Þjóðólfur - 12.08.1884, Blaðsíða 4
124
Sálu því síðar mun senda upprisu dagur;
Biðjum, birtist hann «af náð»
Bjartur, heiður og ljómandi fagur —
Að það hljóti heyrn og mál
Heilskygn augu, vit og sál,
Ósk þá hugur sendir heim,
Húrra! skál fyrir unganum þeim.
porsteinn Erlingsson.
Svar til ritstjóra „Suðra“.
þegar ég las greinarspotta þessa manns í
10. tölublaði 2. árgangs «Suðra», varð eg
fyrst sannfærðr um, í hve léttu rúmi hann
lætr sér liggja að bera fram fyrir lesendr
sína óhróðr um menn og helber ósannindi,
ég hirði ekki um að tilgreina öll þau ósann-
indi og ranghermi, sem mannskaðagreinin í2.
tölublaði »Suðra« hefir inni að halda, en ein-
ungis geta þess, að þau mun mega finna 20
sinnum í nefndri grein, því bæði er það nú
orðið alkunnugt mál, og að öðru léyti þarf
ekki annað en bera saman Isafoldar og
þjóðólfsfréttirnar um sama efni. Orsökin
til þess, að þetta svar er ekki fyrir löngu út
komið, er sú, að kunningi og skólabróðir rit-
stjórans hefir dvalið hér á Akranesi í vetr,
annars vil ég ekki eiga í blaðadeilum við
nokkurn vandaðan mann, og naumast við
ritstjóra »Suðra», um þetta efni.
Vottorð áreiðanlegs manns máli mínu til
sönnunar, fylgir hér með hvað viðvíkr heima-
veru ritstjórans á þeim tímum er hann aug-
lýsir í blaði sínu. Litla-Teig 3. júní 1884.
Ólafr Bjarnason.
Að ég undirskrifaðr hefi komið heim í
hús það, er ritstjóri Suðra auglýsir að hann
búi í, 3 sinnum, nefnil. 6., 7. og 11. febr.
næstliðinn, án þess, að geta fundið harn
heima á tímabilinu kl. 3—4 e. m., er ég
reiðubúinn að sanna.
Sjóbúð á Akranesi 3. júní 1864.
Árni Magnússon,
í 13. No. „J>jóðólfs“ þotta ár hefir einn
greindr og fyndinn meðlimr Stokkseyrarhrepps
fundið köllun hjá sér til að frœða landa sína
um aðgjörðir hreppsnefndarinnar í téðum
hreppi í greinarkorni nokkru, sem hann kall-
ar : „Kosningarsaga úr Stokkseyrarhreppi’*.
það er útlit fyrir, að greindarhöfundr |)essi
hafi sjálfr viljað komast inn í nefndina, en
hrugðizt vonin, og því fundið það snjallasta
ráðið, til að svala gremju sinni, að gjöra að-
gjörðir nofndarinnar som ískyggilegastar í aug-
um almennings, og það ekki einungis gjörðir
nefndarinnar, hcldr hreppsbúa yfir höfuð. Sök-
um þess að grein þossi er svo troðfull af rang-
færslum, getsökum og ósanninduiú, finn ég
mig knúðan til, að biðja yðr herra Ritstjóri
að tilkynna mér nafn höfundarins, jafnframt
og þér taldð línur þessar í yðar heiðraða blað,
svo mér gefist tækifæri til, að hreinsa mig og
hreppsbúa mína frá þessum óhróðri.
Stóru H&eyri 24. april 1884.
G. lsleifsson (hreppstjóri).
Reykjavík 12. ágúst.
— Með skipi, sem kom frá Englandi í fyrri
nótt, fréttist, að lcólera væri komin til Liver-
pool (þó sagt að hún hafi þar engri útbreiðslu
náð pnn).
— í ísafoldarprentsm. er nú verið meðal ann-
ars að prenta:
Ljóðmœli séra Mattíasar Joehumssonar (á
kostnað Kr. 0. þorgrímssonar).
„Iöunni“ (tímaritið) 2. og 3. hefti.
pýzka lestrarbólc með orðasafni eftir Stgr.
Thorsteinsson.
— í prentsm. Sigm. Guðmundssonar er vorið
að prenta:
Hugvékjur frá vetrnóttum til langaföstu eftir
séra Jónas Guðmundsson á kostnað Kr. Ó. þor-
grímssonar.
Dönsk lestrarbók Stgr. Thorsteinssonar, 2. útg.
mun vera um það leyti fullprentuð í sömu
prentsm. á sama forlag.
— Eptir því, sem vér höfum frétt, ltvað hr.
Einnr Jónsson, málfræðingr í Khöfn, sem göð-
kunnr er lesendum „Skuldar11 og „þjöðólfs“ hafa
í hyggju að dispútéra fyrir doktors-nafnböt við
háskólann; kvað ritgjörð hans liafa fengið inn
bezta dóm hjá háskólanum, og vera nú í prent-
un. Sagt er að háskólinn eigi von á bannfœr-
ingu hjá Gesti og Magnúsi, ef hann dirfist að
veita Finni vísindanafnböt.
