðvik 22. nóvbr. 1879. Jóhann Kr. Jónsson. — Mér undirskrifuðum var dreginn í Dælarrétt hvítur sauð- ur tvævetur, eirnamark: blaðstíft aptan hægra, tvfstift framan vinstra, og rifa f hærri stúf, hornmarkaður með minu marki, geirskorið bæði, brennimerktur mjög óglögt, hver sem getur sannað eignarrétt sinn á þessum sauð má vitja andvirðisins til mín að frádregnum áföllnum kostnaði og semja um markið við mig. Bjargi við Rv. 2. nóvbr. 1879. Gísli Bjarnason. — Nýupptekið fjármark: tvistíft aptan hægra og gagnbitað vinstra. Brennimark PF. J. IF. skyldi einhver í sömu eða nær- sýslum eiga sammerkt við mig bið eg hann að gjöra svo vel að semja við mig. Bafnarfirði h. 16. nóvember 1879. Pjetur J. Jónsson. — Hinn 15. okt. síðastl. tapaðist hestur frá Litlahrauni að Eyrarbakka, móskjóttur að lit, mark: (að mig minnir) 2 fjaðrir Hesturinn er fremur lftill, vetrar-affextur, ólatur, járnaður á 3 fótum. Sá, sem finnur hest þennan, er beðinn að halda hon- um til skila að Garðhúsum á Eyrarbakka mót sanngjörnum fundarlaunum. Isak Jónsson. — 1 haust var mcr liingað drcgið lamb. með marki Guðmundar sonar míns: fjöður aptan hægra, biti aptan vinstra. En með því að nefndur sonur minn á eigi lamb J>etta, bið eg þann, er sammerkt á við liann, að gefa sig fram við mig, svo að hann geti fengið andvirði lambsins, og samið um markið. Eu borga verður hann allan áfallinn kostnað. Yarmalæk 12. nóv. 1879. Auðunn Vigfússon. 1 norsku verzluninni í Reykjavik fæst: Lamper, moderne, Æbler, Valnödder, Paranödder, Spanske Nödder, Confect - Figen, Confect - Rosiner, Krakmandler, Syltetöier, Pickles, fxin Eiscuits & Nic- nac, mange Sorter Brystsukker & Bonbons. Fiint dansk Smör i Dunke, Ansjavis i Blikboxer. — Hér með leyfi eg mér opinberlega að votta mínar hjartanlegar þakkir öllum þeim góðu mönnum, sem í fjarveru minni veittu kærleikshjálp og aðstoð eiginkonu minni í henn- ar miklu sjúkdómsneyð. Sérstaklega tilnefni eg dómkirkju- prestinn og hans góðu frú og hjeraðslæknir herra Jónassen. Friðfinnur Árnason. — Bækur, pappír og bókbandsefni, allt með góðu verði. gullstáss, góð vasa-Uhr, pennar, blek o. fi. fæst hjá undir- skrifuðum. Reykjavík, 27. nóvember 1879. Einar pórðarson. — 26. |>. m. voru fullprentuð 17 hepti (yíir 170 arkir) af Alpingistíðindunum. Afgreiðslustofa pjóðólfs: í Gunnlaugsens húsi. — Útgefandi og ábyrgðarmaður: Matthías Jocliumsson. Prentaöur í prentsmiðju Einars póröarsonar.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.