Þjóðólfur - 25.08.1885, Page 3
127
mitt með þeirri tillögu, að Hólaskóli og
Eyðaskóli fái hvor 2000 kr. á ári, því
að úr því að þessir skólar eru komnir
á fót, þá ætti að styðja þá svo sem
föng eru á, og vonast jeg eptir að því
fje sje vel varið, sem til þessara skóla
gengur.
Það hefði verið heppilegast, að bún-
aðarskólinn í Ólafsdal liefði verið tekinn
upp í fjárlögin með fastri uppliæð eins
og hinir búnaðarskólarnir.
Frifír. Stefánss: Eins og hinni hátt-
virtu deild er kunnugt 'kom bænarskrá
fra skólastjórninni um 15000 kr. til
skólahúsbyggingar, en þessa fjárbeiðni
hefur hin heiðraða fjárlaganefnd ekki
tekið til greina, þótt báðir þingmenn
Húnvetninga væru í nefndinni, svo að
við þingmenn Skagfirðinga vórum neydd-
ir til, að koma með þessa breyttill. um
3000 kr. styrk til skólans. ’Viðvíkjandi
skólanum er það að segja, að stjórn
skólans er í bezta lagi. Skólastjóri er
mesti dugnaðarmaður og vel menntaður,
sem bezt sjest á því, að nú eru búfræð-
ingar farnir að koma frá skólanum og
þykja mikið duglegir og vel að sjer.
Lærisveinarnir vóru síðastliðið skólaár
10 á skólanum og í vor varð að synja
8 um inntöku í skólann vegna liús-
rúmsleysis, svo að allir geta sjeð, að
aðsókn er talsverð að skólanum. Er
því sjálfsagt að styrkja þetta fyrirtæki,
og hvort sem jeg lít beinlínis á þörf
og hag skólans sjálfs eða þá til liins,
að Húnavatns- og Skagafjarðarsýslur eru
næstum */, af landsmönnum að fólks-
fjölda, svo að allir geta sjeð, hve mikla
sanngirniskröfu þeir hafa til styrksins,
þá álít jeg, að þetta sje hið minnsta
sem við getum farið fram á í þessu efni.
Arnl. Ól. Jeg er á því að Hólaskóli
eigi að fá hærri styrk en Eyðaskóli.
Hólaskóli hefur haft fleiri lærisveina
en hinn. Jeg veit að vísu ekki ná-
kvæmlega um Eyðaskólann, en liitt veit
jeg, að færri sækja þann skóla.
Sönglistin á alþingi.
Jeg hefi nýlega sjeð nefndarálitið
í málinu um frv. til fjárlaga fyrir 1886
og 1887, og sjeð þar eina alleinkenni-
iega ályktun á bls. 11 frá fjárlaga-
nefndinni, þar sem talað er um harmoní-
um til prestaskólans. ístjórnar frum-
varpinu er ætlazt til, að veittar sjeu
350 krónur til að kaupa fyrir harmoní-
um til prestaskólans. Nefndin strykar
það fit, og segist ekki sjá ástæðu til
slíkra útgjalda. Nefndin segir enn-
fremur: „Það sem prestaskólamönn-
um er ætlað að nerna á prestaskólanum
viðvíkjandi sönglist, er einungis að
tóna reglulega og skipulega, en eigi
að verða neinir söngmenn“. Þetta
er mjög undarleg ályktun, enda lýsir
hún mjög ókunnugleik nefndarinnar
á ástandi landsins, að þvi er söngút-
breiðslu snertir. Jeg efast ekki um
það, að nefndinni sje kunnugt, að lik
þeirra manna, sem kallað er að hafi
dáið kristilegum dauða, skuli ekki jarða
j án söngs, en jeg hlýt að halda það,
j að henni sje ekki kunnugt um, að
víða, og það enn i dag, mundi vera
jörðuð lík án söngs, ef presturinn
gæti ekki byrjað lagið, og jeg veit
þess mörg dæmi, að prestar hafa veríð
neyddir til að byrja lögin, þó þeir í
engan máta hafi fundið sig færa til
þess, en gert það einungis til þess að
bregða ekki út frá gömlum og góðum
sið, sem að visu er máske ekki lög-
' .
