Þjóðólfur - 26.02.1886, Síða 4

Þjóðólfur - 26.02.1886, Síða 4
33 En })á gjörði suðaustanhríð. Yorum við ])á ofaustarlega; hjeldum ]iví vestur með Strútnum og ætluðum að hitta skarðið milli lians og Eiriksjökuls; en gátum ekki sakir dimmviðurs. Kom þá villa ylir okkur. Um kveldið koitium við í Hallmundarhraun og vorum ]iar um nótt- ina i snjóhúsi. 28. var logndrifa og dimmvið- ur. Yorum við á gangi í hrauninu ]>aun dag, og vorum i snjóhúsi um nóttina. 29. var sama veður; og fór á sömu leið, sem daginn áður. Undir kveldið komumst við úr hrauninu. Hitt- um við þá stóran klofstein, sem luktist saman að ofan; hlóðum við snjó í báða enda hans, og vorum í þessu húsi um nóttina. Að morgni hins 5. dags (30. jan.) var sama veður. Þann dag komumst við í hraunið aptur og vorum þar í snjóhúsi um nóttina. Hinn 6. dag (31. jan.) var þoka, er sveif frá öðru hverju, svo að sá til jökla. Tókum við þá stefnu frá jöklun- um, gengum þann dag aljan, hittum að kveldi stóran stein, og bjuggum okkur til snjóhús í skjóli við hann. Nú lukum við við þann forða, sem við höfðum, vorum blautir, sifjaðir og hálf- svangir, en þó tók þorstinn út yíir allt. Hinn 7. dag (1. febr.) var veður bjart. Hjeldum við þá í sömu átt, sem daginn áður, og er við höfðum gengið svo sem tvo tíma, hittum við á, og með henni gengum við allan daginn. Að kveldi bjuggum við um okkur á sama hátt, sem fyr, og hjeldum, að við þyrftum ekki að liafa fyrir því optar. Hinn 8. dag (2. febr.) var frost og hreinviður; stokkfrusu þá fötin utan um okkur. Hefðum við ekki haft skiði, hefðum við ekkert komizt áfram fyrir ófærð. Hjeldum við með ánni eins óg daginn áður og eptir svo sem 3 tíma fundum við seltóptir. Þegar við höfðum enn gengið kipp korn, sáurn við bæ. Urðum við þá fegnir og ioíuðum guð af heilum hug. Yið fórum heim að bæ þessum. Var það Örnólfsdalur i Þverárhlið, og áin, sem við fórum lengst með, heitir Kjarará. Þegar við komum að bæ þessum, var kl. 2. Var'okk- ur vel tekið. Fórum við þegar úr og ofan í vatn, og stóðum í því í 8 tíma. Vorum við að mestu óskemmdir. Á 3. degi þar frá fór- um við ofan að Norðtungu, og var okkur fylgt þangað. Þar var okkur tekið mætavel og okk- ur leitað læknishjálpar. Vorum við þar í 9 daga:‘. A. Þ. G. Þ Reykjavík 26. febr. 1886. Tiðarfar liefur hina síðustu viku verið hag- stætt hjer syðra, því að nú hefur komið hláka, svo að jörð er komin upp í lásveitum, en ekki upp til heiða og fjalla; enda er það varla von, þvi að snjórinn er fjarska mikill. Að norðan nýjustu frjettir úr Svinavatns- hreppi 15. þ. m.: „Jarðbönn yfir allt og snjó- þyngsli ógurleg, enda hefur varla linnt hríðum og snjökomu síðan um jól. Útlit fyrir hey- þröng, ef þessu heldur lengi, Á verzlunarstöð- unum í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum er matvara þrotin, nema í verzlun Höepfners á Blönduós og Skagaströnd. Hafis mikill kom- inn að landi, en eigi orðinn landfastur innst á Húnalióa11. Vestanpóstur kom í fyrra kveld. Meðhon- um frjettust sömu harðindin um allt vesturland. Bjargræðisskortur víðast hvar, einkum i Snæ- fellsnessýslu. Fiskiafli allgóður i ísafjarðardjúpi. Hitt og þetta. * —0— í Ameríku eru konum kenndar fagrar listir og nytsamar. í kvennaskólanum í Cincinnati er stúlkum kennt að sofa snoturlega. Það er kona, sem þá grein kennir. Hún segir svo: \ „Stúlkur eiga ætíð að vera svo snotrar og lag- I legar, sem verða má. Þvi hef jeg tekið það fyrir, að kenna þeim að sofa snoturlega. Marg- ar konur hafa þann ávana, að sofa með opnum munni, en af þvi leiðir, að þær hrjóta, en það þykir mjer fara konum miður vel. Jeg kenni stúlkum mínum að láta munninn laglega aptur, áður en þær fara að sofa, og er ekkert á móti, að þær hafi spegil við höndina, til að sjá hvern- ig þær hafa gjört það; þær mega ekki hafa höfuðið langt upp á koddanum, því að þá er hætt við, að munnurinn opnist í svefninum. Jeg læt þær vera í laglegum náttfötum, og hárið má ekki vera bundið í hntit. Jeg vil, að þær sæmi sjer að öllu leyti eins vel í rúminu á nóttum, eins og á ferli um daga. Það get- ur verið, að þeim veiti erfitt að fylgja boðum minum fyrst í stað, en það kemst fljótt upp í vana“. —:o:— Við próf. Kennarinn: „Eruð þjer i nokkr- ■ um vandræðum með spurninguna?11 Lærisveinn- ] inn: „Sussu nei, hún er ljós og skiljanleg; það j er að eins svarið, sem kemur mjer í vandræði.“ Fyrrum og nú. Móðirin: „Þarna gengur herra X“. Dóttirin: „Hvað varðar mig um hann, horngrýtis dónann þann arna?“. Móðirin: „Hvaða ósköp er að heyra til þín. í fyrra leizt þjer svo dæmalaust vel á hann“. Dótt- irin: „Já, en þá var hann ókvæntur“. AUGLÝSINGAR 1 samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.) hvert orð 15 stafa frekast; m. öðru letri eða setning 1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út i hönd. J»ar eð jeg hef samið við herra konsul G. Finnbogasen um bryggju og uppskipun á vör- um mínum framvegis, þá fyrirbýð jeg strang- lega hjer með öllum öðrum, er sækja eða láta sækja vörur í póstskipið, að taka vörur mín- ar í land, nema þeir afhendi þær á Fischers bryggju. Mín rnerki, sem ekki eru alþekkt, mun jeg frainvísa við skipkomuna. Reykjavík 25. febr. 1886. V. Breiðfjörð. CSrott lítið harmoníum er til sölu fyrir að eins 80 kr. Ritstjóri Þjóðólfs vísar á seljandann. Til almennings! Læknisaðvörun. Þess hefir veriö óskaö, að ég segði álit mitt um b„itters-essentsu, sem hr. C. A. Nissen hefir búið til og nýlega tekið að selja á íslandi og kallar Brama-lífs-essents. Eg hefi komizt yfir eitt glas af vökva fiessum. Ég verð að segja, að nafnið Brama-lífs-essents er mjög villandi fiar eð essents þessi er með öllu ólikr inum ?kt.a Brama-lifs-elixir frá hr. Mansfeld-Búllner & Lassen, og því eigi geti haft þá eiginlegleika, sem ágæta inn ekta. Þar eð ég um mörg ár hefi haft tækifæri til að sjá áhrii ýmsra bittera, en jafnan komizt að raun um, að Brama-lifs-eliooir frá Mansfeld-Búllner & Lassen er kostábeztr, get eg ekki nógsamlega mælt fram með honum einam, umfram öll önnr bitterefni, sem ágætu meltingarlyfi. Kaupmannahöfn 30. júlí 1884. E. J. Melchior, læknir. Einkenni ins óekta er nafnið C. A. Nissen á glas- inu og miðanum. Einkenni á vorum eina ekta Brama-lifs-eliocir eru flrmamerki vort á glasinu, og á merki-skildinum á miðanum sézt blátt ljón og gullhani, og innsigli vort MB k L í grænu lakki er á tappanum. Mansfeld-Bullner & Lassen, sem einir búatil inn verðlaunaða Brama-lifselixir. Kaupmannahöfn._________________ Eigandi og ábyrgðarmaður: Þorleifur Jónsson, cand. phil. Skrifstofa: á Bakarastíg við hornið á Ingólfsstræti. Prentari: Sigm. Guðmundsson.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.