Þjóðólfur - 02.02.1880, Side 2

Þjóðólfur - 02.02.1880, Side 2
18 svarið fyrir hreppinn, þegar lántakarinn gefst upp frá skuld sinui ágoldinni. Hvað mikið hafa kaupmenn þannig borgað? En því fer svo fjærri, að kaupmenn fái nokkra þökk fyrir þetta hjá hinum betur settu meðborgurum; þeir eru að minnsta kosti margir, sem nota sér fólkið á póstskipinu til útvegunar á hinu og þessu, i stað þess að unna verzlunarstéttinni, sem ásamt þeim ber mestan hlut af mannfélagsins sköttum, óskertrar at- vinnu og nota hana í viðskiptum við erlenda menn; því ó- sanngjarnt má þykja, að þeir menn, sem ekki borga einn eyri til almennra þarfa, skuli hljóta hávaðann af öllum pöntunum, með því ekki er heldur að efa, að þeir taki líka töluvert í sín ómakslaun, auk smá-góðgjörða, enda ber við, að það sem þeir fiytja, sé dýrara en hér mætti fást (en þá hugga menn sig við það, að varan sé betri, hvort sem hún er það eða ekki), og á ofan verzla þessir menn hér með ýmsan smávarning. Annars væri það ekki óeðlilegt, þótt fólkið á póstskipinu gæti selt stöku hluti ódýrara en kaupmenn, því það borgar ekkert flutningsgjald, og, ef til vill, sjaldnast nokkurn toll né heldur kaupir það verzlunarleyfi. A hinn bóginn er vitaskuld, að mönnum er þægilegra að lofa skuldinni í búðinni að bíða ó- borgaðri (ekki bregst hið rentulausa lánstraust til dómadags), til þess menn geti sent peninga til einhvers urtakramara í Khöfn og fengið fyrir þá kassa með «kólóníalvörur», en það orð mun á seinni tíð tákna ýmislegt fleira en kafli og sykur, svo sem t. a. m. vín og áfenga drykki. Sjálfsagt gæti það orðið í hag landssjóðnum ekki síður en gufuskipsfélaginu, ef hinn réttt viðkomandi vildi renna loku fyrir þetta laumuspil, og víst má oss andarlegt þykja, að slíkt hefir getað dulizt hinum hvössn augum «ísafoldar», en hitt er satt, það er á- sælni kaupmanna við landsmenn, sem hún hefir sett sig dóm- ara yfir, en ásælni landsmanna gagnvart landssjóðnum o. fl., liggur auðsjáanlega ekki undir hennar dómsatkvæði. Að endingu viljum vér ekki gleyma að taka fram, að skjddu prédikanir Isafoldar um ágang og okur kaupmanna hafa komið þeirri trú inn hjá mönnum, að Islendingar séu verst settir allra norrænna þjóða, hvað verðlag snertir á þeirra innanlands nauðsynjum, þá vaða menn í villu og svíma; bæði í Danmörku og Norvegi, og eins í Svíaríki og á Englandi, eru flestar vörutegundir, í smákaupum, dýrari en her, að undan- teknum sumum þeim vöruln, sem löndin sjálf framleiða, eins og korn í Danmörku og járn og steinkol á Englandi, enda er auðvitað, að rúmfang þeirra og þyngd veldur því, aðj þær verði dýrari hingað fluttar; en aðrar vörur, t. a. m. kaffi og sykur, og þá sjálfsagt allar glys- og munaðarvörur eru ódýrari hér en erlendis (um einstöka útkjálkaverzlanir tölum vér ekki), ekki einungis fyrir þá sök, að slíkar vörur eru hér enn þátoll- fríar, heldur og sökum þess, að smákaupasalar erlendis reikna sér miklu meiri hag en hér er gjört, þótt þeir verzli í móti borgun út í hönd, og aukakostnaður sé þar á margan hátt minni. Allt um þetta eru verzlunarmenn í öðrum löndum hafðir í heiðri eins og bæði nytsamir og góðir borgarar og álitnir eins nauðsynlegar stoðir undir mannfélagsins miklu byggingu eins og embættismenn og bændur, og enda doctores phílosophice líka. Rvk. 28/i 1880. X. Ein helzta orsíiltin til iiall;e- a á islandi. Töluvert er búið að tala og semja um þær mörgu og miklu hallærisorsakir, sem leitt hafa eymd og ófarir yfir þetta land. Flest af ritum þeim um það efni, sem skráð hafa verið, höfum vér að vísu séð, en við hendina höfum vér fátt af því. Af öllum þeim orsökum, sem Hannes biskup Finnsson, Magn- ús Stephensen, Espólín, Jón Sigurðsson, Jón Hjaltalín og all- ir aðrir, sem um þetta efni háfa skrifað, munu hinar helztu teljast þessar: eldgos, plágur, verzhinar-ánauð, stjórnlegt ó- frelsi og illt vetrarfar, Yér neitum nú ekki, að það sé alveg rétt, að þessar hafi verið hinar helztu hallærisorsakirnar, en vér ætlum þó, að mikið vanti á, að þetta mál sé enn nægi- lega skoðað. Annálar vorir t. a. m. eru um enga viðburði eins fjölorðir eins og um harða vetur; aptur tala flestir yngri höfundar meira um hinar orsaki.nar, svo sem stjórulegt ólag og verzlunarbágindin. Yor ætlun er nú, að allar þessrr or- sakir og ýmsar fieiri hafi að vísu dyggilega lagst á eitt til þess að koma þjóð vorri fyrir kattarnef — hefði