boðinn, en sem mun vera fylgt eins
fast, og þótt hann væri það. Þá er
ekki sjaldan að söngmenn vantar, þar
sem skíra á börn, og þarf víst ekki
að fara lengra en í Heykj avík, til þess
að finna nóg dæmi því til sönnunar,
því dómkyrkjupresturinn mun opt
verða að byrja sönginn sjálfur við þau
tækifæri. Að prestaskólamenn skuli
vera einbundnir við að læra að tóna á
prestaskólanum í 2 vetur, þykir mjer
óskiljanlegt, eða með öðrum orðum, að
að þessir menn, mjer liggur við að
segja: megi ekki læra annað viðvíkj-
andi söng, en að tóna, þó tíminn leyfi
það. Jeg veit ekki til að tón hjer
! á landi sje svo margbrotið, að nemend-
j ur geti farið svo hægt að því að læra
það, eins og hin heiðraða fjárlaga-
nefnd ætlast til, enda hefur hinn nú-
verandi kennari ekki getað varið öll-
um þeim tíma til þess að kenna tón,
það er mjer kunnugt, því hann varði
siðari hluta vetrarins i vetur til þess
að kenna prestaefnum sálmasöng, og
j af þvi prestaskólinn hefur enn ekki
átt neina hljóðfærismynd, sem kennar-
gæti notað við kennsluna, þvi varð
hann að fara með allan hópinn burt
úr prestaskólanum og í annað fjarliggj-
andi hús, þar sem hann gat fengið
hljóðfæri lánað. Ætli fjárlaganefnd-
inni þætti það eiga vel við, að t. d.
kennarinn í reilmingi við latínuskól-
ann væri látinn fara með meirihut af
skólapiltum t. d. upp að Landakoti
eða Skólavörðu til að kenna þeim þar
reikning, af þeirri ástæðu, að latínu-
skólinn ætti ekki neina töfiu til að skrifa
reikningsdæmi á? Jeg held að þ j
ekki væri kennt nema að tóna á
þessum skóla, þá gæti hann ekki verið
án hljóðfæris, og jeg veit þess eigi
dæmi nema hjer, að það sje kennt
hljóðfærislaust á skólum, þar sem mörg-
um á að kenna. Það lítur svo út á
einuin stað i sömu grein, sem nefnd-
in ætli, að sálmasöng beri að kenna
i latínuskólanum, en það hygg jeg
ekki ráðlegt, jeg held það yrði til
þess, að söngur i skólanum legðist al-
veg niður, þegar hann er ekki skyldu-
grein, því sálmasöngur er mjög þrejd-
andi, þegar á að fara að syngja hann
heilar klukkustundir í senn, ’ og hann
verður ekki notaður til þess. Þar sem
nefndin í sömu grein tilfærir þá ástæðu,
til stuðnings þvi að harmonium sje
óþarft á prestaskólanum, að organleik-
arinn við dómkyrkjuna liafi 1000 kr.
á ári beint með því skilyrði, að kenna
þeim að leika á harmoníum, sem óska
þess, þá sje jeg ekki, að það geti komið
neitt i bága við það, að prestaskólinn
fái harmoníum til að leiða með tón og
sálmasöng, þó organleikarinn fái 1000
j kr. fyrir að kenna harmoníumspil, því
það er tvent ólikt. Auk þess held
jeg að það sje nokkuð á annan veg,
sem hjer ræðir um, en nefndin segir;
jeg held að styrkur þessi sje upphaf-
lega veittur þannig, að aðeins 700 kr.
gangi til þess, sem nefndin getur um
að 1000 kr. sje varið til, en 300 kr.
sjeu fyrir að leika i dómkyrkjunnr
í sambandi við pettaviljeg minnast lítið eitt
á nndirtektir þingsins við þennan 500 kr. styrk,
sem jeg bað um, til að mega kenna söng, og
sem tjell með litlum atkvæða muníneðri deild
bæði árið 1883 og i gær. Jeg get ekki annað en
lýst gleði minni yfir þvi, að jeg heyrði ekki
neinn verulega mótmæla því, að mjer yrði veitt-
j ur þessi styrkur, enda þó svona færi, og að nokkr-
ir háttvirtir þingmenn mæltu fast fram með því.
j En jeg get þó ekki sneitt hjá, að lýsa yfir því,
að það datt ofan yfir mig þegar jeg sá að al-