Þjóðólfur - 10.06.1887, Síða 4

Þjóðólfur - 10.06.1887, Síða 4
96 um árið 1860 40 krónur sem verðlaun fyrir frábæran dugnað í landbúnaði. Þessar 40 krónur gaf hann fátœkum dugnaðarmönnum. Næsta ár. 1861, fékk hann í heiðrs skyni silírbikar frá hinu sama félagi. Að Útskálum gerði hann slórkostlegar jarðabœtr og bygði kirkjuna frá stofni með mestu snild og prýði. Barnaskóla bygði hann af sam- skotum, gaf til hans stórfé og stjórnaði honum í 15 ár. Árið 1839 varð hannn 1. sáttanefndarmaðr í Gull- bringusýslu umdœmi, og vóru þau mál. er hann hafði meðferðis sem sáttamaðr, um 350. Þegar hann hafði verið prestr í 50 ár, gáfu söf'nuðir hans honum gullúr og gullhring. góða gripi. og sendu honum þetta bréf með þeim: ‘Söfnuðr yðar minnist þess, herra prestr, að nú er hálí öld liðin, síðan þér frömdnð fyrst guðs- þjónustu hér í þessu prestakalli. Þér haíið þannig, sem fágætt mun vera, eigi að eins ver- ið prestr í 50 ár, heldr þjónað einu og sama kalli alla þessa tíð. Söfnuðir yðar minnast þessa með hrœrðum hjörtum, og þykir oss skyldugt að sýna þess vott, að vér séum þess minnugir, hve. rniklu góðu þér hafið meðal vor til leiðar komið þennan tíma bæði sem sálu- sorgari og meðlimr sveitarfélagsins, með alúð, árvekni og samvizkusemi, með lagi, vitrleik og dugnaði. Vér vilium einnig sýna þess vott, hversu þér hafið að verðugleikum áunnið yðr virðing, ást og þakklæti aílra meðlima safnað- ar yðar og sveitarfélags, með því að Iáta hér með fylgja tvo gripi, er vér hiðjum yðr að þiggja sem sýnilega minningu um tilfinningu sóknarharna yðar gagnvart yðr. Um leið og vér þökkum yðr, herra prestr, fyrir, hvað þér hafið verið sóknarhörnum yðar, sveitarfélagi og náungum, biðjum vér algóðan guð aðblessayðr gleðja alla þá daga, sem þér eigið enn ólif- aða, að blessa elii yðar og gera yðr hana sem gleðirikasta og ánœgjusamasta’. Síðan sendll söfnuðirnir síra Sigurði aðra þrjá gripi, og er þeirra því eigi getið i þessu þakkar-ávarpi. Eins og bent er á í þakkar-ávarpinu, var síra Sigurðr sann- arlegr bjargvættr sveitarfélagsins og gaf stórfé til opinberra stofnana. Hann var góðr kennimaðr, gerði góðar ræður og bar þær skörulega fram. Búskapr hans fór fram með hinni mestu snild; alt á heimili hans bar vott um hagsjhii, liag- nýtui, starfsemi og reglusemi. Hann var einn af þeim fáu mönnum, er sam- eina bókleg störf við frábæran. verk- legan dugnað. Hann var aldrei iðju- laus; hann las eða skrifaði, þegar hann var eigi við búskapinn. Með óþreyt- andi iðni hafði hann aflað sér nákvæm- rar kunnáttu í sögu íslands; einkum var Iiann vel að sér í ættfrœði ogmann- frœði (Personalhistorie). Hann liefir samið eða þýtt og gefíð út ýms rit, og eru nokkur þeirra talin í Erslevs Supp- lement til 'Almindeligt Forfatterlexicon for Kongeriget Danmark’ med tilhörende Bilande III. 189 Kh. 1868. Síðan það bindi var prentað, hefir hann gefið út ýmsa ritlinga. einkum æviminningar. Eins og sira Sigurðr var kominn af hinum göfgustu ættum, eins bar hann á sér sannarlegt höfðingjamót. Hann var fríðr sýnum. hár vexti. fallega vax- inn, svipmikill og fjörlegr. Hann var hýbýlaprúðr, gestrisinn, manna skemti- legastr í viðræðum; manna hreinlynd- astr og hreinskilnastr, ástúðlegasti og tryggvasti vinr vina sinna. Þaðereigi of sagt, að hann hafi verið sómi sinn- ar stéttar og einhver hinn merkasti af kennimönnum þessa lands. AUGLÝSINGAR Kvennaskólinn í Reykjavik. Þeir, sem vilja koma konfirmeruðum, efnilegum yngisstúlkum í kvennaskól- ann næstkomandi vetur (1. okt. til 14. maí), eru beðnir að snúa sjer í þeim efnum til undirskrifaðrar forstöðukonu skólans, eigi seinna en 31. ágúst næst- komandi. Reykjavík 4. júní 1887. Thbra Melsted. 