Þjóðólfur - 07.11.1885, Side 1

Þjóðólfur - 07.11.1885, Side 1
Kemr út á- laugardagsmorgna. Yerð árg. 4 kr. (erlendis 5 kr.). Borgist fyrir 15. júlí. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komi til út- gefanda fyrir 1. október. ÞJOÐÓLFR. XXXYII. árg. Rcykjavík, laugardaginn 7. nóvemker 1885. X:o 43. POLITÍK St.jórn arskrár-pistil 1, til séraÞor- kels Bjarnasonar, frá Ritstjóra Þjóð- ólfs. — Góði vin! — í síðasta nr. þessa blaðs hefir þú sent Friðbirni á Eyri pistil út af ummælum hans um þig og stjórnarmálið á síðasta þingi. Eg og Friðbjörn erum nú, eins og þú veizt, sitt hvað, og er mér að því leyti óskylt að vera að svara fyrir hann. En hann á ekki heima hér í bæ, heldr nokkuð langt í burtu, og hins vegar þykir mér sumt svo skakt í grein þinni, að ég álít skaðlegt, að það breiðist lengi út ómótmælt og óhrakið. E>ú getr þessu nærri eftir framkomu minni bæði hér í blaðinu og á alþingi, og tekr mér því varla illa upp, þótt ég reyni að hrekja skoðun þína, úr því að ég álít hana ranga og skaðlega. Fúslega skal jeg kannast við það, að mér líkuðu ekki þessi orð Friðbjarn- ar: „llla fór Þork. Bj. í stjórnarskrár- málinu“. Hefði ég stílað grein Frið- bjarnar, þá hefði ég sagt: „grátlegt var að vita, hve svo samvizkusamr og annars skýr maðr, eins og séra Þ. Bj. er, gat blindazt í sumar í stjórnarskrár- rnálinu". Þetta hefði ég sagt, því að það var hjartans sannfærning mín. Þá er sagt er, að einhverjum „fari illa“, þá liggr í því ásökun um, að hann gjöri annað, en hann hyggr sjálfr rétt vera. Það hefði mér ekki dottið í hug, að eigna þér. En hitt er ég eins sann- færðr um, að þér missýnist hrapar- lega í máli þessu. Þetta tel ég grát- legt. Það er því sorglegra í mínum augum, sem ég álít þig nýtari þing- mann — og ég álít þig mjög nýtan þing- mann. Samdóma er ég þér um það, að þingmaðr eigi að greiða atkvæði eftir sinni sannfæring, en ekki kjósenda sinna í hverju því máli, sem hann hefir fasta sannfæring í. Þó álít ég hitt engan glæp, að greiða atkvæði eftir því, sem þingmaðr er viss um að er eindregin og föst sannfæring alls þorra kjósenda hans. Það getr hugsazt það mál, að þingmaðrinn að vísu hafi gagnstæða skoðun kjósendum sínum, en þykist hins vegar verða að álíta, að hávaði þeirra hafi ef til vill betr vit á því máli, sem þá er um að ræða, og álíti réttara að meta skoðun þeirra meira en sína. Það hafa margir vitringar, miklu meiri menn, en allir vér, sem á alþingi höfum setið í sumar, fylgt fram þessari skoðun og talið mörg rök, og sum mjög sennileg, fyrir henni. Eg get ekki sagt að ég hafi þessa skoðun, heldr er ég samdóma þér um, að þing- maðr eigi að fara eftir sinni skoðun; en ekki dettr mér í hug að telja þá glæpamönnum næsta, sem hafa kynnu hina skoðunina og fylgja henni í verk- inu. En ef ég væri sannfærðr um, að allr þorri kjósenda minna hafi gagnstæða skoðun mér í máli, sem þeir álíta eitt ið þýðingarmesta velferðarmál, þá gæti samvizka mín ekki leyft mér að vera þingmaðr þeirra lengr, ef þeim hefði ekki verið skoðun mín á því máli kunn áðr en þeir kusu mig. Þættist ég hafa ástæðu til að ætla, að svona stæði á, þá legði ég óðara niðr umboð mitt sem þingmaðr, skýrði þeim frá skoðun minni og byði mig svo aftr fram á ný til kosninga, svo að kjósendr mínir ættu kost á að skera úr, hvort þeim þætti meira í varið: þýðing þessa máls, eða þingmannskosti mína að öðru leyti. Svo skulum við tala um stjórnar- skrár-málið. Þú segist álíta „nauðsyn- lega þá breytingu, að við fáum sér- stakan ráðgjafa fyrir ísland, helzt ís- lenzkan mann, sem mætir á þinginu og hefir ábyrgð fyrir því“. Þetta heldr þú „geti nægt fyrst um sinn ?“ — Hvaða breyting er nú þetta? Sérstakan ráð- gjafa höfum við; hann heitir Nellemann, sem stendr, eins og þú veizt. Þótt hann hafi dómsmálaráðaneyti Dana á höndum, þá er það laust við störf hans sem ráðgjafa íslands; hann er íslands sérstaki ráðgjafi; mál vor heyra undir engan annan ráðgjafa en hann. Þú vilt helzt að ráðgjafinn væri íslenzkr. Það er ósk þín, en þú álítr þó ekki að það sé nauðsyrilegt skilyrði að svo sé. Það er því engin breyting. Þú vilt að ráðgjafinn hafi ábyrgð gegn al- þingi. Sláðu upp 3. gr. stjórnarskrár- innar, góði vin; þar sérðu undir eins, að ráðgjafinn hefir ábyrgð fyrir al- þingi — á pappírnum. Þetta er þá engin breyting. Öll sú breyting, sem þú álítr nauðsynlega, er þá það, að ráðgjafinn mœti á alþingi. En til þess hefir ráðgjafinn fult leyfi eftir 34. gr. stjórnarskrárinnar. f Danmörku liafa ráðgjafarnir að eins leyfi til að mæta á þingi (grl. 59. gr.), en enga skyldu. Og svo er í flestum löndum. Ef það er nokkar breyting, sem þú vilt hafa í þessu, þá yrði liún að vera sú, að ráð- gjafinn yrði skyldaðr til nauðugr, vilj- ugr að mæta á alþingi. Er það mein- ingin ? Viljugan mun þó hvern bezt að kaupa. Hvað ætli við værum nær þótt við fengjum karlfauskinn hann gamla Nelle- mann upp hingað á alþing? Hann skildi ekki okkr og við ekki hann. Þá getr hann eins vel „stungið al í vegg“ eins og í þjóðsögunum segir, og látið okkr tala við alinn sina. Og þá er herra Bergr Thorberg eins góðr og hver annar alr. Yið hann getr þó ráðgjafinn sagt, eins og í sögunum stendr: „svaraðu fyrir mig, alrminn, ef mérliggrá!“ — Við þekkjum þau goðasvör. En við skulum gjöra betr. Yið skul- um ímynda okkr að við fengjum ís- lending fyrir ráðgjafa, sem æli allan sinn aldr í Kaupmannahöfn, nema hvað hann skryppi hingað upp í hundadög- unum annað hvort ár. Við skulum í- mynda okkr að gamli Oddgeir Stephen- sen lifði og væri orðinn ráðgjafi ís- lands. Heldr þú sannarlega, góði vin, að hann mundi hafa orðið annar maðr

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.