Þjóðólfur - 30.06.1880, Qupperneq 4
72
ans þar, jporsteins sál. Hjálmarssonar, byrjaði hann þá bú-
skap við mjög lítil efni á Augastöðum í Hálsahreppi, þar bjó
hann í 7 ár, og batnaði þar nokkuð efnahagur hans, þaðan
ilutti hann búferlum að Sámsstöðum í Hvítársíðu, og bjó þar
síðan til dauðadags. Hann bjó búi sínu jafnlengi og hann
var í hjónabandi nefnil. 58 ár, og átti hann 16 börn, hvar
af að eins lifa nú 5. Fósturbörn 4 ól hann upp að miklu og
öllu leyti, og gekk þeim í föðurstað. Guðmundur sál. var
ástríkur maki, góður faðir, reglusamur og umgengnisgóðnr
húsfaðir, og vandi fólk sitt á siðsemi, reglusemi og góða lát-
prýði. Hann var iðjumaður og verkmaður mikiil og hið mesta
hraustmenni, að hverju sem hann starfaði; hann hlóð garð í
kiingum allt tún sitt, slettaði mikið, hreinsaði og talsverðar
skriður af túninu sínu, og húsaði vel upp bæ sinn, sem var
mjög níddur, er hann kom að Sámstöðum. Hann var sátta-
semjari 25 ár. Hann var greindarmaður mikill og hygginn,
skemtilegur og viðræðugóður við alla, gestrisinn og fús til
hjálpar við þurfandi. Guðmundur sál. var félagsmaður hinn
bezti, stoð og styrkur sveitar sinnar, ráðhollur þeim, er leit-
uðu ráða hans. Hann mátti kallast bjargvættur mjög margra |
og enginn mun hafa farið synjandi frá heimili þeirra höfðings- |
hjóna, sem leituðu hjálpar þeirra; hann var búmaður góður og
var því orðinn' upp úr fátækt einn með efnaðri bændum. Hann
var því hinn mesti sóma- og dugnaðarmaður í sveit sinni og
þó víðar væri leitað, og óskandi væri að margir væru hans
líkar að dugnaði, hjálpfýsi og ráðdeild, guðrækni og trúrækni,
því þessa kosti hafði Guðmundur sálugi sannarlera til að bera.
Seinustu 6 ár æfi hans var hann orðinn rnjög farinn að heilsu
og 2 þau seinustu mátti kallast, að hanu varla færi úr rúm-
inu, til þess Guð hvíldi hans örmagna líkama þann dag, sem
áður er getið. ___
— Jafnvel þótt eg viti að enginn af velgjörðamönnum
mínum hafi í hrósunarskyni látið mér í té gjafir sínar, i
mínum þröngu högum, þegar Guði fyrst þóknaðist að svipta
mig mínum ástkæra ektamaka, og svo þar á eptir að leggja
báðar dætur mínar á sóttarsængina og síðan í gröfina, þá
finn eg mér skyldugt að láta minningu þeirra staka veglynd-
is verða heyrum kunnugt.
f eir, sem sæmdu mig gjöfum, voru þessir: J>orsteinn
Jónsson á Berustöðum 12 kr. 50 a., Gunnar Bjarnason á
Sandhólaferju 10 kr., Helgi Jónsson á Árbæ 8 kr., Filippus
Jónsson á Hellnatúni 7 kr., þ>órunn jpórðardóttir s. st. 2 kr.,
Jón Jónsson á Ási 6 kr. 50 kr., Jón Jónsson á Ilafntóptum
3 kr., Guðmundur Ólaf3son á Seli 3 kr., Jón Jpórðarson á
Berustöðum 5 kr., Bjarni Jónsson á Efrirauðalæk 3 kr., Árni
Helgason á Brekkum 3 kr., Sigurður Runólfsson s. st. 1 kr.,
Magnús .Jónsson á Snjallsteinskofa 2 kr., Jón Eiríksson á
Bjóluhjáleigu 1 kr., Runólfur Runólfsson á Áshól 1 kr., sira
Jón Brynjólfsson á Kálfholti þrjár húskveðjur.
Öllum þessum og fleirum, sem af kristilegum kærleika
veittu mér hjálparhöndur, votta eg hér með mitt alúðarfyllsta
þakklæti og bið hinn alleina ríka að launa þeim öllum góð-
um launum af nægtum síns föðurkærleika.
Moldartungu 22. júní 1880. Salvör J>orsteinsdóttir.
— Hér með vil eg opinberlega endurgjalda með þeim eina
eyri, sem eg hef fyrir hendi, en það er með þakklæti, og votta
eg það þeim heiðurshjónum hra Ingjaldi Sigurðssyni og konu
hans md. Guðrúnu Amadúttur á Lambastöðum, fyrir það að
þau önnuðust mig endurgjaldslaust eða af tómum mannkær-
leika mikinn hluta umliðins vetrar og til þessarar tíðar með-
an eg lá sárþjáður af bólguveiki, sem mér nú fyrir Guðs
hjálp og þeirra er bötnuð. St. í Rvík 20. júní 1880.