þess orðið auðið, en einkum þykja oss hörðu veturnir, eins og annálamönn- unum, eptirtektaverðir. fað er sagt um Flóka gamla, er fyrstur skírði þetta land, að hanu hafi »eigi gáð að fá heyja, ok dó allt kvikfé þeirra um vetrinn«. fantiig fór hið fvrsta búskaparárið, sem norrænir menn bjuggu á íslandi, og sá »fellir« varð sá fyrsti en ekki hinn síðasti. Að telja felli- vetur vorrar landsbyggingar er torvelt, starf, enda þarf þess ekki. Annálar vorir, sagnir og saga, leggst, að oss finnst, á eitt til að sýna og sanna, að ekkert hefir ollað jafn-tíðum hnekki landi voru, sem harðir vetur. En — er þa'ð rétt að nefna þessa hallærisorsök þessu nafni? Víst er um það, að miklir vetur, ógurlegir voða-vetur hafa komið á þessu landi, en hve margir eru þó þeir vetur, sem sögur geta um, og sem vér verðum að kalla kynja- eða voða-vetur? Vér finnum þá ekki marga, og þeir sem muna betur atinála og sögur en vér, geta rengt oss, ef vér segjum, að vér finnum ekki fleiri en 2 —3 á öld hverri, að tiltölu, og þó vart svo marga. Allt um það segjum vér, að veturnir hafi harðast knúð hurðir vorrar þjóð- ar. En hvernig og hvers vegna? Fyrir hverja orsök strá- felldi Flóki fé sitt? Ari fróði svarar: »£>eir gáðu eigi fyrir veiðum at fá heyjanna« — |>að er að segja : sumarið fyrir. Vor ætlun er, að orsök hins fyrsta fellis hafi verið flestra fellira orsök; og fyrir því ætlum vér það rangt að kalla veturna aðalorsök hallæranna. Aðalorsök peirra hefír verið óforsjálni landsmanna á sumrum og haustum, eða með öðrum orðum: röng heyja-ásetning og ill meðferð alls kvibfénaðar. Annálar vorir eru sparir á landshagsskýrslum og fyrir því er og verð- ur búnaðarsagan erfiðasti kafli vorrar sögu. £>ó ætlum vér að þetta sé hægt að sanna. Einstök kynja-ár eyðileggja vart nokkra þjóð, og það hafa ekki verið hinir verstu vetur, sem fóru lengst með fjör og krapt vorrar þjóðar, heldur hinir mörgu veturnir, sem forfeður vorir máttu og áttu að búast við að kæmu ár eptir ár. þ>egar á hinni svo nefndu gullöld landsins er talað um harða vetur og hallæri. Án efa hefir landið þá verið ólíkt betra til útigangs en það nú er orðið, því af örnefnum, sögum og eðli landsins má sanna, að frá- sögn Ara fróða um að landið, þegar það fyrst byggðist, hafi verið viði vaxið milli fjalls og fjöru, sé að miklu leyti bók- stafiega sönu. Nú þótt hagur alþýðu liafi aldrei staðið með eins miklum blóma eins og sumir þykjast sjá af vorum gullaldarlegu sögum, heldur að landsmenn hafi jafnan í frá fyrstu tíð átt í vök að verjast með atvinnu og afkomu, þá má ætla, og svo mikið af sögunum sanna, að mannfellis- harðindi hafa lítið eða ekki komið við landið meðan þess sjálfs- stjórn stóð eða jafnvel öld lengur, það er fram yfir miðja 14. öld. En hafi felliveturnir, sem vér ætlum, verið fáir að til- tölu allt það tímabil, mun það alls ekki hafa verið að þakka eins búskaparlagi fornmanna, eins og því, að landið var þá miklu betra til boitar, einkum að vetrinum, og það bæði fyr- ir naut og sauði. Útigangur á flestum peningi nema lömbum og kúm allt árið um kring má fullyrða að verið hafi föst tíðska í mörgum, ef eklci flestuin héruðum landsins. Að vísu voru þá tún, einkum höfuðbólanna, margfallt stærri þá en nú, svo að kúafjöldi á stórbúum mun hafa verið að minnsta kosti ferfaldur við það, sem nú tíðkast; Guðmundur ríki hafði, eins og kunnugt er, 120 kúa á Möðruvöllum í Eyjafirði. Á Sturl- ungaöld mun bú Ögmundar Helgasonar hafa talið jafnmargar kýr. þorgils Skarði setti saman bú að Staðarstað með 40 kúa. Snorri Sturluson missti hundrað (120) nauta í einu, er gengu úti á Svignaskarði. Fornmenn munu eflaust víða hafa haft miklu fleiri naut en sauði að tiltölu, eins og sjáifsagt hefir verið rétt ráðlag. Vér munum ekki eptir nema fáum stöðum í fornsögum. þar sem talað er um að einn maður hafi átt svo mörgum hundruðum skipti af sauðum (geldingum) eða isauð, og það mun fyrst hafa verið eptir plágurnar eða jafnvel eptir siða- bótina, að sauðfénaðurinn tók svo mjög að fjölga á móts við kýr, og þá líka í hrönnum að falla, nálega á hverjum vetri. Af máldögum má sjá, að fram eptir öllum öldum héldust við hin miklu nautabú á stórgörðunum, enda þótt hvergi í sögunni finnist þau stærri en á 15. og 16. öldinni (eptir síðari pláguna) Guðmundur ríki á Reykhólum hafði 150 kúa (?) og ein út-

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.