Þjóðólfur - 16.12.1887, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 16.12.1887, Blaðsíða 1
Kemur út á föstudags- morgua. Verö árg. (60 arka) 4 kr. (erlendis 5 kr.). Borgist fyiir 15. júlí. ÞJOÐOLFUR. Uppsögn skrifleg. bund- in viö áramót, ógild nema komi til útgefanda fyr- ir 1. október. XXXIX. árg, ReykjaTÍk, í'östudagiim 16. desemlber 1887. Nr. 57. Styrkveitingar til búnaðarfjelaga. Ein af nýungum í fjárlögunum fyr- ir næsta fjárhagstímabil er sú, að til btmaðarfjelaga og Eiðaskóla eru veitt- ar 6000 kr. hvort árið, sem landshöfð- ingi á að úthluta „eptir tillögum sýslu- nefnda og amtsráða". Að Eiðaskól- inn var hafður saman við búnaðar- fjelögin, kom til af því, að þingið í sumar vantaði skýrslur um hann, svo að það sá sjer ekki fært að fastákVeða styrkinn handa honum, eins og hin- urn búnaðarskólunum. Hve mikið Eiðaskólinn fær af þess- um- 6000 kr., er ómögulegt að segja, en það verður þó aidrei svo mikið, að styrkurinn til búnaðarfjelaganna vetði ekki miklu rneiri, en það, sem þau hafa fengið að tmdanförnu úr landssjóði. Búnaðarstyrkinn til sýslufjelaga i færði þingið í sumar niður i 6000 kr. á ári úr 10,000 kr. að undanförnu. Það er ekki vandskilið, hvers vegna þingið hefttr fært þennan styrk nið- ur, en aukið styrkinn til búnaðarfje- laganna. Búnaðarstyrkurinn til sýslufjelag- j anna mun eigi hafa komið alstaðar að tilætluðum notum, og það eru enda dæmi til, að hann hefur alls ekki kom- ið að neinum verulegum notum. Sum- staðar hefur þessi styrkur verið hafð- ur til að launa ferðabúfræðingum, sem farið hafa um sýslurnar til að leið- beina bændum, en þeirra er nú víða síður þörf en áður, þar sem menn era komnir lengst í búnaði t. a. m. viða á Norðurlandi. Þar láta menn sjer ekki nægja nú orðið að fá að sjá bú- fræðing einu sinni eða tvisvar á bæ á sumri og láta hann segja, hvað gera skuii, heldur taka búnaðarfjelögin bú- fræðinga sumarlangt eða þá að vor- inu fram að slætti og láta þá segja fyrir og vinna að jarðab. stöðugt með nokkrum mönnum. Búnaðarstyrkurinn til sýslufjelaga virðist þvi eigi svo nauðsynlegur eða verða að svo mikl- um notum, að hann mætti ekki missa sig. Allt öðru máli er að gegna með styrkinn til búnaðarfjelaganna. Það er sannreynt, að þau geta komið miklu góðu til leiðar, og mun eigi annað kröptugra meða!. en þau til búnaðar- framkvæmda, ef þeim er á annað borð stjórnað vel. Það hefur t. a. m. bún- aðarfjelagið í Svínavatnshreppi sýnt og fleiri búnaðarijelög i Húnavatns- sýslu og víðar norðanlands. Það er þess vegna ákaflega þýðingarmikið, að styrkja búnaðarfjelögin með fje úr landssjóði, og hitt ekki siður, að styrkn- um á að úthluta eptir tillögum sýslu- nefnda; styrkinn verður auðvitað að miða við framkvæmdir hvers fjelags, láta. það hafa mestan styrk, sem mest gerir o. s. frv. Yið það kemttr kapp i fjelögin hvert við annað; öl! vilja náttúrlega fá sent mestan styrk og keppast því við, að framkvæma sem mest. Auk þessa spretta uppnýbún- aðarfjelög, þar sem þau eru ekki áð- ur. Þegar menn í þeim sveitum, þar sem engin búnaðarijelög eru, sjá, að aðrar sveitir fá svo og svo mikinn styrk, getur ekki hjá því farið, að þeir vakni og fari að stofna búnaðar- fjelög. Yjer tölum nú ekki um það, þegar menn sjá, að búskapttr í þeim sveitum, þar sem búnaðarfjelögin eru, er betri en annarstaðar. Allt þetta vekur þá, sem sofa, og uppörfar hina, sem vaknaðir eru. Sumir kunna nú að segja, að fje- lögin geti gefið skýrslur um svo og svo miklar búnaðarframkvæmdir og enda miklu meiri, en þau hafi unnið, án þess hægt sje að að hafa eptirlit með sliku. En það er engin hætta á því. Fyrst og fremst viljum vjer ekki gera stjórnendum búnaðarfj elaganna þvílíkar getsakir að óreyndu, og í öðru lagi getur slikt ekki átt sjer stað til lengdar. Búnaðarijelögin sjálf munu hafa eptirlit hvert með öðru, og einu búnaðarfjelagi mun ekki takast til lengdar, að gefa rangar skýrslur, án þess að annað búnaðarfjelag í ná- grenninu kæmist að því og kæmi því upp. Það er því síður hætt við þessu, sem úthluta skal styrknum „ e p t i r tillögum sýslunefnd a“. Þær eru skipaðar helztu mönnum sýslunn- ar, sem að líkindum eru meira eða minna riðnir við búnaðarfjelögin heima í hreppunum, eru þeim því gagnkunn- ugir, geta því manna bezt dæmt um framkvæmdir þeirra, og borið verð- leika þeirra saman. Næsta ár úthlutar landshöfðingi styrknum til búnaðarfjelaganna eptir áðurnefndum reglum: „eptir tillögum sýslunefnda og amtsráða, með sjer- stöku tilliti til þess, sem afkastað er í hverju fjelagi fyrir sig“ (sjá nefnd- arálit um fjárlagafrumvarpið i neðri deild á síðasta þingi). Það verður þannig að miða styrkinn sjerstaklega við framkvæmdir biinaðarfjelaganna, en liklega verður ekki öðru við kom- ið, en fara eptir framkvæmdum þeirra árið áður en styrknum er úthlutað. Skýrslur um framkvæmdir fjelaganna geta eigi verið tilbúnar fyr en á haust- in. Síðan þurfa sýslunefndir að fjalla um þær á fundi og semja tillögur sinar, senda tillögurnar til amtsráðs, sem einnig þarf að ræða þær og sam- þykkja á fundi, verða þær svo að ganga til landshöfðingja, og allt þetta getur eigi verið komið í kring fyrir hver áramót, þar sem sýslunefndir halda optast fundi sína seinni part vetrar og amtsráð í öndverðum júní- mánuði, en líklega erfitt að koma á aukafundum í sýslunefndum og amts-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.