Hallgrímur Einarsson frá Síðumúla.
(tígfT Af því eg á nokkur kvæði, og er að safna þeim, fyrir
þá, sem hlut eiga að máli, eptir bónda Davíð aál. Jónsson frá
Brattlandi í Skaptafellssýslu; þá mælist eg til, að þeir, sem
hafa kvæði undir höndum eða rit eptir þennan mann, sem af
sumum var kallaður mála-Davíð, vildu senda mér þau eða
afskript af þeim; helzt vildi eg fá handrit skáldsins sjálfs.
Fyrir handritið vil eg undir gangast að borga sanngjarna
þóknun. Hjörleifshöfða 20. júní 1880.
Markús Loptsson.
Auglýsinga r.
— Ondirskrifuð einustu erlingjar Snorra heitinns dýralæknis
sonar okkar, sem sálaðist hér í október f. á. skorum hér með
á alla þá sem telja til skuldar hjá dánarbúi hans innan 12
mánaða frá síðasta birtingardegi þessarar innkölíunar, að gefa
sig fram og sanna kröfur sínar fyrir okkur, sem án milligöngu
skiptaréttsins ætlum að taka að okkur bú hans.
Papey í Suðurmúlasýslu 7. júní 1880.
Jón Porvarðarson, Rósa Snorradóttir.
Áheit til Garðakirkju á Álptanesi:
Frá ónefndum...................4 kr.
Frá ónefndri í Reykjavík . . 1 kr.
Frá ónefndum í Reykjavík . . 1 kr.
— Skömmu fyrir hvítasunnu í vor fanst á Vogastapa lítil
svipa laglega búin, og að nokkru leyti einkennileg.
Enn fremur fanst á sama svæði þann 24. maí næstliðinn,
selskinnstaska með tré botnum, áskornu fangamerki og ártali;
í henni voru mjóir hálfsokkar og nýir skór. Hver sem getur
helgað sér þessa muni með réttri lýsingu á þeim, getur vitjað
þeirra til undirskrifaðs móti því að greiða hæfileg fundarlaun
og borga þessa fyrir auglýsingu.
Keflavík 12. júní 1880. P. J. Petersen.
— Beizli með járnstöngum og kaðaltaumum, og höfuð-
leðri af sútaskinni, hvarf úr farangri mínum, við verzlunar-
húsinu á Eyrarbakka 2. þ. m. Bréfaveski með ýmsum
blöðum o. fl. týndi eg enn fremur 15. maí rnilli Hæls og
og Minna-Hofs í Gnúpverjahrepp. þ>á er fiuna kynnu muni
þessa, bið eg að halda þeim til skila til mín að Minna-Hofi í
Gnúpverjahreppi. Guðmundur Jónsson.
— Einhversstaðar á götum bæjarins týndist, fimt.udaginn
25. júnímánaðar, kapsel úr gulli með grænu gleri eða steini
á annari hliðinni; finnandinn er beðinn að halda því til skila
mót fundarlaunum á skrifstofu Jpjóðólfs.
— Týnst hefir kveykhaldari úr steinolíumaskínu, hér á
strætunum og er sá sem finnur beðinn að skila því til frú
M. Lárusdóttur í Rvík.
— Aðfaranótt hins 16. júní næstl. hvarf úr Hafnaríirði frá
húsi Ólafs J>orvaldssonar rauðskjóttur hestur, óaffextur, al-
járnaður 8 vetra gamall, mark hamarskorið hægra og, — að
mig minnir — sneytt aptan vinstra. J>eir sem kynnu að hitta
hest þennan eru beðnir mót sanngjörnum ómakslaunum að
skila honum til herra Ólafs Guðlögssonar á Hlíðarhúsum við
Reykjavík. p. t. Rvk. 23. júní 1880 G. Guðmundsson.
— Týnzt hefir spanskreyrssvipa hér á strætum bæjarins.
Enn fremur beizli með járnstöngum og kaðaltaumum; sá sem
finnur er beðinn að skila þessu á skrifstofu pjóðólfs.
Dönsk lestrarbók, eptir Steingrím Thorsteinsson
skólakennara, fæst til kaups á ísafirði hjá porvaldi lækni
Jónssyni, á Akureyri hjá Eggert faktor Laxdal og Frb.
bókbindara Steinssyni, á Eskifirði hjá Jóni ritstjóra Ólafs-
syiii og í Reykjavík hjá prentara E. pórðarsyni, og undir-
skrifuðum forleggjara bókarinnar. Upplagið (2000) verður að
líkindum uppselt í haust. Og Víg Snorra Sturlusonar eptir
Matth. Jochumsson. Reykjavík 29. júní 1880.
Kr. Ó Porgrímson.
— Reikningsbók, eptir E. Briem báðir partar, sem er í
miklu afhaldi, fæst nú keypt í flestum kaupstöðum hér á
landi, og hjá útgefuiulunum.
Afgreiðslustofa pjóðólfs: í Gunnlaugsens húsi. — Útgefandi og ábyrgðarmaður: Matthías Jochumsson.
Prentaður í prentsmiðju Einars pórðarsonar.