Þjóðólfur - 05.02.1886, Síða 3

Þjóðólfur - 05.02.1886, Síða 3
1 _______________________________________________ I j sveitum, þar sem kvikfj árrækt er einna ófullkomnust, ætti t. a. m. að koma í fyrir á þeim stöðum í Suðurþingeyj- arsýslu, þar sem hún er bezt stund- uð, og má einkum tilnefna Bárðardal, þar sem hún stendur á jöfnustu stigi. Þar sem túnrækt er að sínu leyti einna mest ábótavant, þá ætti að koma piltum þaðan fyrir á þeim stöðum, sem túnrækt stendur fremst; en til jafnaðar er hún bezt í Svínavatns- hreppi í Húnavatnssýslu. Ef piltar vildu verja tveim árum til þessa, sem væri hentugast, þá þyrftu þeir að skipta um staði einu sinni, og yrðu menn þá síðara árið, að sjá svo til, að hverjum pilti væri útvegaður sá staður, er hefði það til að bera, sem hinn fyrra vantaði. Engjaveitur og afræsla væri hentast að læra þannig, að piltar, sem vildu taka þátt í þeim, væru látnir vinna stöðugt tíma úr sumrinu með góðum búfræðingum, sem væru við þann starfa. Það væri líka hagur að því, að hafa einlægt sömu mennina, þvi að þegar þeir venj- ast verkinu, vinna þeir bæði meira og betur, en óvanir menn. Einnig er það ófært, að halda búfræðinga eða verkstjóra, sem eru mjög kaup- dýrir, og láta þá vinna eina, eða með örfáum , mönnum, sinum i hvert sinn, þvi að þá vinnst lítið, vinnan verður mjög dýr, og fáir eða eng- ir læra hana. Það er því leiðinlegt að sjá, > hvað dagsverkatalan er lág í skýrslum þeim, > sem þeir búfræðingar hafa gefið, sem hafa unn- ■ ið undir umsjón búnaðarfjelags Suður- ogYest- uramtsins. En því miður mun slikt viðar við brenna, þó að það sje ekki eins kunnugt, þar eð það er eigi birt á prenti. Fyrst í stað er að búast við, að búnaðarfje- lögin eða þá einstakir menn, Verði að hafa fyrir þvi, að útvega pilta, á meðan menn skilja eigi almennt þýðingu þessa atriðis. En ef piltar [ finna sjálfir hvöt hjá sjer, væri hentast, að þeir , sæktu um staði í gegnum búnáðarfjelögiu. Ef þessu væri haganlega fyrirkomið, svo að þeir menn, sem tækju piltana, hefðu fulla þörf fyrir þá, ættu þeir að geta fengið hjer um bil 1 vanalegt kaup. Hið sama gildir og um þá pilta, sem vinna tíma að sumrinu undir umsjón búfræðinga; því að það væri, eins og áður er á vikið, betra, að hafa þá, þegar þeir fara að venjast vinnunni, en óvana menn. Kostnaðurinn verður því eigi annar en sá, sem leiðir af milliferðunum. Ef einhverjir pilt- ar væru samt svo fátækir, að þeir gætu eigi kostað ferðirnar, þá væri fagurt af búnaðarfje- lögunum, að styrkja þá til þeirra. Einkum > ber jeg bezt traust til búnaðarfjelags Suður- og Vesturamtsins, þvi að það hefur mest fje til umráða, og heíur einnig sýnt, að það er fúst á að lijálpa þeim, sem hafa stundað búfræðisnám. Þótt jeg álíti þennan veg, sem jeg hef bent bggja beinast fyrir, og þaun, er fyrst ætti að taka; þá er það eigi svo að skilja, að mjer virðist eigi einnig mjög heppilegt, að boði landbúnaðarfjelagsins verði sinnt. Til þeirrar ferðar munu bezt fallnir þeir menn, sem búnir eru að fá nokkra almenna menntun, og sem hafa verið við vinnu æði víða á landinu, að þeir sjeu svo gamlir, að skoðanir þeirra liafi haft fullan þroska hin síðustu árin; og að þeir sjeu duglegir, en þó gætnir og vel hagsýnir. Þessa kosti mundu engir fremur liafa til að bera en þeir, sem hefðu notið þessarar inn- lendu búnaðarkennslu, sem jeg hef talað um hjer að framan, og væru þeir því bezt fallnir til þessarar farar til Noregs. Að skipta um staði og vera víða hefur mikið gott í för með sjer. Ætið sjer eða heyrir mað- ur eitthvað nýtt, og það er að mörgu leyti satt, að „heimskt er heimalið barn“. Mikið gagn getur því leitt af því, að skipta hjer um sveitir og landsfjórðunga, og dvelja nokkurn tíma á hverjum stað; því varla finnst það sveitarfjelag, sem ekki megi eitthvað læra af. Það er t. a. m. illa látið af búnaðarliáttum i Skaptafellssýslum, en þar á móti er talið, að Skaptfellingar sjeu jafnbeztir lestamenn á land- inu. Einkum hafa menn þó mikil not af að sigla til útlanda; því að þar má svo að orði kveða, að allt af beri nýtt. og nýtt fyrir augu og eyru. Og í fáu er meiri lærdómur falinn, en að þurfa einmani að berjast fyrir tilverunni í framandi landi. Jeg viðurkenni einnig, að margt er þar hægt að læra, sem hefur þýðing fyrir mann, þótt hann eigi að ala allan sinn aldur hjer á landi. En einkum vil jeg þó benda á eitt, þar sem vjer íslendingar stöndum mjög að