Þjóðólfur - 25.11.1887, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 25.11.1887, Blaðsíða 2
210 er fœddr á Fjóni 22. nóvember 1787, tók tvítugr examen artium 1807, ferðaðist til Islands 1818, og var hér á landi í tvö ár, 1813—1815. Tók sér 1816 fyrir hendr stóra vísindalega ferð til austrlanda; dvaldist í þeirri ferð lengri eða skemri tíma á ýmsum stöðum: i Stokkhólmi, Pétrsborg, í Persíu og á Indlandi, og kynti sér á þeirri ferð fjölda mála. Kom aftr til Kaupmannahafnar 5. maí 1823; varð professor extraordinarius í bókmenta- sögu við Kaupmannahafnar háskóla 14. maí 1825, bókvörðr við háskól- ann 21. nóv. 1829, professor extraor- dinarius í austrlandamálum 3. desem- ber 1831, andaðist 14. nóv. 1832, 45 ára gamall. Þótt Rask yrði að eins 45 ára gamall, hefir hann starfað ó- trúlega mikið og er án efa einhver hinn mesti og fjölfróðasti málfræð- ingr, er uppi hefir verið á Norðrlönd- um. Yarla mun nokkur maðr hafa fengist við svo mörg mál sem hann og verið svo fljótr sem hann að komast niðr í þeim. Jafnótt og hann kynti sér eitt- hvert mál, dró hann mállýsing út úr því; enda hefir hann ritað mállýsing- ar í ótrúlega mörgum málum og all- ar vel samdar. Eitt mál stundaði og elskaði hann þó mest allra næstmóð- urmáli sínu. Það var íslenskan. Hana reit hann og talaði nálega sem inn- fœddr. Þegar á skólaárum sínum bjó hann sér til íslensk-danska orðbók í tveimr bindum, og er það mein, að hún hefir eigi verið prentuð. Aðr enn Ka.sk fór að semja sínar íslensku mál- lýsingar, var til að eins ein prentuð íslensk mállýsing (eftir Runólf Jóns- son. Kmh. 1651). Rask hefir samið þrjár íslenskar mállýsingar: 1. Vej- ledning til det islandske Sprog. Kh. 1811. 2: Anvisning til Islandskan, Stockholm 1818. Hún er rituð á sœnsku og er stœrst og fullkomnust af hinum ís- lensku mállýsingum hans. 3. Kort- fattet Vejledning til det oldnordiske eller gamle islandske Sprog. Kh. 1832. Þess- ar íslensku mállýsingar hafa stutt ó- segjanlega mikið að því að efla og útbreiða kunnáttu í íslensku eigi að eins í útlöndum, heldr og meðal ís- lendinga sjálfra, því að mjög fáir þeirra munu um þær mundir hafa haft glögga þekkingu á málmyndunum eða kunnað að rita málið með samkvæmni eða eftir föstum reglum. Lestrarkver handa heldri manna börnum, sem Rask samdi og gaf út Kh. 1830, miðaði og til að kenna mönnum að rita málið rétt og eftir föstum reglum. Eitt af ritum Rasks um íslensku er Underso- gelse oni det gamle nordiske éller islandske Sprogs Oprindelse. Kli. 1818, einkar fróð- legt rit, sem mikið má af læra. Af því riti og fleirum ritum Rasks má sjá, að hann þekti hlj'otifœrsluna (die lautverschiebung), enn uppgötvun þess lögmáls er þó eignuð Jacob Grimm. Auk þessa hefir Rask stutt að þekkiugu á íslenskum bókmentum með útgáfu ýmsra íslenskra bóka. Hann útgaf Sæmundar og Snorra Eddu í Stokk- hólmi 1818, Sýnishorn af fornurn og nýjum norrænum ritum í sundrlausri og samfastri ræðu, sst. 1819. Eitt af hinu mörgu góða, er Rask hefir gert íslandi, er stofnun hins íslenska bók- mentafélags. Hann var, sem áðr er sagt, tvö ár á íslandi; ferðaðist hann þá í 2 sumur um mikinn hluta lands- ins og kynti sér málið og siðu og lífernisháttu þjóðarinnar. Á ferðum sínum hér hvatti hann hina helstu menn til að ganga í félagið og styrkja það, og þegar hann var kominn til Kaupmannahafnar, fékk hann danska fróðleiksunnendr til að styrkja það með árlegum gjöfum. Pélagið er tal- ið stofnað árið 1816. Sem stofnendr þess auk Rasks eru taldir Árni Helga- son, Finnr Magnússonog Bjarni Thor- steinsson. Rask studdi og að kunn- áttunni um ísland og fornrit þess með hluttöku sinni í störfum hins Kon- ungl. Norrœna Fornfr.fél. Þannig tók hann þátt í útg. af 1.—3., 6., 7. og 11. bindi afFornmanna sögum, svo ogFæreyinga sögu. Það mun einkum vera Rask, er ráðið hefir stafsetningu á þeim forn- ritum, er hið Norrœna Fornfrœðafé- lag gaf út. Hann hefir yfir höfuð með ritum sínum haft mikil áhrif á nám íslenskrar tungu, og eru þeir Sveinbjörn Egilsson, Konráð Gislason, Jón Sigurðsson og margir fleiri læri- sveinar hans. Hann elskaði Island, íslenska tungu og íslenskar bókment- 'ir og hefir unnið Islandi ómetanlega mikið gagn. Hver sá íslendingr, er ann móðurtungu sinni, mun því geyma nafn hans i þakklátri endrminningu. —n. Fundið sverð upp á öræfum. í fjárleitum haustið 1886 fann Vern- harður Guðmundsson í Haga i Gríms- nesi fornt sverð austnorður af Skjald- breið, en norðvestur frá Hlöðufelli og rjett i austur frá Lambahlíðum, nær norður við Jökulkrók, sem kallaður er. Sverðið lá ofanjarðar alveg bert í flagi með moldbornum sandi, milli tveggja barða. Þetta var norður af svokölluðum Skessubásavegi (sjá ís- lauds stóra uppdrátt). Annar maður sem var í fjallgöngunum, tók að sjer að reiða sverðið niður að tjaldstað, því að Vernharður skildi þar viðhann. En maður þessi skildi sverðið óvart eptir í hraunlaut, þar sem hann áði, og kom því tómhentur í tjaldstað að kveldi, en þeir hjeldu eptir látúns- hólkum af sverðinu, og hafði annar verið utan um það upp við hjöltun, líklega af umgjörðinni, sem var alveg eyði- lögð. — í fyrra vetur kom Vernharð- ur og afhenti mjer hólkana um leið og hann sagði mjer þessa sögu, og hvatti jeg hann mjög að gera tilraun næsta haust að finna sverðið. Er þar skammt frá að segja, að Vernharður 'tók sjer ferð á hendur síðastliðið haust ásamt hinum manninum, og voru þeir þá svo sjerstaklega heppnir að finna sverðið í hraunlautinni alveg með sömu ummerkjum, og var þetta suð- austur af Skjaldbreið, en suðvestur af Hlöðufelli. — í næstliðnum mánuði af- henti Vernharður mjer sverð þetta á Forngripasafnið, og greiddi jeg hon- um fyrir það 14 kr., sem borgun fyr- ir fyrirhöfn hans. — Sverð þetta er furðanlega lítið skemmt, þegar á allt er litið. Það er að vísu nokkuð ryð- jetið með pollum, en heldur þó öllu

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.