Þjóðólfur - 02.11.1882, Síða 1

Þjóðólfur - 02.11.1882, Síða 1
PJÓÐÓLFUR 34. ár. Kostar 3 krónur (erlendis 4 krónur), á að borgast fyrir lok ágústmánaðar. Reykjayík 2. nóv. 1882. Uppsögn á blaðinu gildir ekki, nema VvIqÁ hún sé gjörð fyrir i. okt. árinu fyrir. UlciO. keisarinn hlær1. Við Plevna var búið hið blóðuga starf og bleikur var margur er dagstjarnan hvarf, og valurinn blóði sig þegjandi þvær, en þó fagna Rússar — því keisarinn hlær. En þjófar og níðingar flykkjast um fold og felast í húminu’ er leggst yfir mold; þeir myrða og stela og stefna um val og stinga’ á sig gripum af nýmyrtum hal. Bn keisarinn hlær, því að fána sinn fann hann fegurri’ af sigrinum’— merkinu’ hann ann, og frægðsólar skínanda skininu slær á skjöld hans hinn göfuga — keisarinn hlær. En hendur og fætur og hausar lá þar og heiptglottið þrotið um varirnar bar, og máninn fram lítur svo skjálfandi skær á skelfingarundrin —■ en keisarinn hlær. Og hauslausir búkpartar byltust í mold og banahljóð deyjanda stigu’ upp af fold, en hræfuglasveimurinn hvínandi slær 1 helsærða nefjum — en keisarinn hlær. Bitt stríð fæðir annað, já öld eptir öld og aldregi linnir það hörmunga kvöid, á þjóðanna kinnum æ gráturinn grær og gremjan og eymdin — en keisarinn hlær. Og menn kveðja fljóð sín og feður sín börn og fæða á sjálfum sór styrjarins örn, og lönd standa’ í eyði og borgir og bær er borgað það allt — ef svo keisarinn hlær ? Nei, verði fyrst þjóðanna skilningur skýr og skynji hvað keisara hlátur er dýr, fyrst þá rís sá boði, að blikna mun sól og buðlungar skolast úr sögunnar stól. því básúna fólksins þá bendir í styr og björgin við skjálfa og sær stendur kyr, sem þruma hún drynur um haf og um heim: vei hervöldum, keisurum, vei öllum þeim. -----Og svo verður friður um foldarból svinn og fljóðin og börn þerra tár sín af kinn ; þá blómgun fyrst mannúð og frelsi vort fær, er fólkið á keisaragröfunum hlær. Gestur Pálsson. Útlendar frjettir. Helztu tfðindin frá útlöndum eru leikslok Englendinga og Egipta. Arabi hafði aðalstöð sfna þar sem Tel-el-Kebir heitir, miðja vegu milli Ismailia og ’iþað er sagt, að Alexander II. Rússakeisari hafi °rðið svo glaður við, er hann frétti, að Plevna v®ri unnin i síðustu styrjöld Rússa við Tyrlci, að hann hafi hlegið, en Alexander keisari var manna Þunglyndastur og stökk aldrei bros. Kairó, og þar var meginher hans sam- ankominn, um 30 þúsundir manna. Arabi hafði búizt vel um og lét mikið yfir liði sínu og varnargörðunum við Tel- el-Kebir, enda höfðu Englendingar lið hálfu minna til sóknar; smáorustur nokkrar átti hann við Englendinga og fór jafnan halloka fyrir, en til höf- uðborgarinnar Kairó gjörði hann boð um hvern sigurinn á fætur öðrum og kvað þess eigi langt að bíða, að hann kæmi sjálfur til Kairó og hefðý með sér höfuð þeirra Wolseley hershöfð- ingja, Seymours aðmíráls og hertogans af Connaught. En hertoginn er sonur Viktoríu drottningar og stýrði stórflokk einum í liði Breta. En hér varð allur annar endir á, en Arabi hafði búizt við. fegar Wolseley þóttist svo búinn, sem þurfa muudi, hélt hann með lið sitt á næturþeli allt að virkjum Egipta og hóf atlöguna, þegar er lýsa tók af degi hinn 13. septembermán. Egiptum varð felmt við, er þeir urðu einskis varir fyr en Englendingar voru komnir að þeim með brugðnum sverðum, varð því minna um viðtöku af þeirra hendi, en ella mundi. Stóð orustan skamma hrfð áð- ur flótti brast f liði Egipta og féllu þeir