baki allra menntaðra og siðaðra þjóða, en það er það, að kunna að stjórna, og kunna að hlýða. Yankunnátta í þessu er eitt af vor- um stærstu þjóðarmeinum, og hin brýnasta nauðsyn væri að ráða bót á því. Erlendis sjer maður, hvað er regluleg stjórn, hvaða þýðingu hún hefur, og hvað við liggur, ef hennar er eigi gætt. Þar sjest einnig, hvað það kostar, ef hlýðnisskyldunnar er eigi gætt við rjettláta stjórn betur, en hjer á sjer víðast hvar stað. Jeg vil eigi láta þetta málefni taka upp meira rúm í blaðinu, á meðan jeg veit ekki, hvort nokkrir vilja sinna því; en ef jeg sæi, að því byrjaði vel, þá mundi jeg verða fús á, að láta síðar í ljósi, hvaða fyrirkomulag jeg áliti hentugast við þessa verklegu búnaðar- keunslu fyrir Islendinga á tslandi. Nokkrar athugasemdir við sveitar- stjórnarlögiu. (Frh.). Af þvi sem nú hefur verið sagt, getur engum dulizt, að sveitarstjórnarlögin þurfa um- hóta við. Hið fyrsta skilyrði fyrir góðri svejtar- stjórn er, að menn sjeu ekki þvingaðir til að ve}'a í henni, hvort sem þeir geta það eða ekki, og það án nokkurs endurgjalds; en að hinu leytinu geng jeg út frá því sem sjálfsögðu, að peninga muni vanta, til að launa með hrepps- nefndaroddvitana; þeir eru lika flestir lítt menntaðir alþýðumenn, sem þinginu mundi þykja varlegt að setja á föst laun; enstjórnin hefur ekki ætíð verið mjög mótfallin því að sameina embætti, þegar svo hefur borið undir. Er þá ekki mögulegt að sameina þetta oddvita- starf við annað embætti? Jeg vil segja, að hvergi standi betur á því en hjer, þar sem hreppsstjóri er i hverjum hreppi. Það var annars merkilegt, að þegar ljett var á hrepp- sfjórunum miklu af störfum þeirra, þá fyrst voru þeir settir á föst laun, og þótt þau sjeu, eins og allir vita, ekki nema fáar krónur, hafa þau gjört það að verkum, að síðan þau voru lögboðin, hefur ekki verið nein vöntun á hrepp- stjórum, sem mikið kvað að áður. Það er auð- vitað, að laun hreppstjóranna eru oflá, ef á þá væri bætt oddvitastörfunum; en vort háa alþingi hefur ekki ætið verið á móti því að hækka laun embættismanna. Jeg verð því að hafa þá von, að þingið álíti sanngjarnt að bæta nokkuðlaun hreppstjóranna, ef störf þeirra yrðu aukin. Til grundvallar fyrir launum þeirra, eru lögð ábúðarhundruðin, þannig, að hrepp- stjóri fær 1 kr. (eina krónu) fyrir livern bú- anda, sem býr á 5 hd., en ekkert fyrir þá, sem búa á minni jarðarparti. Væri nú tala heim- ila í hverjum hreppi lögð til grundvallar fyrir launum hreppstjóranna, þannig, að þeir fengju eina krónu fyrir hvert, myndi það auka gjöld landsjóðs um full þrjú þúsund krónur á ári. í góðu árferði myndi ekki fjár- laganefnd þingsins að undanförnu hafa vaxið þessi upphæð mjög í augum, hefði Verið beðið um hana handa hinum æðri embættismönnum. Jeg efast lieldur ekki um, að margir þingmenn mynduverða því meðmæltir, þar eð sumir þeirra hljóta af reynslunni að vera sannfærðir um, að með þessu móti kynni að fást meiri trygging fyrir farsælli sveitarstjðrn. Það bötnuðu að visu ekki kjör hreppstjóra að ]>ví skapi, sem störf þeirra aukast, því að til sveita mundu laun þeirra standa hjer um bil við sama, en í sveit.ahreppum er að mínu áliti sveitarstjórnin nokkuð auðveldari, en í hinum mannmörgu sjáv- arhreppum, og þess vegna kæmist meiri jöfn- uður á með því', að leggja heimilin til grund- vallar fyrir hreppstjóralaununum, heldur en þessi fimm jarðarhundruð, þar eð margir i sjávar- hreppunum búa á minna en fimm hdr., að ó- gleymdum þurrabúðarmönnum, sem ekki eru alveg þýðingarlausir, að minnsta kosti þegar hallæri dyuur yfir. Menn kunna að segja, að lítil trygging sje fyrir þvij__ að hreppstjórinn sje færari til að gegna oddvitastörfum, heldur en sumir aðrir hreppsbúar; en hjer til liggur fyrst það svar. Hreppstjórar eru skipaðir af amtsráði eptir til- lögum sýslunefnda, þannig að sýslunefndin til- neftiir þrjá menn úr hreppnnm og velur svo amtsráðið einn af þeim; það er því óefað, að hjer hljóta að verða fyrir vali þeir, sem liæfastir eru. Einnig er vonandi, að með því að gjöra hreppstjórunum að skyldu 'að gegna oddvitastörfum fengist nokkur trygging fyrir því, að sami maðurinn hefði það á höndum nokkuð langan tíma, þvi að það er eitt af því skaðlega, sem leiðir af þvi fyrirkomulagi, sem nú er, hvað opt verða mannaskipti við þau störf, sem mest. riður á í hreppsnefndinni, því

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.