GrUfu -seglskij). í Ameríku hafa ný-
lega verið gerðar tilraunir með seglskip, sem
útbúin eru með skrúfu og gufuvél þannig
að þau eiga að geta neytt gufukraptarins í
logni eða þegar á liggr að bjarga sér. þau
eru kölluð «Auxiliary steam vessels« og er til-
gaugrinn með þessi skip að fylla út eyðu þá,
sem orðin er á milli inna miklu gufudreka
úthafsin's og inna algengu seglskipa. Að
vísu hafa tilraunir þessar ekki enn þá tekizt
fil fuls, en svo mikið þykir fullsannað, að
slík skip megi útbúa án afar mikils kostn-
aðar og þó með nægum gufukrapti til að ná
inu fyrgreinda augnamiði. 1 Bath (Maine)
hafa verið smíðuð tvö gufu-barkskip til lang-
ferða, og af þeim hafa menn séð ófullkom-
leika þá sem enn verðr við að gera, þriðja
gufu-seglskipið hefir verið gert til skemri
ferða til Vestindía, og kvað hafa gefizt all vel.
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.) hvert orí 15 slafa frekast
m, ö3ru lelri eða selning 1 kr. [jrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út i hönd,
Eftir skýrslu hlutaðeigandi sýslumanns
hefr ýmislegt brak og tunnur, sumar með
matvcelum, sumar tómar, frá skipi sem siikk
við Vestmanneyjar aðfaranóttina hins 6. apríl
p. á. borið á land þar á eyjunum cða verið
bjargað á floti. Á vogrelcum þessum voru
ekki önnr serstakleg einkenni, en að orðið
»Bordea,ux« stóð á tveimur rauðvínstunnum
og orðið «Dunkerque» á nokkrum brauðtunn-
unum; en eftir því sem fram er lcomið ipróf-
um er haldin hafa verið til upplýsingar um •
áðrnefnda skiptapa, virðist vafalaust, að ið
sokkna skip hafi verið frakkneskt fiskiskip,
og nokkur líkindi til, að það hafi borið mark-
ið D 84.
Eigendr þessara vogreka innkallast hér með
með árs og dags fresti samkvcemt lögum um
skipströnd 14. jan. 1876, 22. gr. til þess að
sanna fyrir amtmanninum í suðramtinu eign-
arrétt sinn til vogrekanna, og taka við and-
virði þeirra að kosfnaði frá dregnum.
Islands suðramt, Beykjavík 26. júlí 1884.
Magnús Stephensen,
settr.
Proclama.
Samkvœmt opnu bréfi 4. janúar 1861 og
lög. 12. apríl 1878 er her með skorað á alla
þá, sem telja til skulda eftir faktor L. sál.
Larsen, er druknaði 26. þ. m., að gefa
sig fram og sanna skuldir sínar fyrir skifta-
ráðanda hér, innan árs og dags frá síðustu
birtingu þessarar auglýsingar.
Bœjarfógetinn í Beykjavík, inn 81. júlí 1884.
2-jzr.] E. Th. Jónasscn.
Proclama.
Samkvœmt opnu bréfi 4. janúar 1861 og
lögum 12. apríl 1878 er hér með skorað á
alla þá, er til skulda eiga að telja eftir
skólakennara Sigurð sál. Sigurðarson, sem
drukknaði 26. þ. m., að gefa sig fram og
sanna skuldir sínar fyrir skiftaráðanda hér
innan árs og dags frá síðustu birtingu þess-
arar auglýsingar.
Bœjarfógetinn í Beykjavík, 31. júlí 1884.
273r.] E. Th. Jónasscn.
Her með cr iillum, að undanteknum lóðs-
ínum, bannað að fara vt í skip, er hingað
koma frá útlöndum, áðr en lögreglustjórinn
hefir fengið vissu fyrir, að engin sóttncem
veiki sé á skípinu.
Hver sem brýtur þetta bann, verðr sektaðr.
Bœjarfógetinn í Beykjavik hinn 9. ágúst 1884.
285r.] E. Th. Jónasscn.
júní síðastliðinn týndist á veginum frá
Kotferju fram að Óseyrarnesbrú gul
olíukápa skósíð lítið brúkuð með þremur vös-
um. Einnandi er beðinn að skila henni tíl
undirskrifaðs gegn fundarlaunum.
Flóagafli 4. ágúst 1884.
282*J Guðmundr Magnússon.
Með gufuskipieu Romny 30. júlí hef ég feng-
ið byrgðir af nýrri kramvöru af ýmsum
tegundum, frá Englandi, og sel eg vörurnar
með svo vægu verði, sem unt er. Komið sem
fyrst og kaupið, tíminn sem ág ^el hér, er þeg-
ar á enda, þar eð óg flyt héðan burtu.
(lleymið eltki hinu ágæta Overheadsmjöli, sem
hvergi fæst betra cn hjft mér, pd. kostar 11 aura.
Reykjavik 5. ágúst. 1884.
283*) Finnr Finnsson.
ýsilfurbúin svipa fannst fyrir nokkru á al-
faraveginum nálægt Bústöðum; réttr eig-
andi má vitja hennar til mín.
•Tóh. Böðvarsson, trésmiðr
281*] á Vciðilæk i þverárhlíð.
Eigandi og ábyrgðarm.: Jón Olafsson alþm.
Skrifstofa: á Bakarastíg við hornið á Ingólfsstræti.
Prentaðr i prentsmiðju ísafoldar.