Þjóðólfur


Þjóðólfur - 10.06.1887, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 10.06.1887, Qupperneq 1
Kemur út á föstudags- morgna. Verö árg. (60 arka) 4 kr.(erlendis5 kr.). Borgist fyrir 15. júlí. ÞJÓÐÓLFUR. Uppsögn (skrifleg) bund- in við áramót. ógild nema komi til útgefanda fyr- ir 1. október. XXXIX. árg. Reykjavík, föstudaginii 10. júní 1887. Xr. 24. Atvinnubrestur og tóvinnuvjelar. —:0:— (Niðurl.). Reynsla Magnúsar á Hall- dórsstöðum á tóvinnuvjelunum og áætl- anir hans, sem hann hefur' miðað við reynslu sína, gefa mönnum hugmynd um, að ómetanlegur hagur væri að geta unnið sem mest af ull landsins á þennan hátt. Það er tvennt sem vinnst við það ; í fyrsta lagi aukning atvinnu og í öðru lagi meiri arður af ullinni en nú gerist. Skilyrði fyrir þessu, einkum hinu síðara, er þó. að markað- ur fáist og viðhaldist fyrir bandið. Hvort svo yrði, eða hversu góður mark- aður fæst fyrir bandið erlendis, er eigi auðið að segja, en þó bendir margt á, að eigi þurfi að bera kvíðboga fyrir því1, enda fjekk Magnús viðunanlega góðan markað fyrir það síðastliðið ár. Innanlands mætti og bæði útvega og auka markaðinn, eins og síðar verður bent á. Enn þótt markaðurinn yrði eigi betri enn svo, að einungis allur tilkostnaður fengist borgaður, væri á- vinningurinn samt ómetanlegur af því að hafa atvinnuna við tóvinnuna. Til þess að hafa vísan markað þyrfti einn- ig að vera ein dúkverksmiðja í landinu, sem tæki við af liinum smærri tóvinnu- vjelum og gætu unnið það, sem landið þyrfti með af vefnaðarvöru, svo að það væri sjálfstætt í þeirri grein og jafnvel gæti flutt út, dúkvörur. ,En til þess er engar líkur í bráð. Það, sem menn ættu að geta gert, er að koma upp að minsta kosti í Iiverri sýslu eða víðar einni tóvinnustofnun líkri þeirri á Halldórsstöðum. Ættu sýslunefndir og bæjarstjórnir að hlut,- ast til um, að einhver einstakur mað- ur tæki að sjer að koma henni á fót, og jafnframt útvega honum fje að láni til þess og standa í ábyrgð fyrir því. 1) Sbr. ritgjörð Kristjáns Jónassonar í And- vara 1886, bls. 110. Landsjóður ætti að veita lánið. Á sama hátt ætti að styðja einstaka menn til að fá sjer handspunavjelar, er nágrann- ar gætu notað í fjelagi, svo og hent- ugustu vefstóla., sem hvorttveggja ætti að vera sem víðast. Ekkert af þessu ætti mönnum að vera ofvaxið. Með þessu ættu menn að geta tætt utan á sig, svo að þeir jiyrftu eigi að vera að kaupa slíkt frá útlöndum. Á þennan hátt mætti útvega og auka markað inn- anlands fyrir tóvinnuvörurnar. Það er hörmulegt til þess að vita, að íslend- ingar skuli selja ullina með mjög lágu verði út úr landinu, en kaupa útlend fataefni, og sitja svo vinnulausir eða vinnulitlir heima og eiga sí og æ í basli og bágindum. Það sýnist ekki vera mikill búhnykkur. Þetta mál er næsta þýðingarmikið og gefur ekki síð- ur sjávarmanninum- en sveitamanninum alvarlegt efni til umhugsunar, því að sjávarmaðurinn ætti að geta fengið ull- ina hjá sveitamanninum fyrir sjómeti og þannig komizt á tóvinna í stærri stýl við sjóinn, sem menn gætu gripið í, þegar eigi gefur að stunda sjóinn. Að vísu ættu kembivjelarnar, hvar sem þær væru, að liafa nóg að gera allt árið um kring, en handspunavjel- arnar og vefstólarnir, sem ættu að vera sem víðast og fá ullina undirbúna frá kembivjelunum, þyrfti ekki stöðugt að vera i gangi, heldur t. a. m. við sjóinn að eins þá tíma, sem menn gætu eigi varið til sjósókna og annara starfa við sjávarútveginn, og í sveitunum á sinn máta, þá tíma, sem eigi þyrfti til landvinnunnar og peningshirðingar. Á Nauteyri á Langadalsströnd fyrir vestan liéfur verið komið á fót tóvinnu- stofnun, sem hefur eigi borið tilætlað- an ávöxt, en oss furðar á, að svo lief- ur farið, þar sem Magnúsi á Halldórs- stöðum hefur tekizt svona vel með sína stofnun, þrátt fyrir megna mótspyrnu og tregðu landstjórnarinnar til að styrkja þetta íyrirtæki, því aðþað, sem heppnast vel á Halldórsstöðum, ætti og með sömu forsjálni að takast annars staðar. Útlendar frjettir. Khöfn 27. mal 1887 Vcrkfallið í Bélgíu. í fyrra í marz- mánuði var verkfall og uppreisn í Belg- íu og var sefað með blóðsúthellingum. Nú (í maí) bryddir á því sama aptur. Eitthvað hlýtur að vera að, þegar þetta verður ár eptir ár og það er heldur ekki ofsögum sagt af eymdinni þar í landi. Margir tugir þúsunda af fólki lifir þar í kolanámum og verksmiðjum ævi, sem er verri en hundalíf. Fyrir að vinna eins og hestar liðlangan dag- inn og sjá ekki sól fær karlmaður þar 93 aura á dag. Þegar nú fjölskylda á að lifa af þessu líka, þá má nærri geta, að hart er við að búa. Æsinga- menn telja um fyrir þeim og þeir lesa ekki annað en bækling eptir Défuisseaux, sem heitir „Katekismus þjóðarinnar“ og brýnir fyrir þeim rjettindi þeirra og úthúðar böðlum þeirra. Þegar ofan á þetta bétist að stjórnin leggur tolla á og hækkar tolla á innflutning kjöts og korns, svo það hækkar í verði, þá er ekki að undra, þótt þessir menn rísi gegn þessu. Þeir mættu vera englar, ef þeir ekki gerðu það. Þeir fara í stórhópum um landið og segja: við vilj- um heldur láta skjóta okkur, en svelta. Þeir neyða þá, sem halda áframvinnu, til að hætta, og kríta með stóru letri áhúsin: „lifi verkfallið“. Hersveitir með hlaðnar byssur eru á vakki og Belgakongur þarf víst, að halda á öllu herliði sínu, ef vel á að vera. Það verður óskemtileg hvítasunna þar suð- ur frá, því enginn er óhultur um líf og limi. Yms tilræði hafa verið gerð

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.