hrönnum saman í virki sfnu því hi'nu rammgjöría, er svo mikið var af látið. þeir Egiptar, er undan komust, leituðu á flótta til Kairó. Héldu Englending- ar þangað viðstöðulaust og gekk borg- in þegar á vald þeim, svo að ekki varð af mannvígum. þ>angað hélt og Arabi og varð lítið um sæmdarviðtökur, er hann kom sem flóttamaður og borgin var á valdi Englendinga. Sá hann sinn kost einan þann, að ganga Eng- lendingum á vald, og fengu þeir hon- um og foringjum hans hinum helztu fangelsi sæmilegt. Öðrum herforingj- um Egipta féllst hugur, er þeir fréttu hrakfarir Arabi og gáfust upp hver af öðrum, og um 20. septemb. mátti heita að ófriðnum væri lokið. Hinn 25. september hélt Tewfik jarl innreið sína f Kairó. Riðu þeir Wolseley hershöfðingi og hertoginn af Connaught sinn til hvorrar handar hon- um og á eptir fylgdi her Englendinga. Stóðu borgarbúar hljóðir og horfðu á hina glæsilegu för, en lítið varð um fagnaðarkveðjur við jarlinn, sem með styrk Englendinga hafði unnið blóðug- an sigur yfir þegnum sínum og nú reið með miklum veg inn í höfuðborg sína f skjóli enska liðsins. Almennt telja menn Egipta uppreistarmenn, fyrir þvf, að þeir börðust gegn jarli sfnum, enn ef vel er að gætt, er þó nafn það ó- heppilega valið. Egiptum þótti, og það með réttu, útlendingar, einkum Eng- lendingar og Frakkar hafa meiri ráð hjá jarli, en góðu hófi gegndi, og það svo, að stjórn Egiptalands mætti vart kalla innlenda. Gegn þessum útlend- ingum, er öllu vildu ráða á Egiptalandi, var það að Egiptar börðust, en jarlinn gekk f lið með Englendingum og barð- ist mót þegnum sfnum. þ>að er satt, að Egiptar eru lítt menntaðir, og þeim mætti mikil gæfa verða að þvi, að kynnast og standa f nánu sambandi við aðra eins þjóð og Englendingar eru, og nema af þeim mannúð og menntun. En á hitt verður og að líta, að engin furða er, þó Egiptum þyki mannúðin og menntunin nokkuð beisk á bragðið, þegar þeir, sem slíkar nýjungar boða í landi þeirra, skjóta víghnöttum á hina blómlegustu borg þeirra, Alexandríu og hlaða valköstum um landið. Arabi og félagar hans bfða nú dóms síns. Mælt er, að Englendingar vilji þyrma honum og fengið hafa þeir honum enskann lögvitring einn, til að verja mál hans. Aptur telja menn víst, að Tewfik jarl vilji hann og helztu her- foringja hans feiga. Ekki vita menn með vissu hverja tilhögun Englendingar ætla að hafa á stjórnarskipun Egiptalands framvegis. Rússar og Frakkar vilja hafa hönd í bagga með Englendingum, en þeir segjast einir hafa unnið sigurinn og undir sér einum sé því málalok Egipta komin, en láta þó f veðri vaka, að lítt skuli haggað því, er áður var. Á Rússlandi er allt kyrt sem stend- ur, en fáir eru þeir, sem nokkura vonhafa um, að slikt muni lengi svo búið standa. Herfjötur sá, er zarinn af föðurlegri mildi sinni hefir lagt sína ástkæru þjóð f, mun vart reynast traustari en brunn- inn þráður, þegar á herðir. Allir þeir, sem kunnugastir eru ástandinu á Rúss- landi, telja það engum efa bundið, að hver dagur flytji stórþjóð þessa nær og nær voðabyltingunni. Keisari og drottning hans ferðuðust f/rir skömmu til Moskva til gripasýningar, er þar hefur staðið um hríð. En svo voru menn hræddir um líf keisarahjónanna, að öll ferð var hept á járnbrautinni frá Pétursborg til Moskva, frá því þau lögðu á stað frá Pétursborg til þess þau komu til Moskva. í Moskva var þeim vel fagnað, en þar búa flest göf-

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.