208 William Sloan frá Færeyjum heldur fyrirlestur (á dönsku) á sunnudaginn kemur í Glasgow kl. 7 e. m. 209 Um sameining Klausturhóla- og Mosfells- prestakalla. — Svar til alþingismanns sjera Árna Jónssonar. — (Úr Grímsnesi) — fylgir með þessu nr. til alþingismanna og kaupenda Þjóðólfs í Árnéssýslu. 210 Hús til leigu. Fyrverandi veitingahús „ Uppsalir“ við skóla- vörustíg fæst til leigu frá 1. júli þ. á. til lengri eða skemmri tíma, og getur þvi fylgt all- ur húshúnaður og áhöld, sem til veitinga þarf á að halda; þeir sem vildu veita þessu athygli, snúi sjer til min undirskrifaðs sem fyrst tií þess að semja um leiguna og annað því við- komandi. Reykjavík 9. júní 1887. Egilson. 211 Af því að sykur allt af lækkar í verði utan- lands og verður því svo ódýrt hjer að engin kaupir þaö, þá hef jeg flutt hingað ýmsar sort- ir af sykurblendingi, sem má blanda með syk- urinn svo hann verði keyptur, nefnilega: bú- sykur 0,55, Mokka-sykur 0,40, mynda-sykur 0,36. Þessar sortir af sykri fast hvergi á íslandi nema hjá undirskrifuðum. Reykjavík 7. júni 1887. W. 0. Breiðljörð. 212 ERJK JONSSON Oldnordisk Ordbog er til sölu með MJÖG góðu verði. Ritstj. vísar á. 213 Leiðarvísir til Jífsábyrgðar fæst ó- keypis hjá ritstjórunum og hjá Dr. med. Jón- assen, sem einnig gefur þeim, sem vilja tryg'g)a líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar. ýýý Eptir að jeg árangurslaust hafði leit- að læknisráða í 3 mánuði við vatns- sýki er öðru hverju íór í vöxt og hafði beinverki í för með sjer og sinadrátt i maga og fyrir brjósti, og með því je£ sömuleiðis liafði slím fyrir brjðstimb þá rjeð jeg af, að reyna eitt glas y að reyna eitt glas af Brama-lífs-elixír Mansfeld-Búllner & Lassens, og drakk jeg eptir það daglega fjórðung staups af því. Það er mjer ánægja að geta vottað að jeg er alheill heilsu; og skal jeg því alvarlega ráða mönnum til að kaupa bitter þennan. Örting pr. Odder. Morten Knudsen. múrmeistari. Einkenni á vorwm eina, egta Brama-lífs-el- ixír eru firmamerki vor á glasinu, og á merki- skildinum á miðanum sjest blátt ljón og guU" hani, og innsigli vort MB & L í grænu lakkJ er á tappanum. Mansýeld-Bídlner & Lassen, sem einir btia til hinn verðlaunaða Brama-lífs-elixir■ Kaupmannahöfn. Vinnustofa: Hlörregade No. 6. 216 Grundlagt A M P D i K A Grundlag* 1850 n IVI C. n I A n lg50 PH. HEINSBERGER 138 Lndlow street og 89 Delanc.ey street JVEW-YORIt (U.S.A.). Intnernationalt Kommerce-Bureau for alle kommercielle og private Anliggender. Agentui'i Kommission, Inkasso, Underretnings-Kontor, Abonnement og Annonce-Expedition, Adresse- Bureau. Notarius publicus, Patentkontor, Assu- rance, Depot for Aviser fra alle Lande, Bank og Vexelforretning. Postfrimærker og Tjen- estefrimærker (brugte) sælges og byttes. Brug*e islandske Frimærker modtages mod andre Frimærker,Bibliothek,Bogtrykkeri, Vareudförsel, Korrespondance med alle Verdens Lande. Pns' kurant tilsendes mod indlagt Porto-Betaling 1 Frimærker. Alle Ordrer bör ledsages af et depositum af 7 Francs — 5 Mark — 7 Lh'e — 3 Rubler — 8 Pesetas — 6 Kroner — -*• Shilling-Dollar. Contanter (Postanvisning ellel Banknoter). Modtagelse af Annoncer og Ahon- nement. Deposita modtages paa Thjódólfur8 Expeditionskontor. KORRESPONDANCE: Fransk, Engelsk, Tysk, Hollandsk, Spansk. Denne Annonce maa indrykkes i andre Blale' Eigandi og ábyrgðarmaður JÞorleifur Jðnsson, cand. Skrifstofa: á Bakarstíg. Prentari: Th. Jensen.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.