Þjóðólfur - 10.06.1887, Síða 2

Þjóðólfur - 10.06.1887, Síða 2
94 að sprengja hús og brýr í lopt upp með dýnamit og sum af þeim heppnast. Það er í orði, að stjórnin muni senda eitt- hvað aí þeim til Ameríku. Evrópu- flutningar til Bandarikjanna hafa verið svo miklir á þessu ári, að menn búast þar við 1 milljón manns í ár, ef þeir halda áfram að sama skapi. Til dæm- is skal jeg nefna, að á mánuðunum jan. til apríl hafa 86,000 flutzt írá írlandi til Ameríku (59,000 í fyrra á sama tímabili) og flutningarnir fara vaxandi með vorinu. Bandafylkin gleypa enn við, en Kanada ekki lengur. Einn af fulltrúum hennar sagði á nýlendufundi í Lvndúnum um daginn, að hún gæti ekki tekið við fleirum enn 2000 á ári. — Bismark er að bauka við að koma á brennivíns-einokun (einokun á brenni- víngerð og sölu) á Þýzkalandi og vinn- ur tvennt með því: minnkar drykkju- skap og eykur tekjur ríkisins um rúm- ar 100 miljónir króna. f Sviss var brennivínseinokun sámþykkt 15. maí með atkvæðagreiðslu um allt land. Tveir þriðjungar þjóðarinnar greiddu atkvæði með því, enda voru sums stað- ar heilar sveitir flosnaðar upp af drykkju- skap. — Svíakonungur hefur farið fram á við þingið, að 990,000 krónur væri veittar til að reisa honum hesthús. Há- skólinn nýi í Uppsölum, sem var vígð- ur 17. maí, kostaði 1.800,000 krónur, svo ekki gerir konungur hestum sín- um lágt undir höfði. En þegnar hans fara i stórhöpum til Ameríku vegna bjargarskorts. — Viktoría drottning vígði 14. maí stórhýsi mikið, Peoples Place (þjóðhöll- in), í austauverðum Lundúnum. Bygg- ingarsjóðurinn er 18 miljónir króna og mikil samskot bætast þar við. Þessi stórhýsi eru ætluð til þess að fræða, skemmta og gagna verkmönnum og íátæku fólki austan til í Lundúnum, þar sem íuegnið af þeim 5 miljónum borgarbúa býr. ikir eru fyrirlestrar, bókasöfn, náttúrusöfn, náttúrukennsla, böð, skemmtigarðar, söngvar og hljóð- færasláttur. Það er hið stórkostleg- asta mannúðarfyrirtæki í sinni röð. Það er ekki enn þá búið að reisa öll húsin, sem eiga að vera í þessu vold- uga mannvirki. Hugmyndin og fyrir- komulagið er að mestu tekið eptir skáldsögu Walter Besants: AIl Sorts and Conditions of Men, og kom hon- um víst aldrei í hug, að hann mundi fá að sjá skáldsjón sína niðrá jörðunni. Það er önnur hlið af heiminum sem ber meir á og sem snýr að stjórnar- vastri, stríðsbúnaði og pólitik og frá henni verður líka að segja. Frakkar eru Boulanger-lausir og ráðgjafalausir sem stendur. Ráðaneyti Goblets var steypt 17. maí. Sparnaðar eða fjárlaga- nefndin heimtaði sparnað og vildi ekki leggja á nýja skatta.' Þingið var henni samdóma. Tekjur Frakka eruum 3000 miljónir og samt voru útgjöldin 163 miljónum hærri. Allir dýrgripir og öll djásn eptir Frakkakonunga hafa verið seld' við uppboð hæstbjóðendum og seld- úst á meir en 6 miljónir króna, en það er ekki nema krækiber í víti. Síðan 17. mai hefur Grévy rikisstjóri verið að bisast við að fá menn í ráða- neytið, en enginn vill taka að sjer að mynda það. Fyrverandi sendiherra Frakka í Pjetursborg hefur birt nokk- ur brjef og skjöl í frönsku blaði sem sýna, að Bismarck ætlaði móti Frökk- um vorið 1875, því hann var hræddur um að sjer yrði það um megn seinna, en Rússar bönnuðu lionum það. Það er nokkuð líkt ástatt núna, nema hvað Frakkar eru margfalt öflugri en þá. -Þjóðverjar segja: eí Boulanger kemst í ráðaneytið nýja, þá verður bráðum stríð að líkindum; ef hann kemst ekki í það, þá er friðurinn viss. ' — Á Englandi situr írska málið fyrir öllu. írar og Gladstones sinnar tefja fyrir nýju lögunum, sem eiga að kúga írland, með breytingarfrumvörp- um og löngum ræðum. Seinasti fund- urinn fyrir hvítasunnufríið endaði kl. 5 um morguninn. Einn af helztu blaða- mönnum íra, O’Brien (Brjánn), ferðast um Kanada og heldur ræður, en er rnjög illa tekið þar víða. Apturá móti hafa margir fundir verið haldnir í Bandafylkjunum til að mótmæla kúg- unarlögunum. Mikill viðbúnaður til að halda 50 ára stjórnarafmæli Viktoríu. Georg 3. Englakonungur hjelt og 50 ára stjórnarafmæli 1809 og var þá hálf- brjálaður orðinn. — Danir hafa nú safnað 1,133,000 krónum með samskotum til víggirðing- inganna kringum Höfn. Á samskota- listanum eru margir Grænlendingar og hafa flestir þeirra gefið þetta 10—15 aura, en enginn íslendingur sjest á hon- um, sem ekki er að furða sig á. Nýlátinn hjer Suenson, sem var flota- foringi Dana í bardaganum við Helgo- land 9. maí 1864 og vann þar sigur á Austurríkismönnum og Prússum. Hann var jarðaður daginn eptir að jarð- arför Jakobsens fór fram, með mikilli viðhöfn; 12 silfurkransar voru lagðir á kistu hans (4 á Madvígs) og konungur fylgdi þeim báðum til grafar. Madvíg hefur látið eptir sig rit um það, sem drifið hefur á dagana fyrir honum, og er sú bók 371 síða. Hann fellir ýmsa harða dóma, en byggir þá ætíð á rök- um. Friðrik 7. fær hnútur hjá hon- um og hann hefur haft mestu óbeit á gamla Plógi. Bókin lýsir líka mann- inum vel í hans daglega lífi og sýnir, að hann var einstakur ráðvendnis og ágætismaður, oghvergi nærri eins þurr og við mætti búast. Hjer er kominn til borgarinnar fyrir rúmum hálfum mánuði her, sem kall- ast „sáluhjálpar-her“ (Salvation-Army). Það er trúarfjelag, sem liefur alla skip- un upp á hermanna vísu og einkennis- búning. Það herjar móti djöflinum og öllum hans árum og kristnar ómennt- að fólk, sem aldrei kemur í kirkju. Þess vegna er það mark þess fyrst að liæna menn á fundi með skripalátum og siðan að láta dynja yfir j»á synda- og iðrunar-játningar manna sem hafa snúizt. Aðalforinginn heitir Booth og stofnaði fjelagið í London 1879 og þar eru um 40,000 gengnir í það. Hjer í Kliötn er húsfyllir hjá þeim á hverju kveldi. Nýbrunnið mikið leikhús í París, Op- era comitjue; menn vita enn ekki, hvað margir hafa inni brunnið. 60 lík fund- in. flest skrautbúið kvennfólk, en verið að leita enn í rústunum og haldið að

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.